„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðmundur Felix vill hjálpa öðrum með reynslu sinni: „Ég hætti að streitast á móti lífinu“

Guðmundur Felix vill hjálpa öðrum með reynslu sinni: „Ég hætti að streitast á móti lífinu“
Guð­mundur Felix Grét­ars­son. Mynd: Brynjar Snær

Guðmund Felix Grét­ars­son þarf vart að kynna. Hann vann hug og hjörtu lands­manna með ótrú­legri seiglu sinni og bar­áttu­anda, þegar hann lagði upp í þá veg­ferð að fá nýja hand­leggi grædda á sig.

Guð­mundur Felix missti báða hand­leggi sína í alvar­legu vinnu­slysi árið 1998. Hann starf­aði sem raf­virki og var að gera við háspennu­línu, en virð­ist hafa farið upp í rangan staur og snert línu sem straumur hafði ekki verið tek­inn af.

Hann féll átta metra niður úr staurnum og brotn­aði á þremur stöðum í hryggnum, brákað­ist í háls­liðum, rif­beinin losn­uðu frá hryggjar­súl­unni og það kvikn­aði í hönd­unum á honum. Guð­mundur Felix komst ekki til fullrar með­vit­undar fyrr en um þremur mán­uðum eftir slysið.

Hann er fyrsti maður í heimi til að fá grædda á sig hand­leggi við axlir.

Nú eru níu mán­uðir síðan hann gekkst undir hand­leggja­á­græðsl­una í Frakk­landi og bat­inn hefur gengið vonum framar.

Þegar blaða­maður spyr, seg­ist Guð­mundur Felix alls ekki vera orð­inn þreyttur á áhuga land­ans á honum og máli hans. Hann segir að þegar hann hafi sett nýjasta mynd­bandið sitt inn á sam­fé­lags­miðla hafi sídegis sama dag, þegar Guð­mundur kom heim úr end­ur­hæf­ingu, verið komnar yfir 200 athuga­semdir á færsl­una.

„Það er gaman að sjá hvað fólk stendur við bakið á manni.“

Guð­mundur Felix segir mik­inn stuðn­ing fólg­inn í því.

„Þetta hefur stundum verið ein­mana­legt ferða­lag, svo það er voða gaman að þessu.“

Undraverður árangur

Guðmundi Felix hefur gengið vel í end­ur­hæf­ing­unni sem tók við eftir aðgerð­ina. Sá árangur sem hefur náðst á þessum níu mán­uðum er mun meiri en spár gerðu ráð fyrir. Guð­mundur Felix hefur til dæmis náð að hreyfa fing­urna, en það er eitt­hvað sem búist var við að tæki í kringum tvö ár. Aðspurður hvort ekki sé um undra­verðan árangur að ræða, segir hann að svo sé að vissu leyti.

„Sko, miðað við það sem við bjugg­umst við, en þegar það er verið að gera eitt­hvað í fyrsta skipti þá veit í raun­inni eng­inn við hverju er að búast. Það er svona eitt­hvað með­al­tal að taugar vaxi milli­metra á dag. Ef ein­hver missir til dæmis hand­legg í slysi og hann er settur aftur á, þá er þessi milli­metri á dag alveg í gangi.“

Guð­mundur Felix segir að í hans til­felli sé dæmið aðeins öðru­vísi, þar sem græddir voru á hann gjafa­hand­leggir frá öðrum ein­stak­lingi.

„Ég er á svona ónæm­is­bælandi lyfjum. Ég er á þremur mis­mun­andi lyfjum og eitt af þessum lyfjum örvar tauga­vöxt.“

Fólk sem fær ágræddan útlim frá annarri mann­eskju þarf alltaf að fara á slík ónæm­is­bælandi lyf. Það er til þess að koma í veg fyrir að lík­am­inn hafni útlimnum.

Guð­mundur Felix segir lyfin þó hafa sína stóru ókosti.

„Þetta er hel­vítis við­bjóður, þetta lyf. Auka­verk­an­irnar eru bara eins og Biblían á þykkt. En ein auka­verk­unin er sú að þetta örvar tauga­vöxt.“

Hann segir að sú auka­verkun, örvun tauga­vaxtar, sé greini­lega mjög sterk í hans til­felli.

Meðal auka­verk­ana sem fylgja ónæm­is­bælandi lyfjum liggur í orð­inu: þau veikja ónæm­is­kerfið. Fólk getur því verið afar útsett fyrir öllum mögu­legum og ómögu­legum umgangspestum og sýk­ingum. Guð­mundur Felix seg­ist þurfa að fara var­lega til að koma í veg fyrir að hann fái slíkar sýk­ingar.

„Það er nú gall­inn við þetta. Reyndar var ástæðan fyrir því að ég fékk já-ið frá teym­inu á sínum tíma sú að ég var á þessum lyfjum hvort eð er, af því að ég fór í lifr­ar­skipti tvisvar sinnum árið 2002.

Ef ég hefði ekki verið á þeim hefðu þeir lík­lega ekki tekið áhætt­una og farið út í óviss­una með því að setja ein­hvern á þessi lyf.

En ég er búinn að fá fjórar Covid-bólu­setn­ingar og er ekki ennþá kom­inn með mótefni. Það er bara nán­ast ekk­ert ónæm­is­kerfi.

Í dag eru skammt­arnir að vísu tals­vert hærri en þeir verða kannski in the long run. Þeir eru líka mikið hærri en þeir voru áður, bara eftir lifr­ar­skiptin. Það á eftir að lækka skammt­ana þegar ég er kom­inn aðeins lengra í ferl­inu.“

Guð­mundur Felix mun þó þurfa að vera á ónæm­is­bælandi lyfjum alla ævi.

„Á meðan þú ert með lík­ams­part eða líf­færi frá annarri mann­eskju þá mun ónæm­is­kerfið ráð­ast á það, nema þú sért á þessum lyfjum.

Hvítu blóð­kornin líta bara á þetta sem aðskota­hlut, sem þetta í raun­inni er, þannig að það þarf að halda þeim í skefjum. Því miður geta þau þá misst fram­hjá sér ýmsa aðra kvilla.“

Með líf og starfsheiður að veði

Hann segir lækna sína vera afar ánægða með þróun mála hjá honum.

„Ég hitti tvo af þeim sem eru yfir þessu teymi í síð­ustu viku og sýndi þeim putta­hreyf­ing­arnar. Þeir skríktu bara eins og smá­krakkar og tóku upp vídjó. Fannst þetta alveg frá­bært.

Þeir nátt­úru­lega voru svo­lítið að leggja starfs­heið­ur­inn að veði, að þetta gengi upp. Þetta var ekk­ert alls­staðar vel liðið og mætti svo­lít­illi mót­stöðu á mörgum stöðum, en þeir ákváðu að veðja á mig.

Þetta er gott fyrir orð­sporið ef þetta heppn­ast vel, en ef þetta hefði farið illa þá hefði það bara lent illa á þeim líka.“

Guð­mundur Felix var þó ekki síður að taka áhættu sjálfur, með lífið að veði.

„Ég ákvað það fyrir löngu bara og hef ein­hvern veg­inn aldrei kvikað frá því. Það hefur aldrei verið nokkur vafi í mínum huga að þetta myndi ganga upp.“

Guð­mundur Felix Grét­ars­son

Fór langt niður og leiddist út í neyslu

Þegar hann er spurður hvaðan þessi ein­staki andi hans og jákvæðni komi, seg­ist hann í raun­inni ekki vita það. Hann segir þó að þetta hafi ekki alltaf verið svona.

„Þegar ég lenti í slys­inu fór ég rosa­lega langt niður, í mikla neyslu og vit­leysu. Svo kom bara tíma­punktur hjá mér þar sem ég var bara á graf­ar­bakk­anum og það var annað hvort að gera eitt­hvað eða halda bara áfram í sjálfs­vor­kunn.

Ég átt­aði mig ein­hvern veg­inn á því að ástæðan fyrir því að mér leið illa var ekki út af slys­inu. Það var bara út af því að ég vildi ekki sætta mig við það.

Um leið og maður áttar sig á því að allur manns sárs­auki er ekki út af aðstæðum, heldur út af því að maður er að streit­ast á móti, þá bara ein­hvern veg­inn breyt­ist allt. Þannig að ég hætti að streit­ast á móti líf­inu.

Ég sá bara að ég var að valda sjálfum mér óþarfa armæðu með því að ströggla svona og tók bara líf­inu eins og það er. Þá eru alveg ótrú­leg­ustu hlutir sem maður kemur í veg fyrir, ef maður er ekki að eyða allri orkunni í að velta sér upp úr smá­at­riðum.“

Þegar Guð­mundur Felix gat sætt sig við hlut­ina og lífið eins og það var, gat hann fundið drif­kraft­inn til að gera breyt­ingar.

„Breyta því sem ég get breytt og sætta mig við það sem ég get ekki breytt.“

Sér ekki eftir neinu

Talið berst að lifr­ar­skipt­unum sem Guð­mundur Felix þurfti að gang­ast undir árið 2002.

„Lifrin varð fyrir skaða í slys­inu. Það var rosa­lega mik­ill frumu­dauði í lík­am­anum og lík­am­inn þarf ein­hvern veg­inn að losa sig við það. Svo það fór í gegnum lifr­ina og stífl­aði hana.

Þegar það upp­götv­að­ist voru gall­gang­arnir sem eru alla jafna milli­metri á þykkt orðnir sentí­metri á þykkt. Fullir af ein­hverri drullu bara. Það var skrapað út úr henni og hún svo bara náði sér aldrei.

Ég nátt­úru­lega hjálp­aði henni ekki.“

Þar á Guð­mundur Felix við neysl­una, sem setti auka­á­lag á lifr­ina sem þegar var veik­burða. Neyslan var hans leið og eina bjarg­ráð til að kom­ast í gegnum dag­ana, eftir slysið. Hann seg­ist þó ekki sjá eftir neinu þegar hann lítur yfir far­inn veg.

„Ég sé ekki eftir neinu. Það er nefni­lega þannig ein­hvern veg­inn, að það er ótrú­legt hvernig lífið rað­ast upp. Mér fannst ekk­ert gaman þegar ég þurfti að fara í lifr­ar­skipti, það var rosa­lega erfitt.

Það var skipt um lifur í mér tvisvar sinnum á sama sumr­inu. Þetta var rosa­lega erf­iður tími, en þegar ég lít til baka… þetta er ástæðan fyrir því að ég er með hendur í dag. Þannig að þó maður sjái eitt­hvað í augna­blik­inu sem slæmt, þá í raun­inni veit maður ekk­ert hvort hlut­irnir séu slæmir eða ekki.

Það eina sem maður veit er að maður vill að þetta sé öðru­vísi. Það eru ótrú­leg­ustu hlutir sem ger­ast og svo bara þegar fram líða stundir getur það orðið til bless­unar. Það eina sem maður veit er að maður hefur skoð­anir á öllu. Ef maður lætur þær aðeins til hliðar og leyfir þessu bara að rúlla ein­hvern veg­inn, þá ger­ast alveg ótrú­lega skemmti­legir hlutir.“

Nánast verkjalaus

Guð­mundur Felix er í stífri end­ur­hæf­ingu frá níu á morgn­ana til hálf fjögur á dag­inn, alla daga.

„Núna er svona níu mán­aða tékk og þá er ég til fimm. Þá bæt­ist það ofan á allt prógram­mið – enda­laus próf og mæl­ingar. Þannig að það fer öll orka bara í þetta.“

Hann segir að þó þetta sé vissu­lega mjög mikið og dag­arnir langir, þá hafi þetta verið mun erf­ið­ara fyrstu sjö mán­uð­ina.

„Ég var bara alltaf þreyttur og alltaf með verki. Í dag þarf ég ekk­ert að leggja mig þegar ég kem heim og ég er svona nán­ast verkja­laus. Það koma svona móment kannski einu sinni, tvisvar, þrisvar í viku. En að öllu jöfnu þá er ég bara verkja­laus. Það munar alveg svaka­lega um það.“

Stuðningur skiptir öllu

Guð­mundur Felix og eig­in­kona hans, Sylwia Gret­ars­son Nowakowska, búa saman í Lyon. Móðir hans, Guðlaug Ingva­dóttir, býr á hæð­inni fyrir ofan þau.

„Þær sjá um að hjálpa mér með það sem ég þarf hjálp með.“

Hann flutti til Frakk­lands árið 2013, til þess að bíða eftir aðgerð­inni. Biðin varð nokkuð lengri en til stóð í fyrstu og því hefur hann nú búið þar ytra í átta ár. Móðir hans flutti með honum. Hann segir gott stuðn­ings­net skipta öllu máli.

„Ég myndi ekki gera neitt af þessu án þess. Bara aldrei. Það að mamma mín flutti með mér út til þess að ég gæti elt þennan draum er ástæðan fyrir því að ég gat gert þetta. Ég kynnt­ist ekki kon­unni minni fyrr en ég var búinn að búa hér í á milli eitt og tvö ár. Mamma er búin að vera klett­ur­inn minn í gegnum þetta allt saman. Það er allt hægt ef maður á góða að.“

Þegar Guð­mundur Felix er spurður út í fram­tíð­ina segir hann að næstu mán­uðir verði með sama móti og verið hefur. End­ur­hæf­ingin haldi áfram sam­kvæmt stífu plani.

„Þó ég sé kom­inn með þann árangur sem ég er kom­inn með þá er ég ekk­ert að gera neitt með hönd­unum ennþá, þannig lagað. Það eru alla­vega tvö ár, í þess­ari end­ur­hæf­ingu. Jafnvel að ein­hverju leyti alveg í þrjú ár. Þeir sögðu mér að eftir þrjú ár sjáum við end­an­legan árangur. Það geta orðið ein­hverjar fram­farir eftir þrjú ár, en það hægir mikið á þeim.

Það skiptir alveg gríð­ar­legu máli að á meðan þessar fram­farir eru þá sé ég með fag­fólk sem hjálpar mér. Eins og núna, allar hreyf­ingar sem maður gerir, þegar maður er ekki með virka vöðva þá byrjar maður að nota aðra vöðva til þess að hjálpa sér. Það er alveg stór­hættu­legt, vegna þess að þá ná réttu vöðvarnir aldrei að þroskast og verða það sem þeir þurfa að vera.

Ég hef ekki hug­mynd um hvaða vöðvi er hvað. Ég bara geri það sem ég get. Að hafa fólk sem getur bankað í mann og bara: „Nei, nei, slak­aðu aðeins á. Hættu að nota öxl­ina, þú átt að nota þennan vöðva.“ Benda mér á ein­hvern vöðva sem ég vissi ekki að væri til. Allt svona skiptir alveg gríð­ar­lega miklu máli þegar við erum að ná ein­hverjum árangri með tauga­vöxt og svona. Að það sé ein­hver þarna sem getur leið­beint. Ég er með alveg hell­ing af þeim, hell­ing af sér­fræð­ingum sem koma að þessu. Þessir axla­vöðvar og þetta sem er komið í gagnið núna – þetta væri ekk­ert svona gott ef ekki væri fyrir þetta fólk.“

Langar að hella sér í markþjálfun

Guð­mundur Felix segir fram­tíð­ina ann­ars líta vel út. Hann hefur ákveðnar vænt­ingar og óskir þegar kemur að hand­leggj­unum og líf­inu sjálfu.

„Það sem mig langar mest er að vera sjálfum mér nægur. Að geta borðað, klætt mig, farið í sturtu. Gert þessa hluti sjálfur. Farið á kaffi­hús og borgað án þess að biðja þjón­inn um að fara í vas­ann og finna kortið mitt. Svona litlir hlutir sem fólk kannski hugsar ekk­ert um og tekur sem sjálf­sögðum. Þá er mark­mið­inu náð.“

Hann heldur áfram:

„En ég var raf­virki. Ég elska að vinna með hönd­unum. Ég er ennþá að safna verk­færum, þó ég hafi misst hand­legg­ina og geti ekki haldið á einu ein­asta verk­færi. Ég von­ast til að geta gert sem mest.

Mig langar að geta hjólað. Það er rosa þægi­legt að vera á reið­hjóli í svona stór­borgum. Það er svo mikil umferð hérna, þannig að ég væri alveg til í að geta hjólað.“

Guð­mundur Felix hefur mik­inn áhuga á að hella sér af fullum krafti út í mark­þjálfun þegar fram líða stundir.

„Á meðan ég var að bíða lærði ég svo­lítið mark­þjálfun. Svo bý ég nátt­úru­lega yfir reynslu sem er ekki hægt að læra, nema bara að ganga í gegnum hana. Þannig að ég held að ég geti gert góða hluti þar. Það gefur mér voða mikið, að geta gefið eitt­hvað af mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins