„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ótrúlegur blekkingarleikur

Ótrúlegur blekkingarleikur
Mynd / Unsplash.com

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég skildi við fyrri mann­inn minn seint á tíunda ára­tug síð­ustu aldar og var ekk­ert að flýta mér í annað sam­band. Ég ætl­aði að byggja upp gott líf fyrir mig og dætur mínar tvær. Þetta var ekki auð­velt og ein­stæðar mæður hafa það sjaldan gott. Þegar ég kynnt­ist Sigurði taldi ég mig hafa fundið ábyrgan og öruggan mann. Hann hafði farið í með­ferð en var ákveð­inn í að halda sér edrú og sagði mér að öll óregla væri að baki.

Sigurður var sjö árum eldri en ég og vegna þess hve var­lega ég vildi fara gerð­ist allt mjög hægt. Við hitt­umst fyrst í sam­kvæmi og tveimur vikum seinna hrindi hann í mig og bauð mér í kaffi. Nokkur fleiri skemmti­leg stefnu­mót fylgdu í kjöl­farið og það var ekki fyrr en eftir nokkrar vikur að við kysst­umst fyrsta koss­inum. Fimm mán­uðum seinna flutti hann inn til mín. Þá taldi ég mig hafa fengið góða inn­sýn í per­sónu­leika hans og var farin að treysta honum.

Ég átti mína íbúð en hann leigði svo þetta var mun hag­kvæmara og eðli­legra. Hann var ágæt­lega mennt­aður og rak eigið fyr­ir­tæki með vini sínum. Sigurður var með góðar tekjur og við fundum strax fyrir því að lífið varð létt­ara. Ári eftir að við hófum sam­búð var okkur farið að langa að stækka við okkur og keyptum saman stóra fal­lega íbúð. Ég átti orðið það mikið í minni eign að við gátum borgað hærri útborgun en venja er og fengum auk þess gott greiðslu­mat því bæði var ég í mjög öruggu starfi og hann gat sýnt fram á góða inn­komu í fyr­ir­tæki sínu. Þetta kom sér vel þegar í ljós kom að Sigurður skuld­aði lán sem hann hafði fengið veð fyrir í íbúð systur sinnar. Hún vildi eði­lega að hann flytti það nú þegar hann átti hlut í íbúð með mér og ég sam­þykkti veð­flutn­ing­inn. Í mínum huga var þetta allt óhætt því Sigurður var dug­legur að mæta á fundi og passa að rækta það sem hann þurfti til að standa sig í sinni edrú­mennsku.

Byrjaði aftur að drekka

Allt gekk okkur í hag­inn. Við giftum okkur sextán mán­uðum eftir að við kynnt­umst og eign­uð­umst dóttur fjórum mán­uðum síðar. Nýja stóra íbúðin varð fljótt of lítil og enn var ákveðið að stækka. Við keyptum okkur fal­legt hús og unnum mikið til að eign­ast það, enda draumur okkar beggja. Á sama tíma vorum við dug­leg að rækta fjöl­skyld­una, meðal ann­ars ferð­uð­umst við mikið inn­an­lands og fórum í utan­lands­ferðir með börnin þegar við sáum spenn­andi ferða­kosti. Lífið var þó ekki áfalla­laust. Eitt sinn lentum við í alvar­legri bíl­veltu þar sem allir slös­uð­ust en til allrar lukku ekki verr en svo að við náðum okkur að fullu.

Upp úr því fór Sigurður að drekka aftur. Ég var áhyggju­full til að byrja með en hann virt­ist hafa góða stjórn á þessu. Þetta var allt ósköp hóf­legt, eitt og eitt glas af víni hér og þar. Ég tók hins vegar eftir að hann drakk mik­inn pilsner en ég hélt að það væri svo sem í lagi, enda taldi ég hann lausan við alkó­hól. Eftir á átta ég mig auð­vitað á því að pilsner­inn nærði löngun hans og var nægi­lega líkur bjór til að kveikja aftur á gömlu drykkju­venj­unum. Við sátum þess vegna á púð­ur­tunnu og alltaf bara tíma­spurs­mál hvenær hún springi.

Á sama tíma fór spennan í sam­skiptum hans við mig og börnin vax­andi. Hann var oft snöggur upp og reiðin bitn­aði oft­ast á mér en líka iðu­lega á stelp­unum. Einstaka sinnum réð hann ekki við sig og sleppti sér þegar aðrir sáu til. Að því kom að ég átt­aði mig á að þetta var ekki í lagi. Við vorum farnar að læð­ast um þegar hann var heima og reyndum alltaf að passa okkur að gera ekk­ert sem farið gæti í taug­arnar á honum. Ég bað hann þess vegna um skilnað en hann var fljótur að svara og segj­ast vilja hætta aftur að drekka. Hann þyrfti ekki að fara aftur í með­ferð því hann kynni þetta allt en yrði að fara aftur að sækja fundi af fullri hörku. Hann full­viss­aði mig um að skap hans myndi lag­ast mikið við það og allt yrði aftur eins og það var þegar við byrj­uðum saman.

Taldi allt á uppleið

Ég trúði honum. Þótt ég vissi að hann hefði áður drukkið allt frá sér og ég gaf honum annan séns. Næstu árin gekk á ýmsu. Við gengum í gegnum hrunið, eins og aðrir, en eftir það varð sjálf­stæður atvinnu­rekstur hans nán­ast gjald­þrota. Þeir höfðu litla vinnu, stundum bara þrjá­tíu til átta­tíu tíma í mán­uði. Ég og dæt­urnar öfl­uðum þeirra tekna sem þurfti til að halda öllu gang­andi. Ég var auð­vitað í fullri vinnu en auk þess fór ég að selja álfinn fyrir SÁÁ með dætr­unum, bera út blöð og fleira til að ná í auka­tekjur. Hann hjálp­aði okkur stundum en oft­ast stóðum við í þessu einar.

Hann seldi sig út úr fyr­ir­tæk­inu tveimur árum eftir hrun en eign­ar­hlutur hans hafði skerst mjög á þessum erf­iðu árum. Engu að síður gerðu hinir eig­end­urnir vel við hann miðað við hvernig verk­efna­staðan var. Hann stofn­aði eigið fyr­ir­tæki og hafði föst verk­efni hjá einum við­skipta­vini til að byggja á í byrjun. Hann hafði alla okkar sam­búð verið dug­legur að vinna og alltaf sinnt starfi sínu vel þegar eitt­hvað var að gera. Ég vissi ekki betur en allt væri komið á gott ról hjá honum þegar hann leg­iði sér skrif­stofu úti í bæ með hús­gögnum, aðgangi að kaffi­stofu og sal­ernum. Mér fannst það öruggt merki um að allt væri á upp­leið.

Alltaf í vinnunni

Sigurður fór til vinnu á hverjum morgni alla daga vik­unnar. Hann borg­aði sjálfum sér þokka­leg laun, var með bíl á nafni fyr­ir­tæk­is­ins og end­ur­nýj­aði hann tveimur árum eftir að hann stofn­aði það. Sá bíll var mun dýr­ari en sá fyrri og ég sagði þegar hann kom heim með hann. „Vá, gengur svona vel. Þú getur keypt svona dýran bíl.“ „Já, ekk­ert mál,“ svar­aði hann kampa­kátur. Skömmu síðar end­ur­nýj­aði hann hús­gögnin á skrif­stof­unni og varð ægi­lega glaður ég kom til að punta með blómum, myndum á vegg­ina og ein­hverjum smá­hlutum.

Ég var líka ánægð og tal­aði um það við hann þarna hvað mér fynd­ist stór­kost­legt að fyr­ir­tækið gæfi svona vel af sér og hversu fínt við hefðum það. Hann ljóm­aði allur og jánk­aði því sem ég sagði. Skömmu síðar sá ég að hann hafði keypt sér aðgangskort að lík­ams­rækt og gufu­baði á fínu hót­eli og skrifað áskrift­ina á fyr­ir­tækið. Mér fannst þetta fínt. Maður sem vann svona mikið og gekk þetta vel átti skilið að geta slakað á í góðri æfinga­stöð.

Á þessum tíma var ég viss um að hann væri alveg hættur að drekka. Ég vissi að smá­svindl eða fall hafði orðið fimm árum eftir að hann lof­aði mér að taka sig á en að öðru leyti hélt ég að hann hefði alltaf verið þurr. Síð­ast­liðið ár fór þó að kvikna hjá mér grunur um að ekki væri allt með felldu. Marg­ít­rekað spurði ég hann hvort hann væri að drekka og reyndi að fá skýr svör um stöðu okkar. Hann neit­aði ævin­lega drykkj­unni og mig bara óraði ekki fyrir því að hann væri að ljúga að mér. Þegar hann var utan­lands tal­aði ég oft við hann í síma og í eitt sinn var hann áber­andi drukk­inn en sagð­ist hafa verið svona þreyttur þegar ég gekk á hann.

„Að því kom að ég átt­aði mig á að þetta var ekki í lagi. Við vorum farnar að læð­ast um þegar hann var heima og reyndum alltaf að passa okkur að gera ekk­ert sem farið gæti í taug­arnar á honum.“

Stór skattaskuld

Um mitt ár 2018 reið áfallið yfir. Þá kom bréf heim til okkar þar sem upp­lýst var að hann skuld­aði margar, margar millj­ónir í vörslu­skatta með til­heyr­andi vöxtum og drátt­ar­vöxtum. Hann hafði safnað upp stað­greiðslu­sköttum, virðus­auka­skatti og trygg­ing­ar­gjaldi til þess eins að geta látið allt líta vel út á yfir­borð­inu. Ég var þegar þarna var komið sögu löngu hætt að finna fyrir ham­ingju í hjóna­band­inu. Við höfðum í nokkurn tíma ekki lifað eðli­legu hjóna­lífi. Hann fór til læknis og fékk töflur og fleira var reynt en vegna auka­verk­ana gat hann ekki nýtt sér þessi úrræði eða sagði það. Nú læð­ist að mér sá grunur að það hafi verið afsak­anir til að þurfa ekki að vera í of mik­illi nánd við mig.

Fyrstu árin okkar voru frá­bær hvað þetta varðar en vín­drykkja hefur ekki góð áhrif á kyn­hvöt svo lík­lega hafa þessar und­an­færslur verið hluti af felu­leiknum. Hann átti auð­veld­ara með að leyna drykkj­unni fyrir mér þegar við sváfum ekki saman lengur. Við höfðum reynt að fara í hjóna­bands­ráð­gjöf en það skil­aði auð­vitað engu. Sann­leik­ur­inn var aldrei sagður og flaskan var þriðji aðil­inn í hjóna­band­inu. Það er ekki hægt að lækna neitt ef fíll­inn í stof­unni er ekki ræddur. Mér varð allri lokið þegar ég komst að þessum skuldum sem hefðu getað gert mig eigna­lausa. Hann hefði getað verið tek­inn gjald­þrota­skipta og misst kenni­tölu sína og fyr­ir­tæk­is­ins. Og það sem meira er farið í fang­elsi eða verið dæmdur til sam­fé­lags­þjón­ustu en ég átti góða að sem keyptu hann út og borg­uðu upp öll van­skilin hans hjá Rík­is­skatt­stjóra.

Seldi húsið

Ég seldi svo húsið okkar til að borga mínu fólki til baka og keypi mér litla íbúð fyrir mig. Dæturnar voru sem betur fer allar fluttar að heiman og farnar að lifa sjálf­stæðu lífi. Á fyrstu dögum skiln­að­ar­ferl­is­ins fór fólk svo að hafa sam­band við mig, meðal ann­ars ætt­ingjar hans og segja mér frá hvernig hann hefði alltaf drukkið á bak við mig. Ég fékk líka að vita hvernig þetta lán kom til sem fylgdi honum inn í okkar búskap. Litlu mátti muna að systir hans missti húsið sitt út af honum á sínum tíma en þá fór hann í með­ferð örugg­lega bara til að róa hana.

Nú er ég búin að átta mig á því að hann er fár­veikur alkó­hólisti. Eftir að ég skildi við hann hefur hann drukkið dag­lega. Hann fékk fljótt vel laun­aða vinnu hjá öðrum því hann er klár í sínu fagi. Hann lok­aði samt ekki eigin fyr­ir­tæki en eng­inn veit hvernig bók­hald­inu þar er háttað. Ég frétti nýlega að bíll­inn hafi verið tek­inn af honum vegna nýrra skatta­skulda en það segir mér að hann hefur senni­lega ekki gert upp skatta síð­ast­liðið ár. Hann leigir fína íbúð og laun hans hefðu auð­veld­lega átt að duga fyrir rekstri og afborg­unum af bíl að auki ef hann hefði haft rænu á að kaupa bíl­inn per­sónu­lega af fyr­ir­tæk­inu.

En veik­indi hans sýna sig ekki ein­göngu í óreiðu í fjár­málum. Þau lýsa sér líka í fram­komu hans við mig. Hálfu ári ári eftir að við skildum fór hann að hóta mér og beita mig and­legu ofbeldi með skila­boðum og tölvu­pósti. Ég varð að loka á sam­skipti við hann bæði gegnum sam­fé­lags­miðla og skipta um síma. Við höfðum rætt saman um að við ætl­uðum að skilja í góðu og vera vinir dætr­anna vegna og þeirra barna­barna sem við kynnum að eign­ast í fram­tíð­inni. Það er löngu búið að skipta öllu og skrifa undir fjár­skipta­samn­ing og hann hefur fengið að velja allt sem hann vildi úr búinu.

Eftir að hafa verið saman í tæp tutt­ugu og tvö ár og þar af gift í tutt­ugu fannst mér það sjálf­sagt fyrir utan að ég lét hann fá fullt til við­bótar af gjöfum sem við höfðum fengið frá hans fólki í gegnum tíð­ina. Hann þurfti ekki einu sinni að hafa fyrir að pakka þessu. Það eina sem hann pakk­aði niður voru fötin, allt leir­tau, skraut­munir, veiði­dót og fleira var frá­gengið og umbúið af mér. Sjálf fór ég ekki með mikið út úr búinu og til að fylla upp í litlu íbúð­ina sem ég keypti fékk ég gef­ins sófa­borð, annað borð, hillu, stól og fleira enda fékk hann það stærsta og dýrasta. Þrátt fyrir það fór hann á hlið­ina þegar ég var ekki tibúin að láta hann hafa meira úr búinu og ætl­aði að neita að skrifa undir lög­skilnað.

Á síð­ustu stundu bjarg­að­ist það, senni­lega var hann kom­inn með kær­ustu þegar sýslu­maður boð­aði hann á sinn fund. En þetta hefur verið algjört hel­víti fyrir yngstu dóttur mína. Hana eigum við saman og hún er með­virk með honum án þess þó að gera sér grein fyrir því. Ég tala helst ekki um hann við hana og spyr hana aldrei um hann. Eldri stelp­unum hefur hann lítið sinnt nema hann sjái að hann geti haft eitt­hvað gott af þeim. Núna sé ég í raun eftir að hafa bjargað honum úr snör­unni. Ef nið­ur­staðan hefði orðið sú að hann hefði misst allt og kannski þurft að sitja inni gæti hann hugs­an­lega hafa lært eitt­hvað af þessu. Hann hefur hins vegar enga iðrun sýnt og aldrei beðist fyr­ir­gefn­ingar á neinu af því sem hann kall­aði yfir okkur. Ég er líka fegin að vera laus úr þessum ömur­legu aðstæðum þótt ég þurfi að vinna tvö­falda vinnu til að kom­ast af. Ég reyni að ein­beita mér að því að sinna dætrum mínum og barna­börnum sem nú eru orðin tvö og veit að ein­hvern tíma mun ég sjá fram úr fjár­hags­örð­ug­leik­unum sem hann kall­aði yfir mig.

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu