„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vertu þinn eigin bakhjarl

Vertu þinn eigin bakhjarl
Ingrid Kuhlman

Eftir Ingrid Kuhlman

Þegar við mætum mót­læti eða stönd­umst ekki eigin vænt­ingar erum við oft dóm­hörð í eigin garð. Við rökkum okkur niður og missum sjónar á styrk­leikum okkar. Eða við högum okkur sem fórn­ar­lömbum og kennum öðru fólki eða aðstæð­unum um til að líða betur með okkur sjálf. Hvorugt við­bragðið er gagn­legt.

Þegar við stöndum and­spænis áskor­unum er oft gagn­legt að ræða við ein­hvern sem minnir okkur á styrk okkar og end­ur­ræsir drif­kraft­inn. Þó að gott geti verið að leita til ann­arra um stað­fest­ingu og hvatn­ingu megum við ekki gleyma því að við höfum aðgang að bak­hjarli sem er alltaf til­tækur, okkur sjálfum.

Þrjú mikilvæg skref

Til að geta verið sinn eigin bak­hjarl er nauð­syn­legt að vinna gegn þeirri eðl­is­hvöt að hlaupa frá því sem er óþægi­legt eða sárs­auka­fullt. Með­fylgj­andi eru þrjú skref sem hjálpa til við það:

Skref 1: Vertu til staðar

Sýndu nær­veru sem er bæði skil­yrð­is­laus í kær­leik sínum og for­dóma­laus í afstöðu sinni. Rann­sóknir Pauls Gilberts, pró­fess­ors á sjálfsum­hyggju (e. self-compassion), hafa sýnt að nær­veran þarf að hafa eft­ir­far­andi fjóra eig­in­leika: Visku, styrk, hlýju og dóm­leysi. Leyfðu nær­ver­una að leiða þig ef það veitir þér stuðn­ing og faðma þig ef það veitir þér huggun. Kannski segir hún: „Þetta er erfitt, ég veit. Ég er hérna hjá þér.“ Nærveran segir þér ekki hvað þú eigir að gera né minnir þig á hvað þú hefðir átt að gera.

Skref 2: Settu hlut­ina í sam­hengi

Þegar and­lega masið róast er gott að bjóða hugs­anir þínar vel­komnar og reyna að skilja það sem þær eru að segja þér. Í bók sinni Dare to Lead mælir Brené Brown með því að hlusta á þá sögu sem við segjum og spyrja okkur síðan hvort hún sé sönn. Ef þú segir t.d. við sjálfa(n) þig: „Mér mis­tekst alltaf allt“, er gott að rifja upp tíma þegar þér tókst vel til. Hvað kenndi það þér um sjálfa(n) þig?

Skref 3: Sjáðu heild­ar­mynd­ina

Að vera sinn eigin bak­hjarl leysir okkur ekki undan ábyrgð og þýðir heldur ekki ekki að við afneitum mis­tökum. Þvert á móti snýst þetta um að sjá heild­ar­mynd­ina til að milda til­finn­ingar sínar fara frá ásök­unum og skömm og yfir í ábyrgar aðgerðir.

Stöndum með okkur sjálfum

Hlut­irnir fara ekki alltaf eins og við óskum. Þess vegna er mik­il­vægt að standa með sjálfum sér í blíðu og stríðu og bregð­ast við líf­inu með skýr­leika og hug­arró.

Grein­ar­höf­undur er fram­kvæmda­stjóri Þekk­ing­ar­miðl­unar og með meistara­gráðu í hag­nýtri jákvæðri sál­fræði og FKA kona.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu