„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Völva Mannlífs segir okkur hvernig árið 2021 verður – Ár ljóss og skugga

Völva Mannlífs segir okkur hvernig árið 2021 verður – Ár ljóss og skugga

Að ná sam­bandi við völv­una sem Mannlíf taldi að gæti spáð fyrir um kom­andi ár reynd­ist erfitt verk­efni. Lengi stóðu vonir til þess að blaða­maður fengi að hitta völv­una í eigin per­sónu en eftir slitr­ótt sam­skipti var horfið frá því. Völvan var ein­stak­lega treg til þess að skyggn­ast inn í þoku fram­tíðar og greina þar útlínur þess er koma skal á nýju ári. Að lokum varð að sam­komu­lagi að völvan myndi skilja send­ingu eftir handa blaða­manni sem hann mætti vitja á til­teknum stað og tíma.

Stað­ur­inn reynd­ist vera kirkju­garð­ur­inn í Fossvogi, nánar til­tekið við leiði þjóð­þekkts manns sem hér verður ekki nafn­greindur. Þangað fór blaða­maður um mið­nætti á fullu tungli og fann snjáðan pappa­kassa liggj­andi á leið­inu. Kassinn reynd­ist inni­halda fjöl­marga bréfsnepla sem óljósum skila­boðum ásamt tveimur kassettum sem geymdu ógreini­legar upp­tökur af mann­eskju í ein­hvers konar transi. Þessi mann­vera söng og tal­aði á nokkrum tungu­málum góða stund. Stundum var mál hennar skýrt og skipu­legt en á köflum sam­heng­is­lítið.

Blaða­maður hefur eftir bestu getu reynt að ráða í hrafna­spark á gömlum Bónuskvitt­unum og fá þráð í þul­una á seg­ul­band­inu. Það sem hér fer á eftir er spá­dómur völv­unnar um kom­andi ár – eftir því sem næst verður kom­ist.

Ár ljóss og skugga

Árið 2021 verður Íslend­ingum verður ár ljóss og skugga. Margt gengur vorri vol­uðu þjóð til sólar og lífgar nýjar vonir eftir myrkur pestar og inni­lok­unar en árið ber einnig í skauti sér myrka atburði and­byr og mót­læti.

Bólu­setn­ingar á gegn Covid 19 ganga vel og eftir áætlun í þeim efnum og þegar kemur fram yfir páska verður líf þjóð­ar­innar að mestu komið í það sem kalla má hefð­bundið horf. Engar hömlur á ferðum, allar versl­anir og veit­inga­staðir opnir og félags­líf land­ans kemst aftur í eðli­legt horf.

Íslend­ingar gleðj­ast óskap­lega yfir þessu og sér­stak­lega verður félags­lífið líf­legt kringum pásk­ana þegar menn þyrp­ast saman og gera sér glaðan dag. Allir staðir lands­ins sem bjóða upp á eitt­hvað sem teng­ist skíðum verða yfir­fullir og þátt­taka í göngu­skíða­mótum slær öll fyrri met og margar nýjar göngur verða settar á lagg­irnar. Þeir sem færi hafa á ferð­ast til útlanda á skíði en þar er fátt um fína drætti því þegar kemur fram á vorið verða skíða­svæði Evrópu lokuð eftir einn snjó­léttasta og heitasta vetur frá upp­hafi mæl­inga.

Björn tapar hlutverki

Björn Ingi

Þótt fæstir sakni Covid far­ald­urs­ins sér völvan Björn Inga Hrafns­son standa einan og hníp­inn þegar bólu­setn­ingum lýkur. Enginn átti eins glæsta end­ur­komu í sviðs­ljósið eins og hann þegar hann stóð ein­arður vakt­ina á mara­þon­fundum þrí­eyk­is­ins og spurði í þaula fyrir fjöl­miðil sinn Viljann. Björn snýr sér að gerð podcast þátta sem bera yfir­skrift­ina: Þetta er Björn Ingi Hrafns­son frá Viljanum.

Bólusetningarbiðröðin riðlast

Nokkur kurr verður í tengslum við bólu­setn­ingar snemma á árinu þegar upp­skátt verður um los­ara­brag á boðun í bólu­setn­ingu. Einhver brögð eru að því að fólk sem ekki er í áhættu­hópi en er „vel tengt“ inn í íslenskt sam­fé­lag- nánar til­tekið innan heil­brigð­is­kerf­is­ins – getur kom­ist fram fyrir röð­ina. Um þetta hnakk­ríf­ast Íslend­ingar um stund en svo dettur allt í dúna­logn á ný. Völvan sér þjóð­þekktan lækni og nátt­úru­vernd­ar­frömuð nokkuð rjóðan í kinnum á sjón­varps­skjá eftir að hann dregst inn í málið.

Völvan sér þjóð­þekktan lækni og nátt­úru­vernd­ar­frömuð nokkuð rjóðan í kinnum á sjón­varps­skjá eftir að hann dregst inn í málið.

Efnahagur sumra

Að vonum réttir efna­hagur margra við þegar lífið fær­ist í eðli­legt horf eftir Covid. En margir hafa lent úti á jaðri í þeim efna­hags­þreng­ingum sem fylgdu pest­inni. Þess vegna eru skilin milli hinna ríku og fátæku sýni­legri en stundum áður. Mjög margir högn­uð­ust á ástand­inu meðan pestin gekk yfir af marg­vís­legum ástæðum og um leið og hömlum verður aflétt fer stór hópur Íslend­inga að vilja hverfa aftur til fyrri lífs­hátta. Þar eru ferða­lög til útlanda efst á blaði og fyrst um sinn er tak­markað fram­boð af flug­sætum frá land­inu og verð hærra en við áttum almennt að venj­ast fyrir Covid.

Þeir sem hafa efni á að ferð­ast verða fyrri til en aðrir og verða fyrir aðkasti vegna þess. Völvan sér harð­orð mót­mæli vegna þessa ástands og bein­ast þau einkum að Icelandair en mörgum finnst að sú alþýða manna sem bjarg­aði fyr­ir­tæk­inu með óbeinum hætti gegnum líf­eyr­is­sjóða­kerfið í verstu krepp­unni fái litlar þakkir fyrir.

Líf ófæddra lamba

Íslenska sauð­kindin.

Heilsu­far sauð­kind­ar­innar verður tals­vert í fréttum á nýju ári því riðusmit grein­ist á fleiri bæjum í Skaga­firði og nið­ur­skurður heldur áfram af full­komnu mis­kunn­ar­leysi. Að vanda ná þessar fréttir að snerta sér­stakan streng í hjörtum þjóð­ar­innar og á vor­dögum verður efnt til mót­mæla­stöðu á Aust­ur­velli þegar til stendur að skera heila hjörð fjár í Skaga­firði rétt fyrir sauð­burð. Varð­staða um hin ófæddu lömb vekur athygli um heim allan en enga mis­kunn er að finna innan kerf­is­ins sem fer með blik­andi hníf­inn gegn 500 mæðrum á síð­ustu skrefum með­göngu.

Katla gýs

Katla mun gjósa á árinu

Árið 2021 verður ár eld­gosa. Enn einu sinni bein­ast augu heims­byggð­ar­innar að Íslandi þegar móðir allra eld­fjalla, Katla gamla gýs á haust­dögum 2021. Eftir þessu hefur lengi verið beðið en gosið reyn­ist sem betur fer í minna lagi og stendur ekki langan tíma. En því fylgir ösku­fall í háloftum og lok­anir á flug­um­ferð líkt og áður. Umræddu gosi fylgir einnig jök­ul­hlaup sem að þessu sinni er ólíkt öðrum Kötlu­hlaupum því gosið kemur upp svo vest­ar­lega í öskj­unni að hlaupið ryðst fram undan Entu­jökli og kemur niður far­veg Mark­ar­fljóts og þar til sjávar. Þetta vekur gríð­ar­lega athygli jarð­fræð­inga á Íslandi en þetta hefur ekki gerst í um það bil 1500 ár. Fyrir vikið verða stór svæði á Suð­ur­landi rýmd allt vestur að Hvols­velli og reyn­ist ekki van­þörf á því hlaupið flæðir yfir allt lág­lendi sunnan Fljóts­hlíðar og álar úr því fara allt að jaðri þorps­ins á Hvols­velli. Ekkert mann­tjón verður en miklar skemmdir á löndum bænda, sum­ar­bú­stöðum neðst í Fljóts­hlíð, úti­húsum og bæj­ar­húsum í Land­eyjum og vega­kerfið á Suð­ur­landi lætur veru­lega á sjá.

Ekki bara Katla

Gos í Grím­svötnum.

Það er ekki aðeins Katla sem lætur á sér kræla þetta ár því skömmu eftir að Kötlu­gosi lýkur gýs í Grím­svötnum í Vatna­jökli. Eins og Kötlu­gosið er þetta frekar lítið gos á jarð­fræði­legan mæli­kvarða. Tölu­verður vatna­gangur verður á Skeið­ar­ár­sandi í kjöl­farið en engar veru­legar skemmdir. Öskufall úr Grím­svötnum á sér einkum stað í suð­lægum áttum og leggst því yfir jökul­inn sjálfan og öræfin norður af honum. Svolítið ösku­fall verður á syðstu byggðum á Norð­ur­landi. En ekk­ert sem veldur tjóni.

Undarleg skriðuföll

Margir muna eftir miklu skriðu­falli sem varð í Hítardal fyrir fáum árum. Var þess getið að það ætti rætur að rekja til hlýn­andi veð­ur­fars því sífreri í fjöllum væri að þiðna. Á nýju ári verða tvö atvik af þessu tagi á Íslandi, bæði á Trölla­skaga. Um er að ræða mikil skriðu­föll á stöðum þar sem eng­inn átti þeirra von. Í öðru til­fell­inu fer skriðan óþægi­lega nálægt byggð og blasir við af þjóð­vegi eitt. Hnattræn hlýnun birt­ist þarna með sér­stæðum hætti en bæði til­vikin þykja renna stoðum undir kenn­ingar um þiðn­andi sífera í fjöllum.

Tvíhöfða lamb fæðist í Meðallandi

Engin skýr­ing þessa heims finnst á dul­ar­fullu ljósi yfir Suð­ur­landi.

Gríð­ar­lega athygli vekur þegar lif­andi tví­höfða lamb fæð­ist í Með­al­landi og birt­ast myndir af því um allan heim. Um svipað leyti sjást und­ar­leg ljós á himni yfir Suð­ur­landi og engin skýr­ing þessa heims finnst á þeim. Mörgum finnst þetta vera fyr­ir­boðar í anda hinna gömlu ann­ála og ótt­ast að illt fylgi á eftir. Ekki löngu seinna verða atburðir í okkar heims­hluta sem skekja allan heim­inn en hér verður ekki sagt meira frá þeim því þetta er íslensk völvu­spá.

Týndir garpar

Íslend­ingar njóta sér­stæðs veð­ur­fars á næstu mán­uðum því vet­ur­inn verður einn sá mild­asti frá upp­hafi mæl­inga. Samt skortir lítt snjó, sér­stak­lega fyrir norðan. Nokkurn skugga ber þó á því völvan seg­ist sjá átak­an­legt slys síðla vetrar þegar nokkrir ákafir úti­vist­ar­garpar láta kapp bera for­sjá ofur­liði og týn­ast á hálend­inu. Þjóðin stendur á önd­inni meðan leitað er að hópnum sem inni­heldur þjóð­þekkta ein­stak­linga. Leitin ber loks árangur en ekki lifa allir leið­ang­ur­inn af.

Þjóðin stendur á önd­inni meðan leitað er að hópnum sem inni­heldur þjóð­þekkta ein­stak­linga.

Skrímsli?

Mikið upp­nám verður síðla sum­ars 2021 þegar fólk á ferð við Lag­ar­fljót á Aust­ur­landi nær ljós­myndum og mynd­bandi af ein­hverju sem lítur út eins og skrímsli í Leginum. Háværar deilur verða milli manna um það hvort mynd­irnar séu ekta eða ekki og drag­ast menn í fylk­ingar. Fjöl­skyldan sem tók mynd­irnar verður á svip­stundu fræg því mynd­irnar fara með eld­ing­ar­hraða um allan heim. Þegar vafasöm for­tíð eig­in­kon­unnar kemur upp á yfir­borðið aukast deil­urnar enn og fer fjöl­skyldan huldu höfði í kjöl­farið. Aldrei fæst samt úr því skorið svo óyggj­andi sé hvort mynd­irnar eru ekta eða ekki.

Stjórnmálin

Eins og flestum er kunn­ugt verður kosið til Alþingis á nýju ári – nánar til­tekið í haust. Kosn­inga­bar­átta setur vax­andi svip á störf þings­ins og verða margir til þess að nota ræðu­stól Alþingis til þess að lofa kjós­endum sínum öllu fögru í von um stuðn­ing. Af sjálfu leiðir að störf þings­ins verða sam­felld röð geðs­hrær­inga og upp­hlaupa þar sem lof­orð eru svikin og hrossa­kaup stunduð fyrir nán­ast opnum tjöldum þegar flokkar beita mál­þófi, daðri, svikum og lof­orðum á víxl.

Til þess að gera langa sögu stutta þá verða helstu úrslit kosn­ing­anna sum­part fyr­ir­sjá­an­leg en sum­part óvænt.

Bjarni sigrar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær býsna góða nið­ur­stöðu úr kosn­ing­unum eða nærri 23 pró­sent atkvæða sem er meira en flestir bjugg­ust við. Þetta leiðir til þess að Bjarni og hans menn verða skil­greindir sem sig­ur­veg­arar kosn­ing­anna. Það ger­ist svo í einni svipan að Katrín Jak­obs­dóttir gengur á fund Guðna Jóhann­es­sonar for­seta og biðst lausnar fyrir sitt ráðu­neyti og skömmu síðar verður Bjarna Bendikts­syni falið umboð til stjórn­ar­mynd­unar.

Bjarni Bene­dikts­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Á næstu vikum eftir þann fund saumar Bjarni svo saman rík­i­s­tjórn undir sínu for­sæti en ásamt Sjálf­stæð­is­flokki sitja Fram­sókn­ar­flokkur, Viðreisn og Sam­fylk­ing í stjórn­inni. Þetta verður skil­greint sem þrauta­lend­ing fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn sem kom veru­lega lask­aður frá umræddum kosn­ingum með tæp­lega 8 pró­senta fylgi. Sam­fylk­ingin kemur hins­vegar vel út úr kosn­ingum og bætir veru­lega við sig frá því sem áður var.

Hvaða loforð?

Ekki verða allir hrifnir af þess­ari nýju rík­is­stjórn og sér­stak­lega eru Sjálf­stæð­is­menn yst til hægri þung­búnir og telja Bjarna vera að „svíkja til vinstri“ eins og það er víst kallað og draga flokk­inn inn á miðj­una. Fylg­is­menn Sam­fylk­ingar eru ekki heldur hrifnir því margir þeirra muna eftir hinni ban­vænu sam­búð flokk­anna tveggja í rík­is­stjórn þegar hrunið varð sem kost­aði Sam­fylk­ing­una algert afhroð í kjöl­farið.

Ekki eru heldur allir Sam­fylk­ing­ar­menn búnir að gleyma yfir­lýs­ingum Loga Ein­ars­sonar for­manns um að sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn kæmi ekki til greina en hann lýsti því ítrekað yfir fyrr á árinu.

Allt verður þetta til þess að margir spá illa fyrir hinni nýju stjórn enda er hún með tæpan meiri­hluta svo fáir mega ganga úr skaft­inu þegar mikið liggur við. En póli­tík er víst list hins mögu­lega og Bjarni kann því ekki illa að feta í fót­spor frænda síns og alnafna og leiða rík­is­stjórn með kratana inn­an­borðs en ekki utan.

Hverjir eru inni og hverjir úti?

Nýr flokkur, Sós­í­alista­flokkur Íslands kemst inn á Alþingi í þessum kosn­ingum og þykja nokkur tíð­indi enda langt síðan flokkur undir þessu nafni átti menn á þingi. Völvan sér flokk­inn með 2 menn inni. Flokkur fólks­ins sem margir spáðu að hyrfi í þessum kosn­ingum hangir inni.

Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Ef ein­hver flokkur telst vera úti í kuld­anum eftir þessar kosn­ingar þá er það leið­togar síð­ustu rík­is­stjórnar Vinstri-grænir sem bíða mikið afhroð í kosn­ing­unum og tapa veru­legu fylgi. Katrín Jak­obs­dóttir for­maður situr á þingi með fáeina þing­menn og má segja að flokk­ur­inn sleiki sár sín í eft­ir­málum kosn­ing­anna. Þetta kemur mörgum á óvart því eitt helsta bar­áttu­mál flokks­ins um stofnun þjóð­garðs á mið­há­lendi Íslands var sam­þykkt á vor­þing­inu og urðu margir til þess að telja að það ætti að bjarga lösk­uðu fylgi flokks­ins upp fyrir frost­markið. Þær vonir rætt­ust ekki.

Sigmundur er sér á báti

Mið­flokk­ur­inn rær gegn miklu and­streymi í kosn­inga­bar­átt­unni. Nokkrir þættir hafa áhrif á það. Erf­ið­lega gengur að manna fram­boðs­lista flokks­ins í sumum kjör­dæmum, sér­stak­lega gengur illa að fá konur til liðs við mál­stað­inn. „Klaust­ur­málið“ svo­kall­aða reyn­ist vera lífseigt og loðir við flokk­inn og fylg­is­menn hans eins og kusk og er höf­uð­á­stæða þess að konur reyn­ast tregar til setu á listum flokks­ins.

Flokk­ur­inn tekur harð­ari afstöðu í ýmsum málum sem oft eru kennd við ysta hægrið og popúl­isma með því að tala hart gegn inn­flytj­endum, hæl­is­leit­endum og almennt gegn fjöl­menn­ingu. Þetta reyn­ist ekki vera eins girni­legt agn og ein­hverjir ætl­uðu og afrakstur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd / Skjáskot RÚV

flokks­ins frekar bágur í kosn­ingum. Sig­mundur leið­togi flokks­ins er sem fyrr sífellt í sviðs­ljós­inu og þykir jafn und­ar­legur og áður og völvan sér ósmekk­lega umfjöllun um heilsu­far hans birt­ast á opin­berum vett­vangi.

Völvan sér Sigmund standa á göngum þing­húss­ins með lít­inn hóp karla í kringum sig og er skuggi yfir svip leið­tog­ans. Engin kona er í hópnum.

Hver á hvaða stól?

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir.

Hin nýja rík­is­stjórn undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar end­ur­speglar vel hve margir flokkar sitja við rík­is­stjórn­ar­borðið og því erfitt að koma fólki að. Bjarni er sjálfur for­sæt­is­ráð­herra en Benedikt frændi hans Jóhann­es­son stýrir fjár­mála­ráða­neyt­inu. Þor­gerður Katrín er sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fá margir snerkjur í and­litið við þau tíð­indi. Logi Ein­ars­son verður mennta­mála­ráð­herra en Helga Vala Helga­dóttir stýrir umhverf­is­málum. Framsókn verður að sætta sig við eitt emb­ætti og er Sigurður Ingi áfram í ráðu­neyti sam­göngu og sveit­ar­stjórn­ar­mála. Áslaug Arna verður dóms­mála­ráð­herra og Þórdís Kolbrún stýrir ferða­málum og iðn­aði. Guð­laugur Þór verður heil­brigð­is­ráð­herra og Oddný Harð­ar­dóttir verður utan­rík­is­ráð­herra.

Forsetinn í andbyr

Völvan sér for­seta Íslands Guðna Jóhann­es­son sæta nokk­urri gagn­rýni á nýja árinu. Sú ákvörðun hans að fela Bjarna Bene­dikts­syni umboð til stjórn­ar­mynd­unar fyrstum allra verður umdeild því margir halda því fram að Sam­fylk­ingin hefði frekar átt hnossið skilið vegna góðs gengis í kosn­ingum. Þetta verður til þess að vekja upp sögu­sagnir um „Garða­bæj­ar­for­set­ann“ og bak­land hans þegar hans þegar hann var upp­haf­lega kos­inn en margir þótt­ust þá sjá þræði sem lágu inn í bak­land Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar og myrkviði Garða­bæjar.

Mynd / Heima­síða Forseta Íslands

Annað sem þykir styrkja þetta er að snemma árs verður nýr for­seta­rit­ari ráð­inn og hann reyn­ist vera úr innsta hring fram­boðs­ins, vel tengdur bæði flokknum og sveit­ar­fé­lag­inu. Völvan sér Guðna sveittan á efri­vör­inni á sjón­varps­skjá í harðri vörn vegna þess­ara mála.

Guðni ræður vin

Völvan sér Guðna Th. Jóhann­es­son for­seta Íslands í ofur­lítið vand­ræða­legri stöðu á nýju ári. Snemma árs verður ráð­inn nýr for­seta­rit­ari því Örnólfur Thorsson er að láta af störfum eftir 21 ár hjá emb­ætt­inu. Þegar per­sónu­legur vinur Guðna og einn náinna sam­starfs­manna hans frá 2016 fram­boð­inu fær starfið verða ein­hverjir til þess að ræskja sig og gera athuga­semdir.

Völvan sér for­seta vorn örlítið kind­ar­legan á svip í fjöl­miðlum vegna þessa en þetta er svona vikuskandall sem menn gleyma fljótt.

Samherji í kröppum sjó

Fá frétta­mál fá eins mikið rúm í umræðu nýs árs eins og risa­fyr­ir­tækið Samherji. Mútu­málin sunnan úr Afríku hverfa ekki heldur loða eins og smur­ol­íu­klessa við jakka­föt for­stjór­ans. Þótt starfs­menn sam­steypunnar og Norð­lend­ingar sýni þeim fylgi­spekt snýst almenn­ings­á­litið mjög gegn Sam­herj­a­mönnum á nýju ári.

Þar ráða mestu um upp­tökur sem koma fram í dags­ljósið snemma árs. Þar er Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri í miklum reiði­ham og lætur vaða á súðum um mútu­málin, yfir­ráð sín yfir Morg­un­blað­inu, per­sónu­leg mál Helga Seljan og margt fleira. Sumt af því sem for­stjór­inn segir gengur alger­lega fram af alþýðu manna en stað­festa á sama tíma margt af því sem borið hefur verið á fyr­ir­tækið síð­ustu miss­eri.

Þor­steinn Már Bald­vins­son

Upptakan virð­ist vera gerð á fundi með efsta lagi fyr­ir­tæk­is­ins en eng­inn veit hver gerði hana eða hvernig hún komst á opin­beran vett­vang. Þar verður fjöl­mið­ill­inn Stundin í sviðs­ljós­inu en þar verður fyrst sagt frá upp­tök­unni þótt síðar komi í ljós að hún var send miklu víðar.

Völvan sér Þorstein Má afar sneypu­legan á hlaupum undan fjöl­miðlum vegna þessa máls. Völvan sér Baldvin son hans með reiddan hnefa frammi fyrir fjöl­miðla­mönnum sjálfum sér til lít­ils frama.

Kristján til Samherja

Völvan sér Kristján Þór Júl­í­us­son hætta í stjórn­málum á nýju ári og ganga til liðs við frændur sína og vini í Samherja. Enginn veit samt nákvæm­lega hver verk­efni Krist­jáns eru fyrir sjáv­ar­út­vegs­ris­ann en völvan sér hann í hlut­verki ein­hvers konar tals­manns fyr­ir­tæk­is­ins.

Völvan sér Þorstein Má afar sneypu­legan á hlaupum undan fjöl­miðlum vegna þessa máls.

Myndirnar frá Afríku

Eitt af því sem verður Samherja og starfs­mönnum þeirra til mik­illar minkunnar á nýju ári eru ljós­myndir sem birt­ast opin­ber­lega. Þær sýna ýmsa starfs­menn Samherja í Namibíu í til­tölu­lega nánum sam­skiptum við inn­fædda af gagn­stæðu kyni og virð­ast sumir á mynd­unum vera tals­vert undir því sem kallað er lög­aldur á Vest­ur­löndum.

Vigdís í kastljósinu í borginni

Þær heift­úð­ugu deilur sem litað hafa starf borg­ar­stjórnar Reykja­víkur það sem af er kjör­tíma­bil­inu halda áfram af fullum þunga næsta ár. Vigdís Hauks­dóttir heldur áfram skæru­hern­aði gegn meiri­hlut­anum með lit­ríkum upp­tækjum þar sem lítt er hirt um það sem satt er heldur hitt sem betur hljómar.

Vigdís Hauks­dóttir verður fjar­lægð með valdi af borg­ar­stjórn­ar­fundi.

Vigdís sækir í sig veðrið á nýja árinu og árásir hennar á borg­ar­stjóra og hans fylg­is­menn verða sífellt hat­rammari og óvenju­legri. Völvan sér Vigdísi standa eins­konar mót­mæla­stöðu á borg­ar­stjórn­ar­fundi með bundið fyrir munn­inn að mót­mæla því að hafa ekki fengið að tjá sig á fund­inum með sínum hætti. Völvan sér hana líka fjar­lægða með valdi af fundi borg­ar­stjórnar og verður sú upp­á­koma til þess að fundir borg­ar­stjórnar leggj­ast af um hríð.

Eyþór í skugganum

Hinn sein­heppni leið­togi Sjálf­stæð­is­manna í stjórn­ar­and­stöðu í Reykja­vík, Eyþór Arnalds stendur alger­lega í skugg­anum af ofsa Vigdísar Hauks­dóttur eins og fyrr. Hann reynir eins og áður að toppa mál­flutn­ing hennar með því að ganga jafn­vel lengra en hún en fjar­lægist sífellt meira hinn almenna flokks­mann. Völvan sér hann standa einan fyrir utan ráð­húsið með eitt­hvert skraut­legt klæðis­plagg í höndum sem gæti verið slæða en gæti líka verið ein­hvers konar und­ir­fatn­aður. Hann virð­ist vera á útleið. Í þess­ari hug­sýn völv­unnar strunsar Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir fram­hjá Eyþóri á leið inn í ráð­húsið og heilsar honum ekki.

Dagur hættir

Ein klass­ís­kasta sviga­setn­ing í leik­bók­menntum heims­ins er: (tekur hatt sinn og staf og fer út til vinstri). Þetta er einmitt það sem Dagur B. Egg­erts­son gerir í lok hins nýja árs. Hann stendur upp úr stól sínum sem borg­ar­stjóri og heldur á vit ann­arra verk­efna. Völvan sér hann á sjón­varps­skjánum með tár á hvarmi þegar hann er að þakka sam­starfs­fólki sínu og borg­ar­búum fyrir sam­starfið.

Dagur tekur staf sinn og hatt á árinu.

Ástæð­urnar eru tví­þættar. Ann­ars­vegar freist­andi til­boð frá alþjóða­stofnun sem starfar að heil­brigð­is­málum og hins­vegar heilsu­far borg­ar­stjór­ans sem hefur verið í fréttum annað veifið und­an­farin ár.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir full­trúi Við­reisnar tekur við stól borg­ar­stjór­ans í lok árs­ins og völvan sér Vigdísi Hauks­dóttur ljós­rauða í framan vegna þessa máls en borg­ar­búar virð­ast sáttir.

Davíð hættir

Það vekur minni athygli en brott­för Dags úr borg­inni en Davíð Oddsson tekur einnig hatt sinn og staf og gengur út af svið­inu -lík­lega til hægri. Hann sem­sagt stendur upp úr stól rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og sest í helgan stein. Enginn verður ráð­inn í stað hans heldur höktir blaðið áfram með þeirri áhöfn sem eftir er. Nýtt ár verður Morg­un­blað­inu ekki sér­lega hag­stætt. Maðurinn með ljá­inn heldur áfram að saxa niður áskrif­end­urnar og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin halda áfram að borga með útgáf­unni þótt sum þeirra láti í ljósi vax­andi andúð sína á því. Semsagt engar stórar vend­ingar en drop­inn holar stein­inn og ljósið dofnar ofur­lítið yfir þessu forna flagg­skipi íslenskra dag­blaða þegar gamli ref­ur­inn yfir­gefur bygg­ing­una.

Það er ekki bara Dag­ur­borg­ar­stjóri sem hættir heldur líka Davíð rit­stjóri.

Sameinast blöðin?

Eftir brott­för Davíðs breyt­ist margt í höll­inni og völvan sér for­ráða­menn Morg­un­blaðs­ins í nánum sam­ræðum við eig­endur Frétta­blaðs­ins um afar náið sam­starf á ýmsum sviðum. Þýðir þetta að blöðin sam­ein­ist? Ekki er völvan alveg viss um að það ger­ist á nýju ári.

Útvarp Saga hættir um tíma eftir umdeilt viðtal

Hinn umdeildi fjöl­mið­ill Útvarp Saga lendir í umtals­verðum vand­ræðum á árinu sem fer í hönd. Aðdrag­andi þess er að umdeild per­sóna úr íslensku þjóð­lífi fer í við­tal hjá Arnþrúði og talar þar um fjöl­skyldu­mál sín með þeim hætti að flestum blöskrar. Þar er fjallað um per­sónu­legt líf opin­berra per­sóna með þeim hætti sem við eigum ekki að venj­ast með sér­stakri áherslu á einka­neyslu þeirra á ólög­legum efnum. Við­mæl­and­inn sem hér verður ekki nefndur hefur starfs síns vegna aðgang að meiri upp­lýs­ingum en almenn­ingur. Mikil mót­mæla­alda rís í kjöl­farið sem leiðir til falls í aug­lýs­inga­tekjum og svo fer að lokum að stöð­inni verður lokað um tíma. En hún opnar aftur.

Jón Baldvin batnar ekki

Staða Bryn­dísar og Jóns Baldvin mun versna á árinu. Mynd / Facebook

Völvan sér Jón Baldvin Hanni­bals­son og eig­in­konu hans Bryndísi Schram standa áfram í þeim leið­inda­málum sem sett hafa svip sinn á líf þeirra síð­ustu ár. Ekkert lát verður þar á og heldur ástandið ein­ungis áfram að versna. Þær upp­lýs­ingar sem koma upp á yfir­borðið á útmán­uðum verða síst til þess að bæta stöðu þeirra en þá verða ein­hvers konar vatna­skil í mála­rekstri sem þau standa í.

Bubbi Morthens tekur flugið

Bubbi Morthens, þjóð­ar­ger­semi og snill­ingur á afar gott ár í vændum. Þjóðin elskar þennan mann og hann er sam­viska hennar með ein­hverjum óút­skýr­an­legum hætti. Þegar sam­komu­höftum verður létt í kjöl­far bólu­setn­ingar verður aftur fært til tón­leika­halds og þá verður bók­staf­lega allt vit­laust.

Völvan sér Bubbi á sviði frammi fyrir tug­þús­undum Íslend­inga sem þyrp­ast kringum kóng­inn og virð­ist þetta vera upp­hafið á ein­hvers konar tón­leika­ferð hans um landið allt.

Allt sem Bubbi gerir á nýju ári gengur vel.

Listin blómstrar

Almennt virð­ist lista og menn­ing­ar­líf ná vopnum sínum á ný á vor­mán­uðum. Þá verður hömlum létt og sýn­ingar og tón­leikar hefj­ast á ný. Í ljós kemur að alþýða manna vill endi­lega láta skemmta sér og gríð­ar­leg aðsókn er að mörgu sem er í boði. Þetta leiðir til þess að leik­hús og tón­list­ar­hús breyta dag­skrá sinni til þess að koma á móts við eft­ir­spurn­ina og verður fátt um sum­ar­frí hjá sviðs­lista­mönnum. Völvan sér mik­inn blóma á þessu sviði.

Óperan flengd opinberlega

Nokkur hávaði verður í menn­ing­ar­líf­inu þegar Íslenska óperan verður dæmd fyrir að greiða Þóru Ein­ars­dóttur söng­konu langt undir taxta fyrir þátt­töku í sýn­ingu á Brúð­kaupi Fígarós og verður óper­unni gert að greiða Þóru skaða­bætur fyrir. Við þetta rís alda gremju og frek­ari máls­höfð­ana býsna hátt frá mun fleiri söngv­urum. Óperan stór­skað­ast við þetta bæði í augum almenn­ings og lista­manna sem hafa sam­skipti við þetta flagg­skip menn­ing­ar­lífs­ins. Völvan sér Stein­unni Birnu Ragn­ars­dóttur yfir­gefa Hörpuna og halda út í næð­ing­inn á bryggj­unni. Hún er með þykka nótna­bók undir hend­inni.

Ragnar Kjartansson vekur enn meiri athygli

Ragnar verður frægur á fæð­ing­ar­föt­unum einum saman.

Ragnar Kjart­ans­son mynd­list­ar­maður er án efa fræg­asti lista­maður sem Ísland hefur alið á sviði mynd­listar og mörg gjörn­inga­verka hans þekkt um allan heim list­ar­innar. Ragnar verður í sviðs­ljós­inu á árinu, sum­part fyrir verk sín og ný verk sem koma fram en ekki síður fyrir fram­komu sína í tengslum við þau. Völvan sér snill­ing­inn á fæð­ing­ar­föt­unum einum með aðdáun og athygli alls heims­ins á sér.

Víkingur flýgur hátt

Sig­ur­ganga Víkings Heiðars Ólafs­sonar píanó­snill­ings um heim­inn heldur áfram. Völvan sér hann taka við verð­launum og við­ur­kenn­ingum hvar sem hann fer. Víkingur verður áfram ást­mögur sinnar eigin þjóðar og senni­lega langt síðan Íslend­ingar hafa eign­ast eins vin­sælan og stór­kost­legan lista­mann.

Hneyksli í tónlistarheiminum

Völvan sér mikið upp­nám þegar þekktur íslenskur popptón­list­ar­maður stígur fram og segir frá líf­inu bak­við tjöldin með opin­skárri hætti en áður hefur sést. Þessi ungi maður segir frá skemmt­ana­lífi, neyslu og alls­konar sam­trygg­ingu sem tíðkast í litlum heimi íslenskrar tón­listar. Þjóðin stendur á önd­inni yfir þessum upp­ljóstr­unum. Það sann­ast svo á þessum unga manni að sann­leik­ur­inn mun ekki gera yður frjálsa heldur æru­lausa. Allir snú­ast gegn honum og völvan sér hann yfir­gefa Ísland og freista gæf­unnar erlendis.

Grátið í grínheimum

Völvan sér eitt­hvert upp­nám í íslenska grín­heim­inum þegar all­þekktur uppi­stand­ari kven­kyns gengur ger­sam­lega fram af gestum þegar hún er að skemmta. Eins og oft er menn ekki sam­mála um hvað sé fyndið og hvað ekki og skamma stund er þetta helsta áhuga­mál þjóð­ar­innar.

Uppi­stand­ar­inn særir kollega sína holund­arsárum þegar hún veitir óum­beðna palla­dóma um það hverjir þeirra séu fyndnir og hverjir ekki og hver geti komið fram edrú og hver ekki. Völvan sér ýmsa þeirra með tár á hvarmi vegna þessa.

Stríðsmenn verkalýðsins

Hinir her­skáu for­ystu­menn verka­lýðs­fé­lag­anna Ragnar Ing­ólfs­son og Sólveig Anna Jóns­dóttir sem hafa vakið athygli und­an­farin ár fyrir snöf­ur­legri vinnu­brögð en lengi hafa tíðkast eiga gott ár í vændum.

Sólveig Anna Jóns­dóttir mun leiða bylt­ingu á Aust­ur­velli.

Nýtt ár mun ein­kenn­ast af miklu atvinnu­leysi og meiri neyð og fátækt en lengi hefur sést. Við slíkar aðstæður verður fólki ljóst hvert gildi öfl­ugrar verka­lýðs­hreyf­ingar er. Völvan sér  Sólveigu Önnu standa með steyttan hnefa í pontu frammi fyrir miklu mann­hafi sem tekur henni vel. Þetta ger­ist á úti­fundi í miðbæ í Reykja­víkur og í kjöl­farið verða átök milli lög­reglu og fund­ar­gesta í þeim stíl sem ekki hefur sést síðan í bús­á­halda­bylt­ing­unni.

Brotist inn til ráðherra

Mikla athygli vekur á nýju ári þegar lög­reglan hand­tekur mann sem brot­ist hafði inn á heim­ili for­sæt­is­ráð­herra og sat á rúm­stokk ráð­herr­ans þegar vart var við hann. Í ljós kom að hér var mik­ill aðdá­andi bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar á ferð og hafði ein­sett sér að end­ur­gera nokkur valin atriði úr þátta­röð­inni.

Að stela naríum

Völvan sér frétta­mál á vor­dögum sem vekur stjórn­lausa kátínu með Íslend­inga. Heima­maður í með­al­stórum byggða­kjarna á Norð­ur­landi er stað­inn að verki við að stela nær­fötum af snúrum í heima­byggð sinni. Við rann­sókn máls­ins kemur í ljós umtals­vert safn af und­ir­fötum kvenna sem mað­ur­inn hafði safnað á löngum tíma. Safnið var allt vand­lega flokkað og hvert ein­tak merkt upp­haf­legum eig­anda. Kátínustigið hækkar tals­vert þegar í ljós kemur að um er að ræða hátt­settan sveit­ar­stjórna­mann, leið­toga sinnar byggðar.

Hvíta tjaldið

Árið 2021 verður mikið kvik­myndaár. Bæði verða frum­sýndar nýjar kvik­myndir sem hafa verið teknar á Íslandi en einnig verður ráð­ist í ný um umsvifa­mikil verk­efni á þessu sviði. Völvan sér aðal­lega tvær per­sónur standa í skær­ara sviðs­ljósi en nokkru sinni. Annar þeirra er Baltasar Kormákur sem vekur feikna­lega athygli þegar hann kemur með Emmu Stone til Íslands vegna nýs verk­efnis sem hann er að vinna í.

Það verður áfram nóg að gera hjá Baltasar.

Hinn er Benedikt Erlings­son, verð­launa­safn­ari sem kemst í sviðs­ljósið þegar hann tekur að sér með­al­stórt stjörnum hlaðið verk­efni sem er banda­rískt að upp­runa en verður tekið á Íslandi og völvan sér ekki betur en Andri Snær Magnason teng­ist þessu með ein­hverjum hætti.

Þetta eru aðeins tvö kvik­mynda­verk­efni af fjöl­mörgum sem verða í brennid­epli á Íslandi næsta sumar og haust.

Matareitrunin mikla

Gríð­ar­leg havarí verður í Reykja­vík um mitt sumar þegar fjölda­mat­ar­eitrun kemur upp í veislu á vegum hins opin­bera í Hörpu. Pestin er svo snörp að menn verða að finna Gustavs­berg í snatri ein­ungis 30 mín­útum eftir neyslu. Þetta leiðir fljót­lega af sér neyð­ar­á­stand þegar aðstaða Hörpu­nnar hefur ekki undan og flýja þá gestir út í erindum sem að jafn­aði eru leyst á afviknum stað. Fljót­lega kom­ast á flot á sam­fé­lags­miðlum myndir af mönnum með kjól­fötin niður um sig í bók­staf­legri merk­ingu eða húk­andi í grjót­garð­inum utan við Hörpuna. Engum verður samt bein­línis meint af þess­ari upp­á­komu til lengri tíma litið en margur ber af þessu nokkurn kinn­roða lengi sum­ars.

Jón Ásgeir snýr aftur

Jón Ásgeir Jóhann­es­son snýr aftur. Mynd / Rakel Ósk|Erlendur Gíslason.

Margt á eftir að ganga á í íslensku við­skipta­lífi í kjöl­far Covid þegar fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu ýmist leggj­ast flöt eða sam­ein­ast öðrum. En stærsti atburður við­skipta­lífs­ins á nýju ári er end­ur­koma Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar. Um þessar mundir berst Jón Ásgeir fyrir því að ná völdum í olíu­fé­lag­inu Skelj­ungi og hefur lagt fram yfir­tökutil­boð til ann­arra hlut­hafa.

Skemmst er að segja frá því að Jón stendur uppi með tögl og hagldir með full völd yfir félag­inu. Hann tekur þegar í stað til við gam­al­kunnug trix og selur eignir og veð­setur allt sem nagl­fast er alveg upp í rjáfur og nær þannig að bjarga við­skipta­veldi sínu sem fram til þess­ara atvika hafði vegið salt á bjarg­brún­inni.

Hver er að banka?

Í heimi banka á Íslandi gengur á ýmsu á nýju ári. Helsta fréttin er sú að eng­inn reyn­ist vilja kaupa Íslands­banka þótt rík­is­stjórnin vilji ólm selja sinn hlut í bank­anum. Völvan sér for­svars­menn stjórn­mála­flokka hanga í pils­faldi líf­eyr­is­sjóð­anna hrín­andi eins og keipakrakka og biðja þá að stíga inn og kaupa hlut rík­is­ins. Það tekst að ein­hverju leyti.
Af öðrum bönkum er það helst að Arion og Kvika banki eiga í við­ræðum um sam­ein­ingu. Helsta rök­semdin er sú að stærra sé betra en það hljómar ekki sér­lega vel í eyrum þeirra sem enn muna eftir 2008. Völvan sér þessar við­ræður í fréttum nýs árs en þær bera ekki sýni­legan árangur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

völvan

Völvan reynist sannspá: Míkróskammtar af ofskynjunarlyfjum í meðferð geðsjúkdóma
Innlent

Völvan reyn­ist sann­spá: Míkró­skammtar af ofskynj­un­ar­lyfjum í með­ferð geð­sjúk­dóma

Örskammtar eða míkró­skammtar af ofskynj­un­ar­lyfjum til með­höndl­unar geð­sjúk­dóma eru umfjöll­un­ar­efni kvölds­ins í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV. Það ætti ekki að koma völvu Mannlífs á óvart. „Annars konar umræða um tabú mál­efni tengd geð­heilsu og spi­ritúal­isma mun fjalla um ýmsar „alt­ernative“ lækn­ing­ar­að­ferðir, jurtir og fleira. Meira verður rætt um smá­skammta af sveppum til and­legra lækn­inga, CBD-olíu og fleira. Fólk vill prófa...
Völvan reynist sannspá: Helgi Seljan söðlar um og RÚV missir fleira lykilfólk
Innlentvölvan

Völvan reyn­ist sann­spá: Helgi Seljan söðlar um og RÚV missir fleira lyk­il­fólk

Völva Mannlífs spáði því að rann­sókn­ar­blaða­mað­ur­inn og frétta­mað­ur­inn Helgi Seljan myndi breyta um stefnu á þessu ári. Hún spáði umbreyt­ing­ar­ári í lífi hans og að eftir erf­ið­leika myndi hann nú rísa upp og átta sig á því hvert hann vildi fara. Nú hefur atburða­rásin sann­ar­lega farið af stað, því að í dag var til­kynnt um að Helgi Seljan gengi til...
Völvan: Vanhæf geðdeild, CBD olía og sveppir – sálfræðiþjónusta verður niðurgreidd fyrir lok árs
Innlentvölvan

Völvan: Vanhæf geð­deild, CBD olía og sveppir – sál­fræði­þjón­usta verður nið­ur­greidd fyrir lok árs

Völvu­blað Mannlífs kom út fyrir ára­mótin. Til þess að lesa spá völv­unnar fyrir kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér. Heil­brigð­is­mál Land­spít­al­inn „Frelsi frá sótt­varna­reglum heldur áfram að stranda á spít­al­anum að ein­hverju marki. Við höldum áfram að finna fyrir því á árinu hvað spít­al­inn þolir lítið álag vegna langvar­andi fjársveltis. Þetta er einn eitt dæmið...
Völvan 2022: Sigurganga Magnúsar Geirs – barnalán – Steinunn Ólína skrifar bók og veldur usla
Innlentvölvan

Völvan 2022: Sig­ur­ganga Magnúsar Geirs – barna­lán – Steinunn Ólína skrifar bók og veldur usla

Völvu­blað Mannlífs kom út fyrir ára­mót. Til þess að lesa spá völv­unnar fyrir kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér. Leiklist „Það verður afar þungur róður hjá Borg­ar­leik­hús­inu á árinu og fjár­málin standa mjög illa eftir síð­ustu tvö ár. Nýverið óskaði leik­húsið eftir 50 millj­óna króna styrk úr rík­is­sjóði vegna tekju­taps í heims­far­aldr­inum. Mér sýn­ist hins...
Völvan 2022 sér Davíð Oddsson hverfa á braut – Helgi Seljan rís upp og Logi Bergmann í vandræðum
Innlentvölvan

Völvan 2022 sér Davíð Oddsson hverfa á braut – Helgi Seljan rís upp og Logi Bergmann í vand­ræðum

Völvu­blað Mannlífs er komið út. Til þess að lesa spá völv­unnar um kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér. Fjöl­miðlar „Davíð Oddsson hættir sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins á árinu. Mið­ill­inn mun hagn­ast á brott­hvarfi hans og byrja hægt og rólega að end­ur­nýja sig. Nýtt fólk stígur til met­orða á Morg­un­blað­inu og miðl­inum mun ganga betur í kjöl­farið....
Völvan 2022: Ný kvikmynd Bjarkar floppar, Emmsjé Gauti einlægur í lukkuálögum og Bubbi vill sameina
Innlentvölvan

Völvan 2022: Ný kvik­mynd Bjarkar floppar, Emmsjé Gauti ein­lægur í lukku­álögum og Bubbi vill sam­eina

Völvu­blað Mannlífs er komið út. Til þess að lesa spá völv­unnar um kom­andi ár í heild sinni er hægt að nálg­ast blaðið hér. Tónlist „Bubbi Morthens er sam­of­inn þjóð­ar­sál okkar Íslend­inga. Hann heldur sínu striki á árinu og talar fyrir sam­tali og ein­ingu. Hann vill vita hvernig við ætlum að halda áfram með Metoo-verk­efnið. Fólki líkar ekki alltaf það sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins