„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Faðir í þrjú ár á flótta frá Palestínu: „Hvenær fáum við að koma til Íslands? EINKAVIÐTAL“

Faðir í þrjú ár á flótta frá Palestínu: „Hvenær fáum við að koma til Íslands? EINKAVIÐTAL“

Iyad Alkafarna er þrí­tugur og er frá Gaza í Palest­ínu. Hann á þrjú ung börn og konu sem enn eru föst þar. Hann átti blóm­legt fyr­ir­tæki sem hafði verið í eigu fjöl­skyld­unnar um áraraðir en það hvarf í spreng­ingu árið 2014 vegna átaka Ísrael og Palest­ínu. Iyad er alinn upp í stríði og vill ekk­ert heitar en að börn hans þurfi ekki að alast upp þannig. Árið 2018 lagði hann af stað í ferða­lag hel­vítis sem end­aði á Íslandi 2020. Iyad er nú á göt­unni á Íslandi eftir að hafa verið bor­inn út af Útlend­inga­stofnun og Reykja­vík­ur­borg fyrir það að neita að gang­ast undir Covid – próf sem er  það er það eina sem stendur á milli Iyads og brott­flutn­ingi til Grikk­lands. Mannlíf hitti Iyad og spurði hann út í hans sögu hans og leit­aði jafn­framt svara við spurn­ingum sem margir Íslend­ingar spyrja ítrekað þegar hæl­is­leit­endur og flótta­menn ber á góma.

Iyad Alkafarna

Iyad hefur beðið hér á landi í eitt ár sem hæl­is­leit­andi eftir úrskurði um það hvort hann hljóti hér efn­is­lega með­ferð á máli sínu og í kjöl­farið vernd. Nú er svo komið að vísa á honum til Grikk­lands. Iyad á konu og þrjú ung börn úti í Palest­ínu sem ætl­unin var að bjarga þaðan og koma í skjól og veita þeim öruggt líf. Eftir þriggja ára fjar­veru frá fjöl­skyldu sinni og mik­illi þrauta­göngu til þess að bjarga fjöl­skyldu sinni hefur Útlend­inga­stofnun og Reykja­vík­ur­borg borið hann út á götu og svipt hann vasa­pen­ingum.

Börnin hans Iyads, Dima, Lamaa og Adham

Von­brigðin, von­leysið og hræðslan sem hann upp­lifir eftir allt sem á undan er gengið fæst ekki með orðum lýst. Iyad sam­þykkti að veita Mannlíf við­tal og svara spurn­ingum sem oft koma upp í okkar sam­fé­lagi í tengslum við flótta­fólk og hæl­is­leit­endur. Hann sagði þó að sumu gæti hann ekki svarað og þegar blaða­maður spurði hvað það væri og hvers vegna, sagði hann það vera of hræði­legt og að hann gæti hrein­lega ekki komið orðum að því.

Fólk spyr alltaf hvers vegna eru það bara karl­menn sem koma hingað? Hvers vegna skilja þeir konur sínar og börn eftir ? Það er ekki óeðli­legt að sá sem þekkir ekki til né hefur skiln­ing á aðstæðum flótta­fólks spyrji svona, þvert á móti. Því verður þetta útskýrt út frá stöðu Iyad og þessum spurn­ingum og von­andi fleirum svarað í eitt skipti fyrir öll.

Hvers vegna fórstu frá Gaza?

Ástandið þar er og hefur verið hræði­legt. Þar á eng­inn eðli­legt líf. Við erum inni­lokuð, ein­angr­unin er alger. Það hefur auð­vitað geisað þar stríð  alla mína ævi og þar að auki eru líka átök innan svæð­is­ins til dæmis á milli Hamas og ann­arra hópa. Í átökum á milli Hamas og eins hóps­ins slas­að­ist ég þegar ég var staddur fyrir utan heim­ili mitt hjá mót­or­hjóli sem ég átti. Ég var bara að koma heim til mín þegar skot hæfði bens­íntank hjóls­ins með þeim afleið­ingum að hann sprakk og ég brennd­ist illa á fótum og höndum. Svona atvik þykja bara eðli­leg á þessu svæði sem þau eru auð­vitað alls ekki. Ég á þrjú ung börn og eig­in­konu og ég get ekki boðið þeim upp á öryggi í neinum skiln­ingi, á Gaza. Börn eiga ekki beint góða fram­tíð þarna þó svo að þau láti ekki lífið í stríð­inu sem geisað hefur með regli­legu milli­bili í 74 ár“.

Hér má sjá ör á fótum Iyads eftir að skotið var á bans­íntank mót­or­hjóls­ins hans, sem sprakk í kjöl­farið
Hendur Iyads eru eins og fæturnir, ásamt því að brot efti spreng­ing­una sitja föst undir húð hans

Við hvað vannstu á Gaza ?

Fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið okkar, bygg­inga­fyr­ir­tæki og allt sem því fylgdi, var sprengt í loft upp  árið 2014 en þá braust út stríð. Ég hef ekki haft neina örugga vinnu síðan þá. Ég vann á þunga­vinnu­vélum, vöru­bílum og almenna bygg­ing­ar­vinnu. Við sáum líka um að steypa hellur og fleira til húsa­bygg­inga, þetta var hrika­legur missir. Hvernig náðir þú að safna pen­ing til þess að kom­ast burt ? Það tók mörg ár, fjöl­skyldan hjálp­aði mér líka eins og þau gátu svo á end­anum tókst að safna nægri upp­hæð.

Er atvinnuástand almennt erfitt á svæðinu?

Já, það er bara enga vinnu að hafa og yfir­leitt er þeirri litlu vinnu sem býðst, útdeilt eftir frænd­semi og klíku­skap. Ég reyndi og reyndi, það vill eng­inn vera án vinnu og eiga ekki mögu­leika á að sjá fyrir sér og sínum, það er sár staða að vera í.

Hvers vegna tókstu ekki börnin og konuna með þér í þetta ferðalag?

Það eru tvær ástæður fyrir því. Það er stór­hættu­legt og það vissum við fyr­ir­fram og það hefur komið í ljós að þetta er bæði mun hættu­legra og erf­ið­ara lík­am­lega en okkur óraði fyrir. Ég vildi ekki setja það dýr­mætasta sem ég á í hættu svo ein­falt er það og ég virki­lega trúði því að ef ég myndi leggja þetta á mig og ná til sið­mennt­aðs ríkis, væri fjöl­skylda mín hólpin. Önnur ástæðan er sú að þú þarft að eiga gríð­ar­lega fjár­muni  til þess að borga fyrir fimm manns og þegar börn og kona eða konur eru með í för hækkar verð á öllu, smygl­arar rukka hærra verð því þeir vita að við erum ekki í aðstöðu til þess að neita eða reyna að semja við þá. Það eru fáir sem taka börn og eig­in­konur sínar með í þetta vít­is­ferða­lag. Ég þakk­aði oft á dag fyrir það að börnin mín og kona væru ekki með mér, þetta eru ekki aðstæður fyrir neinn að vera í og hvað þá börn og konur. Ég mun aldrei sjá eftir því að hafa ekki getað tekið þau með. Við skulum bara segja það, að þrátt fyrir að ástandið á Gaza sé hræði­legt, ger­ast hlutir á ferða­lagi sem þessu er valda því að eng­inn verður samur maður eftir þá reynslu.

Búðirnar sem Iyad bjó í
Þarna er ekk­ert renn­andi vatn
Íkveikjur eru mjög algengar
ÞArna er búið að brenna niður heila þyrp­ingu af tjöldum
Aðstæð­urnar eru hreint út sagt hræði­legar
Fólk býr allt þröngt í tjöldum og sefur á jörð­inni
Það er engin þjón­usta til staðar fyrir fólkið

 Þú ert múslimi. Margir halda því fram að allir múslimar hljóti að vera hryðju­verka­menn, líti niður á konur, beiti þær og börnin ofbeldi og séu með trú­ar­of­stæki að vopni. Hvað vilt þú segja við fólk sem horfir svona á þig og þína fjöl­skyldu?

allir for­dómar gera mig leiðan

Þetta hryggir mig fyrst og fremst, allir for­dómar gera mig leiðan. Ég held samt að það sé lítið sem ég get sagt til þess að breyta hug­ar­fari ein­stak­linga sem hugsa svona. Það má þó nefna það að frétta­flutn­ingur hefur verið mjög ein­hliða og lit­aður for­dómum og ef til vill er það að hafa áhrif á hugs­ana­gang fólks. Það er alls staðar til gott og vont í þessum heimi en múslimar eru ekki allir vondir eða illir, það gildir það sama um þá eins og alla aðra og allt annað í þessum heimi. Ég vona bara að fólk leyfi sér að kynn­ast múslimum og sjá að við erum flest mjög venju­legt fólk og höfum margt að gefa.

 Hvernig sérðu þig og fjöl­skyldu þína aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi ?

Við hjónin sjáum það í hill­ingum en við þráum ekk­ert heitar en að setj­ast að hér og aðlag­ast íslensku sam­fé­lagi. Við erum eins og hverjir aðrir for­eldrar, við viljum veita börn­unum okkar öryggi og fram­tíð en það hafa þau hvor­ugt á Gaza, því miður. Íslend­ingar sem ég hef kynnst er indælt fólk og ekki frá­brugðið okkur í raun og veru. Auðvitað komum við úr allt annarri menn­ingu en það þýðir alls ekki það að við getum ekki aðlag­ast ólíkri menn­ingu. Ísland er fal­legt og frið­sælt land sem okkur langar að kalla okkar heima­land meira en nokkuð annað. Blaða­maður spyr hvers vegna Ísland fremur en Belgía, Þýska­land eða annað land og Iyad segir að það sé kostur að Ísland sé lítið land og ekki sé mikið um glæpi og þess háttar og það sé full­komið til þess að ala upp börn og eiga frið­sælt líf.

Hvenær og hvernig fórst þú frá Gaza?

Ég fór fyrst frá Gaza 30. maí  2018 til Egypta­lands síðan til Tyrk­lands og var kom­inn til Grikk­lands í des­em­ber 2019. Ferða­lagið tók alls 19 mán­uði og kost­aði mig um 5.000 doll­ara eða um 605.000 krónur, ein­ungis ferð­irnar og það sem ég þurfti að borga smygl­ara til þess að koma mér frá Tyrk­landi til Grikk­lands. Þeirri ferð gleymi ég aldrei svo lengi sem ég lifi og ég man hvað ég þakk­aði fyrir það að börnin mín og kona væru ekki með mér í þessum hræði­legu aðstæðum. Á þessu ferða­lagi drukknar fólk og börn í stórum stíl og það eru þessar aðstæður sem sitja mjög oft í okkur sem höfum farið þessa leið af illri nauð­syn. Iyad treystir sér á þessum tíma­punkti ekki til þess að gefa nán­ari útlist­ingar á þessu ferða­lagi og er morg­un­ljóst að hann hefur séð eitt­hvað og upp­lifað sem tekur mjög á hann.

Landa­mærin á milli Palest­ínu og Egypta­lands

Að komast frá Gaza

Ferlið til þess að kom­ast frá Gaza er allt annað en auð­velt. Þar opna landa­mærin aðeins ein­staka sinnum og þá þarf fólk að borga fúlgur fjár til þess að kom­ast út. Landa­mærin voru opin þegar Iyad yfir­gaf Gaza en það kost­aði hann samt sem áður 2200 doll­ara eða rúm 266.000 krónur  að kom­ast með rútu frá Gaza sem fer beint á flug­völlin í Cairo. Það er um 12 klukku­stunda ferða­lag og engum er hleypt út fyrr en á flug­vell­inum og verður fólkið frá Palest­ínu að yfir­gefa Egypta­land strax. Hefði Iyad tekið alla fjöl­skyld­una með sér þá hefði það kostað 7500 doll­ara eða um 908.000 krónur, bara ferðin frá Gaza og út á flug­völl­inn í Cairo. Þá á eftir að reikna með útgáfu ferða­á­rit­unar fyrir alla fjöl­skyld­una, flug­miða til Tyrk­lands og síðan greiða smygl­ara fyrir það að stofna lífi þeirra í hættu. Hér erum við að tala um him­in­háa upp­hæð, mikla hættu og hræði­legar aðstæður og þá sér­stak­lega þegar komið er í flótta­manna­búðir í Grikk­landi, ástandið þar er skelfi­legt. Blaða­maður spyr hér hve oft landa­mærin opni og hvort það sé smygl­ari sem sjái um að koma fólk­inu yfir landa­mærin. Það er engin regla með landa­mærin, einu sinni til tvisvar á ári. Nei, það er ekki smygl­ari heldur aðili sem sér um að safna fólki saman sem hefur óskað eftir því og deg­inum áður borgum við hvert fyrir sig en þetta er mútufé sem fer til egyp­sku landamæra­lög­regl­unnar.

 Tyrkland

Það tók Iyad fimm mán­uði að ná að flýja frá Tyrk­landi til Grikk­lands en tyrk­neska lög­reglan náði honum hvað eftir annað en hann var að reyna að fara sjó­leið­ina sem tókst á end­anum. Iyad segir að fólk sem reyni að fara fót­gang­andi til Grikk­lands lendi í flas­inu á grísku lög­regl­unni og þar eru allir látnir fara út föt­unum og allar eigur þeirra teknar af þeim, gildir einu hvort það eru börn eða konur allir fá sömu með­ferð og kon­urnar sæta oft einnig ofbeldi af hálfu grísku lög­regl­unnar. Þarna spyr blaða­maður hvort karl­menn verði ekki einnig fyrir ofbeldi og Iyad svarar jú auð­vitað það er bara svo eðli­legt að mér datt ekki í hug að taka það fram. Fólk þarf svo að snúa við þessa löngu leið nakið eða á nær­bux­unum, aftur til Tyrk­lands þar sem lög­reglan þar lætur fólkið fá föt. Þessa leið verða allir þeir sem, eiga ekki pen­inga til þess að greiða smygl­urum að reyna að fara en það tekst mjög sjaldan.

Þetta mynd­band tók Iyad á flótta milli Tyrk­lands og Grikk­lands. Smygl­arar hrúga fólki í allt of litla báta, full­orðnir og börn láta lífið í stórum stíl á þess­ari leið.

Gríska lög­reglan er þekkt fyrir ofbeldi gegn flótta­fólki
Hér má sjá flótta­fólk sem gríska lög­reglan er búin að taka allt frá, fötin, mat, síma og allt annað sem hugs­ast getur.
Bar­smíðar eftir grísku lög­regl­una

Grikkland

Iyad kom eins og áður sagði til Griklands 2. des­em­ber 2018 en þar dvaldi hann í 19 mán­uði á eyj­unni Chios í flótta­manna­búðum við hræði­legar aðstæður. Það var meðal ann­ars marg­sinnis ráð­ist að honum og eitt sinn var það hópur heima­manna sem réð­ist að honum þegar hann reyndi að fara niður í bæinn á eyj­unni með þeim afleið­ingum meðal ann­ars, að eyra hans rifn­aði. Það ríkir mikið hatur  og miklir for­dómar á Grikk­landi gegn flótta­fólki og það á ekki bara við um almenn­ing heldur yfir­völd líka, það fékk ég marg oft að reyna. Við eigum að fá hina og þessa þjón­ustu á papp­írum en það fær hana eng­inn. Heil­brigð­is­þjón­usta, hús­næði, túlka­þjón­usta, félags­leg aðstoð, hvað er það ? Það er ekk­ert í boði og það er raun­veru­leik­inn og sann­leik­ur­inn. Ef það væri hægt að vera í Grikk­landi við mann­sæm­andi aðstæður og það væri hægt að fá smá þjón­ustu og vinnu væri flótta­fólk ekki að flýja þaðan ístórum stíl og það ætti hver mann­eskja að sjá að það er eitt­hvað veru­lega bogið við þetta allt saman. Það stenst ekk­ert af því sem er ritað á pappír það er bara blekk­ing ekki sann­leik­ur­inn.

Það kom oft fyrir að kveikt var í tjöldum og fólk dó

Blaða­maður spyr hvort hjálp­ar­sam­tök séu ekki á svæð­inu og Iyad svarar nei, aldeilis ekki, sá ekk­ert slíkt allan tím­ann meðan ég var þarna og þetta er líka umtalað vanda­mál meðal flótta­fólks. Hjálp­a­sam­tök láta sig líta vel út á sam­fé­lags­miðlum svo almenn­ingur styrki starf­sem­ina en það skilar sér sjaldn­ast til flótta­fólks­ins. Blaða­maður spyr þá hvernig sé með sal­ern­is­pappír, sápu, vatn og annað slíkt, hvort það sé ekki útvegað í það minnsta. Iyad skelli­hlær og hristir höf­uðið, nei það er ekk­ert svo­leiðis ekki einu sinni fyrir fjöl­skyldu­fólk. Það kom oft fyrir að kveikt var í tjöldum og fólk dó, einnig börn ástandið er hræði­legt, alger­lega hræði­legt.

Sauma þurfti eyrna­snepil Iyads saman eftir að grikkir réð­ust á hann
Heima­menn eru alls ekki vin­veittir í garð flótta­manna
Í þessum elds­voða lét lítil stúlka lífið

Ísland

Iyad kom til Íslands í júní 2020 og var því búinn að bíða hér í eitt ár áður en hann var bor­inn út af Útlend­inga­stofnun í byrjun mán­aðar en Mannlíf var á staðnum og náði af því upp­tökum þegar UTL kom og vís­aði honum út sjá hér.

Allir sem komu til lands­ins um leið og hann hafa fengið jákvæð svör um efn­is­lega með­ferð mála þeirra og var honum einnig sagt að hann yrði með í þeim hóp og hann því ekki spurður út frá aðstæðum í Grikk­landi, heldur heima­landi hans, Palest­ínu. Iyad mætir svo á fund sem átti að snú­ast um það að hann segði frá aðstæðum á Gaza en þá hafði orðið viðsún­ingur án hans vit­neskju og hann ein­ungis spurður út í aðstæður hans á Grikk­landi. Þetta var mikið áfall fyrir Iyad og fjöl­skyldu hans því hann var lát­inn halda það að hann fengi efn­is­lega með­ferð á sínu máli eins og allir aðrir í sama hóp sem kom á sama tíma og hann til lands­ins. Það kom svo í ljós að ein­hverra hluta vegna, sem ekki voru einu sinni skýrðir út fyrir honum hafði hann einn verið færður í hóp sem kom seinna til lands­ins þar sem allir fengu neitun. Mannlíf vinnur að því að leita skýr­inga á þessu órétt­læti og þessum við­snún­ingi og ástæðum þess að mann­inum var ekki skýrt frá þessu og útskýrt hvers vegna hann einn hafi verið tek­inn út úr hópnum. Iyad var hárs­breidd frá því að geta komið börn­unum sínum þremur og eig­in­konu í skjól og að geta boðið þeim mann­sæm­andi líf.

Mannlíf fékk að tala við Doaa sem er 28 ára eig­in­kona Iyad, með hjálp túlks og spurði hana meðal ann­ars hvernig það væri að vera ein með þrjú lítil börn á Gaza í því ástandi sem ríkt hefur þar og vera bara að bíða eftir að koma börn­unum í skjól og betri fram­tíð og jafn­framt hvernig það væri að vera án eig­in­manns síns í þrjú ár.

Hún gat ekki svarað, hún brast í grát og blaða­maður með henni. Þetta var átak­an­legt hún þurfti ekki að svara með orðum.

Syst­urnar Dima og Lamaa
Þetta er hann Adham litli

Börn Iyads og Doaa heita Dima 7 ára, Lamaa 6 ára og Adham 4 ára en hann var aðeins átta mán­aða þegar faðir hans fór af stað að leita betra lífs fyrir þau. Dima hefur verið að læra íslensku með hjálp Youtube en fjöl­skyldan hélt að það yrði að veru­leika að þau fengju að sam­ein­ast hér á Íslandi því búið var að segja það við Iyad eins og áður sagði en svo kom þessi furðu­legi við­snún­ingur hjá Útlend­inga­stofnun. Börnin eru for­vitin að sjá blaða­mann og Dima talar íslensku sem er mjög vel gert hjá henni. Börnin byrja svo að spyrja föður sinn á arab­ísku:  Hvenær fáum við að koma til Íslands? Þá verður að enda við­talið.

Börnin sendu pabba sínum þetta mynd­band. Þau segja: Hæ pabbi, vonum að þú sért í góðum aðstæðum, við söknum þín mjög mikið og við elskum þig mjög mikið, bless…….

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Brottvísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð
Innlenthælisleitendur

Brott­vísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð

Búið er að fresta brott­vísun Emmu litlu, þriggja ára stúlku frá Venes­ú­ela, fram yfir mjaðmalið­hlaups­að­gerðar. Vísir segir frá mál­inu. Fjöl­skylda Emmu fékk upp­runa­lega synjun um dval­ar­leyfi frá kæru­nefnd útlend­inga­mála í nóv­em­ber en þau koma frá Venes­ú­ela. Lögmaður fjöl­skyld­unnar, Jón Sig­urðs­son, sótti þá um leyfi frá Útlend­inga­stofnun svo að fjöl­skyldan fengi dval­ar­leyfi á land­inu þar til Emma kæm­ist í bráð­nauð­syn­lega skurð­að­gerð....
Stjórn Solaris fordæmir fyrirhugaða brottvísun á Emmu og skorar á ráðherra að beita sér
Innlenthælisleitendur

Stjórn Solaris for­dæmir fyr­ir­hug­aða brott­vísun á Emmu og skorar á ráð­herra að beita sér

Solaris, hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi for­dæmir brott­vísun á Emmu, þriggja ára stúlku frá Venes­ú­ela, sem á að ganga í gegn á morgun. Í yfir­lýs­ingu frá sam­tök­unum er sagt frá Emmu, en hún er þriggja ára stúlka frá Venes­ú­ela sem kom til Íslands í leit að alþjóð­legri vernd sum­arið 2023 ásamt ungum for­eldrum sínum. Skömmu eftir kom­una til...
Svarar „viðurstyggilegu“ myndbandi um innflytjendur: „Tölfræðin er augljós uppspuni frá rótum“
Innlenthælisleitendur

Svarar „við­ur­styggi­legu“ mynd­bandi um inn­flytj­endur: „Töl­fræðin er aug­ljós upp­spuni frá rótum“

Pétur Eggerz Pét­urs­son, aðgerð­ar­sinni, tón­list­ar­maður og tækni­stjóri svar­aði áróð­urs­mynd­bandi sem birt­ist á TikTok með gervi­greind­ar­mynd­skeiði sem sýnir Snorra Másson fara yfir raun­veru­legar tölur um hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur á Íslandi. Setur Pétur myllu­merkið #mið­flokk­ur­inn við færslu sína sem hann birti á Instagram. Í mynd­bandi sem birt­ist á TikTok í fyrra­dag er farið yfir ýmsar tölur varð­andi hæl­is­leit­endur á Íslandi en Pétur...
Fordæma orð lögreglustjóra á Suðurnesjum: „Glæpavæðir börn á flótta“
Innlenthælisleitendur

Fordæma orð lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum: „Glæpa­væðir börn á flótta“

Stjórn sam­tak­anna Solaris sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem orð Úlfars Lúð­víks­sonar, lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, um hæl­is­leit­endur, eru for­dæmd. Í frétta­til­kynn­ing­unni svarar stjórn Solaris orðum Úlfars Lúð­víks­sonar sem hann lét falla í við­tali á Morg­un­blað­inu í fyrra­dag en þar ræddi hann um hæl­is­leit­endur og sagði menn mis­nota útlend­inga­lögin og sitt­hvað fleira sem Solaris er ósam­mála. Segir í frétta­til­kynn­ing­unni að orð­ræða...
Boða til mótmæla gegn útlendingahatri stjórnmálaflokkanna: „Hvenær er nóg komið? Nægur rasismi?“
Innlent

Boða til mót­mæla gegn útlend­inga­hatri stjórn­mála­flokk­anna: „Hvenær er nóg komið? Nægur ras­ismi?“

Samtökin No Borders Iceland boða til mót­mæla­göngu gegn ras­isma og útlend­inga­hatri stjórn­mála­flokk­anna. Gangan verður 23 nóv­em­ber klukkan 14:00 og gengið verður frá Lækj­ar­torgi að utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og endað verður á lög­reglu­stöð­inni við Hlemm. Laug­ar­dag­inn 23. nóv­em­ber klukkan 14:00 mun fólk mæta og mót­mæla kyn­þátta­hatri og útlend­inga­andúð stjórn­mála­flokk­anna í garð fólks á flótta. Komið verður saman á Lækj­ar­torgi, þaðan verður gengið að...
Karen leitar að útlendingavandamálinu: „Hefur knúið áfram hagvöxt og efnahagslega þróun landsins“
Innlenthælisleitendur

Karen leitar að útlend­inga­vanda­mál­inu: „Hefur knúið áfram hag­vöxt og efna­hags­lega þróun lands­ins“

Karen Kjart­ans­dóttir stjórn­enda­ráð­gjafi bendir á tölu­legar stað­reyndir þegar kemur að meintu „útlend­inga­vanda­máli“ sem flokkar á borð við Mið­flokk­inn, Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Sam­fylk­ing­una hafa talað um í aðdrag­anda þing­kosn­inga. Bendir Karen, sem að und­an­förnu hefur verið dug­leg að taka upp hansk­ann fyrir hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur hér á landi, á að atvinnu­þátt­taka erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi, sé hærri en hjá inn­fæddum Íslend­ingum. „Hvert...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins