„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Það kemur enginn út úr píkunni á mömmu sinni og segir – Hey! Ég ætla að berja alla!“

„Það kemur enginn út úr píkunni á mömmu sinni og segir – Hey! Ég ætla að berja alla!“

Þrettán heim­sóknir á bráða­mót­töku á einu og sama alm­an­aks­ár­inu, van­grein­ing meiðsla og illa rök­stutt boð sér­fræð­ings um inn­lögn á geð­deild, flug­miði til Indlands og fjórar skurð­að­gerðir ytra eftir fádæma afskipta­leysi og frá­vís­anir sér­fræð­inga á Íslandi. Orðaskak á sam­fé­lags­miðlum, heift­úðug ummæli í athuga­semda­kerfum og óbil­gjörn rétt­trún­að­ar­stefna í mál­efnum er varða umbætur á sviði mann­úðar og per­sónu­rétt­inda.

Lýsingin ein hljómar eins og um far­sa­kennt atriði í hryll­ings­mynd sé að ræða. Þó er um sam­tíma­frá­sögn af reynslu ein­stak­lings hér­lendis að ræða, en Sævar Kol­anda­velu hefur dvalið í Indlandi nú í fáeina mán­uði þar sem hann nýtur þjón­ustu í heil­brigð­is­kerf­inu ytra, umönnun sem íslenska heil­brigð­is­kerfið er ekki í stakk búið til að veita ein­stak­lingum með svo sjald­gæf meiðsli.

„En er þetta ekki nákvæm­lega sama og sam­tökin berj­ast gegn? Að sjá annað kynið sem óæðra eða finna eitt­hvað að því sem rétt­lætir að það sé smættað?“

„Ég fór úr lið í hálsi, ekki þessum klass­íska hryggjar­lið heldur þeim hryggjar­lið sem tengir rif­beinin við háls­inn,“ útskýrir Sævar en hann reyndi ítrekað að leita aðstoðar lækna hér á landi en var ítrekað vísað frá. Hann leit­aði því til ind­verskra sér­fræð­inga en grein­ing hans hlaut ekki sam­þykki íslenskra lækna. „Það að fara úr háls­lið hafði svona svaka­lega kata­st­rófískar afleið­ingar. Þetta er í raun hryggjar­liður en þar sem meinið er mjög sjald­gæft, var ég van­greindur til margra ára. Þetta hefur í einu orði sagt verið hrylli­legt.“

Full vinna fór í að halda höfðinu hátt á Íslandi

Fáeinir mán­uðir eru síðan Sævar sagði sögu sína í Frétta­blað­inu og lét þau orð meðal ann­ars falla að full vinna færi í það eitt að halda höfð­inu hátt við dag­leg störf þar sem hvorki lægi fyrir rétt né nákvæm grein­ing svo hægt yrði að byrja bata­ferlið. Í við­tal­inu sem tekið var í nóv­em­ber sagði Sævar þó að þrátt fyrir erf­iða reynslu og ítrek­aðar van­grein­ingar hefðu líka hæfir sér­fræð­ingar orðið á vegi hans sem hefðu sýnt honum jafnt skiln­ing sem stuðn­ing. „Fólk spyr mig stundum hvað ég geri til að stytta mér stundir í bið­inni eftir lækn­ingu,“ sagði Sævar í nóv­em­ber í fyrra, þá staddur á Íslandi. „Þetta er full vinna. Að halda hausnum. Ég er bók­staf­lega ekki að gera neitt nema reyna að lifa.“

Nú eru átta mán­uðir liðnir síðan Sævar greindi frá þrauta­göngu sinni innan íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins en hann flaug ytra nú í vor. „Síðan ég kom til Indlands hef ég farið í tvær aðgerðir en ég þarf að fara í tvær aðgerðir til við­bótar nú í þess­ari viku. Ég er með það sjald­gæf meiðsli að það finnst bara eitt annað skráð til­felli í sögu mann­kyns. Þetta eru ansi sjald­gæf meiðsli og ekki til nein ein­föld lausn. Því hefur gengið fremur illa að kom­ast að mein­inu og ráða þar bót á.“

„Ofbeldi er ekki per­sónu­legt vanda­mál, heldur sam­fé­lags­mein. Það er ekki svo ein­falt að ætla að ákveðnir ein­stak­lingar séu svo slæmir að vilja skemma fyrir öllum hinum.“

Kemst enginn hjá því að taka þátt í umræðunni

Sævar, sem gengur undir lista­manns­nafn­inu Poetrix, hefur stundum farið gegn ríkj­andi skoðun og á sam­fé­lags­miðlum nýlega setti hann spurn­ing­ar­merki við  fram­setn­ingu skila­boða bar­áttu­hópa gegn ofbeldi. „Ég hef að sjálf­sögðu fylgst með eins og allir, það fylgj­ast allir með því sam­fé­lagi sem þeir búa við og við eigum öll í kross­virku sam­tali; allt frá tveggja manna tali og yfir í þau sam­töl sem við eigum milli þjóða og yfir landa­mæri. Það kemst eng­inn hjá því að taka þátt í þeirri umræðu, sama hvar í heim­inum við erum nið­ur­komin.“

Hér má sjá aug­lýs­ing­una sem Líf án ofbeldis deildi á Facebook og hratt af stað umræðu vegg Sævars

„Af hverju völdu þær þennan vinkil?“

Aug­lýs­ing frá bar­áttu­hópnum Líf án ofbeldis varð spretta sam­tals á Facebook síðu Sævars fyrir stuttu, en hann deildi ein­föld­uðu töl­fræði­lík­ani frá sam­tök­unum þar sem fram kemur að 98% ger­endur kyn­ferð­is­of­beldis á Íslandi á ára­bil­inu 2015 til 2020 hafi verið karl­menn. „Nennir ein­hver að útskýra fyrir mér hvað point-ið með svona aug­lýs­ingu er?“ spyr hann í deilitexta á Facebook og segir ummælin for­dóma­full.

„Það eru teiknuð upp fjögur mis­mun­andi tákn fyrir karl­kynið og inn í táknin eru skrifað orðið GERENDUR og KARLMENN og þarna eru orðin KYNFERÐISOFBELDI með upp­hrópun­ar­merki, NAUÐGANIR og NAUÐGANIR GEGN BÖRNUM og þessi tákn sveima í kringum tákn karla í aug­lýs­ing­unni. Svo stendur 98% í miðj­unni. Ég skil mál­stað lífs án ofbeldis og ég er sam­mála honum. En hvað er þessi aug­lýs­ing að segja, ein og sér? Hvað stendur á þessu?“ segir hann aðspurður. „Útúr sömu töl­fræði hefði verið hægt að lesa að innan við 1-3,5 pósent allra karl­manna fremja svona glæpi svo 97% þeirra gera það aldrei. Af hverju völdu þær þennan vinkil?“ „Það er svo auð­velt að hafa skoðun á umræð­unni; við höfum öll skoð­anir á því hvað aðrir eiga að tala um og segja og þar horfir hver á umræð­una frá mis­jöfnu sjón­ar­horni, eins og ég núna.“ Sævar heldur áfram og und­ir­strikar að hann taki afstöðu með mann­kyn­inu.

„Ég er ekki í liði með ákveðnum hóp, ég er í liði með öllum. Í almennri umræðu á Íslandi hefur hins vegar sú stefna verið ríkj­andi að búa til and­stæð lið. Ég er hlið­hollur mál­stað Lífs án ofbeldis. Það er mín afstaða og sú afstaða er alveg skýr. En er þetta ekki nákvæm­lega sama og sam­tökin berj­ast gegn? Að sjá annað kynið sem óæðra eða finna eitt­hvað að því sem rétt­lætir að það sé smættað? Hljómar eins eins og það sama. Þú læknar ekki kyn­bundið ofbeldi með því að beita því. Það að vera karl­maður er ekki ástæða fyrir því að ein­hver beitir ofbeldi.“

„Það eru ekki allir karl­menn ofbeld­is­menn og það eitt að vera karl­maður gerir engan sjálf­krafa að ofbeld­is­manni.“

Ofbeldi ekki persónuvandi heldur samfélagsmein

Ég er bæði þol­andi og ger­andi og tel mig því vera í ágætri stöðu til að geta tjáð mig um svipuð mál af nokk­urri vissu. Áhyggju­tóns gætir í röddu Sævars þegar hann heldur áfram og segir: „Ofbeldi er ekki per­sónu­legt vanda­mál, heldur sam­fé­lags­mein. Það er ekki svo ein­falt að ætla að ákveðnir ein­stak­lingar séu svo slæmir að vilja skemma fyrir öllum hinum,“ heldur hann áfram og bendir Sævar þar á að sam­verk­andi þættir þurfi að koma til svo ofbeldi verði að vanda.

„Það þarf ýmis­legt að koma til svo ein­stak­lingur beiti ofbeldi; sam­fé­lagið, aðbún­aður, hversu miklu vinnu­á­lagi mann­eskjan er undir þá stund­ina, hvaða álag er á tauga­kerfi við­kom­andi, hver und­ir­liggj­andi áföll eru, upp­eldi, og ef við ætlum að rekja þann hnút alveg upp, hvar endar þá ábyrgðin? Hjá nauð­gar­anum? Eða hjá þeim sem nauðg­aði nauð­gar­anum? Ef við myndum rekja upp þá keðju til enda þá komum við að Mikla Hvelli [Big Bang]“ segir hann í við­tali nú og vísar þar til þess að ofbeldi ali af sér meira ofbeldi; að um alvar­lega, lang­dregna og þunga keðju­verkun sé oft að ræða í hverju og einu til­felli.“

Segir dæmigert fyrir gerendur að beita réttlætingu fyrir hörku

Ofbeldi er víta­hringur sem þarf að rjúfa, á því er eng­inn vafi. En ástæður og rót ofbeldis er oft flókin keðju­verkun aðstæðna og atburða sem erfitt er að vinna á. Þá segir Sævar dæmi­gert fyrir ger­endur að beita rétt­læt­ingu fyrir hörku. „Ástæða þess að fólk beitir ofbeldi er að ein­stak­ling­ur­inn finnur ein­hvern og ein­hverja ástæðu til að beita ofbeldi. Það er alltaf ein­hver, að mati ger­and­ans, sem á ofbeldi skilið. Hann eða hún er ein­hvern veg­inn, gerði eitt­hvað, sagði eitt­hvað, hann eða hún á rétt á því að ég geri það sem ég geri núna.“  „Sá sem beitir ofbeldi er því í eigin huga aldrei að beita neinu ofbeldi. Það sem ger­and­inn gerir þyk­irhonum eða henni rétt­látt, hljómar  rök­rétt og sann­gjarnt jafn­vel í hans ver­öld. Ger­and­inn er oft jafn­gaslýstur og fórn­ar­lambið um eigin gjörðir. Hann bók­staf­lega sér ekki hvað hann er að gera. Hann sér eitt­hvað allt annað, hann útskýrir fyrir sér atburð­ar­rás­ina allt öðru­vísi. Ómeð­vitað er ger­and­inn að reyna losna við hat­rið inn í sér með að gefa ein­hverjum öðrum það, hug­myndin skiptir í raun engu máli nema bara til þess að rétta gjöf­ina . Ég hef til að mynda aldrei hitt mann­eskju sem þykirauð­velt að horfast í augu við eigið ofbeldi, og mjög fáir vilja gera það, og ég hef hitt eina mann­eskju um ævina sem ég gat ekki séð neitt ofbeldi í að neinu leyti.“

„Það er alltaf ein­hver, að mati ger­and­ans, sem á ofbeldi skilið. Hann eða hún er ein­hvern veg­inn, gerði eitt­hvað, sagði eitt­hvað, hann eða hún á rétt á því að ég beiti ofbeldi núna.“

„Umræðan er við­kvæm í eðli sínu og svörin að sama skapi erfið viður­eignar. „Undir öllum þeim kring­um­stæðum þar sem ofbeldi er beitt upp­lifir þol­and­inn það að vald hans yfir eigin veru­leika er í raun myrt, það er tekið frá honum við verkn­að­inn. Sá verkn­aður gefur þol­and­anum hatur, nið­ur­læg­ingu og hræði­lega erf­iðar til­finn­ingar,“ bætir Sævar við og er hugsi. Eftir ákveð­inn tíma fer við­kom­andi jafn­vel að horfast í augu við þá lífs­reynslu sem hann eða hún varð fyrir og upp kemur eðli­leg reiði og hatur. Ég er ekki ógeð, ég átti þetta ekki skilið, þetta er ekki mér að kenna. Þetta er þessum fokker þarna að kenna. Ég á ekki að beina þessu hatri að sjálfri mér heldur honum.“

Erum öll að berjast gegn sameiginlegum óvini

Að mati Sævars eru það umskiptin frá ótta og yfir að vald­efl­ingu þolenda sem valda eðli­legu og heil­brigðu til­finn­ing­aróti. „Þetta er upp­gjörið sem sam­fé­lagið er að end­ur­spegla í dag, þegar þol­and­inn áttar sig á því að hann eða hún er fórn­ar­lamb og fer að berj­ast fyrir bættum heimi.Þessi grund­völlur í þessu sam­hengi er heil­brigður. Aftur á móti ef við­kom­andi áttar sig ekki á því að ger­andi þeirra er í raun bara smit­beri fyrir hatur og því sé besta leiðin til að sigr­ast á ofbeld­inu að slíta keðj­una og neita að bera hat­rið áfram innra með sér í garð ann­ara, þá endar það oft á því  að finna sér leið til að smita líf ein­stak­lings­ins og fá hann til að smita aðra. Þessi atriði sjáum við bæði í smækk­aðri og stærri mynd. Við sjáum þessar birt­ing­ar­myndir í sam­skiptum ólíkra þjóða og milli kyn­slóða. Sonurinn beitir sama ofbeldi og fað­ir­inn. Ísra­els­menn fremja þjóð­ar­morð á Palest­ínu­mönnum, Banda­ríkja­menn eru að leyni­myrða og henda sprengjum á fólk sem býr með geitum því það er „ógn við frelsi þeirra.“ Þeir eru að gera það sama og var gert við þá, ofbeldið sem fórn­ar­lambið hefur þurft að þola er gefið áfram og þol­andi verður ger­andi. Í enda­lausa hringi gegnum alla mann­kyns­sög­una.“

Segir leitt að sjá baráttuhópa beita sama ofbeldi

Fram­ganga bar­áttu­sam­tak­anna Líf án ofbeldis hefur verið skel­egg, hnit­miðuð og hjálp­leg ófáum und­an­farna mán­uði og segir Sævar engan vafa leika á gagn­semi opinnar og gegn­særrar umræðu. Jafn­framt því und­ir­strikar hann eigin við­horf. „Ég hef bein­línis, ein­dregið og veru­lega tekið afstöðu í verki með með­limum sam­tak­anna, ég hef lagt mál­staðnum virkan lið í bar­áttu kvenna við kerfið og við ofbeld­is­fulla barns­feður. Ég tel því þann vinkil um að ég sé „í hinu lið­inu“ eða jafn­vel partur af ger­enda­væð­ingu í þjóð­fé­lag­inu ekki virka í mínu til­felli. Mér finnst grát­legt þegar við föllum í þá gryfju að beita sama ofbeldi og við erum að reyna berj­ast gegn.“

„Við getum ekki málað upp hópa ein­stak­linga svona hvort sem það er „Konur ljúga svo mikið um nauðg­anir“ eða „Karlmenn beita ofbeldi.“

Á sam­skipta­miðlum hefur Sævar þannig vísað í umræðu und­an­geng­inna vikna og segir nýlegar stað­hæf­ingar um töl­fræði ger­enda vera rasískar. Vill hann meina að sá ras­ismi sem hann vísar til í umræð­unni bein­ist þá gegn karl­mönnum og að almennir áfell­is­dómar í garð karl­manna sé komin út fyrir vesæm­is­mörk? „hug­mynd sem að dregur hópa í dilka og merkir þá með svona miðum er alltaf byggð á lygi. Þessi teg­und af hug­mynd er oft­ast rétt­læt­ing sem verður und­an­fari þess við megum beita ein­stak­linga eða hópa ofbeldi í orði eða á borði. Þetta er nákvæm­lega sama hug­mynd og við sáum í þræla­iðn­að­inum í Banda­ríkj­unum, meðan á hel­för Hitlers stóð og birt­ist í ríkj­andi við­horfum þeirra sem aðhyll­ast þjóð­ern­is­stefnu í Afríku. Þetta er ekki einu sinni frum­leg nálgun sem brýst fram á þennan hátt. Þetta er alltaf sama hug­myndin. Ein­stak­lingur, flokkur eða hópur er svo mikið þannig að maður má gera svona við þá. Það er sama hug­mynd að baki öllu ofbeldi. Stundum í mis­mun­andi bún­ing.“

„Konur ljúga svo mikið um nauðganir“

Þá spyr Sævar í við­tali hver til­gangur aug­lýs­inga um kynja­hlut­föll ger­enda á Íslandi sé og hver skila­boð þeirra sömu aug­lýs­inga sé í raun. „Ég get ekki lesið annað út úr þessum orðum en að karl­menn séu ofbeld­is­seggir. Ég sé alla vega engin önnur skila­boð.  Ég skil bar­áttu­mál­stað þess­ara sömu hópa og þyk­ist vita hvaðan þetta fólk er að koma. Ég veit að eng­inn vill láta nauðga sér og eng­inn vill láta berja sín eigin börn. En ég er ekki sam­mála þess­ari teg­und hug­mynda og ég held að þetta sé nákvæm­lega það sem við þurfum að upp­ræta. Við getum ekki málað upp hópa ein­stak­linga svona hvort sem það er „Konur ljúga svo mikið um nauðg­anir“ eða „Karlmenn beita ofbeldi.“

Það að vera karlmaður gerir engan sjálfkrafa að ofbeldismanni

Vill Sævar, sem tekur sterkt til orða í við­tali við blaða­mann, meina að honum þyki meiri lausn­ar­miðun og mýkt þurfi að ein­kenna umræð­una? „Sann­leik­ur­inn má koma fram,“ segir hann. “Við vitum öll hvað er satt og ekki. Við vitum öll að það eru mjög fáar mann­eskjur sem vilja fara og beita aðra mann­eskju ofbeldi. Það kemur eng­inn út úr píkunni á mömmu sinni og segir – Hey, ég ætla að berja alla.“

„Skilj­an­legt, En þetta er bara ekki satt. Karlmenn eru ekki ofbeld­is­menn af því einu að vera karl­menn.“

Er tón­list­ar­mað­ur­inn og texta­smið­ur­inn þar að segja að hann telji her­ferð­ina ekki væn­lega til árang­urs í við­leitni til að knýja fram úrbætur? „Þessi nálgun er ein­fald­lega bara ekki sönn. Þetta er ekki satt fyrir það fyrsta. Það eru ekki allir karl­menn ofbeld­is­menn og það eitt að vera karl­maður gerir engan sjálf­krafa að ofbeld­is­manni. Það eru að mestu sam­verk­andi sam­fé­lags­legir þættir sem búa til ofbeldi í heim­inum.“

Segir umfjöllun einkennast af lágkúrulegum æsifréttastíl

„Það er beint orsaka­sam­hengi við tíðni ofbeldis og fátækt til dæmis. Beint orsaka­sam­hengi við áfalla­sögur. Hvernig á fátækt fólk á íslandi sem býr við langar áfalla­sögur og vont félags­legt umhverfi með þrjú börn á sínu fram­færi og vinnu sem dugar ekki fyrir grunn­þörfum að finna tíma og pen­inga og fag­hjálp til að upp­ræta kannski margra kyn­slóða arf af ofbeldi og áföllum? Þetta er bara ein af mörgum spurn­ingum um raun­veru­legan upp­runa ofbeldis sem ég væri til í að sjá í aug­lýs­ingu. Að slá upp æsifrétta­fyr­ir­sögnum um að karl­menn séu 98% ger­enda í ofbeldi og spyrða þetta saman er að öllu leyti vit­laust.“

„Sonur minn á ekki að þurfa lesa þetta rugl“

Ástæðuna telur Sævar vera til­finn­inga­legs eðlis. „Ég held að þetta sé til­finn­inga­legs eðlis en ekki á vit­rænum for­sendum. Þessar konur og þetta fólk hefur lent í hræði­legum áföllum og í til­fellum umræddra þolenda hefur ger­and­inn verið karl­maður. Tauga­kerfi þolenda dansar í gegnum ákveðna trig­gera. Svona ein­föld erum við mann­eskjur bara. Svo sýn­ist mér að þessi reiði og þetta hatur sem ofbeldi óneit­an­lega elur af sér vilji ein­fald­lega finna sér far­veg áfram; eng­inn vill ofbeldi inni hjá sér og allir vilja vísa því frá, gefa ofbeldið burtu og afhenda ein­hverjum öðrum reynsl­una. Það var karl­maður sem nauðg­aði mér. Karlmenn nauðga. Karlmenn eiga taka ábyrgð á því að þeir eru nauð­garar. Skilj­an­legt, En þetta er bara ekki satt. Karlmenn eru ekki ofbeld­is­menn af því einu að vera karl­menn. Við komumst ekki lengra með sam­talið um hvað skal gera meðan for­sendur þess eru rangar. Já, ég er sam­mála þér, ofbeldi þarf að upp­ræta. Já, ég er sam­mála um að draga alla til ábyrgðar fyrir gjarðir sínar er smart move. Ég skal tala um þetta og reyna leysa þetta með öllum þangað til ég er far­inn í gröf­ina en ég get ekki leyst vanda­málið „Ofbeldi sem er til því karl­menn eru til“ því það er ekki til. Sonur minn á ekki að þurfa lesa þetta rugl.“

„Þetta er allt saman hræði­legt, til­gangs­laust og sorg­legt, en allt það sama. Við erum öll í bar­áttu milli ástar og hat­urs í hjart­anu á okkur.“

Aðstöðumunur en ekki kynferði spretta ofbeldis

Aðstöðumun ger­enda segir Sævar vera ljósar for­sendur alls ofbeldis. „Rann­sóknir hafa sýnt að bæði konur og börn og ann­ars heil­brigt og eðli­legt fólk er fært um að beita ofbeldi sjálft þegar sami aðstöðu­munur og ger­endur eru vana­lega í stendur þeim til boða. Þá er eng­inn munur á milli kynja og þjóð­flokka. Þegar þær línur sem við kjósum og erum vön að draga í eðli­legum sam­skiptum verða óljósar, verður oft sára­lít­ill eða eng­inn kynja­munur milli ger­enda. Ríkjandi umræða í dag er ótrú­lega frum­stæð. Þetta er á svo frum­byggja­legum grunni allt saman að varla er mark tak­andi á svona stað­hæf­ingum.Það eru allir að leyta að ein­hverri lausn. Ein­hverri nefnd til að setja á stofn. Ein­hverri laga­setn­ingu eða ein­hverju fiffi.“

Baráttan milli ástar og haturs fer ekki í manngreinarálit

„En ef við viljum í raun og veru sigr­ast á þessu þurfum við að spyrja okkur mjög erf­iðra spurn­inga um grund­vall­arund­ir­stöður sam­fé­lags­ins sem við búum í og ég veit ekki hvort allir séu til í það. Það er miklu auð­veld­ara á hanga á TikTok og Instagram og fá spons frá ein­hverjum veit­inga­stað og vera fylgja sögu­þræði þriggja mis­mun­andi sjón­varps­þátta en spyrja sig hvort maður sé til í að minnka sín eigin lífs­gæði eftir 5-10 ár þegar vatnið í Indlandi klár­ast og millj­arðar flótta­manna koma til Evrópu og Útlend­inga­stofnun setur upp gadda­vírs­rúllur. Stærstu fjölda­glæpir sög­urnar sem eru nauðg­anir á konum og svo stærsta fjöldamorð sög­unar sem er útrým­ing 100 millj­óna ungra karl­manna í stríði hinna ríku síð­ustu öld­ina eða svo er sama ofbeldið.“

„Við erum að glíma við sama óvin­inn; hatur, líta niður á, vera meira virði enn, hærra í þjóð­fé­lags­stig­anum heldur o.sv.frv. sem veldur því að þú og þín til­vist skipta minna máli svo það er allt í lagi að þú þjá­ist svo ég hafi það betra. Þetta er allt saman hræði­legt, til­gangs­laust og sorg­legt, en allt það sama. Við erum öll í bar­áttu milli ástar og hat­urs í hjart­anu á okkur. Við erum í sama lið­inu, karl­menn og konur og börn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins