„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landsliðið í stormi samfélagsmiðla – Ásakanir um kynferðisbrot og heimilisofbeldi

Landsliðið í stormi samfélagsmiðla – Ásakanir um kynferðisbrot og heimilisofbeldi

Landslið karla í knatt­spyrnu á í miklum vanda þessa daga. Liðið er í stormi sam­fé­lags­miðla þar sem ásak­anir á liðs­menn ganga ljósum logum og einn þeirra, Gylfi Sig­urðs­son, sætir lög­reglu­rann­sókn vegna meints kyn­ferðs­brots gagn­vart ungri stúlku. Aðrir tveir hafa verið sak­aðir um alvar­leg brot en þó aðeins á sam­fé­lags­miðlum. Algjör þögn hefur verið um þær ásak­anir. Hvorki KSÍ né umræddir menn hafa tjáð sig um þau mál.

Öllu létt­væg­ara mál snýr að knatt­spyrnu­kapp­anum Ragnari Sig­urðs­syni sem var til­kynntur til Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, fyrir ofsa­fengna hegðun á heim­ili sínu sem urðu til­efni lög­reglu­af­skipta. Gríð­ar­legar sögu­sagnir hafa verið á sam­fé­lags­miðlum um hegðun Ragnars. Ekkert bendir til þess að KSÍ hafi aðhafst nokkuð í mál­inu og sam­bandið hafnar því alfarið í sam­tali við Mannlíf að ræða málið, sem og önnur mál um meinta ofbeld­is­hegðun lands­liðs­manna Íslands.

Frá­sagnir vitna sem Mannlíf hefur rætt við eru á þá leið að Ragnar hafi misst stjórn á sér og fengið reiði­kast á heim­ili sínu sum­arið 2017. Atburð­ur­inn átti sér stað í fjöl­býl­is­húsi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem Ragnar bjó með fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, þegar hann var í heim­sóknum hér á landi sem atvinnu­maður erlendis. Þegar heim var komið gekk Ragnar ber­serks­gang á heim­il­inu, án þess að veita konu sinni sjá­an­lega áverka eftir því sem Mannlíf kemst næst. Vitnin bera því við að lands­liðs­mað­ur­inn hafi verið fluttur af heim­ili sínu af lög­reglu og var mak­inn fyrr­ver­andi í upp­námi þessa nótt.

Nágranni sem hlúði að mak­anum fyrr­ver­andi þessa nótt hringdi dag­inn eftir í KSÍ og sagði starfs­manni knatt­spyrnu­sam­bands­ins frá því sem gerst hafði þessa nótt og kvart­aði yfir hegðun Ragnars. Mannlíf hefur ítrekað reynt að fá við­brögð frá KSÍ vegna máls­ins. Fyr­ir­spurnin var send með tölvu­pósti á for­mann, stjórn og starfs­fólk KSÍ, sem og lands­liðs­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins en svörin eru alltaf á sömu lund:

„Við sjáum okkur ein­fald­lega ekki fært að tjá okkur um efni erind­is­ins.“
Sögur um fram­ferði Ragnars virð­ast vera langt umfram það sem gerð­ist í raun.

Mikill keppnismaður

Tekið skal fram að orðrómur um skapofsa­köst Ragnars hefur verið lengi í gangi, en þó eru engin gögn til um að Ragnar hafi beitt aðra mann­eskju lík­am­legu ofbeldi. Sögur um fram­ferði hans virð­ast vera langt umfram það sem gerð­ist í raun. Hann hefur tjáð sig í við­tali fyrir nokkrum árum að hann hafi lengi átt erfitt með að hemja skap sitt, enda mik­ill keppn­is­maður. Mál Ragnars hafa ekki farið fyrir dóm­stóla og fór Mannlíf yfir málið með lög­manni Ragnars. Eftir umhugsun ákvað Ragnar að gefa ekki kost á við­tali.

Sjá einnig: Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Gulldrengurinn fallinn af stalli

Annar mátt­ar­stólpi íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta, Gylfi Þór Sig­urðs­son, er í vanda þessa dag­ana en honum er gefið að sök að hafa brotið gegn stúlku undir lög­aldri, líkt og Mannlíf greindi fyrst fjöl­miðla frá. Nýverið var honum sleppt úr haldi eftir að hafa borgað trygg­ingu þess efnis og er hann laus til 16. októ­ber næst­kom­andi.

Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóð­ina að Gylfi hefði verið hand­tek­inn grun­aður um áður­nefnt brot. Þetta eru ein­hverjar óvænt­ustu fréttir sem lands­menn hafa fengið í langan tíma.

Gull­dreng­ur­inn Gylfi er um þessar mundir fall­inn af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að mál hans sé reist á mis­skiln­ingi og hann snúi aftur.

Gylfi hefur ekki verið sak­felldur fyrir eitt né neitt og hið sama má segja um aðra lands­liðs­menn í fót­bolta. Fólki er brugðið; eng­inn átti von á neinu slíku í tengslum við Gylfa, sem ávallt kemur vel fyrir, er kurt­eis og vin­gjarn­legur og á aðdá­endur út um allan heim.

Mál Gylfa mun fara sína réttu leið og eru allir hvattir til að halda ró sinni og láta ekki út úr sér nein sær­andi opin­ber ummæli; Gylfi á fjöl­skyldu – nýfætt barn og er að ganga í gegnum erf­iða tíma, eins og allir í fjöl­skyldu hans og Alexöndru konu hans, vinir og vanda­menn.

Gylfi seg­ist vera sak­laus og á hann ský­lausan rétt á því að hann sé ekki dæmdur fyr­ir­fram af einum né neinum. Hið sama má segja um aðra leik­menn íslenskra lands­liðs­ins.

Sjá einnig: Tengda­faðir Gylfa Þórs knatt­spyrnu­kappa: „Þau eru ekki að skilja“

Fleiri í vanda

Aðstoða­þjálf­ari Íslenska lands­liðs­ins, Eiður Smári Guð­jón­sen náð­ist á

mynd­bands­upp­töku

í miðbæ Reykja­víkur í ann­ar­legu ástandi og var í kjöl­farið sendur í tíma­bundið leyfi frá störfum, síð­ast­lið­inn júní. Áður mætti hann

líka undir áhrifum áfengis

í útsend­ingu Símans sem sér­fræð­ingur um knatt­spyrnu.

Eiður Smári tók þátt í blaða­manna­fundi íslenska lands­liðs­ins í höf­uð­stöðvum KSÍ í gær og var þar spurður út í leyfið. Eiður brosti og sagð­ist bara vitna í yfir­lýs­ing­una sem gefin var út í júní, „þá held ég að ég hafi tekið á þeim mál­um og ég held að KSÍ hafi líka gert það.“ Þá var Eiður spurður út í það hvað nákvæm­lega hann hafi gert til þess að taka á sínum málum. Svaraði hann því til að „öllu sem tek­ur á í per­sónu­lega líf­inu haldi maður bara þar“.

Sjá einnig: Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsend­ingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

Þá hafa komið fram mjög alvar­legar ásak­anir á hendur

tveimur þjóð­þekktum lands­liðs­mönnum

Íslands og það ætl­aði

allt vit­laust að verða

þegar birt var

við­tal við lands­liðs­fyr­ir­lið­ann Aron Einar Gunn­ars­son

í stað­ar­blaði í heimabæ hans Akureyri.Það gustar um lands­liðið og KSÍ þessa dag­ana. Lands­liðið er stormi sam­fé­lags­miðla og í aug­ljósum ímynd­ar­vanda, hvað svo sem er í til í ásök­un­unum á hendur lyk­il­leik­mönnum liðs­ins. Formaður sam­bands­ins, Guðni Bergsson, er einnig

sak­aður um lygar

. Eina form­lega svarið sem borist hefur frá höf­uð­stöðvum knatt­spyrnu­sam­band­ins var neð­an­greind yfir­lýs­ing:

Yf­ir­lýs­ing Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands:

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) legg­ur áherslu á fag­leg vinnu­brögð þegar fram koma ábend­ing­ar eða kvart­an­ir um meint of­beldi sem með ein­um eða öðrum hætti má rekja til starf­semi inn­an hreyf­ing­ar­inn­ar. Knatt­spyrnu­hreyf­ing­in á Íslandi er fjöl­menn og eru skráðir iðk­end­ur um 30 þús­und. KSÍ hef­ur ríka hags­muni af því að sá mikli fjöldi sem starfar eða tek­ur þátt í starf­semi knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­inn­ar hér á landi upp­lifi ör­yggi og vel­ferð í starfi sínu eða þátt­töku og sam­bandið tek­ur skýra af­stöðu gegn öllu of­beldi.

Ef til­kynn­ing­ar um mál sem tengj­ast ein­elti eða of­beldi (m.a. kyn­ferð­isof­beldi) koma inn á borð sam­bands­ins er tryggt að þau fari í við­eig­andi ferli. All­ir verk­ferl­ar slíkra mála hafa verið end­ur­bætt­ir og hafði fyrsta bylgja #Met­oo m.a. áhrif þar á. Jafn­rétt­isá­ætl­un og jafn­rétt­is­stefna sam­bands­ins hafa verið upp­færðar og er þar fjallað sér­stak­lega um kyn­ferðis­legt of­beldi. Þá hef­ur KSÍ staðið fyr­ir vinnu­stofu um kyn­ferð­isof­beldi fyr­ir aðild­ar­fé­lög sín og bætt fræðslu um kyn­ferð­isof­beldi inn í náms­efni þjálf­ara­mennt­un­ar.

Eins og gef­ur að skilja eru mál sem varða kyn­ferð­isof­beldi vand­með­far­in og kall­ar með­ferð þeirra á fag­leg, vönduð og ekki síður yf­ir­veguð vinnu­brögð. Ef grun­ur er um lög­brot er ávallt hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda og eins er leitað aðstoðar hjá Sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðsmá­la, sem er sér­fræð­ing­ur rík­is­ins í með­ferð slíkra mála.

KSÍ get­ur ekki tjáð sig um ein­stök mál sem upp kunna að koma á op­in­ber­um vett­vangi vegna trún­aðar og per­sónu­vernd­ar­mála. Rétt er þó að ít­reka að KSÍ ger­ir eng­ar til­raun­ir til að þagga niður of­beld­is­mál eða hylma yfir með ger­end­um. Dylgj­um um slíkt er al­farið vísað á bug.

KSÍ er ávallt til­búið til að gera bet­ur og vík­ur sér ekki und­an mál­efna­legri gagn­rýni á starf sam­bands­ins. Því er sam­talið um of­beld­is­mál mik­il­vægt og ábend­ing­um sem eru til þess falln­ar að bæta hag iðk­enda og áhuga­fólks um knatt­spyrnu vel tekið.

Landslið Íslands er í gíf­ur­legum vanda eins og merkja mátti á dauf­legum blaða­manna­fundi þar sem þjálf­arar liðs­ins voru á flótta undan spurn­ingum fjöl­miðla varð­andi þau hneyksl­is­mál sem dynja á lið­inu. Og allt málið er þjóð­inni áfall. Silf­ur­drengir þjóð­ar­innar eru í vanda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins