„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga hjá Andlegri heilsu ræðir um geðheilsu og leiðir til að hlúa að henni

Helga hjá Andlegri heilsu ræðir um geðheilsu og leiðir til að hlúa að henni
Ljós­mynd­ari: Hildur Ársæls­dóttir

Helga Arn­ar­dóttir, eig­andi And­legrar heilsu kom í við­tal við blaða­mann Mannlífs og útskýrði fyrir okkur hennar nálgun á því sem við kemur and­legum mál­efnum.

Helga segir að for­saga þess að hún fór út í þetta hafi verið mik­ill áhugi hennar á sál­fræði frá því að hún var ung­lingur. ,,Ég barð­ist sjálf við mikla van­líðan á ung­lings­árum auk þess að eiga fjöl­skyldu­með­lim með geð­rænar áskor­anir. Þetta varð til þess að ég fékk mik­inn áhuga á geð­heilsu og leiðum til þess að bæta hana“.

Helga er menntuð í sál­fræði og er með masters­gráðu í félags-og heilsusál­fræði og vann á geðsviði Land­spít­al­ans í nokkur ár áður en hún fór í fram­halds­nám í félags- og heilsusál­fræði ann­ars vegar og í jákvæðri sál­fræði hins vegar. Eftir að fram­halds­námi lauk lang­aði hana til að miðla því sem hún hafði lært um and­lega heilsu og leiðir til að hlúa að henni og bjó sér í raun til vinnu í kringum þessa ástríðu með því að stofna fyr­ir­tækið Andleg heilsa.

,,Ég byrj­aði á því að vera með fyr­ir­lestra á vinnu­stöðum fyrir starfs­fólk og það gekk mjög vel en ég fann að mig lang­aði til að kafa dýpra og vinna með fólki í lengri tíma sem varð til þess að ég fór að þróa og kenna ýmiss konar nám­skeið um gagn­reyndar leiðir til að hlúa að and­legri heilsu“.

Helga hefur helst verið að vinna með full­orðnu fólki á öllum aldri og þá sem eru í end­ur­hæf­ingu af margs­konar ástæðum, eða að vinna í eigin bata­ferli vegna geð­rænna áskor­ana.

Vellíðan út frá nálgun jákvæðrar sálfræði, núvitundar og sjálfsumhyggju

Ljós­mynd­ari: Hildur Ársæls­dóttir

Und­an­farin ár hefur Helga aðal­lega unnið með nám­skeið um and­leg heilsu og vellíðan út frá nálgun jákvæðrar sál­fræði, núvit­undar og sjálfsum­hyggju. Hún hefur unnið mikið með fólki sem er í end­ur­hæf­ingu af margs­konar ástæðum og með fólki sem er að vinna í eigin bata­ferli vegna geð­rænna áskor­ana. Einnig hef hún und­an­farin ár starfað við ráð­gjöf hjá Geðhjálp þar sem hún hittir aðal­lega ein­stak­linga sem eru að glíma við geð­rænan vanda eða and­lega van­líðan sem og aðstand­endur þeirra. Auk þess hefur hún verið að fara á vinnu­staði og halda fyr­ir­lestra fyrir starfs­fólk um aðferðir sem allir geta nýtt sér til að auka and­lega vellíðan og hlúa að geð­heils­unni. Hún sinnir einnig aðstoð­ar­kennslu í jákvæðri sál­fræði hjá End­ur­menntun HÍ.

,,Mér finnst skipta mestu máli að ein­stak­ling­ur­inn sjálfur hafi sem mest að segja um hvernig lífi hann vill lifa og að þeir sem veiti þjón­ustu á sviði geð­heilsu vinni að því að aðstoða ein­stak­lingin við að efla eigin lífs­gæði á hans for­sendum“.

,,Nálgunin sem helst hefur verið unnið út frá á geðsvið­inu er að greina vand­ann út frá þeim ein­kennum sem ein­stak­ling­ur­inn sýnir og með­ferðin snýst svo aðal­lega um að draga úr þessum ein­kennum og láta þar við sitja. Það er þó þannig að þó að ein­kenni geð­sjúk­dóms minnki eða jafn­vel hverfi er ekki þar með sagt að lífs­gæði ein­stak­lings­ins séu betri. Ég sá mörg dæmi um þetta þegar ég vann á geðsvið­inu, stundum tókst að draga veru­lega úr eða jafn­vel að losa ein­stak­ling við ein­kenni geð­sjúk­dóms með lyfja­gjöf en lífs­gæði hans voru oft ekki betri þrátt fyrir það. Þar að auki er ekki alltaf hægt að losna við ein­kenni geð­sjúk­dóms en það má þó alltaf vinna að því að auka lífs­gæði ein­stak­linga hvort sem þeir lifa með ein­kennum geð­sjúk­dóms eða ekki“.

Helga segir þó að auð­vitað finn­ist henni mik­il­vægt að draga úr ein­kennum sem valda ein­stak­lingum þján­ingu, málið er að það ætti ekki að láta þar við sitja heldur að verja að minnsta kosti jafn miklu púðri í leiðir til að bæta lífs­gæði og vellíðan. Það er munur á því að vinna að því að losna við eitt­hvað nei­kvætt eins og van­líðan, kvíða o.fl. ann­ars vegar og að nálg­ast eitt­hvað jákvætt eins og vellíðan og hug­arró hins vegar.

Nálgunin sem Helga vinnur út frá snýst um að hjálpa fólki að efla eigin lífs­gæði óháð því hvað ein­stak­ling­ur­inn er að glíma við. Henni finnst mik­il­vægt að fólk kynn­ist mis­mun­andi aðferðum til að hlúa að eigin geð­heilsu og að hver og einni finni það sem virkar fyrir hann.

Þær aðferðir sem Helga hefur helst stuðs við á sínum nám­skeiðum eru núvit­und, sjálfsum­hyggja og aðferðir jákvæðrar sál­fræði. Í stuttu máli þá hjálpar núvit­undin okkur að sjá okkur sjálf í skýr­ara ljósi, að sam­þykkja okkur eins og við erum og að þekkja betur inn á huga okkar og til­finn­ingar. Sjálfsum­hyggjan kennir okkur að sætt­ast við eigin ófull­kom­leika og sýna sjálfum okkur meiri mildi, umhyggju og þol­in­mæði. Hún hjálpar okkur sér­stak­lega mikið á meðan við göngum í gegnum erfið tíma­bil og erf­iðar til­finn­ingar. Aðferðir jákvæðrar sál­fræði kenna okkur leiðir til að rækta með okkur jákvæðar til­finn­ingar og sinna sál­fræði­legum þörfum okkar svo okkur líði betur.

Við getum haft mikil áhrif á okkar líðan

Helga segir að henni finn­ist mik­il­vægt að við áttum okkur á því að við getum haft mikil áhrif á okkar líðan og það er margt sem við getum gert sjálf til að bæta stöð­una, en hér koma nokkrir punktar sem henni finn­ast mik­il­vægir að hafa í huga varð­andi þessi mál.

  • ,,Í fyrsta lagi finnst mér gagn­legt að líta á erf­iðar og sárs­auka­fullar til­finn­ingar sem eðli­legan hluta af því að vera mann­vera en ekki alltaf merki um sjúk­dóma eða rask­anir. Stundum þjóna erf­iðar til­finn­ingar til­gangi og láta okkur vita að eitt­hvað er ekki að ganga upp hjá okkur og að að við þurfum að breyta ein­hverju í lífi okkar. Mér finnst við sem sam­fé­lag hall­ast of mikið í þá átt að líta á sárs­auka­fullar til­finn­ingar sem nei­kvæðar og slæmar og að við þurfum bara að losna við þær. Þetta ýtir undir að við deyfum okkur með ýmsum leiðum, t.d. með áfengi, mat, sæt­indum, kaupum á ýmsum óþarfa o.s.frv. í stað þess að hlusta á sárs­auk­ann og reyna að finna út hvað hann er að reyna að segja okkur“.
  • ,,Í öðru lagi finnst mér mik­il­vægt að við hlúum að mis­mun­andi þörfum sem við höfum öll eins og t.d. þörfin fyrir hreyf­ingu, félags­lega sam­veru, nægan svefn og hvíld, góða nær­ingu, áhuga­málum o.s.frv. Það hefur nei­kvæð áhrif á lífs­gæði okkar þegar við van­rækjum þarfir okkar og þegar við förum að sinna þeim betur fer okkur yfir­leitt að líða betur. Þetta teng­ist því sem ég tal­aði um hér að ofan því óþægi­legar til­finn­ingar þjóna oft þeim til­gangi að láta okkur vita að við erum að van­rækja þarfir okkar og þurfum að hugsa betur um okkur“.
  • ,,Í þriðja lagi finnst mér mik­il­vægt að vinna mark­visst með ákv. æfingar eða aðferðir sem hafa góð áhrif á geðið okkar. Þetta getur t.d. verið að stunda hug­leiðslu, gera þakk­lætis-æfingar, rækta vin­áttu­bönd, leiða hug­ann að því góða í kringum okkur, greina styrk­leika okkar o.s.frv. Þessir hlutir ýta undir jákvæðar til­finn­ingar og vellíðan“.

Hvað úrræði finnst þér vanta?

Í starfi Helgu hjá Geðhjálp hittir hún fyrir marga sem eru að leita að við­eig­andi úrræði fyrir sig eða aðstand­anda sinn. Það kemur því stundum upp að það vantar ákveðin úrræði. Sam­fé­lagið okkar býr þó yfir ýmsum úrræðum fyrir mis­mun­andi hlutum sem fólk þarf aðstoð með, svo það er ýmis­legt sem er vel gert varð­andi þetta.

Helgu finnst helst vanta úrræði sem fólk getur leitað í þegar það er í mik­illi geð­rænni krísu og treystir sér ekki til að vera eitt heima meðan hún gengur yfir. Eins og staðan er núna er það í raun bara bráða­mót­taka geðsviðs sem sinnir þessu, en þangað leita margir og ekki nærri því allir sem fá þjón­ustu þar sem óska eftir henni.

Þar er spít­al­inn ekki alltaf heppi­leg­asta úrræðið fyrir fólk þegar það er að ganga í gegnum mikla til­finn­inga- eða geð­ræna krísu. Þar er tals­verð áhersla lögð á lyfja­gjafir og meðan þær gagn­ast fólki oft amk. tíma­bundið, þá geta svona krísur liðið hjá án lyfja auk þess sem margir vilja ekki taka inn geð­lyf en myndu samt gjarnan vilja fá aðstoð.

Hún myndi því vilja sjá fleiri teg­undir af úrræðum fyrir ein­stak­linga sem eru að ganga í gegnum tíma­bundna erf­iða krísu þar sem hægt er að fá ákv. utan­um­hald, hlýju og umhyggju án þess að krísan sé túlkuð sem sjúk­dóms­á­stand.

Þeir einangra sig mikið félagslega

Ljós­mynd­ari: Hildur Ársæls­dóttir

Annað sem Helga hefur orðið vör við í starfi sínu hjá Geðhjálp er að tals­vert er um það að ung­lings­strákar og ungir menn ein­angri sig inni í her­bergi oft­ast í tölvu og hell­ast úr lest­inni í líf­inu. Þeir ein­angra sig félags­lega, hætta í skóla og treysta sér ekki í vinnu.

Þetta vindur svo upp á sig þannig að með tím­anum verður erf­ið­ara og erf­ið­ara að brjóta upp þetta munstur og fara aftur út á meðal fólks. Þetta er ósýni­legur vandi í sam­fé­lag­inu þar sem við sjáum þá ekki, en þeir virð­ast vera tals­vert margir með þennan vanda og von­andi kemur fjót­lega eitt­hvað úrræði sem væri til að hjálpa þeim út úr þessum víta­hring, helst úrræði sem væri mótað af ein­stak­lingum með reynslu af því að hafa verið á þessum stað sjálfir.

Mjög mik­il­vægt er líka aðgangur að sál­fræð­ingum fyrir fólk sem hefur ekki efni á að borga um 20.000 kr. fyrir hvern tíma, en það er enn ekki búið að útfæra hvernig ríkið mun koma að nið­ur­greiðslu sál­fræð­inga. Einnig má nefna auk­inn aðgang að úrræðum fyrir þá sem búa á lands­byggð­inni með ein­hverjum hætti. Það er eflaust ýmis­legt fleira sem mætti nefna en þetta er það sem kemur upp í hug­ann núna.

Hann var kominn í geðrof

Á þeim árum sem Helga vann á geðsvið­inu kom ýmis­legt upp og á hún margar minn­ingar af bæði góðum og slæmum atburðum. Ein minn­ing er af manni sem lagð­ist reglu­lega inn á deild­ina sem hún vann á, ca 1-2 sinnum á ári. Maðurinn kom þá yfir­leitt inn vegna þess að hann var kom­inn í geð­rof og kom af fúsum og frjálsum vilja.

Einn dag­inn var Helga að spjalla við hann og hann sagði að það sem honum fynd­ist gagn­ast honum mest við að koma inn á deild­ina var ramm­inn sem hann fékk og sam­skipti við annað fólk. Þarna var ein­hver sem sagði góða nótt við hann á kvöldin og vakti hann dag­inn eftir kl. 8, sagði góðan dag­inn og bauð honum að koma fram í morg­un­mat, svo voru mál­tíðir yfir dag­inn, farið í göngut­úra o.fl. Hann sagði að þessir hlutir næðum honum oft niður á jörð­ina hvort sem hann væri byrj­aður að taka lyf aftur eða ekki. Þetta minnir mann á að þetta þarf ekki að vera svo flókið, félags­leg tengsl og ákveðin strúktúr á deg­inum getur hjálpað ein­hverjum út úr erf­iðu geð­rænu ástandi.

Hlustað af samkennd og hlýju

Í fyrsta lagi skyldum við ekki van­meta hversu dýr­mætir góðir vinir og fjöl­skyldu­með­limir geta verið. Oft þarf ein­stak­lingur í vanda á því að halda að hlustað sé á hann af sam­kennd og hlýju og að ein­hver sé til staðar fyrir hann á erf­iðum tímum. Að vera góður vinur og að leyfa sér að leita til vina sinna þegar maður þarf á að halda er mik­il­vægt.

Það ætti þó ekki að stoppa fólk í að leita lengra og í raun hvetur Helga fólk til að prufa sem flest af því sem stendur til boða, því við vitum oft ekki fyrr en á reynir hvað gagn­ast okkur best. Það getur t.d. verið sál­fræð­ingur eða sam­tök sem vinna með ákveðnar teg­undir af vanda eða van­líðan. Til að fá yfir­lit yfir þau úrræði sem í boði eru er t.d. hægt að skoða vef­síðu Geð­hjálpar eða 112.is. Flestir sem vinna í svona úrræðum eru hlýir og góðir ein­stak­lingar sem eru þarna vegna þess að þeim langar til að hjálpa, svo við ættum ekki að vera feimin að leita til þeirra, segir Helga.

Heilandi að koma saman í hóp

Það sem kom Helgu mest á óvart er hvað það getur verið heilandi fyrir ein­stak­linga að koma saman í hóp og ræða mál­efni sem tengj­ast and­legri heilsu. Hver hópur myndar ákveðna heild á meðan á nám­skeið­inu stendur og and­rúms­loftið í hópnum verður oft svo skemmti­legt og ein­kenn­ist oft af sam­kennd, húmor og virð­ingu.

Það getur verið sér­stak­lega gaman þegar mjög ólíkir ein­stak­lingar kynn­ast á þessum nám­skeiðum og fólk fær smá inn­sýn í líf ann­arra og finnur fyrir tengslum og getur speglað sig í hvort öðru. Það er þessi sammann­legi þáttur; það að finna að við erum öll í þessu saman, öll ófull­komin en viljum öll lifa góðu lífi, þetta skapar eitt­hvað heilandi and­rúms­loft sem verður til í hópnum en næst ekki fram í ein­stak­lings­vinnu; segir Helga.

Tala meira um okkar tilfinningar

Helga vill að lokum ítreka það sem hún tal­aði um fyrr um til­finn­ingar og hvernig við nálg­umst þær. Henni finnst mik­il­vægt að við lærum að þola betur erf­iðar til­finn­ingar án þess að þurfa stöðugt að reyna að hlaupa í burtu frá þeim eða deyfa þær. Auðvitað er erfitt að upp­lifa sárar til­finn­ingar en við getum þjálfað upp færni í að þola þær betur t.d. með núvit­und og sjálfsum­hyggju. Það hvernig við nálg­umst erf­iðar til­finn­ingar getur breytt svo miklu fyrir and­lega heilsu okkar. Hana langar líka að ítreka að það er svo margt sem við getum gert sjálf til að bæta eigin geð­heilsu, t.d. að sinna þörfum okkar vel, rækta vin­áttu­sam­bönd og rækta með­vitað með okkur eig­in­leika sem ýta undir vellíðan eins og þakk­læti, vel­vild og bjart­sýni. Stundum ráðum við þó ekki við að rétta okkur af sjálf og við ættum ekki að hika við að leita okkur aðstoðar til fag­að­ila og sam­taka eftir því sem við á.

Ljós­mynd­ari: Hildur Ársæls­dóttir

Lestu allt um málið og meira til í brak­andi fersku helg­ar­blaði Mannlífs hér eða flettu blað­inu hér fyrir neðan: 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Andleg heilsa

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“
Menning

Hug­víkk­andi efni hjálp­uðu Unni í skiln­að­inum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“

Unnur Gunn­ars­dóttir segir að hug­víkk­andi efni hafi gjör­breytt lífi sínu. Nýjast gestur þátt­ar­ins Segðu mér á Rás 1, sem er í umsjón Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, er Unnur Helga Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bak­arís­ins Jóa Fel og fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóa Fel en hún fer þar meðal ann­ars yfir skiln­að­inn og hug­víkk­andi efni sem hún segir að hafi breytt lífi sínu. Eftir tæp­lega...
Heilsupistill þunglyndissjúklings í yfirþyngd
Skoðun

Björgvin Gunnarsson

Heils­upist­ill þung­lynd­is­sjúk­lings í yfir­þyngd

Það súpa sjálf­sagt margir hveljur þegar þeir sjá að ég er með heils­upistil. Það er að segja það fólk sem þekkir mig vel. En þetta er nú samt stað­reyndin. Byrjum á smá for­sögu um mína yfir­þyngd. Ég var feitt barn, þybb­inn krakki og grind­hor­aður ung­lingur. Ég var alltaf í íþróttum, spil­aði fót­bolta, körfu­bolta og bandý og var í hinu þokka­leg­asta...
Skoðun

Aðsend grein

Mann(eskju)líf Friðriks Agna – Myndir þú tala svona við vin þinn?

Mann(eskju)líf Friðriks Agna er nýr dálkur um lífið, fólk, sam­skipti og sjálfið sem mun birt­ast viku­lega hvern sunnu­dag. Myndir þú tala svona við vin þinn? Á leik­sýn­ingu einni sem ég sá fyrir skömmu rak leik­ar­inn sögu sína sem end­aði á hans upp­götvun á eigin sjálfs­hatri. Það hafði ekk­ert svo vont gerst á lífs­leið­inni að hans eigin sögn. Hann hafði allt,...
Fimm tegundir sjálfsdýrkenda
Menning

Fimm teg­undir sjálfs­dýrk­enda

Sjálfs­dýrk­endur, eða nars­issista, er víða að finna í sam­fé­lag­inu. Hug­tak­inu hefur verið fleygt tölu­vert fram í auk­inni umræðu um ofbeldi á und­an­förnum miss­erum, en stað­reyndin er sú að mikið þarf til að ein­stak­lingur grein­ist með svo­kall­aða sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­röskun (e. narcissistic per­sona­lity dis­order), sem til­heyrir flokki per­sónu­leik­arask­ana. Það er þó vel hægt að vera svo­kall­aður sjálfs­dýrk­andi og bera mörg ein­kenni sjálfs­dýrk­un­ar­per­sónu­leika­rösk­unar, þrátt...
Tíu algengar fóbíur: Ótti sem getur jafnvel hamlað fólki í daglegu lífi
Menning

Tíu algengar fób­íur: Ótti sem getur jafn­vel hamlað fólki í dag­legu lífi

Afmörkuð fælni (e. phobia) er „ofsa­legur ótti við til­tekin fyr­ir­bæri eða aðstæður eins og dýr, lokuð rými eða sprautur. Fólk finnur fyrir skyndi­legri skelf­ingu þegar það mætir því sem það ótt­ast, þótt það geri sér grein fyrir að ótt­inn er meiri en eðli­legt er.“ Þetta segir á vef Kvíða­með­ferð­ar­stöðv­ar­innar. Afmörkuð fælni er oft kölluð fóbía í dag­legu tali, eftir enska...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu