„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kveðjuviðtal Steingríms J. Sigfússonar: Lífsháskinn við Meyjará

Kveðjuviðtal Steingríms J. Sigfússonar: Lífsháskinn við Meyjará

Síðasta þing­fundi kjör­tíma­bils­ins lauk í nótt þegar klukk­una vant­aði tutt­ugu mín­útur í tvö og um leið síð­asta þing­fundi Stein­gríms J. Sig­fús­sonar en hann gefur ekki kost á sér til setu á þingi. Stein­grímur er tví­mæla­laust einn af merk­ustu sam­tíð­ar­innar. Hér að neðan má sjá kveðju­við­tal Stein­gríms sem Svava Jóns­dóttir tók við hann í haust. Þar fjallar hann um feril sinn, sigra og ósigra. Þá segir hann frá lífs­hásk­anum við Meyjará, þar sem hann og bróðir hans sýndu hetju­dáð.

„Það gekk allt vel þangað til við áttum um þrjá kíló­metra eftir að Dröngum en þá komum við að á, Meyjará, sem er venju­lega hægt að vaða yfir á gúmmí­stíg­vélum en var orðin að skað­ræð­is­fljóti. Það var alveg ljóst að hóp­ur­inn var strand­aður.“

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, til­kynnti í haust að hann muni ekki gefa kost á sér til að leiða fram­boð Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs í norð­aust­ur­kjör­dæmi í alþing­is­kosn­ing­unum á næsta ári. Um fjög­urra ára­tuga ferli hans í stjórn­málum lýkur þá. Hann talar hér um ýmis menn og mál­efni og segir meðal ann­ars um sam­vinnu við aðra flokka að menn átta sig á því að fólk er ekk­ert holds­veikt þótt það sé í öðrum flokkum. Um Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra segir Stein­grímur: „Ég ætla að leyfa mér að segja það að ég nátt­úr­lega dáist á hverjum degi af Katrínu Jak­obs­dóttur fyrir það hersu öfl­ugur for­ystu­maður og leið­togi hún er og gerir þetta vel og af mik­illi sam­visku­semi og dugn­aði enda vönduð mann­eskja. Ég sé engan sem gæti gert þetta betur.“

„Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig maður eigi að hætta og hver sé lyk­ill­inn að því að gera það vel og með sæmi­legri reisn,“ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. „Auðvitað er ég mjög ánægður með að ég skuli eiga þess kost að velja þann tíma sem ég tel heppi­legan. Ég hef sagt í gríni og alvöru að það sé skemmti­legra að hætta á meðan ein­hver hugs­an­lega saknar manns og áður en allir vilja losna við mann. Ég fór ann­ars að velta þessu fyrir mér þegar leið á þetta kjör­tíma­bil og það má kannski segja að með því að taka að mér emb­ætti for­seta Alþingis þá hafi það verið ákveðin skila­boð af því að þá dregur maður sig eðli­lega dálítið í hlé frá dags dag­legri póli­tík og þó það þurfi ekki að vera regla þá gegnir því emb­ætti oft fólk sem er að koma inn til lend­ingar ef það má grípa til þess lík­inga­máls í póli­tík­inni. Það er verið að und­ir­búa að stíga út af svið­inu.“

Kvittur var uppi um að Stein­grímur hafi lofað Birni Vali Gísla­syni að hann myndi víkja í síð­ustu kosn­ingum en hafi hætt þá við og Björn Valur lent fyrir borð. Stein­grímur er spurður út í þennan kvitt. „Björn er einn af okkar harð­skeytt­ustu og öfl­ug­ustu þing­mönnum og mik­ill bar­áttu­jaxl og við höfum þekkst lengi. Útgáfa mín af sög­unni er aðeins öðru­vísi en ég hef ein­hvers staðar séð í slúð­ur­dálkum. Það var þannig að þegar Björn ákvað að reyna fyrir sér í Reykja­vík í for­vali 2013 í stað­inn fyrir að halda áfram með okkur fyrir norðan þá hvatti ég hann nú til þess að vera bara áfram með okkur fyrir norðan en hann að sjálf­sögðu varð að ákveða hvað hann gerði og fór í for­valið í Reykavík. Það er alveg rétt að í sam­tölum okkar Björns benti ég honum á þann kost að jafn­vel þó svo færi að hann yrði þá bara vara­þing­maður eitt kjör­tíma­bil eða svo þá kæmi nú að því fyrr eða síðar að ég hætti í stjórn­málum, enda þá þegar búinn að vera mjög lengi. En það var ekk­ert ákveðið í þeim efnum, engin lof­orð. Ég benti bara á hið aug­ljósa að ég var þá þegar búinn að vera þing­maður mjög lengi og myndi auð­vitað fyrr eða síðar láta af þing­mennsk­unni, enda var í mínum huga þá alveg óvíst um það hvort ég myndi halda áfram nema kannski í eitt kjör­tíma­bil eða mesta lagi tvö í við­bót. Svo bara atvik­uð­ust hlutir öðru­vísi. Við fengum óvæntar kosn­ingar bæði 2016 og 2017 og það hafði sín áhrif á það að mér fannst það ekki heppi­legur tími til að hætta. Og er hér enn. En ég kann­ast ekki við að ég hafi gengið á bak nokk­urra orða í þeim efnum og finnst miður ef slíkt er verið að bera út og ég hef hvergi séð það frá Birni sjálfum. Þannig að menn eru að reyna að koma fleyg á milli okkar. Hann hvarf til sinna fyrri starfa og hefur verið far­sæll skip­stjóri síð­ustu árin og ég veit ekki annað en að hann sé sáttur í því hlut­skipti.“

Hvað mögu­legan „arf­taka“ varðar segir Stein­grímur að það sé í höndum félaga sinna í norð­aust­ur­kjör­dæmi að finna út úr því hvernig þeir vilja stilla liðs­sveit­inni upp og hann ætli ekki að blanda sér í það.

Fjölbreyttur ferill

Stein­grímur er jarð­fræð­ingur að mennt og með próf í upp­eldis- og kennslu­fræði. Hann vann meðal ann­ars sem íþrótta­f­rétta­maður hjá RÚV áður en hann fór í póli­tík­ina. Embættin og verk­efnin hafa verið mörg og má nefna nokkur. Stein­grímur var for­maður þing­flokks Alþýðu­banda­lags­ins 1987-1988 og vara­for­maður Alþýðu­banda­lags­ins 1989-1995, hann sat á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna 1991 og 2007, var for­maður flokks­hóps vinstri sós­í­alista í Norð­ur­landa­ráði 1998-2000 og flokks­hóps vinstri sós­í­alista og grænna 2015-2017. Stein­grímur var for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns farm­boðs frá stofnun flokks­ins í febr­úar árið 1999 til febr­úar 2013. Hann var alþing­is­maður Norð­ur­lands eystra 1983-2003 (Alþýðu­banda­lagið, þing­flokkur óháðra, Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð) og alþing­is­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis frá árinu 2003 (Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð).

Hann var land­bún­aðar- og sam­göngu­ráð­herra frá 1988-1991, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í nokkra mán­uði árið 2009, fjár­mála­ráð­herra 2009-2011, efna­hags- og við­skipta­ráð­herra og sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra 2011-2012 og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra frá því í sept­em­ber 2012 til loka apríl 2013.

Magnað að vinna með Jóhönnu

Stein­grímur er spurður um sam­starfið við Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur en VG og Sam­fylk­ingin voru í stjórn á árunum 2009-2013 og var Jóhanna for­sæt­is­ráð­herra.

„Jóhanna er óskap­leg elju­mann­eskja og það var magnað að vinna með henni. Hún var óhemju dug­leg og gaf sig alltaf í sitt starf þannig að það var til hreinnar fyr­ir­myndar. Við vörðum gríð­ar­lega miklum tíma saman, við fund­uðum mjög mikið og það var svo­lítið hennar stíll að vilja funda um málin en hún hélt þá bara fund eftir fund ef þess þurfti í anda þessa dugn­aðar sem ein­kennir hana. Jóhanna er ekk­ert allra og var á köflum kannski má segja svo­lít­ill ein­fari í póli­tík en við náðum mjög vel saman. Við átt­uðum okkur alger­lega á því að sú ríksi­stjórn og sam­starf okkar byggð­ist alger­lega á því að við værum sem einn maður og það voru nán­ast aldrei nein frá­vik frá því.“

Stein­grímur segir að þau Jóhanna hafi yfir­leitt leyst málin sín á milli og á bak við tjöldin ef eitt­hvað var og hafi aldrei borið ágrein­ing sinn á torg.

„Það skiptir gríð­ar­legu máli fyrir svona sam­starf og fyrir liðs­menn­ina sem eru með manni því að það er alltaf mjög erfitt ef þeir skynja að for­ystu­menn­irnir eru orðnir ósam­mála og ósáttir. Þannig að við bara snerum bökum saman og jöxl­uð­umst í gegnum þetta. Þetta var ævin­týra­legur og erf­iður tími en við komumst í mark og héldum úti heilt kjör­tíma­bil og rúm­lega það. Það spillti ekki fyrir að við vorum þá þegar tveir reynslu­mestu alþing­is­menn­irnir. Svo nauð­syn­leg sem end­ur­nýjun og nýtt blóð er inn í stjórn­málin eins og allt annað þá er nú líka reynslan þáttur sem eng­inn skyldi van­meta. Það hefur lífið einmitt kennt mér að maður á að geta þroskast og styrkt sig í þessu starfi eins og öðru með auk­inni reynslu ef maður notar það til þess að læra af hlut­unum og maður öðl­ast líka meiri yfir­vegun og ró með reynsl­unni þannig að maður hættir að kippa sér eins upp við hlut­ina; maður fer ekki af hjör­unum þótt ýmis­legt gangi á. Það er ákaf­lega mik­ill kostur í stjórn­málum, sér­stak­lega þegar glímt er við erfið verk­efni á krefj­andi tímum. Og það reynir heldur betur á það í dag hjá þeim sem eru að leiða okkur í gegnum þessa nýj­ustu krísu.“

Voru aldrei minnihlutastjórn

Sagt hefur verið að stjórn­ar­sam­starf VG og Sam­fylk­ingar á sínum tíma hafi ein­kennst af stöð­ugum og for­dæma­lausum mál­efna­legum átökum og upp­þotum en rík­is­stjórnin VG og Sam­fylk­ing­ar­innar á árunum 2009-2013 missti meiri­hlut­ann. „Við vorum komin í erf­iða stöðu hvað það snertir að við vorum með minnsta mögu­lega meiri­hluta og áttum hann ekki alltaf tryggan en ég met stöð­una þannig að við vorum aldrei minni­hluta­stjórn í þeim skiln­ingi að það væri mikil hætta á að við yrðum borin ofur­liði með van­trausti. Reyndar vissi ég af fólki sem hefði ekki látið það ger­ast. Það var ekk­ert óskap­legur áhugi að minnsta kosti framan af á því að taka við af okkur. Menn vissu alveg hvað verk­efnið væri erfitt þó þeir létu öðru­vísi og voru ekk­ert endi­lega spenntir fyrir því nema helst rétt undir lokin þegar öllum var að verða ljóst að þetta var farið að ganga betur; þá hefðu kannski ein­hverjir getað hugsað sér að ýta okkur frá stýr­inu og taka við. En framan af held ég að flestir hafi lofað guði fyrir það að vera ekki að glíma við þetta heldur vera á hlið­ar­lín­unni og gagn­rýna og rífa kjaft.“

Stein­grímur segir skýr­ing­arnar á því hvers vegna þetta var svona erfitt innan flokk­anna margar; hann bendir á að það hafi líka verið hrær­ingar í fleiri flokkum sem teng­ist fyrst og fremst því hversu ástandið var erfitt vegna hruns­ins. „Menn réðu mis­vel við það álag sem fylgdi og einkum fólk með minni reynslu og nýliðar í stjórn­mál­unum stóð nátt­úr­lega frammi fyrir svaka­legum hlutum. Ég erfi það ekki við neinn. Menn verða auð­vitað að taka sínar ákvarð­anir. Mér fannst og finnst alltaf vera leið­in­legt ef leiðir skilja að menn skuli ekki reyna að gera það í góðu. Því miður ráða menn ekki alltaf við sig og missa sig í það að hreyta ónotum í sína fyrrum félaga. Það er það leið­in­lega við þetta; ekki í sjálfu sér að leiðir skilji.“

Kallaði Davíð gungu og druslu

Það gefur oft á bát­inn í Alþing­is­hús­inu og fræg urðu ummæli Stein­gríms í garð Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þegar hann kall­aði hann gungu og druslu vorið 2004. Hann hafði ítrekað óskað eftir því við for­seta Alþingis að Davíð kæmi í þingsal­inn og svar­aði spurn­ingum sem tengd­ust fjöl­miðla­frum­varp­inu.

„Davíð tók þessu bara vel og þó það væri smá­hiti í okkar sam­skiptum í kringum þessi átök og reyndar oftar þá gátum við alltaf talað saman. Það var kannski meira að það hafi slitnað á milli okkar eftir hrunið eftir að hann hætti sem seðla­banka­stjóri. Það má segja að hann hafi á end­anum verið settur af með lögum og hann vildi að ég stopp­aði þá laga­setn­ingu. En, þetta voru orð sem féllu í hita leiks­ins. Það fauk í mig vegna þess að ég hafði óskað eftir að hann yrði við­staddur umræð­urnar og hann var ein­hvers staðar ann­ars staðar og kom aðeins í dyrnar og hvarf aftur. Mér fannst hann vera að sýna mér tak­mark­aða virð­ingu sem for­ystu­manns í stjórn­ar­and­stöðu. Þetta fauk út úr mér að hann þyrði greini­lega ekki að eiga orða­stað við mig og kall­aði hann gungu og druslu. Ég upp­lifði þetta ekki eins hörð orð og margir aðrir. Það er senni­lega vegna upp­runa míns en þetta eru orð sem flugu oft á mínum heima­slóðum í gamla daga og þóttu ekk­ert óskap­lega nei­kvæð. Það var sagt um menn sem voru ekki að standa sig vel á ein­hverju sviði að þeir væru gungur eða druslur.“

Landsdómsmálið og Geir H. Haarde

Dagana 5. til 16. mars 2012 fór í þjóð­menn­ing­ar­hús­inu við Hverf­is­götu fram aðal­með­ferð í lands­dóms­mál­inu nr. 3/2011: Alþingi gegn Geir Hilmari Haarde en Geir hafði verið for­sæt­is­ráð­herra í stjórn­inni fyrir hrun. Þingmenn greiddu í sept­em­ber 2010 atkvæði um hvort fjórir ráð­herrar yrðu ákærðir vegna starfa þeirra fyrir hrun og varð nið­ur­staðan að Geir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, var einn ákærður. Lands­réttur sýkn­aði hann af öllum ákæru­liðum nema einum og honum var ekki gerð refs­ing.

Stein­grímur greiddi atkvæði með því að Geir H. Haarde yrði ákærður. „Þetta var gíf­ur­lega erfitt mál og okkur öllum held ég erfitt og með því leið­in­legra má segja sem maður hefur þurft að ganga í gegnum. En þetta var því miður óum­flýj­an­legt. Alþingi gat ekki vik­ist undan því að takast á við þetta og það var alveg ljóst frá byrjun þegar rann­sókn­ar­nefndin var skipuð að þá voru allir sam­mála um að eitt af því sem hún hlyti að skoða væri ábyrgð ráð­herra og æðstu emb­ætt­is­manna. Við vissum það alveg að það gat þýtt að nið­ur­stöður nefnd­ar­innar kæmu svo til Alþingis á því formi að Alþingi þyrfti að taka afstöðu til þess að ein­hver þyrfti að axla ábyrgð. Um þetta var alveg sam­staða þegar lagt var af stað með rann­sókn­ar­nefnd­ina. Þingið und­ir­bjó sig mjög vel við að taka við nið­ur­stöð­unum og stofn­aði sér­staka nefnd undir for­ystu Atla Gísla­sonar sem vann mán­uð­ina áður en rann­sókn­ar­nefndin skil­aði áliti til þess að vera und­ir­búin hver sem nið­ur­staðan yrði. Við tókum fljót­lega þá afstöðu í VG að setja traust okkar á þessa nefnd. Og það var alger sam­staða um að við myndum styðja þær til­lögur sem hún kæmi með. Þaðan kom til­lagan um að ákæra fjóra ráð­herra og við greiddum öll atkvæði alger­lega í sam­ræmi við nið­ur­stöðu meiri­hluta nefnd­ar­innar. Að vísu var það tekið fram hjá okkur í VG að við litum ekki svo á að við værum að beita menn ein­hverjum flokksaga ef menn af sam­visku­á­stæðum vildu gera eitt­hvað annað og þá gerðu þeir það.“

Var hlýtt til Geirs Haarde

Stein­grímur segir að á meðal ástæða þess að þetta mál hafi verið honum erfitt sé að honum hafi verið og sé mjög hlýtt til Geirs H. Haarde. „Hann er að mínum dómi góður maður. En mér fannst ekki hátt risið á þeirri umræðu að maður ætti þá að greiða atkvæði í sam­ræmi við það hvort manni væri vel eða illa við við­kom­andi mann. Ég ýtti því bara algjör­lega frá mér og tók mál­efna­lega afstöðu, eins erfið og hún var. Ég hefði alveg þegið að vera aldrei í þessum sporum en ég tók afstöðu út frá því hvernig málin lágu fyrir á þessum tíma og ég hef ekki end­ur­skoðað afstöðu mína. Ég sé ekki eftir þessu í þeim skiln­ingi að ég telji að ég hefði átt að greiða öðru­vísi atkvæði. Það geri ég ekki, ég hef aldrei beðist afsök­unar og mun ekki gera það af því að ég tel að ég hafi haft mál­efna­lega nálgun á þetta mál. Það sem kom okkur hins vegar í opna skjöldu og eitr­aði þetta mál mjög mikið var hvernig atkvæði féllu hjá öðrum. Það hefur ekk­ert með okkur í VG að gera. Menn í öðrum, ónefndum þing­flokkum studdu ákærur á suma ráð­herra en ekki aðra. Það er allt annað mál og setti dálítið annan svip á þetta leið­inda­mál hvernig þær atkvæða­greiðslur fóru.“

Stein­grímur segir að það megi enda­laust deila um hvort það hefði átt að ákæra bara ráð­herrana þrjá sem rann­sókn­ar­nefndin taldi að væru ábyrgir eða bæta fjórða ráð­herr­anum við eins og nefnd Alþingis ákvað.

„Þetta eru allt saman umdeil­an­legir hlutir að sjálf­sögðu en að end­ingu er þetta eins og hvert annað mál sem Alþingi verður að takast á við. Það átti ekk­ert val – það var skylda Alþingis að útkljá þetta mál með þau gögn í hönd­unum sem við vorum með. Alþingi hefði verið að bregð­ast hlut­verki sínu ef það hefði vikið sér undan því.“

Stein­grímur segir að hann telji að það hefði ekki mælst vel fyrir ef menn hefðu sópað öllu sem hét „ábyrgð stjórn­mála­manna“ undir teppið og bara lög­sótt og fang­elsað banka­menn. „Auðvitað átti bara og varð að útkljá þessi svaka­legu mál sem hrun­inu tengd­ust á for­sendum rétt­ar­rík­is­ins – láta lög og reglur gilda um það. Og ég held að Íslend­ingum hafi tek­ist það nokkuð vel. Það er að segja, við stofn­uðum þessa rann­sókn­ar­nefnd sem vann feikn­ar­lega mikið og merki­legt starf og síðan var málum vísað til dóm­stóla sem eftir atvikum áttu erindi þangað. Ég veit ekki hvað annað hefði verið hægt að gera en að láta grund­vall­ar­reglur rétt­ar­rík­is­ins virka hér eins og við aðrar aðstæður. Geir H. Haarde hafði verið for­sæt­is­ráð­herra fyrir hrun og lögin og ráð­herra­á­byrgð eru þannig að hún getur tekið til athafna eða athafna­leysis manna í til­tek­inn tíma aftur í tím­ann. Það voru hans beisku örlög í stjórn­málum að vera for­sæt­is­ráð­herra þessa tíma. Ég tel að Geir hafi ekki átt að líta á þetta sem per­sónu­lega árás eins og hann gerði. Ég held að mönnum sé hlýtt til hans. Þessi nið­ur­staða varð mjög væg í hans garð – hann var fund­inn sekur um van­rækslu á einu sviði, það er að segja að hafa ekki boðað fundi og virkjað rík­is­stjórn­ina alla sem hafði vissu­lega afleið­ingar inn í stóra sam­hengið að rík­is­stjórnin var ekki sam­stillt, fund­aði ekki og stillti ekki saman strengi og það gat mögu­lega haft nei­kvæð áhrif á það hvað menn gerðu eða reyndar fyrst og fremst gerðu ekki í aðdrag­anda hruns­ins. En það er ekki alvar­leg yfir­sjón finnst mér og ekki eitt­hvað sem hann og aðrir eigi að líta á sem þungan áfell­is­dóm í til­viki hans. En þetta var nið­ur­staða dóms­ins og þá verða menn að hlíta því. Hann gat á hinn bóg­inn bent á að hann var sýkn­aður af öðrum ákæru­at­riðum og kom þar af leið­andi ekk­ert illa út úr þessu máli svo­leiðis. En auð­vitað verður hann að stjórna og ráða við­brögðum sínum.“

Bjarni Ben góður í samskiptum

Stein­grímur er spurður út í sam­starfið við Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

„Bjarni er góður maður í sam­skiptum og mér líkar vel við hann. Það er yfir­leitt hægt að ná í hann, hann svarar og maður fær hrein svör frá honum. Það er á margan hátt gott að eiga sam­starf við hann sem slíkan og sam­starfið við hann hefur verið gott. Mér finnst hann vera vax­andi sem fjár­mála­ráð­herra en sem gam­all fjár­mála­ráð­herra horfi ég svo­lítið á það hvernig menn eru að standa sig sem slíkir og mér finnst Bjarni hafa yfir­leitt verið að gera þá hluti ágæt­lega. Ég hef hins vegar ekk­ert verið sam­mála öllum áherslum hans. Ég tel til dæmis að menn hafi farið of geyst í því að veikja tekju­stofna rík­is­ins á hag­vaxt­ar­ár­unum eftir 2013 og það væri ágætt að hafa suma þeirra til staðar núna.

Bjarni var auð­vitað mér erf­iður eins og aðrir í stjórn­ar­and­stöð­unni 2009-2013. Við bjuggum þá við mjög hat­ramma stjórn­ar­and­stöðu og Bjarni er ekk­ert sak­laus af því; hann var dálítið með í því. Það auð­veld­aði okkur Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur ekki lífið sem vorum með ærinn vanda við að glíma að við bjuggum líka við mjög harð­skeytta og á köflum ósvífna stjórn­ar­and­stöðu. Ég tel að núver­andi rík­is­stjórn sé betur stödd hvað það varðar að stjórn­ar­and­staðan í dag hefur að mínu mati staðið sig líka vel á þessum erf­iða tíma og verið ábyrg og það er alltaf ánægju­legt þegar manni finnst stjórn­málin vera að sýna slík þroska­merki.“

Samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn

VG, Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eru nú í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi og er Stein­grímur spurður hvort hann sjái sam­starfið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn ganga upp til fram­búðar. „Ég er ekk­ert viss um að það sé endi­lega æski­legt til langrar fram­búðar að for­ystu­flokk­arnir á sitt­hvorum vængnum í stjórn­mál­unum vinni saman. Menn geta alveg fært fyrir því rök að það leiði til ein­hverrar stöðn­unar í þeim skiln­ingi að málin séu ekki gerð upp á milli ólíkra hug­mynda­kerfa eða ólíkra hug­mynda um hvernig sam­fé­lagið eigi að þró­ast. En það er ekk­ert sem segir að það geti ekki verið mjög góður kostur við til­teknar aðstæður og í til­tek­inn tíma og það þarf ekk­ert að vera endi­lega eitt kjör­tíma­bil. Og þá er ég að sjálf­sögðu að hugsa um það ef vel gengur sem fæst með slíku sam­starfi; það er að segja stöð­ug­leiki og breidd í stjórn­málin. Og það kallar á það að menn miðli málum, að menn slái af sínum ýtr­ustu kröfum á báða bóga og það er ekk­ert endi­lega óheppi­leg þróun fyrir sam­fé­lag að það komi tíma­bil þar sem menn eru meira í því að tala sig saman heldur en í sundur. Og á þeim tímum í stjórn­málum sem við höfum séð í kringum okkur þar sem sundr­ung er að aukast, pól­aris­er­ing er að aukast víða í stjórn­málum, þá held ég að það sem er verið að gera á Íslandi sé alveg stór­kost­legt. Ég tek gjör­sam­lega ofan fyrir þessu fólki – Katrínu, Bjarna og Sigurði – og þess­ari kjark­miklu til­raun sem hér er verið að gera að stuðla að því að íslensk stjórn­mál þró­ist þá á þessum tímum öðru­vísi en við sjáum víða í kringum okkur sem er stór­skað­legt – öfgarnar eru að aukast, sundr­ungin er að aukast og það er að verða svo mikil heift í þessu víða. Auðvitað eru Banda­ríkin ofar­lega í huga þessa dag­ana. Og ég bara spyr: Vill ein­hver það ástand? Vill ein­hver þá þróun þar sem menn eru komnir svo ger­sam­lega í sundur og ofan í skot­grafir? Það eru engir snertifletir orðnir, það er engin miðja eftir í banda­rískum stjórn­málum og það er stór­kost­legt áhyggju­efni hvernig þetta stóra og vold­uga ríki er að þró­ast af því að það varðar alla heims­byggð­ina. Eða í Evrópu þar sem við sjáum auð­vitað fas­isma og ýmsar öfgar, popúl­isma, vaða uppi. Ég held að þetta hafi verið algjört gæfu­spor fyrir Ísland, ég er ekki í vafa um það, og eins og ég segi: Ég bara tek ofan og ber virð­ingu fyrir þessu fólki hvern dag. Við getum líka velt því fyrir okkur á þessum erf­iðu tímum sem við upp­lifum núna hversu gott það er að hafa rík­is­stjórn sem er sæmi­lega stöðug og er á hjör­unum og við erum þó ekki í hættu á að það bæt­ist póli­tísk upp­lausn við erf­ið­leik­ana í far­aldr­inum og þau geig­væn­legu áhrif sem hann hefur á efna­hags­líf okkar. Þannig að ég held að við Íslend­ingar ættum að vera þakk­lát fyrir hvað við erum í raun lánsöm að vera að sigla í gegnum þessa tíma í þetta góðum höndum. Ég ætla að leyfa mér að segja það að ég nátt­úr­lega dáist á hverjum degi af Katrínu Jak­obs­dóttur fyrir það hversu öfl­ugur for­ystu­maður og leið­togi hún er og gerir þetta vel og af mik­illi sam­visku­semi og dugn­aði enda vönduð mann­eskja. Ég sé engan sem gæti gert þetta betur.“

Fólk er ekk­ert holds­veikt þótt það sé í öðrum flokkum

Stein­grímur er spurður hvort það hafi í upp­hafi ekk­ert verið snúið að fall­ast á sam­starfið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

„Jú, jú,“ segir hann. „Það var okkur mörgum erfitt og svo­lítið fram­andi, ekki mér sér­stak­lega því ég er á algjör­lega sömu línu og Katrín í þessum efnum. En, það þarf að vinna eins vel og hægt er úr þeim aðstæðum sem stjórn­málin færa manni í hendur á hverjum tíma. Og það er ekk­ert sér­stak­lega mál­efna­legt að úti­loka algjör­lega sam­starf við aðrar stjórn­mála­hreyf­ingar þó þær séu með ólíkar áherslur. Mér fannst vera alveg sjálf­sagður hlutur að minnsta kosti láta á það reyna hvort menn fyndu mál­efna­legan flöt á slíku sam­starfi. Það eiga að vera mál­efnin sem ráða en ekki ein­hver fyrir fram gefin sann­fær­ing um að eitt­hvað sé úti­lokað. Það eina sem maður myndi úti­loka væri að vinna með flokkum sem væru með and­lýð­ræð­is­legar og fasískar áherslur eða virtu ekki mann­rétt­indi. Slíkt kæmi aldrei til greina að mínu mati. En þó að menn séu hægri­s­inn­aðir þá getur verið hið besta fólk í þeim hópum. Og það er líka hægt að velta fyrir sér hvort það geti ekki bara haft áhrif til góðs að fólk með ólíka nálgun í stjórn­málum tali saman, reyni að finna sam­eig­in­lega fleti og þurfi kannski svo­lítið að miðla málum. Það færir menn kannski pínu­lítið nær hver öðrum og menn átta sig á því að fólk er ekk­ert holds­veikt þótt það sé í öðrum flokkum. Það er bara hið besta fólk og oft bara ágætt að vinna með því, sér­stak­lega ef sam­skiptin eru hrein og bein. En þetta var mörgum okkur erfitt og fram­andi, jú, það er alveg rétt. VG lagði af stað með umtals­verða sér­stöðu í íslenskum stjórn­málum, við höldum á lofti merki and­stöðu við her og hern­að­ar­banda­lög og erum málsvarar afvopn­unar og alþjóð­legrar frið­ar­stefnu þar sem við höfum mikla sér­stöðu. Við höfðum frá byrjun algera sér­stöðu í umhverf­is­málum og gerðum þau að einni grunn­stoð­inni í póli­tík okkar. VG er eini femíníski flokk­ur­inn á Íslandi, eini flokk­ur­inn sem skil­greindi sig frá byrjun sem fem­inískan og rót­tækan flokk í þeim efnum eins og fleirum. Þannig að þetta var kannski að því leyti miklu stærra skref fyrir okkur og erf­ið­ara fyrir marga okkar félaga en þá sem til­heyra öðrum flokkum. En, ég held að það sé útkoman sem skipti okkur mestu máli og ég er bjart­sýnn á hana. Og ég held að við getum nú þegar sagt að þetta sé búið að skila mjög miklu. Þannig að ég tel að sá yfir­gnæf­andi meiri­hluti sem studdi þetta í hreyf­ingu okkar hafi tekið rétta ákvörðun. Og ég held að nú sé svo komið að nán­ast öll hreyf­ingin standi þétt að baki Katrínu í þessu sögu­lega verk­efni.“

Vinstri áherslur

Stein­grímur er spurður hvort honum finn­ist VG hafa haldið sig á spor­inu bæði í vinstri áhersl­unum og svo hvað umhverf­is­málin varðar. Hann segir svo vera.

„Varðandi vinstri póli­tík þá bendi ég á hluti eins og breyt­ingar á skatt­kerf­inu sem er alger­lega í okkar anda og þar höfum við náð að hafa mikil áhrif. Nú er aftur komið prógressíft þriggja þrepa skatt­kerfi sem hlífir þeim tekju­lægstu við sköttun. Og það eru stór­auknar fjár­veit­ingar inn í vel­ferð­ar­málin, við erum að efla opin­bera heil­brigð­is­kerfið, auka geð­heil­brigð­is­þjón­ustu í heilsu­gæsl­unni og höfum mótað heil­brigð­is­stefnu til fram­tíðar sem er mjög í okkar anda þannig að við höfum náð að hafa góð áhrif. Við höfum að sjálf­sögðu líka gert mála­miðl­anir eins og gengur en við höfum mörg flögg til að draga að húni og benda á að starf okkar hefur skilað miklu og að áherslur okkar hafa haft veru­leg áhrif. Stjórn­ar­sátt­mál­inn er að mínu mati mjög mikið í anda okkar og það er kannski eðli­legt þegar for­sæt­is­ráð­herr­ann kemur úr röðum okkar. Það er að vísu þannig núna og það höfum við upp­lifað áður að þegar svona stórir atburðir troða sér inn í stjórn­málin og verða að aðal­við­fangs­efn­inu eins og heims­far­ald­ur­inn þá vill fljótt gleym­ast margt annað sem verið er að gera gott. Þessi stjórn hefur líka verið umbóta­stjórn í mann­rétt­inda­málum, jafn­rétt­is­málum, leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs og lögum um þung­un­ar­rof. Það er langur listi. En þetta þok­ast fljótt út af svið­inu í umræð­unni þegar svona stór­at­burðir troða sér inn í stjórn­málin. Við upp­lifðum það sama í kjöl­far hruns­ins á árunum 2009-2013 en það var ótrú­lega margt sem sú stjórn hrinti í fram­kvæmd á sviði jafn­réttis og mann­rétt­inda­mála, í nýsköpun og svo fram­vegis. En það gleymd­ist fljótt vegna þess að hrunið og úrvinnslan á afleið­ingum þess hirti alla athygli. Það er svo­lítið sama hætta núna fyrir núver­andi stjórn­ar­flokka að þeirra ágætu störf á mörgum sviðum fá kannski ekki þá athygli og ella væri eða skyldi af því að allt er gjör­breytt og staðan er ný og ný við­fangs­efni eru mest í frétt­unum.“

Umhverf­is­ráð­herra eld­heitur umhverf­is­sinni

Hvað varðar VG og umhverf­is­málin segir Stein­grímur: „Það eru gjör­breyttir tímar í umhverf­is­málum. Við erum með metn­að­ar­fulla aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum full­fjár­magn­aða, við höfum stór­aukið fjár­magn inn í umhverf­is­málin, það hefur verið mik­ill gangur í nátt­úru­vernd­inni í frið­lýs­ingu svæða sem lágu niðri um ára­bil og stofnun hálend­is­þjóð­garðs er í und­ir­bún­ingi svo nú er það allt gjör­breytt. Við erum með eld­heitan umhverf­is­vernd­ar­sinna sem umhverf­is­ráð­herra sem er gott. Hann stendur svo sann­ar­lega undir nafni. Það er margt gott að ger­ast á því sviði en því þarf að fylgja eftir.“

Stóriðjan á Húsavík

Verk­efnin sem Stein­grímur hefur barist fyrir eru mörg og marg­vís­leg og þeirra á meðal er stór­iðjan á Húsavík. Þegar rík­is­stjórnin undir for­ystu Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur tók við árið 2009 höfðu Hús­vík­ingar og Þing­eyg­ingar árin á undan barist fyrir því að byggð yrði stórt álver á Húsavík. „Ég var allan tím­ann á móti þeim áformum og fór ekk­ert dult með það og var nú ekki vin­sælastur manna á Húsavík og nágrenni af því að ég sagði að það væri algert brjál­æði því við myndum þurfa að sópa saman öllum virkj­ana­kostnum sem til eru á norð­aust­ur­landi og meira en það. Álver á Húsavík hefði ekki orðið annað en ávísun á að Skjálf­anda­fljót yrði eyði­lagt og jafn­vel farið í jök­ul­árnar í Skaga­firði auk þess sem öll jarð­hita­svæðin hefðu þá verið undir. Þessi áform voru enn í ein­hverjum far­vegi og þess vegna var farið að ræða saman um þann mögu­leika að í stað­inn fyrir þetta álver kæmi þá með­al­stórt iðn­að­ar­ver sem þyrfti miklu minni orku og myndi menga minna. Það náð­ist sam­komu­lag um þetta. Alcoa ákvað að hætta við og nýir aðilar komu að borð­inu sem vildu byggja kís­il­ver. Það hafði nátt­úr­lega líka áhrif og rétt að muna það að þarna var um að ræða að Ísland færi af stað inn í nýja iðn­grein sem sagt kís­ilfram­leiðslu. En vissu­lega fylgir því losun. Þetta var á allan hátt frá sjón­ar­miði sam­fé­lags­ins og umhverf­is­ins miklu geðs­legri hlutir og við­ráð­an­legri heldur en fyrri áform. Þannig að ég og fleiri töldum að það væri breyt­ing til góðs að hætta við áformin um mörg hund­ruð þús­und tonna álver en fara þá frekar í stað­inn í ein­hverja við­ráð­an­lega stærð­argráðu í nýjum iðn­aði.“

Vonbrigði á Húsavík

Lokun vers­ins á  Húsavík í sumar og hóp­upp­sögn starfs­manna var svo rakin til Covid-19-far­ald­urs­ins. Í til­kynn­ingu var sagt að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafi raskað heims­mark­aði með kís­il­málm, verð hafi lækkað mjög og dregið úr eft­ir­spurn. Þá sagði að aðgerð­irnar væru tíma­bundnar og að félagið gerði ráð fyrir að end­ur­ráða starfs­fólk þegar fram­leiðsla hefj­ist að nýju.

„Þetta eru að sjálf­sögðu mikil von­brigði og högg fyrir stað­inn. Og reyndar eru blikur á lofti hvað varðar fram­tíð málm­iðn­aðar yfir­leitt á Vest­ur­löndum vegna sam­keppni við Kína. Það sem þarf að öðl­ast við­ur­kenn­ingu og end­ur­spegl­ast í verðum eru umhverf­is­á­hrifin þar sem hallar á Kína en á tímum efna­hags­erf­ið­leika og offram­boðs ger­ist það ekki, ekki enn. Ég vona svo bara að það ræt­ist úr vanda­málum þessa fyr­ir­tækis og það geti starfað áfram og von­andi finna menn síðan leiðir til þess að binda los­un­ina sem þarna er. Aðferðir eru orðnar þekktar hvað það varðar og Íslend­ingar í far­ar­broddi í því og þá gæti þetta allt orðið með ágætum þegar fram líða stundir. Þannig að ég sé  ekki eftir því að stuðla að því að þarna fyrir norðan gæti risið ann­ars konar iðn­aður og af við­ráð­an­legri stærð­argráðu en risa­ál­ver og að til yrði við­bótar stað­setn­ing­ar­kostur í land­inu fyrir lítil og með­al­stór iðn­fyr­ir­tæki.“

Fiskeldið á Vestfjörðum

Segja má að fisk­eldið á Vest­fjörðum sé orðið stór­iðja og það er í vexti á Aust­fjörðum og hvoru tveggja umdeilt.

„Ég er í hópi þeirra manna sem hafa auð­vitað áhyggjur af mögu­legri erfða­mengun íslenskra laxa­stofna eða villtra stofna þannig að ég vil fara mjög var­lega í þeim efnum. Laxeldi í sjó var orðin stað­reynd þannig að þetta sner­ist þá um að setja eitt­hvert reglu­verk utan um það. Það hefur nú sem betur fer loks­ins verið gert en að vísu allt of seint. Við hefðum þurft að hafa lög­gjöf utan um fisk­eld­is­málin strax í byrjun eins og við höfum í dag. Við hljótum að gera ítr­ustu kröfur um mat á burð­ar­þoli og áhættu sem fisk­eldi í sjó er sam­fara til fram­tíðar litið, það þarf að ljúka skipu­lags­vinnu fyrir haf- og strand­svæðin og ég myndi vilja ganga enn lengra í svæða­skipt­ingu lands­ins. Mér finnst það vera alger­lega frá­leitt að Eyja­fjörður sé opið svæði og Öxar­fjörður þess vegna. Mér liði betur með það að allt svæðið frá Horni og austur á miðja Aust­firði væri bara algjör­lega frá­tekið eins og svæðið hér á suð­vest­ur­horn­inu; það væri alla­vega tals­verð vörn í því fyrir lax­veiði­perlurnar sem eru á þeim svæðum. Draumur minn er sá að fram­tíðin sé í eldi á landi. Ísland á þar geysi­lega mögu­leika og maður sér ánægju­lega þróun í þeim efnum. Þannig að þetta er kannski eitt­hvert yfir­gangs­tíma­bil sem verður og mér finnst lík­leg­ast að fram­tíðin muni bera það í skauti sér að fisk­eldið þró­ist ann­að­hvort upp á land eða hugs­an­lega í ein­hverjar lok­aðar stór­kvíar djúpt úti í hafi. Fisk­eldið er að sjálf­sögðu mat­væla­fram­leiðsla og til­tölu­lega árag­urs­rík leið til að fram­leiða prótein­ríka fæðu. Og þar sem Íslend­ingar eru fisk­veiði­þjóð er að sjálf­sögðu eðli­legt að menn hasli sér völl í þess­ari vax­andi grein af því að það er alveg ljóst að fæðu­þörf mann­kyns­ins verður ekki bara mætt með veiðum á villtum fiski. Það sem fyllir í skörðin verður vænt­an­lega ein­hvers konar búskapur, ein­hvers konar eldi. Og Ísland á tröllaukna mögu­leika á því að verða mat­væla­stór­iðju­land bæði í gróð­ur­húsa­ræktun og slíku tengdu og svo líka  í hefð­bund­inni fram­leiðslu og eldi, búskap. Við höfum mikla land­kosti hérna til þess og höfum umhverf­is­væna orku og margt sem gerir það að verkum að við ættum að geta orðið stór á því sviði.“

Sér ekki eftir neinu

Eftir alla þessa ára­tugi í stjórn­málum er við hæfi að spyrja for­seta Alþingis af hverju hann sé stolt­astur.

„Það er auð­vitað hægt að tína til ein­stök mál sem maður hefur haft áhrif á og getað komið til leiðar og ég er stoltur af mörgu. Það sem stendur hins vegar upp úr í huga mínum er það traust og sá stuðn­ingur sem ég hef notið í kjör­dæmum mínum og fyrir það er ég þakk­lát­astur og auð­mjúk­astur. Kjós­endur fyrir norðan og austan hafa staðið við bakið á mér og við höfum yfir­leitt fengið góða útkomu úr þeim fram­boðum sem ég hef leitt og það er mér dýr­mæt­ast og stendur upp úr.“

Stein­grímur er svo spurður hver stærstu mis­tökin hafi verið á ferl­inum.

„Það er voða­lega erfitt að segja. Kannski voru það mis­tök hjá mér að vera ekki til­bún­ari til þess að fara alla leið í for­manns­fram­boð í Alþýðu­banda­lag­inu árið 1987. Þá var mikið skorað á mig en ég var hik­andi og svo fengu félagar mínir aðrar hug­myndir og allt í góðu með það. Einhver gæti sagt að ég hefði þá átt þess kost að fara strax í for­ystu­sveit íslenskra stjórn­mála en ég hugsa að það hafi þá verið mis­tök sem hafi orðið mér til góðs. Ég lít ekki á það sem mis­tök að hafa gefið kost á mér sem for­maður Alþýðu­banda­lags­ins árið 1995 þó ég hafi tapað þeirri kosn­ingu. Það voru kannski ákveðin mis­tök að van­meta aðstæður þá en ég held sömu­leiðis að það tap hafi orðið mér til góðs. Það er nú stundum þannig að upp úr því sem lítur út fyrir að vera tap verður til annað og eitt­hvað betra.“

Hann seg­ist ekki sjá eftir neinu og segir að þess vegna eigi hann erfitt með að svara frekar spurn­ing­unni um mis­tök.

„Ég hef reynt að vera trúr stefnu­málum mínum en það eru auð­vitað hlutir sem maður áttar sig á að koma ekk­ert endi­lega vel út fyrir mann. Það var mjög mikið sótt að okkur í aðdrag­anda kosn­ing­anna árið 2009, gengið á okkur og borið út að við ætl­uðum að svíkja stefnu okkar í sam­bandi við and­stöðu við aðild að ESB og ég hrakt­ist út í það í sjón­varps­við­tali að vera með nokkuð svera yfir­lýs­ingu um að umsókn um aðild kæmi ekki til greina. Stað­reyndin er að þetta var alger­lega óút­kljáð mál á milli flokk­anna og ég hafði ekki áttað mig á að sam­starfs­að­il­arnir ætl­uðu að gera það að slíku úrslita­at­riði sem þeir gerðu þannig að ég gat ekki að öllu leyti verið maður orða minna í því til­viki. En stað­reyndin er sú að við kvik­uðum ekki frá stefnu okkar og höfum ekki gert. Hún er óbreytt en við gerðum þarna mála­miðlun sem gekk mjög langt. Maður getur þannig tínt til ýmis­legt en í huga mínum er miklu ofar það sem maður er stoltur af og ánægður með. Ég hef alltaf brunnið fyrir sam­göngu­málum og byggða- og atvinnu­málum. Hags­munir  hinna dreifðu byggða er kannski ein af þremur ástæðum sem ýttu mest á mig til að gefa kost á mér til fram­boðs á sínum tíma. Það voru utan­ríkis- og frið­ar­málin, það voru umhverf­is­málin og auð­vitað vinstri stefnan sem slík og síðan vonin um að ég sem kem úr einu af afskekkt­ustu og fámenn­ustu byggð­ar­lögum lands­ins gæti sem full­trúi slíkra á Alþingi orðið þeim að liði. Þannig að ég hef alla mína tíð reynt að leggja þeim málum lið. Og þá hef ég ekki bara verið að horfa á kjör­dæmi mitt. Ég man eftir lotum sem ég hef tekið til að koma góðu og mik­il­vægu máli áfram, eitt var bar­átta mín fyrir því að hefja fram­kvæmdir í jarð­göng­unum á Vest­fjörðum. Það var auð­vitað ekk­ert í kjör­dæmi mínu en ég tók harðan slag um að hefj­ast handa við Vest­fjarð­ar­göng og að þau yrðu byggð öll í einu lagi og legg­ur­inn til Suð­ur­eyrar tek­inn með. Þetta var harður slagur og miklu harð­ari en kom fram opin­ber­lega. Ég hafði það í gegn þannig að ég nota þetta stundum sem dæmi þegar er verið að bera upp á mig eitt­hvert kjör­dæma­pot að ég hafi nú tekið harðan slag bæði hvað Hval­fjarð­ar­göngin og Vest­fjarð­ar­göngin varðar sem og bygg­ingu nýs Herjólfs eða hvað það nú er sem hefur ekk­ert með kjöræmi mitt að gera. Enda fór ég mjög fljót­lega og eig­in­lega frá byrjun að temja mér að líta á mig sem þing­mann lands­ins alls; ég stæði fyrir þessu sjón­ar­miði hvar sem væri á Íslandi. Ekki bara í kjör­dæmi mínu.“

Reiknaði út jarðskjálftann

Í stjórn­málum gefur jú oft á bát­inn og hryktir í stoðum. Segja má að Alþing­is­húsið hafi í bók­staf­legri merk­ingu hrist fyrir nokkrum vikum þegar stór jarð­skjálfti varð á Reykja­nesi og það vakti athygli bein útsend­ing úr þing­sal þegar skjálft­inn varð að Helgi Hrafn, þing­maður Pírata, hljóp úr ræðu­stól en for­seti Alþingis sat hinn róleg­asti og sagði: „Sitjið þið bara róleg, sitjið þið bara róleg.“ Stein­grímur er spurður hvort hann sé almennt svona rólegur þegar aðrir hlaupa í burtu.

„Ja, ég hef reynt að temja mér það á seinni árum að vera bara æðru­laus og rólegur. Ég þurfti nú eig­in­lega bara að vakna á hverjum morgni með það í huga á árunum 2008-2013. Það eina sem dugði við slíkar aðstæður var að vera bara yfir­veg­aður og æðru­laus. Síðan er ég jarð­fræð­ingur og ég er nú stolt­astur af því sem kom lítið fram en það má heyra það af upp­tökum af því þegar jarð­skjált­inn reið yfir að ég giskaði rétt á stærð hans. Ég sagði að hann væri á milli fimm til sex á Richter. Ég reikn­aði það út í hug­anum að skjálfti úti á Reykja­nesi og í þess­ari fjar­lægð frá Reykja­vík sem gæti hrist þing­húsið svona hressi­lega hlyti að vera af þeirri stærð­ar­t­ráðu. Og það reynd­ist rétt vera.“

Stein­grímur seg­ist ekki hafa haft sér­stakar áhyggjur af Alþing­hús­inu þar sem eru þykkir og miklir stein­veggir. Hann vissi að húsið myndi stand­ast skjálft­ann. „Mér varð síðan að vísu litið upp í loftið og sá stóru ljósakrón­urnar tvær sem hanga niður úr lofti þingsal­ars­ins sveifl­ast og það eina sem ég var óró­legur yfir voru þeir þing­menn sem sátu undir þeim. Það var þá kannski helsti hasar­inn ef þær hefðu farið. Þetta var bara ynd­is­lega skemmti­legt atvik og ég held að allir hafi haft gaman af þessu. Þetta er búið að vera gleði­gjafi og ekki veitir af. Þjóðin gat skemmt sér yfir þessu í nokkra daga og það var fínt.“

Gekk þvert yfir landið

Þegar Stein­grímur stund­aði nám í jarð­fræði við Háskóla Íslands á sínum tíma töl­uðu hann og félagar hans um að þá lang­aði til að ganga þvert yfir landið. „Við ætl­uðum nátt­úr­lega að skrifa grein um ferð­ina í National Geographic og verða heims­frægir. Þetta blund­aði í mér lengi og ég hafði af og til hug­leitt þetta í gegnum tíð­ina. Svo þegar fimm­tugs­af­mælið nálg­að­ist árið 2005 hugs­aði ég með mér að það væri ekki seinna vænna að fara að drífa í þessu ef af þessu ætti að verða. Ég samdi við fjöl­skyldu mína að ég fengi þrjár vikur í að prófa þetta.“

Stein­grímur lagði af stað í ferð­ina á Jóns­messu.

„Ég tók þetta nokkuð stíft og gekk þetta á þremur vikum sem er í það stífasta. Ég hef nú mælt með að fólk ætti að taka þessa leið á um fjórum vikum og gera ráð fyrir hvíld­ar­dögum. Ég réð tempó­inu þó sjálfur þar sem ég var iðu­lega einn á ferð­inni en þó alls ekki alltaf en valdir félagar og vinir gengu með mér spotta og spotta. Ég var í mjög góðu formi en ég var búinn að und­ir­búa mig vel og ég lenti ekki í neinum telj­andi hremm­ingum en ég fékk vissu­lega erf­iða daga og erfið veður inn á milli. Það var svo margt í senn sem ég var að gera. Mig lang­aði að gera þetta sem slíkt, mig lang­aði að skoða landið gang­andi og hafa nógan tíma til að skoða perlur eins og Arn­ar­fell hið mikla og Arn­ar­fells­brekk­una í Þjórs­ár­verum og fara á staði sem ég hafði marga hverja ekki komið á áður og bara ein­hvern veg­inn fá þetta beint í æð. Og það gerði ég svo sann­ar­lega. Þetta er eitt það magn­að­asta sem ég hef gert og það breytt­ist eig­in­lega eitt­hvað í manni eftir viku til 10 daga eftir að hafa verið mikið einn með sjálfum sér úti í nátt­úr­unni dag eftir dag. Það var komin ein­hver lotn­ing í mig yfir land­inu og nátt­úr­unni. Ég var eig­in­lega far­inn að standa mig að því að læð­ast um. Þegar ég kom til dæmis niður í Helj­ar­dal, sem er fal­leg hálendis­vin á norð­aust­ur­há­lend­inu inn af Þistil­firði, þá var þar allt iðandi af lífi. Það voru þar kindur, heið­ar­gæsir, álftir og hrein­dýr og ég hrein­lega lædd­ist með fram fjalls­hlíð­inni til að trufla ekki nátt­úr­una þarna í öllu sínu veldi. Þetta var alveg mögnuð upp­lifun og er svo sterk í end­ur­minn­inguni að ég get eig­in­lega rifjað upp alla ferð­ina – ef ég loka aug­unum og end­ur­tek ferð­ina í hug­anum þá sé ég þetta allt fyrir mér.“

Slysið við Svartá

Íslensk nátt­úra er gull­fal­leg og hrika­leg og nátt­úru­öflin og veðrið hafa áhrif. Stein­grímur þekkir það eftir alvar­legt slys í jan­úar 2006. Hann seg­ist hafa verið búinn að vera á flakki í kjör­dæm­inu fyrir norðan og velt fyrir sér hvort hann ætti að aka suður eða ekki en seg­ist hafa verið ákafur og óþol­in­móður og lagði af stað frá Akureyri að kvöldi til. Veður var að versna og færið ekki álit­legt. „Það voru ágætis skil­yrði framan af og yfir Öxna­dals­heið­ina. Það var komið frost og svo lenti ég í lúmskum aðstæðum þar sem var laun­hálka sem ég réð ekki við í Svart­ár­dal­s­kjaft­inum. Þetta var mjög harka­legt og ég var ansi illa skadd­aður,“ segir Stein­grímur en bíll­inn fór nokkrar veltur og end­aði niðri á bökkum Svartár þar sem veg­ur­inn liggur í beygjum upp á háum bökkum.

„Það var lán í óláni að bíll­inn end­aði á hjól­unum og ég sat þar af leið­andi í sæt­inu í því sem eftir var af bílnum og komst fljót­lega til með­vit­undar. Ég gat hringt í Neyð­ar­lín­una og var í sam­bandi við hana allan tím­ann á meðan björg­un­ar­lið var að leita mig uppi. Síðan voru það glöggir veg­far­endur sem átt­uðu sig á að eitt­hvað hafði gerst þarna og flutn­inga­bíl­stjórar sem töl­uðu sig saman um að sá sem var á norð­ur­leið myndi gefa því gætur þegar þeir kæmu þarna hvort eitt­hvað hafi farið úrskeiðis. Fyrsti maður var bíl­stjóri úr Keflavík. Mig minnir að hann heiti Ragnar. Hann hlúði að mér. Fyrstu björg­un­ar­menn komu síðan á vett­vang en það kom lið bæði frá Sauð­ár­króki og Blöndósi. Þeir lögðu reyndar af stað í allar áttir af því að ég var svo rugl­aður að ég vissi ekki nákvæm­lega hvar ég var. Það eina sem ég vissi eða mundi var að ég var á suð­ur­leið frá Akureyri og giskaði á að ég væri ann­að­hvort nálægt Öxna­dals­heiði eða Vatns­skarði og það síð­ara reynd­ist vera rétt.

Allt þetta stór­kost­lega kerfi okkar fór í gang. Lög­reglan og sjúkra­flutn­inga­menn komu á stað­inn og síðan kom þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar. Veðrið var orðið vont þannig að þeir þurfti að fljúga króka­leið; það var ekki hægt að fljúga yfir hálendið og var ég ekki kom­inn á Land­spít­al­ann fyrr en um klukkan sex morg­un­inn eftir. Ég hélt með­vit­und að mestu leyti og man að minnsta kosti eitt­hvað eftir ferða­lag­inu.

„Mér var tjaslað saman og þetta stór­kost­lega fólk á Land­spít­al­anum kom mér í gang.“

Stein­grímur fór í aðgerð um morg­un­inn en öll rif­bein vinstra megin brotn­uðu og sum marg­brotn­uðu og eitt hægra megin, við­beinið „kubb­að­ist vinstra megin“ og lungun féllu saman að hluta. Þá segir Stein­grímur að hryggtind­arnir hafi hreins­ast af vinstra megin og alveg niður í mjöðm; hann segir áverk­ana vissu­lega tengj­ast notkun bíl­beltis en að ekki hafi þurft að spyrja að leikslokum ef hann hefði ekki verið í belti.

„Mér var tjaslað saman og þetta stór­kost­lega fólk á Land­spít­al­anum kom mér í gang.“

Hann lá á sjúkra­húsi í um þrjár vikur og fór síðan í end­ur­hæf­ingu á Reykja­lundi sem tók sex vikur „Ég var ákaf­lega stoltur þegar ég gat, senni­lega um hálfum mán­uði eftir slysið, gengið eftir endi­löngum gang­inum á deild 12B á Land­spít­al­anum; ég var ekk­ert minna stoltur af því að geta gengið gang­inn á enda með göngu­grind, en ég var um hálfu ári áður þegar ég gekk yfir landið. Það er svo merki­legt að ég náði að ljúka þessu afmæl­is­ári 2005 með mjög góðum hlutum. Ég var bæði búinn að ganga yfir Ísland og hlaupa mara­þon í New York auk mik­illar afmæl­is­veislu á Gunn­ars­stöðum og píla­gríms­ferðar okkar hjóna til Nýja-Sjálands. Það var ágætt að ég var búinn að þessu öllu saman áður en ég lenti í slys­inu; ég hefði ekki gert það fyrstu miss­erin á eftir. Þetta var auð­vitað lífs­reynsla og eftir þetta fór ég að hugsa ýmis­legt upp á nýtt og átt­aði mig kannski betur en ella á hvað er ein­hvers virði í þessu lífi og hvað ekki. Eitt stykki ónýtur bíll er ekki til þess að tala um ef maður lifir af og nær svo sæmi­legri heilsu og á fjöl­skyldu. Ég fór að end­ur­meta ýmis­legt hvað varðar verð­mætin og gildin í líf­inu sem er hollt og gott fyrir alla. Það er eitt­hvað sem við gleymum kannski oft í amstri dags­ins að hugsa um hvað það er sem raun­veru­lega skiptir máli. Síðan fannst mér vænt um að það var greini­lega ekki öllum sama um mig því að ég fékk óhemju­mikið af kveðjum, bata­óskum og heim­sóknum. Það voru ekki síður keppi­nautar mínir í öðrum flokkum sem komu í heim­sókn til mín eða sendu mér kveðjur. Geir H. Haarde er á meðal þeirra sem heim­sóttu mig en við ræddum um hann fyrr í þessu við­tali. Það þótti mér vænt um.“

Afleiðingar slyssins

Stein­grímur segir að hann væri ekki að segja alveg satt ef hann segði að hann fyndi ekki enn fyrir afleið­ingum slyss­ins. „Öndunin hefur aldrei orðið eins góð og hún var – ég mædd­ist aldrei fyrir slysið en núna geri ég það svo­lítið. Ég snögg­mæð­ist við fyrstu áreynslu en svo jafnar það sig og ég hef ágætis þrek og get alveg gengið á fjöll. Svo veit maður ekki hvaða áhrif árin sem bæst hafa við eru að hafa líka. En ég er mjög sáttur við það form sem ég er í og hvernig hefur unn­ist úr þessu öllu saman.“

Stein­grímur segir að það sé eft­ir­minni­legt þegar hann var kom­inn aðeins á stjá og leit niður í Alþingi um vorið eftir að hafa verið lengi í veik­inda­leyfi og var þá enn. „Þá hitti ég vin minn, Einar Odd, sem sagð­ist vera svo feg­inn að sjá mig. Hann sagði að hann hafi orðið svo hræddur um að ég væri dauður eða verra en dauður þegar ég lenti í slys­inu. Þetta var býsna vel orðað því að þetta snýst ekki bara um að lifa af heldur að það sé eitt­hvað gott líf sem maður á þá áfram; að maður sé ekki svo illa far­inn að það sé næstum því eins og hann orð­aði það sem væri verra en að vera dauður.“

Meyjará varð skaðræðisfljót

Stein­grímur hefur farið í ýmsar svað­il­farir á göngu- og fjalla­ferðum sínum. Hann segir frá ferð með göngu­hópi á Ströndum í hitti­fyrra þar sem fólk lenti í miklum  háska þegar gerði úrhellis­rign­ingu.

„Við van­mátum kannski aðstæður og vorum ekki nógu kunnug því hversu vatnið kemur svaka­lega hratt niður þessi bröttu fjöll á Ströndum. Við fengum svo sem engar sér­stakar við­var­anir um það þannig að við lögðum af stað úr Reykj­ar­firði í sudda­veðri. Eftir því sem leið á dag­inn var ljóst að vatna­vext­irnir voru meiri og meiri. Það gekk allt vel þangað til við áttum um þrjá kíló­metra eftir að Dröngum en þá komum við að á, Meyjará, sem er venju­lega hægt að vaða yfir á gúmmí­stíg­vélum en var orðin að skað­ræð­is­fljóti. Það var alveg ljóst að hóp­ur­inn var strand­aður. Það var komið fram á kvöld, fólk var orðið þreytt af langri göngu og vos­búð og aug­ljóst að menn voru ekki vel staddir til þess að stranda þar ef eng­inn vissi um okkur. Það var ekk­ert fjar­skipta­sam­band svo við vissum þannig að ég og bróðir minn, Ragnar, leit­uðum að stað til að vaða ána alveg upp undir flúðum sem þarna eru til þess að kom­ast að Dröngum og kom­ast í síma­sam­band. Þetta gekk bara ágæt­lega og það er miklu meira fyrir hetju­skap og krafta bróður míns en mín vegna þess að hann er mjög harð­skeyttur og öfl­ugur maður og góður að hafa með sér á ferða­lögum. Við óðum bara eins og við höfum oft gert áður þegar við höfum vaðið stór­vötn og þá ríg­höldum við í hvorn annan og þá eru fjórir fætur en ekki tveir undir byrð­inni. Við komumst klakk­laust yfir ána og drifum okkur að Dröngum og hittum þar gott fólk sem aðstoð­aði okkur við að kom­ast í sam­band við neyð­ar­lín­una og björg­un­ar­að­ila. Svo tók það reyndar ónota­lega langan tíma en að lokum kom bátur frá Norð­ur­firði og sótti hóp­inn og ferjaði hann yfir að Dröngum. Það mátti ekki seinna vera í sjálfu sér því það var farið að bera á ofkæl­ingu og fólk auð­vitað orðið mjög þreytt. Það var þeim líka til happs að það voru snill­ingar í hópnum sem gátu tendrað eld en það var ein­hver með gas­hitara sem þau gátu notað til að kveikja í plasti og síðan reka­við og þannig gátu þau hlýjað sér, enda ilm­aði hóp­ur­inn af reykj­ar­lykt þegar hann kom.“

Vestrar og spennuþættir

Stein­grímur ætlar að halda áfram að ganga eftir að hann hættir í stjórn­málum eftir kosn­ingar næsta haust.

„Ég á alveg haug af áhuga­málum og ég vona að mér end­ist bæði heilsa og kraftar til að sinna þeim meira; fara á fjöll og rækta skóg og já, sinna barna­börn­unum og allt þetta hefð­bunda. Ég hef alltaf verið dug­legur að finna mér eitt­hvað að gera. Ég játa það alveg að ég hef verið þannig frá blautu barns­beini að ég hef verið vinn­andi. Við krakk­arnir í sveit­inni fórum að hjálpa til við létt störf bara strax og við gátum þannig að ég man eig­in­lega enga aðra til­veru en að vera alltaf að gera eitt­hvað. Þá hef ég ekk­ert síður unun af erf­ið­is­vinnu, ein­hverju púli, heldur en að vinna með hausnum. Það getur svo sem líka verið álag á haus­inn að vinna verk­leg störf svo sem að smíða eitt­hvað eða fara í ein­hverjar land­bætur. Það er margt slíkt sem ég hef áhuga á og von­ast til að geta gert.“

Forseti Alþingis er spurður um upp­á­halds­kvik­mynd­ina.

„Ég held ég verði að segja Kona fer í stríð sem er ein besta mynd sem ég hef lengi séð og í hópi allra bestu íslenskra mynda að mínu mati. Það spillir ekki fyrir að gamli Volvóinn minn leikur stórt hlut­verk í mynd­inni og gerir það með glæsi­brag.“ Hann hefur líka gaman af vestrum og spennu­þáttum. „Mér finnst sumir af nor­rænu þátt­unum hafa verið mjög góðir.“

Hann seg­ist hafa lesið Morgan Kane þegar hann var í háskól­anum en áður var það Ástríkur. „Ég les klassík­ina dálítið og ég er kom­inn á þann stað að ég er far­inn að kippa Laxness stundum fram úr hill­unni og lesa aftur eða í þriðja sinn sumar af bókum hans. Ég er aðeins að blaða í ritsafni Jóns Trausta og þess vegna Sturl­ungu og Njálu. Ég fylgi nýju spennu­sagna­höf­und­unum og er mik­ill aðdá­andi Arnaldar og ég les líka Yrsu og Ragnar. Ég hef gaman af því hvað við eigum góða rit­höf­unda. Þau eru líka mörg að standa sig vel á klass­íska svið­inu þannig að ég er alæta á bækur eins og margt annað en ég flokka mig eig­ini­lega alætu á bók­menntir og tón­list.“

Stein­grímur seg­ist hafa gaman af karla­kórum og halda upp á flotta kóra eins og Heimi, Hreim, Fóst­bræður og Karla­kóra Reykja­víkur og Eyja­fjarðar. „Ég hlusta líka svo­lítið á blús. Ég var aðdá­andi Harry Belafonte og Johnny Cash var í upp­á­hald hjá mér að minnsta kosti um tíma. Síðan er það þægi­leg tón­list eins og Cat Stevens eða Cohen. Ég hlusta ein­stöku sinnum á klassík og hef gaman af því þegar spiluð eru fal­leg lög á píanó eins og þegar krakk­arnir mínir eru að spila heima.“

Fórnir fjölskyldunnar

Stein­grímur er kvæntur Bergnýju Mar­vins­dóttur lækni og eiga þau fjögur börn og tvö barna­börn. „Maður er búinn að leggja mikið á sína nán­ustu með því að vera í svona starfi. Þannig að ef það er eft­ir­sjá eða sam­visku­bit út af ein­hverju þá myndi ég nefna það fyrst; það eru miklar fórnir sem fjöl­skyldur og aðstand­endur manna eins og mín færa í raun og veru vegna starfa við­kom­andi. Vinnu­tím­inn er langur og óreglu­legur, það er mikið álag á köflum og maður er opin­ber per­sóna og sætir öllu því súra og sæta sem því fylgir.“

Álagið var sér­stak­lega mikið þegar hann var í stjórn­inni á árunum 2009-2013 og segir hann að hann hafi í raun og veru verið eins og hót­el­gestur á eigin heim­ili. „Ég hitti fjöl­skyldu mína stundum vikum og mán­uðum saman, sárasjaldan á fótum en ég kom oft heim seint á kvöldin og svaf í nokkra klukku­tíma og var far­inn áður en aðrir vökn­uðu. Það er ekki beysin frammi­staða fyrir mann sem fjöl­skyldu­mann. Það er til mik­ils ætl­ast að aðrir umberi það en ég hef verið gæfu­samur í því og notið mik­ils skiln­ings og stuðn­ings minna nán­ustu þannig að það hefur alltaf bless­ast.“

Hefur aldrei flutt lögheimilið

Stein­grímur hefur meðal ann­ars verið gagn­rýndur fyrir að hafa búið ásamt fjöl­skyldu sinni í glæsi­legu húsi í Reykja­vík en vera skráður að Gunn­ars­stöðum í Þistil­firði og þiggja við­bót­ar­greiðslur sem lands­byggð­ar­þing­maður. Hvað þá gagn­rýni varðar segir hann: „Það er ótrú­lega líf­seigur mis­skiln­ingur að þetta hafi eitt­hvað með lög­heim­ili að gera. Það gerði það fyrir ára­tugum síðan en því var breytt og nú fá ein­fald­lega allir þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæmanna ákveðna fasta greiðslu sam­kvæmt lögum til að mæta við­bótar búsetu­kostn­aði og skiptir engu máli hvort við­kom­andi heldur sitt aðal­heim­ili í kjör­dæm­inu en kemur sér upp aðstöðu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða öfugt. En svo það sé nú sagt þá hef ég aldrei flutt lög­heim­ili mitt eitt eða neitt. Ég var búsettur á Gunn­ars­stöðum og með mitt lög­heim­ili þar þó ég væri í háskól­anum þegar ég fór á þing og þar hefur það verið síðan. Þar á ég stórt hús, gamla bæinn á Gunn­ars­stöðum sem ég held við með systk­inum mínum og þar hef ég mína bæki­stöð í kjör­dæm­inu sem hentar vel eftir að hið víð­lenda Norð­aust­ur­kjör­dæmi kom til sög­unnar. Áður leigðum við stundum íbúð á Akureyri á sumrin eða ég mér aðstöðu í tengslum við kosn­ingar og svona. Mergur máls­ins er að það er gíf­ur­legur aðstöðu­munur sem þing­menn lands­byggð­ar­kjör­dæmanna, alger­lega óháð því hvar þeir hafa skráð lög­heim­ili, búa við og lög­gjaf­inn hefur fyrir löngu ákveðið að þeim aðstöðumun skuli mætt. Mín kjör að þessu leiti eins og öðrum ákvarð­ast af lögum og ég hlíti þeim.“

Orðið ágætt

Stein­grímur seg­ist líta mjög sáttur um öxl. „Ég er mjög sáttur á þessum tíma­punkti. Ég er þakk­látur og ánægður að eiga þess kost að velja mér tíma til að hætta og geta gert það von­andi með sæmi­legri reisn. Þetta er orð­inn bara mjög góður fer­ill sem ég er sáttur við og stoltur af. Mér hefur verið sýnt mikið traust og mik­ill trún­aður og ég hef haft mik­inn stuðn­ing og ekki síst þegar á hefur þurft að halda. Ég kveð stjórn­málin mjög sáttur og er til­bú­inn til þess. Það er mik­il­vægt að vera það og und­ir­búa sig and­lega undir það að maður sé að hætta til þess að geta hætt og sleppt og vera ekki til vand­ræða fyrir þá sem taka við. Nú tekur við að ljúka þeim verk­efnum sem ég tók að mér. Ég verð for­seti þings­ins til loka þessa kjör­tíma­bils og reyni að gera mitt besta í því og nýta mína reynslu þar. Ég kvíði því ekk­ert hvað svo tekur við. Ég ætla mér ekki ein­hvern emb­ætt­is­feril eða annað slíkt. Þetta er orðið ágætt hjá mér. Ég er búinn að vera opin­ber per­sóna og í for­ystu­hlut­verkum meira og minna stans­laust síðan 1987 en þá varð ég for­maður þing­flokks Alþýðu­banda­lags­ins og síðan er ég búinn að vera næstum því sam­fleytt ann­að­hvort for­maður eða vara­for­maður flokks, ráð­herra eða for­seti Alþingis. Þannig að þetta er orð­inn dálítið langur tími í krefj­andi for­ystu­störfum af því tagi. Núna held ég að ég sé búinn að leggja mitt af mörkum og mun fara að hugsa aðeins meira um sjálfan mig og fjöl­skyldu mína.“

Texti: Svava Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins