„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ótrúleg heimska: Svo voru þær bara reknar

Ótrúleg heimska: Svo voru þær bara reknar

Eftir // Jón Óðinn Waage

Ég þekki konu sem að árum saman vann við ræst­ingar hjá opin­beru fyr­ir­tæki. Þær voru tvær sem unnu við þetta. Stundum þegar þær mættu til vinnu voru starfs­menn enn að störfum. Þá komu þær bara aftur eða sett­ust niður og fengu sér kaffi með sumu af starfs­fólk­inu. Þær þekktu vel allt starfs­fólkið og voru í góðum tengslum við það.

Svo þegar kom að þrif­unum, þá var þrifið það sem þurfti að þrífa, ekk­ert hugsað um hvar óhrein­indin voru. Launin voru ekk­ert merki­leg en ágæt við­bót við aðra vinnu enda báðar í lág­launa­störfum svo ekki veitti af auka­tekjum.

Einn dag­inn var þeim sagt upp. Það var búið að ráða hrein­gern­inga­fyr­ir­tæki til að sjá um þrifin. Þeim stóð til boða vinna hjá því fyr­ir­tæki en fyrir lægri laun.

Þær sögðu nei takk.

Fólkið hjá þessu opin­bera fyr­ir­tæki fann mik­inn mun. Nú var bara þrifið á ákveðnum tíma, ekk­ert svig­rúm lengur. Þrifin voru eftir ákveðnum reglum, ef óhrein­indin voru ekki á réttum stöðum þá voru þau ekki þrifin.

Nið­ur­staðan var þessi:

Þetta opin­bera fyr­ir­tæki greiddi jafn­mikið fyrir þrif og áður, eina breyt­ingin var að nú var þjón­ustan sem greitt var fyrir mun lak­ari. Starfs­fólkið sem sá um þrifin fékk lægri laun.

Hver græddi á þessu? Jú, ein­hver milli­liður sem hafði verið óþarfur alveg frá því að þetta starf var fundið upp.

Fyrir mörgum er þetta fyr­ir­komu­lag eins og trú­ar­brögð.

Ekki mér, mér finnst þetta heimska.

Jón Óðinn Waage er leið­bein­andi barna með hegð­un­ar­vanda­mál og fyrr­ver­andi júd­ó­þjálf­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jón Óðinn Waage

Þá brotnaði harði naglinn frá Akureyri og tárin flæddu: „Ég fór að gráta með foreldrunum“
Innlent

Þá brotn­aði harði naglinn frá Akureyri og tárin flæddu: „Ég fór að gráta með for­eldr­unum“

„Sjáðu hvað þetta er fal­legt, geislar sól­ar­innar tvístr­ast og end­ur­kast­ast af gólf­inu,“ sagði mynd­list­ar­kona við Jón Óðinn Waage júd­ó­þjálf­ara og pistla­höf­und. Þau voru bæði gestir á hót­eli og í mögn­uðum pistli lýsir harð­jaxl­inn Jón Óðinn hvernig eitt lítið augna­blik hafði gríð­ar­leg áhrif á líf hans. En Jón Óðinn sá enga feg­urð og önugur benti hann mynd­list­ar­kon­unni á að þetta væri...
Í símanum var þáverandi framkvæmdastjóri LÍÚ
Innlent

Í sím­anum var þáver­andi fram­kvæmda­stjóri LÍÚ

Eftir // Jón Óðinn Waage Ég vann í all­nokkur ár á lít­illi lög­mann­stofu hér í bæ. Mitt hlut­verk var að sjá um inn­heimt­una. Við vorum að vinna fyrir lítið trygg­inga­fé­lag. Krafa á mann sem var með litla útgerð austur á landi var komin í lög­fræði­inn­heimtu. Þá fékk ég sím­tal. Í sím­anum var þáver­andi fram­kvæmda­stjóri LÍÚ. Hann var hinn almenni­leg­asti, spurði...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins