„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hildur Lilliendahl um Helgu Björg: „Dáist að henni – hugrökk og sterk og reyndi að laga kerfið“

Hildur Lilliendahl um Helgu Björg: „Dáist að henni – hugrökk og sterk og reyndi að laga kerfið“
Hildur dáist að hug­rekki Helgu Bjargar. Mynd: Reykjavíkurborg

Eins og kunn­ugt er fór Helga Björg Ragn­ars­dóttir, skrif­stofu­stjóri skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara, fyrr í sumar, fram á til­færslu í starfi hjá Reykja­vík­ur­borg sem fall­ist var á. Hún hefur ítrekað á síð­ustu þremur árum kvartað undan Vigdísi Hauks­dóttur borg­ar­full­trúa Mið­flokks­ins, í sinn garð.

Athygl­is­vert er að skoða ákveð­inn vinkil á málið sem Helga Björg tjáir sig um og snýr að túlk­unum hvað varðar ein­elti og umfjöllun fjöl­miðla um slík mál.

„Nú þegar nið­ur­stöður úttektar á sál­fé­lags­legum áhættu­þáttum starfs­fólks sem starfar í tengslum við borg­ar­ráð, liggja fyrir er mér létt,“ segir Helga Björg og bætir við:

„Ég hef látið það fara í taug­arnar á mér að í fjöl­miðlaum­fjöllun um málið hefur jafnan verið fjallað um sam­skipta­vanda eða erjur á milli mín og borg­ar­full­trú­ans, en sam­skipta­örð­ug­leikar eru ekki lýsandi hug­tak fyrir það ástand sem ríkir.“

Og bætir við:

„Erindi þar sem ég kvarta undan ein­elti og broti á siða­reglum geta ekki talist vera sam­skipti milli mín og borg­ar­full­trú­ans,“ segir Helga Björg sem finnst skað­legt „að skil­greina kvart­anir um ofbeldi og ein­elti sem hluta af sam­skiptum og sam­skipta­vanda ber merki um ger­enda­með­virkni.“

Bar­áttu­konan Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir er á svip­uðum nótum og Helga Björg í pæl­ingum sínum og segir að „ég verð að við­ur­kenna að það sló mig tals­vert, eins og Helgu Björgu, að enn og aftur er í fréttum talað um „sam­skipta­vanda“ og „erjur“ og þess­háttar. Vonandi er þetta ein­hver áminn­ing til fjöl­miðla. Þetta er ekki jafn leikur; þetta er ekki sam­skipta­vandi; þetta eru ekki erjur,“ segir Hildur og heldur áfram:

„Við sem höfum unnið á þessum vett­vangi í ára­tug eða lengur vitum nefni­lega svo til öll með tölu að þetta er nýtt vanda­mál. Það hófst á þessu kjör­tíma­bili þegar leik­regl­urnar voru allt í einu þurrk­aðar út og kerfið kunni ekki og/eða veigraði sér við að bregð­ast við því.

Van­máttur kerf­is­ins til þess að taka á þessum nýja veru­leika þar sem engar leik­reglur gilda lengur, er eitt­hvað sem verður að taka alvar­lega.“ Hún nefnir að „það gengur ekki að starfs­fólk sé lamað af kvíða í vinn­unni og sé jafn­vel hrakið úr starfi. En þannig er það. Þannig hafa þessi þrjú ár gengið fyrir sig. Við vitum aldrei hvert okkar er næst. Hvert okkar verður næst úthrópað í fjöl­miðlum; tekið fyrir undir nafni í pontu eða fund­ar­gerðum; hvert okkar þarf næst að sitja undir æru­meið­ingum og ógn­andi hegðun og verður full­kom­lega ófært um að verja sig. Við vitum bara að ekk­ert okkar er öruggt.“

Hildur bætir við að „ef ein­hver vilja hugsa í pen­ingum frekar en sál­fé­lags­legum áherslum, þá liggja líka hags­munir þar. Fram­leiðni starfs­fólks sem má ekki gera mis­tök því það á á hættu að vera úthrópað af kjörnum full­trúum opin­ber­lega án þess að geta varið sig, er ekki mikil get ég sagt ykkur. Það er líka alvöru vanda­mál, þótt geð­heilsan okkar og and­legt og lík­am­legt öryggi í vinn­unni sé enn stærra vanda­mál.“

Hildur segir að orð Helgu Bjargar hér að ofan „lýsir þessu afar vel hér og í fleiri „statusum“ und­an­farið. Hún er hug­rökk og sterk og ég dáist enda­laust að henni. Ég er henni jafn­framt mjög þakk­lát að hafa ekki lagt á flótta fyrir löngu síðan eins og hefði verið svo eðli­legt og í raun langein­fald­ast fyrir hana að gera.“

Hildur dáist að bar­áttu Helgu Bjargar: „Vegna þess að hún hélt áfram að reyna að laga kerfið og vekja það til umhugs­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var semsagt algengt uppnefni á rauðhærðum strákum í þá tíð“
InnlentEinelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var sem­sagt algengt upp­nefni á rauð­hærðum strákum í þá tíð“

Egill Helgason segir frá ein­elti sem hann varð fyrir í æsku, í nýrri Facebook-færslu. Einelti hefur lengi verið þjóð­ar­böl, eða jafn­vel mann­kyns­böl en Egill Helgason rifjar upp það sem hann varð fyrir í æsku, þó hann nefni aldrei orðið ein­elti, í Facebook-færslu. „Þegar ég var strákur var ég stundum kall­aður Skalli. Þetta fór óskap­lega í taug­arnar á mér. Vinir mínir...
Katrín um stöðu eineltismála á Íslandi: „Hún virðist hafa versnað“
InnlentEinelti

Katrín um stöðu ein­elt­is­mála á Íslandi: „Hún virð­ist hafa versnað“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ríki, sveit­ar­fé­lög og skólar þurfi að taka höndum saman og vinna bug á þró­un­inni. For­sæt­is­ráð­herra segir að þessu erf­iðu og grófu mál valdi sér miklum áhyggjum, að staðan hafi greini­lega versnað: „Hún virð­ist hafa versnað og við sjáum að þetta gengur stundum yfir í bylgjum og við erum greini­lega stödd í slíkri bylgju og þar...
Mægðurnar í Hafnarfirði á leiðinni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“
InnlentEinelti

Mægð­urnar í Hafn­ar­firði á leið­inni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“

Sædís Hrönn Sam­ú­els­dóttir og 12 ára dóttir hennar, Ísabella Von, eru á leið til Flórída á næst­unni eftir að frænka stúlkunnar, Ingi­björg Gróa Gunn­ars­dóttir safn­aði fyrir ferð mæðgn­anna. „Stuðn­ingur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­­lausar & meyrar! Rétt í þessu til­­kynnti ég Ísa­bellu Von að þökk sé fram­lagi yfir hund­ruði sam­landa okkar sé hún og móðir hennar...
„Hvernig dettur fréttastofu í hug að fara fram með þessum hætti?“
InnlentEinelti

„Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti?“

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Bergsins, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún hafi horft „í for­undran á frétta­flutn­ing Rúv og fleiri af ein­elt­is­máli og afleið­ingum þess fyrir þol­anda í gær. Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti? Að mæta heim til 12 ára stúlku og móður hennar dag­inn eftir þeirra allra versta dag. Þar...
Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir einelti í Hafnarfirði:„Hún er enn þá uppi á spítala“
InnlentEinelti

Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir ein­elti í Hafn­ar­firði:„Hún er enn þá uppi á spít­ala“

Tólf ára dóttir Sædísar Hrannar Sam­ú­els­dóttur dvelur nú á sjúkra­húsi eftir að hafa reynt að svipta sig lífi. Hún hefur orðið fyrir langvar­andi ein­elti í Hafn­ar­firði og ofbeldi af hálfu jafn­aldra sinna og hefur stúlkan unga ekki mætt í skól­ann lengi. Ein af skila­boð­unum sem dóttirin unga hefur fengið send. „Hún er enn þá uppi á spít­ala. Hún reyndi að...
16 ára sonur Helenu lagður í hræðilegt einelti: „Er kallaður nauðgari og þeir hóta að drepa hann“
InnlentEinelti

16 ára sonur Helenu lagður í hræði­legt ein­elti: „Er kall­aður nauð­gari og þeir hóta að drepa hann“

„Ókei núna læt ég í mér heyra og núna segi ég STOPP!!!! Leyfið syni mínum að vera hann sjálfur. Einelti er ofbeldi sem aldrei er rétt­læt­an­legt. Einelti getur verið með baktali og sögu­sögnum, sær­andi orð­bragði og nið­ur­læg­ingu, frels­is­svipt­ingu, eigna­tjóni og lík­ams­meið­ingum. Sonur minn, já minn ynd­is­legi, blíði, fyndni og góði sonur sem vill öllum vel, hefur orðið fyrir ein­elti síð­ustu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins