„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Aron fyrirliði sagður bannaður frá landsliðinu – Fjarveran útskýrð síðar segir þjálfarinn

Aron fyrirliði sagður bannaður frá landsliðinu – Fjarveran útskýrð síðar segir þjálfarinn
Aron Einar

Aron Einar Gunn­ars­son, fyr­ir­liði íslenska karla­lands­liðs­ins í fót­bolta, var ekki val­inn í lands­liðs­hóp­inn fyrir leiki liðs­ins sem framundan eru í októ­ber. DV heldur því fram að bráða­birgða­stjórn KSÍ hafi meinað lands­liðs­þjálf­ar­anum, Arnari Við­ars­syni, að velja fyr­ir­lið­ann í hóp­inn. Því neitar þjálf­ar­inn aftur á móti í sam­tali við Vísi.

Aron er að minnsta kosti ekki í hópnum, þrátt fyrir að vera heill heilsu og spilað und­an­farna leiki með félags­liði sínu, sem kynntur verður á eftir fyrir leiki gegn Armeníu og Liechtenstein. Ef marka má fréttir DV hafði Arnar þjálf­ari ætlað sér að velja Aron fyr­ir­liða en stjórnin hafi tekið fyrir það.

Sjá einnig: Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Lands­liðs­þjálf­ar­inn seg­ist ætla að skýra síðar út ákvörðun sína um að hafa Aron ekki með.

„Aron Einar er ekki val­inn í þetta verk­efni. Eftir mörg góð sam­töl á milli mín, Arons og Eiðs Smára tók ég þá ákvörðun að velja Aron ekki. Ástæðan fyrir því er utan­að­kom­andi og ég get því miður ekki farið neitt nánar út í það í dag,“ sagði Arnar við Vísi.

Arnar hefur áður gefið út þá yfir­lýs­ingu að finna þurfi nýjan lands­liðs­þjálf­ara í sinn stað haldi stjórn KSÍ áfram að hlut­ast til um leik­manna­valið, líkt og raunin var með lands­liðs­fram­herj­ann Kolbein Sig­þórs­son á dög­unum.

Sjá einnig: Lands­liðið í stormi sam­fé­lags­miðla – Ásakanir um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi

Aron Einar er 32 ára gam­all knatt­spyrnu­maður sem leikið hefur 97 lands­leiki fyrir Íslands hönd. Hann hefur verið fyr­ir­liði liðs­ins í gegnum blóma­skeið karla­lands­liðs­ins á und­an­farnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins