„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Siðblind vinkona

Siðblind vinkona
Mynd / Unsplash

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Við Jóna kynnt­umst á leik­vell­inum í hverf­inu okkar þegar við vorum fimm ára. Við urðum sam­ferða gegnum barna­skól­ann og héldum sam­bandi eftir að við fórum hvor í sinn fram­halds­skól­ann. Fyrir nokkrum árum kaus ég þó að hætta öllum sam­skiptum við hana og þegar ég frétti nýlega að hún væri flækt í fíknefna­við­skipti varð ég ekk­ert hissa.

Jóna var kát og skemmti­leg stelpa en ef hlut­irnir gengu ekki fyrir sig eins og hún vildi varð allt vit­laust. Hún gafst aldrei upp og beitti þeim með­ölum sem hún taldi árang­urs­rík­astar í það og það skiptið. Stundum fór hún í fýlu og tal­aði ekki við mig dögum saman. Í öðrum til­fellum varð hún ösku­reið og linnti ekki látum en fórn­ar­lambs­hlut­verkið var í miklu upp­á­haldi. Ansi oft grét hún og bjó til ein­hverja sorg­ar­sögu sem átti að skýra hvers vegna við ættum að gera það sem hún vildi. Ég gafst oft­ast upp.

Jóna var líka snill­ingur í að fá hina full­orðnu á sitt band. Ef hún lenti í deilum við önnur börn tókst henni alltaf snúa hlut­unum þannig að hún kom best út þeim. Hún kvart­aði undan ein­elti í skól­anum, enda voru margar stelpn­anna fljótar að gef­ast upp á henni og forð­uð­ust hana. Í gang fór ein­elt­ist­á­ætlun þar sem okkur var skipað í vina­hópa og fyrir til­viljun lenti ég í öðrum hóp en Jóna. Það var í fyrsta skipti sem ég var frjáls til að eign­ast nýjar vin­konur en fram að því hafði hún ein­okað mig og komið í veg fyrir að ég gæti tengst öðrum.

Þetta var mikið gæfu­spor fyrir mig því ég gat losað aðeins um böndin milli okkar Jónu. Hún hélt þó áfram að koma heim til mín, hringja og reyna að stjórna mér. En allt var breytt og þegar við fórum hvor í sinn fram­halds­skól­ann hitt­umst við æ sjaldnar. Svo fjar­aði sam­band okkar eig­in­lega alveg út um tíma eða þar til ég hitti Jónu fyrir til­viljun í verslun. Við komumst að því að við bjuggum rétt hjá hvor annarri. Við vorum báðar í fæð­ing­ar­or­lofi og það var því nota­legt að hitt­ast í kaffi hvor hjá annarri og fara saman út að ganga.

Alltaf með fullt veski af seðlum

Jóna og maður hennar ráku fyr­ir­tæki. Þau áttu einnig stórt og fal­legt ein­býl­is­hús sem var vel­búið hús­gögnum og munum. Hún var einnig mjög vel klædd og virt­ist geta leyft sér allt sem hún vildi. Ég var því sann­færð um að fyr­ir­tækið gengi vel og oft kom mér á óvart þegar við fórum eitt­hvað saman að Jóna var alltaf með fullt veski af pen­ingum. Fæstir ganga með reiðufé núorðið en ég leiddi svo sem ekki hug­ann að þessu frekar.

„Þrátt fyrir öll flott­heitin á heim­il­inu var Jóna síkvart­andi. Maðurinn hennar var vondur við hana að hennar sögn.“

Þrátt fyrir öll flott­heitin á heim­il­inu var Jóna síkvart­andi. Maðurinn hennar var vondur við hana að hennar sögn. Hann sýndi hennar þörfum engan skiln­ing og hafði gert henni ómögu­legt að klára við­skipta­fræð­ina í háskól­anum. Hann tók engan þátt í heim­il­is­störfum en krafð­ist þess að hún ynni fullan vinnu­dag í fyr­ir­tæk­inu. Hún var alltaf bundin yfir börn­unum og fékk aldrei tæki­færi til að sinna áhuga­málum sínum.

Ég þekkti Jónu svo ég tók þessum sögum með hæfi­legum fyr­ir­vara. Hún var ávallt gjörn á að færa í stíl­inn og að auki virt­ist hún ekki átta sig á að ég mundi það sem hún hafði sagt mér áður. Þess vegna breytt­ust sög­urnar hennar oft og hún varð tví- og þrí­saga um ýmsa hluti. Þannig hafði Jóna alltaf verið. Hún sleppti alveg að segja frá sínum hlut í deilum og túlk­aði þær ævin­lega þannig að á hana hefði verið ráð­ist sak­lausa og hún beitt grófum órétti. Í einu orði tal­aði hún um hve óróm­an­tískur og kaldur mað­ur­inn sinn væri en í því næsta sýndi hún mér glæsi­legar gjafir sem hann hafði fært henni.

Saman í saumaklúbb

Að fæð­ing­ar­or­lof­inu mínu loknu fór ég að vinna aftur en Jóna var áfram heima­vinn­andi. Þetta dró mjög úr sam­veru okkar en þegar hún stakk upp á að við settum saman sauma­klúbb með nokkrum stelpum sem höfðu verið með okkur í bekk í gamla daga var ég alveg til. Í fyrsta sinn hitt­umst við heima hjá mér og kvöldið var frá­bær­lega skemmti­legt. Við vorum allar á svip­uðum stað í líf­inu og gátum skipst á ráð­legg­ingum og sögum. Næstu tvö árin festi sauma­klúbb­ur­inn sig í sessi og tvær í honum urðu mínar bestu vin­konur.

Rétt fyrir tveggja ára afmæli klúbbs­ins fréttum við að Jóna væri skilin. Maðurinn hennar hafði flutt út og inn á aðra konu sem hann hafði verið í sam­bandi við um tíma. Við ákváðum að flýta afmæl­inu og reyna að hressa Jónu við með kok­teila­kvöldi. Við komum heim til hennar í fína, dýra húsið sem hún sagði okkur að hún ætl­aði að halda. Fyr­ir­tækið hafði hún einnig hugsað sér að taka yfir og þegar ég spurði hvernig hún ætl­aði að borga mann­inn sinn út úr hvoru tveggja varð hún móðguð og reið. Hún hellti sér yfir mig og sagð­ist hafa kom­ist að því að hann hefði verið stöð­ugu fram­hjá­haldi í langan tíma og spurði mig hvort ég væri kannski eitt af við­höldum hans.

„Hún ætti lík­lega von á dómi fyrir aðild sína. Þetta kom mér alls ekki á óvart og ég á alveg von á að fyrr eða síðar dúkki hún upp í ein­hverjum fjöl­miðli og lýsi því hvernig hún hafi verið neydd út í þetta allt saman.“

Ég varð ger­sam­lega kjaft­stopp en svo var mér nóg boðið. Ég fór ein­fald­lega heim. Daginn eftir hringdu vin­konur mínar í mig og sögðu mér að Jóna hefði haldið áfram að tönnlast á þess­ari vit­leysu allt kvöldið og haldið því fram að ég hefði farið vegna þess að sekt­ar­kenndin hafi orðið mér um megn. Þá var mér nóg boðið. Ég ákvað að ég þyrfti ekki á vin­konu eins og Jónu að halda. Hún hringdi í mig nokkrum dögum seinna og ég sagði henni ein­fald­lega að ég hefði ekki áhuga á að umgang­ast hana meira svo lagði ég á. Jóna hringdi aftur en ég svar­aði ekki og sama dag blokk­aði ég hana á facebook.

Sökuð um að hafa spillt vináttunni

Ég sagði stelp­unum í saumklúbbnum hvaða ákvörðun ég hefði tekið og jafn­framt að ég vildi ekki skemma fyrir Jónu þannig að ég ætl­aði að draga mig út úr klúbbnum. Það vildu þær ekki en ég sagði þeim að ekki kæmi annað til greina. Skömmu seinna frétti ég svo að klúbb­ur­inn hefði lagt upp laupana. Í kjöl­far þess stofn­uðum við sem vorum hvað nánastar okkar eigin klúbb. Auðvitað túlk­aði Jóna það á sinn hátt og sagði hverjum sem heyra vildi að ég hefði bolað henni úr sauma­klúbbnum og spillt á milli hennar og hinna. Sann­leik­ur­inn var sá að þær voru allar orðnar þreyttar á henni þegar þarna var komið sögu og voru fegnar að losna. Eina ástæða þess að við héldum áfram svona lengi var sú að okkur þótti vænt hver um aðra en við umbárum Jónu, fannst við ekki geta rekið hana úr klúbbi sem hún hafði stungið upp á að yrði stofn­aður.

Hrunið reið yfir og við vin­kon­urnar komu mis­jafn­lega út úr því rétt eins og aðrir Íslend­ingar. Við heyrðum að illa hefði farið fyrir Jónu. Fyr­ir­tækið farið í þrot og húsið komið undir ham­ar­inn. Hún hafði ein­fald­lega hætt að borga af lánum og nú hugð­ist bank­inn halda upp­boð á eign­inni.  Þegar að því kom hafði hins vegar ýmis­legt horfið úr hús­inu, glæsi­leg sér­hönnuð eld­húsinn­rétt­ing sem skipt hafði verið út fyrir IKEA-inn­rétt­ingar, eik­ar­fata­skápar og margt fleira. Hún hafði selt þetta allt meðan bank­inn gaf henni greiðslu­frest.  Þetta var það síð­asta sem ég heyrði af Jónu í langan tíma. Nýlega hitti ég hins vegar gamla bekkj­ar­systur og hún sagði mér þær fréttir að Jóna hefði verið hand­tekin fyrir rúmu ári fyrir tengsl við stórt fíkni­efna­mál. Hún ætti lík­lega von á dómi fyrir aðild sína. Þetta kom mér alls ekki á óvart og ég á alveg von á að fyrr eða síðar dúkki hún upp í ein­hverjum fjöl­miðli og lýsi því hvernig hún hafi verið neydd út í þetta allt saman. Hún mun mjög lík­lega tína til nokkra söku­dólga og njóta þess að eiga alveg óskap­lega bágt. Þegar það ger­ist mun ég brosa út í annað og velta fyrir hversu margir trúa henni.

Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur í Vikunni. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu