„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Það nota ekki allir stærð 168

Það nota ekki allir stærð 168
Ragn­hildur Sig­urð­ar­dóttir

Eftir / Ragn­hildi Sig­urð­ar­dóttur (Göggu)

Að leyfa sér að vera öðru­vísi og vera maður sjálfur er mjög áhuga­vert verk­efni og eig­in­lega mjög mik­il­vægt.

Ég  man í æsku þegar ég var oft að reyna að falla inn í hóp­inn eða hópana og gera eins og hinir.

Þarna var tíma­bil þar sem ég var að prófa, mis­takast og læra af þeim verk­efnum sem lögð voru fyrir mig á þeim tíma.

Ég átt­aði mig fljót­lega á því að mér leið ekki vel ef ég var ekki að gera það sem mín innri líðan, inn­sæið sagði mér.

Já, það tók góðan tíma að átta sig á því að innri líðan og inn­sæið voru að segja eitt­hvað. Þegar ég átt­aði mig á því þá liðu nokkur ár, sem fóru í það að læra á þessi skila­boð.

Eitt er að vita um það og átta sig á skila­boð­unum og annað er að fara eftir skila­boð­unum.

Til að útskýra stutt­lega fyrir þér les­andi góður þá hef ég alltaf verið mjög næm á fólk og aðstæður í kringum mig.

Það sem er mér mjög  mik­il­vægt er að fólki líði vel og líði vel í þeim aðstæðum sem það er í.  Ég hef starfað við heild­ræna með­höndlun, lífs­stíls­þjálfun og bætt hug­ar­far í yfir 30 ár og það er svo lær­dóms­ríkt að sjá fólk gera þær breyt­ingar sem við­kom­andi vill ná, skref fyrir skref.  Mik­il­vægt er að fara á sínum hraða og vera í takt við sjálfan sig og sína innri líðan og insæi.  Við notum ekki öll stærð 168 og því fyrr sem við áttum okkur á því og í hvaða sam­hengi sem er, þeim mun betur mun okkur líða. Mik­il­vægt er að finna sína leið og fylgja henni og vera trúr sjálfum sér. Kannski er hægt að kalla það „Að segja já við sig.“ Á hverju ári eru 365 mögu­leikar í að segja já við sjálfan sig. Þú ert frá­bær eins og þú ert.

Lestu hverja setn­ingu rólega og ef það koma upp til­finn­ingar eða ein­hver líðan, fylgstu þá með því.

Að upp­lifa það að líða vel og finn­ast það í lagi.

Að upp­lifa að vera í jafn­vægi og leyfa sér það.

Að upp­lifa það að vera maður sjálfur án þess að halda  að þú skyggir á aðra.

Að upp­lifa að gera það sem þig langar til og sleppa því að vera með­virkur.

Ég get talið upp ótal margt,sem væri mik­il­vægt fyrir þig svo þér líði vel.  Ef við förum inn á jákvæða sál­fræði þá segir þar að þrátt fyrir erf­ið­leika geti meiri­hluti fólks haft til­gang með líf­inu og lifað því með reisn.  Jákvæð Sálfræði skoðar einnig hvernig fólk getur notað styrk­leik­ana sína, sem því miður allt of fáir eru með­vit­aðir um að nota og beina athygl­inni  að. Það er svo ótrú­lega mikið sem eflist hjá þér ef þú ert með­vit­aður um styrk­leik­ana þína og hvernig þú ætlar að nota þá.

Hugræn atferl­is­með­ferð fer inn á meðal ann­ars það hvernig hug­ar­far þitt er við vissar aðstæður og hvernig þú bregst við þeim aðstæðum og leysir úr því. Með öðrum orðum að gera þig með­vit­aðan um við­brögð þín við mis­mun­andi aðstæðum. Hugræna atferl­is­með­ferð er hægt að nota til að bæta sam­skipti og heil­brigðan lífs­stíl.  Einnig er hún notuð þegar fólk er komið á tíma­mót eða jafn­vel mætt veggnum eins og ég orða það.  Stundum er líka bara gott að tala við vin og leyfa sér bara að vera.  Fyrir suma er gott að hreyfa sig og þá líður þeim miklu betur.

Mik­il­vægt er að þú byggir upp jákvætt við­horf gagn­vart sjálfum þér og öðrum.

Efla jákvæðar hugs­anir sem um leið  styrkja lík­ama og sál.   Mundu bara að við notum ekki öll stærð 168.  Finndu þína stærð _______ sem er í takt við þig og þína innri líðan og inn­sæi.

Jákvæðar hugs­anir breyta deg­inum.


Höfundur er Cand.mag. Íþróttafr., NLP-master/coach, nála­stungu­fræð­ingur,
yoga­kenn­ari, Hugræn atferl­ism., Jákvæð Sálfræði og FKA-félagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu