„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Furðulegt fréttamál: Jakob Frímann, liprunarbréfið, barnið og DV

Furðulegt fréttamál: Jakob Frímann, liprunarbréfið, barnið og DV
Mynd/skjá­skot: DV

Í byrjun árs 2020 barst utan­rík­is­ráðu­neyt­inu beiðni frá Jakobi Frímanni Magn­ús­syni, tón­list­ar­manni og odd­vita Flokks fólks­ins í kom­andi kosn­ingum. Beiðnin sner­ist um að fá ráðu­neytið til að útbúa bréf fyrir ólög­ráða ung­ling, sem átti að auð­velda barn­inu að ferð­ast til föður síns, sem búsettur er erlendis.

Á þessum tíma var Covidsjúkdómurinn far­inn að geisa og landa­mæri víða um heim því að þrengj­ast. Utan­rík­is­ráðu­neytið útbjó á þessum tíma ótal liprunar­bréf fyrir ferða­langa sem þurftu nauð­syn­lega að kom­ast til landa þar sem flókið var að fá land­vist­ar­leyfi. Að beiðni föður barns­ins útbjó Jakob Frímann upp­kast að liprunar­bréfi og óskaði eftir því að málið yrði afgreitt með hraði, en hann sagði barnið ekki geta fengið land­vist í búsetu­landi föð­ur­ins nema að utan­rík­is­ráðu­neytið aðstoð­aði við málið. Faðir barns­ins er náinn vinur Jakobs Frímanns. Í erind­inu var tekið fram að móðir barns­ins væri för þess sam­þykk.

„Einbeittur brotavilji“

Að sögn móð­ur­innar hafði hún upp­haf­lega heim­ilað för tveggja barna sinna til föður síns, en hafi nokkru síðar aft­ur­kallað það vegna ástands far­ald­urs­ins í heim­inum. Hún hafi ekki verið sam­þykk gerð liprunar­bréfs­ins og ekki haft vit­neskju um aðkomu Jakobs Frímanns að mál­inu fyrr en eftir að hún leit­aði sér lög­fræði­að­stoðar vegna máls­ins. Að sögn móð­ur­innar hafi verið um að ræða ein­beittan brota­vilja og að Jakob Frímann hafi aðstoðað föð­ur­inn við að reyna að koma öðru barni hennar ólög­lega úr landi. Lög­heim­ili barns­ins var hjá móð­ur­inni á þessum tíma. Hún segir Jakob Frímann auk þess hafa farið vís­vit­andi með ótal rang­færslur í bréfi sínu til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Liprunar­bréfið var að lokum aft­ur­kallað og móð­irin beðin afsök­unar af utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Móð­ur­fjöl­skyldu barns­ins þótti Jakob Frímann aug­ljós­lega hafa mis­notað stöðu sína sem fyrrum starfs­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og þjóð­þekktur ein­stak­lingur, til þess að ná mál­inu í gegn. Fjöl­skyldan hafði sam­band við DV þegar ljóst varð að Jakob Frímann ætl­aði sér að taka odd­vita­sæti fyrir Flokk fólks­ins í kom­andi kosn­ingum, en að sögn voru þau ugg­andi yfir hugs­an­legum spotta­kipp­ingum hans ef hann kæm­ist inn á Alþingi.

Við vinnslu frétt­ar­innar hafði blaða­maður DV, Erla Hlyns­dóttir, sam­band við Jakob Frímann. Í kjöl­farið lýsa þau Björn Þor­finns­son, rit­stjóri DV, að þau hafi mátt þola tveggja sól­ar­hringa áreitni, and­legt ofbeldi og hót­anir frá fólki í kringum Jakob Frímann. Sömu­leiðis segja þau barn­inu hafa verið beitt gegn þeim svo þau myndu hætta við birt­ingu frétt­ar­innar.

Vildi bara hjálpa

Jakob Frímann hafnar því að nokkuð mis­jafnt hafi átt sér stað. Hann hafi ein­ungis verið að reyna að aðstoða barnið, sem hafi verið fast í harð­vít­ugri for­ræð­is­deilu. Andleg heilsa barns­ins hafi verið í hættu og það viljað ferð­ast til föður síns. Jakob segir móð­ur­ina hafa verið sam­þykka för barns­ins í upp­hafi og hann hafi ekki haft neina ástæðu til þess að halda að það sam­þykki yrði aft­ur­kallað. Hann tjáir sig ekki sér­stak­lega um áreitn­ina frá hans innsta hring, sem blaða­menn DV lýsa.

Faðir barns­ins, sem er sextán ára drengur, hefur nú gefið út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins. Faðirinn, Jón Ósmann, vísar þar á bug ásök­unum um nokkuð mis­jafnt af hálfu Jakobs Frímanns. Enn­fremur sakar hann DV um ein­hliða og sær­andi umfjöllun. Hann segir son sinn nú vera hjá sér, eftir að hafa hlaup­ist á brott frá móður sinni eftir erfið sam­skipti þeirra á milli. Jón segir son sinn ekki hafa verið not­aðan í deilum við DV, þvert á móti hafi son­ur­inn sjálfur tekið umfjöll­un­ina nærri sér og haft sam­band við blaðið að eigin frum­kvæði. Hann hafnar því sömu­leiðis að hafa áreitt blaða­menn­ina og segir sín sam­skipti við við­kom­andi hafa verið á kurt­eisum nótum.

Aðeins hefur hluti gagna í mál­inu verið birtur, aðal­lega gögn frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og liprunar­bréfið. Í gögnum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að aft­ur­köllun liprunar­bréfs­ins og afsök­un­ar­beiðni ráðu­neyt­is­ins til móð­ur­innar hafi ekk­ert með Jakob Frímann eða hans aðkomu að mál­inu að gera. Ráðu­neytið taki hins­vegar ábyrgð á að hafa ekki kannað málið nægi­lega vel, til dæmis hvort sam­þykki móður lægi raun­veru­lega fyrir.

Bæði blaða­menn DV og Jón Ósmann segj­ast búa yfir fleiri gögnum máli sínu til stuðn­ings og að þau verði birt ef þurfa þyki.

Nánar um málið

8. sept­em­ber 2021 

Upp­haf­leg frétt DV kemur út með titl­inum „Jakob Frímann sak­aður um að beita blekk­ingum til að koma barni úr landi“.

Í frétt­inni segir að Jakob Frímann sé til skoð­unar hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eftir að hafa verið sak­aður um að beita blekk­ingum í þeim til­gangi að koma barni úr landi til föður síns, en fað­ir­inn er búsettur erlendis og er vinur Jakobs Frímanns. Samkvæmt DV var það móðir barns­ins sem til­kynnti málið til lög­reglu.

Í frétt DV var Jakob Frímann sagður hafa sett sig í sam­band við utan­rík­is­ráðu­neytið og óskað eftir því að ráðu­neytið gæfi út svo­kallað liprunar­bréf, til að auð­velda barni náins vinar Jakobs að kom­ast utan til föður síns.

DV birti bréf Jakobs Frímanns til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, en þar segir meðal ann­ars að barnið þurfi nauð­syn­lega að kom­ast til föður síns, málið sé barna­vernd­ar­mál og við­kom­andi barn sé í miklum sál­ar­háska. Þar segir einnig að barnið eigi bókað flug til föður síns nokkrum dögum síðar, en að for­senda þess að barnið fái land­vist­ar­leyfi í við­kom­andi landi sé að utan­rík­is­ráðu­neytið greiði götu feðganna og riti liprunar­bréf þess efnis að mikið liggi við. Jakob Frímann skrifar neðar í tölvu­póst­inum til­lögu að liprunar­bréfi.

Neðst í bréf­inu segir Jakob að allt sé þetta gert með fullu sam­þykki móður. Jakob Frímann skrifar svo undir bréfið sem fjöl­skyldu­vinur og ætt­ingi.

Það var móðir barns­ins sem hafði sam­band við DV og upp­lýsti um málið. Það kom á dag­inn að móð­irin hafði ekki gefið leyfi fyrir mál­inu og var það allt sótt án hennar vit­neskju. Á þessum tíma átti barnið lög­heim­ili hjá móður sinni.

Það tók utan­rík­is­ráðu­neytið aðeins nokkra klukku­tíma að vinna liprunar­bréfið og senda Jakobi Frímanni það, með opin­berum stimpli. Þetta gerði ráðu­neytið alfarið án þess að kanna sann­leiks­gildi bréfs­ins; það athug­aði til að mynda ekki hvort málið og för barns­ins utan væri með sam­þykki móður þess.

Ráðu­neytið leið­rétti málið að lokum, aft­ur­kall­aði liprunar­bréfið og baðst afsök­unar.

For­svars­menn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins tjáðu móð­ur­inni að ekki væri hægt að kæra Jakob Frímann fyrir skjala­fals þar sem hann hefði ekki falsað und­ir­skrift hennar í bréf­inu, heldur ein­ungis sagt ósatt um vit­neskju hennar og sam­þykki fyrir ferð barns­ins.

DV birti í frétt­inni afrit af fund­ar­gerð utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins frá fundi þess með móð­ur­inni þar sem farið er yfir málið.

Jakob Frímann er fyrrum starfs­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Móðirin taldi að í mál­inu hefði hann not­fært sér fyrrum stöðu sína og sam­bönd, sem og per­sónu sína sem þjóð­þekktur ein­stak­lingur.

17. september 2021

DV birtir yfir­lýs­ingu frá Birni Þor­finns­syni, rit­stjóra blaðs­ins og Erlu Hlyns­dóttur, aðstoð­ar­rit­stjóra. Það var sú síð­ar­nefnda sem var skráð fyrir upp­haf­legu frétt­inni þann 8. sept­em­ber.

Í yfir­lýs­ing­unni segj­ast þau, í kjöl­far vinnu sinnar við frétt­ina, hafa mátt þola áreitni, hót­anir og and­legt ofbeldi af hálfu fólks tengdu Jakobi Frímanni.

Að sögn hafi tveggja sól­ar­hringa áreitni haf­ist stuttu eftir að Erla hafði sam­band við Jakob Frímann vegna frétt­ar­innar. Þau Björn hafi verið beitt miklum þrýst­ingi og kúgun til þess að hætta vinnu sinni við frétt­ina og þeim gert að sök að vilja eyði­leggja stjórn­mála­feril Jakobs Frímanns. Þau segja sömu­leiðis að æðstu stjórn­endur útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið beittir þrýst­ingi og blekk­ingum til þess að birt­ing frétt­ar­innar yrði stöðvuð. Þau segja umræddu barni sömu­leiðis hafa verið beitt í þess­ari her­ferð, en barnið hafi verið látið hringja í Erlu og senda pósta á stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins. Blaða­mönn­unum var gefið að sök að ætla að velta sér upp úr for­ræð­is­mál­inu og eyði­leggja líf barns­ins. Að sögn var blaða­mönn­unum líka hótað því að birt­ing frétt­ar­innar myndi hafa afleið­ingar fyrir þau per­sónu­lega.

17. september 2021

Stuttu eftir að yfir­lýs­ing DV kom út, sendi Jakob Frímann frá sér sína eigin yfir­lýs­ingu. Þar seg­ist hann hafna full­yrð­ingum blaðs­ins um greiða­semi sína og til­urð liprunar­bréfs­ins.

Jakob Frímann segir í yfir­lýs­ingu sinni að móðir barns­ins hafi vitað af mál­inu og allt hafi það verið með hennar sam­þykki. Hann segir að lagt hafi verið fyrir hann bréf þess efnis í febr­ú­ar­lok 2020.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að vegna covid-tengdrar óvissu hafi för­inni verið seinkað lít­il­lega, en hann hafi svarað kall­inu um leið og honum var tjáð að barnið væri komið með vega­bréfið sitt, brott­far­ar­dag og far­seðil í hendur. Hann hefði ekki haft neina ástæðu til að áætla að áður útgefin ferða­heim­ild móð­ur­innar yrði dregin til baka

Jakob Frímann seg­ist ekk­ert hafa vitað um reiði móð­ur­innar í sinn garð fyrr en hann fékk fyrr­nefnt sím­tal frá DV. Hann segir gögn liggja fyrir með upp­haf­legri ferða­heim­ild móð­ur­innar. Með yfir­lýs­ingu sinni birtir hann einnig bréf utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins til föð­ur­ins, en þar segir að afsök­un­ar­beiðni ráðu­neyt­is­ins hafi ekk­ert með aðstoð Jakobs Frímanns að gera, heldur það að ráðu­neytið hafi ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu sinni nægi­lega vel í mál­inu. Enn­fremur segir að eng­inn hafi verið vændur um ósann­indi, fals­anir eða slíkt af hálfu ráðu­neyt­is­ins.

19. september

Yfir­lýs­ing föð­ur­ins, Jóns Ósmanns, birt­ist í Mannlífi. Þar segir meðal ann­ars að ferða­heim­ild hafi verið fyrir hendi þegar liprunar­bréfið hafi verið gefið út og að móð­irin hafi fengið bréfið í hend­urnar á sama tíma og fað­ir­inn og að í því hafi allt verið satt og rétt. Hann segir enn­fremur að engin sér­stök sam­bönd hafi þurft til þess að fá liprunar­bréf, þau hafi á þessum tíma verið gefin út í stórum stíl vegna covidlokaðra landamæra um allan heim. Jón segir bréfið aldrei hafa verið notað og ferðin aldrei farin.

Jón sakar DV um að hafa skrifað frétt­ina alfarið út frá túlkun móður barns­ins, sem er sextán ára drengur. Hann segir syni sínum þykja sárt að blaðið hafi ekki leitað álits hans á frétt­inni. Dreng­ur­inn hafi reynt að koma sinni sögu af erf­iðum sam­skiptum við móð­ur­ina á fram­færi, en á hann hafi ekki verið hlustað.

Hann segir DV hafa lokað á son sinn á athuga­semda­kerf­inu við seinni frétt­ina.

Jón Ósmann segir málið harm­leik sem hafi endað með því að dreng­ur­inn hafi hlaup­ist að heiman frá móður sinni, en lög­reglan hafi falið bróður Jóns að gæta son­ar­ins þar til Jón kæmi sjálfur til lands­ins. Þeir feðgar hafi verið sam­ein­aðir síðan. Jón segir að í mál­inu sé það móð­irin sem sé ger­andi, en hún hafi í frétt­unum verið gerð að þol­anda.

Jón tekur fram að hann hafi ein­ungis rætt einu sinni við Erlu Hlyns­dóttur í síma, fyrir birt­ingu frétt­ar­innar. Það hafi verið á góðum nótum. Þeir feðgar hafi síðan sent vin­sam­lega pósta á DV. Jón segir þá ekki hafa neitt að fela hvað það varðar og að við­kom­andi póstar verði birtir ef þurfa þyki. Hann veltir fyrir sér hvort fjöl­miðlar eigi ekki að hlusta á báðar hliðar í málum.

Enn engar skýringar á áreitni og hótunum

Líklega á fleira enn eftir að koma í ljós er varðar málið. Enn hafa engar skýr­ingar borist hvað varðar áreitn­ina og hót­an­irnar sem blaða­menn DV lýsa. Jakob Frímann snertir ekki á því í yfir­lýs­ingu sinni nema hvað varðar sam­skipti feðganna við DV, sem hann seg­ist sjálfur ekk­ert hafa með að gera. Sömu­leiðis er óvíst hvers vegna Jakob Frímann var feng­inn til að hafa sam­band við utan­rík­is­ráðu­neytið ef engin sam­bönd hafi verið nauð­syn­leg til þess að fá svo hraða afgreiðslu á liprunar­bréfi.

Liprunar­bréf eru bréf sem utan­rík­is­ráðu­neytið útbjó til dæmis í stórum stíl eftir til­komu Covid-19 sjúk­dóms­ins. Bréfunum var ætlað að liðka til fyrir ferða­lögum fólks sem nauð­syn­lega þurfti að kom­ast til landa sem voru að þrengja landa­mæri sín á veiru­tímum. Í sumum löndum var ómögu­legt fyrir fólk að fá land­vist­ar­leyfi öðru­vísi en með form­legum og opin­ber­lega stimpl­uðum liprunar­bréfum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fréttaljós

Þetta eru hneyklismálin úr íslenskum íþróttaheimi – „Vildu fá mig með á hóruhús“
InnlentFréttaljós

Þetta eru hneyk­l­is­málin úr íslenskum íþrótta­heimi – „Vildu fá mig með á hóru­hús“

Enn ein ásök­unin er komin fram hjá íþrótta­hreyf­ing­unni. Varðar hún ferð til Póllands 2016. Lands­liðs­menn í knatt­spyrnu hafa setið undir þungum ásök­unum, stað­festum og óstað­festum síð­ustu daga og virð­ist ekk­ert lát var á þeim. Þá hefur frá­far­andi stjórn KSÍ legið undir ámæli ásamt fram­kvæmd­ar­stjór­anum, Klöru Bjartmarz, fyrir þöggun á mál­unum sem upp hafa komið. Það sem komið hefur fram til...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins