„Gerðist í nótt, mæli með að skilja ekkert eftir í bílum,“ skrifar Dagur Ingvason í gær á síðu Vesturbæinga í gær.Hann bætir við að einnig hafi greinilega farið í hinn bílinn hans en sem betur fer hafi ekkert verðmætt verið inni í honum.„Vinsamlegast hafið augun opin og takið allt verðmætt með ykkur inn!“Mikil aukning virðist vera í tilkynningum í hópnum um innbrot, þjófnaði og skemmdir, þótt erfitt sé að meta hvort aukning hafi orðið eða fólk sé einfaldlega duglegra að tilkynna grönnum sínum það.Fólk hefur sagt frá þjófnuðum á hjólum og rafskútum auk þess sem reglulega berast fréttir af innbrotum í geymslur svo og þjófnað af þvottasnúrum.Bjarni kallar eftir fleiri öryggismyndavélum og Sigurður segir fleiri hafa orðið fyrir sambærilegum skemmdum á bílm og dýrum úlpum stolið.„Þetta er ljótt að sjá ótrúlega mikið um svona afbrot upp á síðkastið hvað er í gangi,“ segir Sigrún Guðjónsdóttir.


























Athugasemdir