„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Starfsmaður Sælukots rekinn eftir undirskriftasöfnun: „Treysti mér ekki til að bera ábyrgð á þessu“

Starfsmaður Sælukots rekinn eftir undirskriftasöfnun: „Treysti mér ekki til að bera ábyrgð á þessu“
Leik­skól­inn Sælukot

„Ég sagði upp vegna þess fyrst og fremst ég treysti mér ekki til þess að bera ábyrgð á þessu,“ segir fyrrum starfs­maður leik­skól­ans Sælukots í sam­tali við Mannlíf.

Mannlíf fjall­aði um leik­skól­ann Sælukot á dög­unum og hafa borist fjöldi ábend­inga í kjöl­far umfjöll­un­innar. Móðir barns sem var við leik­skól­ann sagði frá reynslu sinni eftir að grunur kom upp að barn hennar hefði lent í kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu starfs­manns við leik­skól­ann.

Þá greindi annar, tveggja leik­skóla­stjóra við Sælukot frá því að skýrsla frá barna­vernd hefði verið sýnd óvið­kom­andi aðilum, eða for­eldrum í for­eldra­ráði. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru skýrslur barna­verndar um ein­stök mál barna ávallt trún­að­ar­gögn.
Leik­skóla­stjór­inn sagð­ist „nokkuð viss“ um að slík gögn væru ekki trún­að­ar­mál.

Eftir umfjöll­un­ina hafði fyrrum starfs­maður leik­skól­ans sam­band við Mannlíf. Sá starfs­maður hefur óskað eftir nafn­leynd í tengslum við málið. Í sam­tali við Mannlíf greinir starfs­mað­ur­inn frá reynslu sinni.

Starf­mað­ur­inn segir að leik­skól­anum hafi verið stjórnað á vafa­saman hátt og sagði því starfi sínu lausu. „Ég sagði upp vegna þess fyrst og fremst ég treysti mér ekki til þess að bera ábyrgð á þessu, sem að hún og fólk sem hún hafði raðað í kringum sig, þar á meðal þessi maður voru að gera,“ segir starfs­mað­ur­inn sem ætl­aði að vinna upp­sagna­frest­inn.

„Ég mætti til vinnu og þar beið mín bréf, það var búið að loka á net­póst­inn og allt, ég gat ekki sagt for­eldrum að ég væri hætt,“

Starfs­mað­ur­inn segir að hann hafi þannig verið rek­inn vegna þess að hann hafi kraf­ist end­ur­bóta við leik­skól­ann og mörgu ábóta­vant.

„Ástæðan fyrir þessu er að starfs­fólkið, og ég var nátt­úru­lega með í því, skrif­uðum bréf og söfn­uðum und­ir­skriftum starfs­fólks­ins þar sem við vorum að mót­mæla aðstöðu, og allt of mörgum börnum á hvern starfs­mann og svo fram­vegis.“

Þá segir starfs­mað­ur­inn að hann hafi herjað á borg­ina í kjöl­farið en gekk þar á algjöran vegg.

„Ég leit svo á að þau bæru ábyrgð á öllum starf­andi leik­skólum í Reykja­vík og ég mætti mjög litlum skiln­ingi, ég bara var að skylm­ast við ein­hverja unga lög­fræð­inga þarna í bréfa­skriftum og fleira.“

„Ég veit ekki til þess að borgin hafi brugð­ist við þessu,“ segir starfs­mað­ur­inn en gríð­ar­lega erfitt hefur reynst að fá svör frá Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins