„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þetta eru hneyklismálin úr íslenskum íþróttaheimi – „Vildu fá mig með á hóruhús“

Þetta eru hneyklismálin úr íslenskum íþróttaheimi – „Vildu fá mig með á hóruhús“

Enn ein ásök­unin er komin fram hjá íþrótta­hreyf­ing­unni. Varðar hún ferð til Póllands 2016.

Lands­liðs­menn í knatt­spyrnu hafa setið undir þungum ásök­unum, stað­festum og óstað­festum síð­ustu daga og virð­ist ekk­ert lát var á þeim. Þá hefur frá­far­andi stjórn KSÍ legið undir ámæli ásamt fram­kvæmd­ar­stjór­anum, Klöru Bjartmarz, fyrir þöggun á mál­unum sem upp hafa komið.

Það sem komið hefur fram til þessa snýr að lands­liðs­mönn­unum „strák­unum okkar“ í knatt­spyrnu. Gylfi Þór Sig­urðs­son, stjörnu­leik­maður íslenska lands­liðs­ins, sætir rann­sókn í Englandi, grun­aðum um kyn­ferð­is­brot gegn barn­ungri stúlku. Mannlíf opn­aði á málið.

Greip í klof kvenna

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji lands­liðs­ins, beitti Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi á skemmti­stað í miðbæ Reykja­víkur árið 2017. Greip Kolbeinn í klof hennar á skemmti­staðnum og tók hana seinna um kvöldið háls­taki, svo á sást. Kolbeinn ku hafa við­ur­kennt brot sitt, iðr­ast og greitt Þórhildi Gyðu miska­bætur, líkt og Mannlíf sagði fyrst frá.

Þá steig fram kona nýverið sem sagði að tveir lands­liðs­menn, annar þeirra þjóð­þekktur, hafi nauðgað sér inni á hót­el­her­bergi erlendis árið 2010. Konan grunar þá um að hafa sett eitt­hvað í glasið sitt á skemmti­staðnum en hún ældi yfir annan þeirra í leigu­bílnum á leið á hót­el­her­bergi þeirra. Hún hafi svo ælt í rúmið líka og yfir sig. Skeyttu þeir engu um þó hún hefði ælt yfir sig og rúmið og skipt­ust þeir á að nauðga henni. Daginn eftir sagði annar þeirra „vó, ekki kæra mig fyrir nauðgun“ og hló. Mannlíf sagði fyrst frá.

Fjarlægður af lögreglu

Mynd / Skjáskot RÚV.

Ragnar Sig­urðs­son gekk ber­serks­gang í íbúð þáver­andi eig­in­konu sinnar í Garða­bænum, sum­arið 2017 en kalla þurfti út lög­reglu sem mætti á stað­inn. Samkvæmt vitnum var Ragnar fjar­lægður af heim­il­inu af lög­regl­unni en nágrann­inn sem hlúði að þáver­andi maka Ragnars til­kynnti málið til KSÍ.

Hegðun Eiðs Smára Guð­jón­sen hefur einnig verið til umræðu en atvik í miðbæ Reykja­víkur vakti hneikslan margra en mynd­band af því fór á víð og dreif um sam­fé­lags­miðl­ana. Þar sést Eiður Smári í ann­ar­legu ástandi, kasta af sér vatni á almanna­færi. Þá var grunur um að hann hefði mætt í Sjónvarp Símans undir áhrifum og hlotið til­tal hjá Guðna Bergs, fyrr­ver­andi for­manns KSÍ fyrir vikið. Mannlíf sagði fyrst frá.

Stjórn KSÍ hefur öllu sagt af sér í kjöl­far ásakan­anna en upp hefur kom­ist um lygar for­manns­ins í fjöl­miðlum og þöggun stjórn­ar­innar í þessum málum.

Nýjar ásakanir komnar fram

Ein af nýj­ustu ásök­un­unum kom fram í gær á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter en í þetta sinn er það á hendur hátt­settra manna innan Hand­knatt­leiks­heims­ins. Eva Björk Ægis­dóttir, íþrótta og frétta­ljós­mynd­ari, segir á Twitter aðgangi sínum eft­ir­far­andi „Ég var á EM í Póllandi 2016 fyrir HSÍ. Núver­andi fram­kvæmda­stjórar HSÍ og Víkings á Ólafsvík vildu fá mig með sér á hóru­hús, og suð­uðu í mér.“ Hún heldur áfram og segir þá hafa þótt svo leið­in­legt að hafa hana með í svona ferðum því hún „tók ekki þátt í bull­inu“. Að lokum bæti hún því við að hún hafi ekki látið plat­ast.

Þá skrif­aði Hulda Hrund á Twitter eft­ir­far­andi færslu „Við getum þó gefið Klöru það að hún sagði satt og rétt frá að hópnauðg­un­ar­ferlið gekk ekki betur en það að meintur ger­and­inn er enn í byrj­un­ar­liði FH og þjálfar yngri flokka.“

Semi Erla tví­taði í þetta í gær: „Næsta rök­rétta skref hlýtur að vera að krefja klúbbana um að taka ofbeld­is­fullu fótb.menn­ina úr keppni. Nokkur ísl.félög gætu td. byrjað á að reka nauð­gar­ana í lið­unum sínum & jafn­vel þann sem frels­issv. konu sína & læsti í kjall­ara vikum saman. Aðrar íþr. gætu svo fylgt eftir“ Aðspurði í athuga­semd hvort hún geti sagt eitt­hvað meira um þetta mál svara Semi því til að í raun geti hún það ekki að svo stöddu en bæti þó við að mað­ur­inn sé partur af „Strák­unum okkar“ og að hann spili í Pepsí­deild­inni.

Það er því nokkuð ljóst að sam­fé­lagið sem og miðlar þess nötri þessa dag­ana vegna ásak­ana og hneikslis og ofbeld­is­mála og nokkuð rök­rétt að halda því fram að fleira grút­skítugt mjöl muni finn­ast í íþrótta­horn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fréttaljós

Furðulegt fréttamál: Jakob Frímann, liprunarbréfið, barnið og DV
InnlentFréttaljós

Furðu­legt frétta­mál: Jakob Frímann, liprunar­bréfið, barnið og DV

Í byrjun árs 2020 barst utan­rík­is­ráðu­neyt­inu beiðni frá Jakobi Frímanni Magn­ús­syni, tón­list­ar­manni og odd­vita Flokks fólks­ins í kom­andi kosn­ingum. Beiðnin sner­ist um að fá ráðu­neytið til að útbúa bréf fyrir ólög­ráða ung­ling, sem átti að auð­velda barn­inu að ferð­ast til föður síns, sem búsettur er erlendis. Á þessum tíma var Covidsjúkdómurinn far­inn að geisa og landa­mæri víða um heim því...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins