„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gróf mismunun viðgengst innan Strætó gegn lægstlaunuðum: „Þetta fólk er bara búið á því andlega“

Gróf mismunun viðgengst innan Strætó gegn lægstlaunuðum: „Þetta fólk er bara búið á því andlega“

„Þú mátt ekki tjá þig, þú mátt ekki hafa spurn­ingar,“ segir fyrr­ver­andi starfs­maður Strætó sem segir mis­munun grass­era innan fyr­ir­tæk­is­ins.

Mannlíf greindi frá nið­ur­stöðu vinnu­staða­grein­ingar innan Strætó fyrr á árinu.
Þar kom í ljós að tugir starfs­manna sögð­ust hafa orðið fyrir ein­elti á vinnu­staðnum. Í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar hafði fyrr­ver­andi starfs­maður sam­band við Mannlíf. Starfs­mað­ur­inn, kona, lýsti ein­elti sem hefði verið látið við­gang­ast árum saman.

Lýsingar á hátt­erni yfir­manna innan Strætó enda þó ekki þar. Margir fyrr­ver­andi og núver­andi starf­menn Strætó hafa sett sig í sam­band við Kolbrúnu Bald­urs­dóttur borg­ar­full­trúa. Starfs­menn­irnir hafa sömu sögu að segja og eru orðnir lang­þreyttir á ástand­inu.

Einn þeirra starfs­manna sagði frá sinni reynslu í við­tali við Mannlíf. Vill hún ekki láta nafns síns getið. Konan bendir á að skoða þurfi fyr­ir­tækið nánar.

„Það er rosa­lega mikil stétta­skipt­ing innan vinnu­stað­ar­ins,“ segir hún og bætir við að fjöl­margir starfs­menn Strætó séu af erlendu bergi brotnir. Þar á meðal hún sjálf.

Hún segir engan vafa á því að komið sé öðru­vísi fram við erlenda starfs­menn og hafi hún sjálf, meðal ann­arra, upp­lifað mis­munun innan Strætó vegna upp­runa síns.

Þá segir hún að hún viti til þess að margir starfs­menn hafi hrökkl­ast úr starfi hjá Strætó vegna and­ans sem þar ríkir.
Sigríður Harð­ar­dóttir, mannauðs­stjóri Strætó, hafi ekki sinnt starfi sínu að sögn kon­unnar.
„Hún var valin öfl­ug­asti stjórn­andi hjá Stjórn­vísi í fyrra, á meðan lætur hún við­gang­ast ein­elti árum saman. Og hendir fólki út ef það kvartar.“

Konan segir Strætó vera stjórnað eins og einka­fyr­ir­tæki. Upp­sagnir og ráðn­ingar fari til að mynda ekki alltaf fram eins og reglur segja til um er kemur að opin­berum fyr­ir­tækjum. Dæmi séu um að fólki hafi verið sagt upp sím­leiðis og fólk ráðið inn án þess að störfin hafi verið aug­lýst. Hún viti einnig til þess að fólki hafi verið sagt upp störfum þó svo að engar for­sendur hafi verið til þess.
„Það er bara tekin ákvörðun einn,tveir og þrír ef þú ert ekki vinur þeirra.“

Þá hafi starfs­menn gert athuga­semdir við vinnu­brögð yfir­manna.

„Þetta fólk er á ofur­háum launum, það skreppur frá oft á dag eða fer fyrr.“
Þá segir hún að fólk hafi verið tekið á teppið hafi það spurt út í slíkt.
Konan segir að hún hafi rætt við marga starfs­menn Strætó sem eru orðnir lang­þreyttir á fram­komu yfir­manna.
„Þetta fólk er bara búið á því and­lega,“ segir konan og furðar sig á hvers vegna ekki sé búið að taka í taumana. Málið sé stórt og mörgu sé ábóta­vant.

Konan tekur einnig fram að mikil leynd sé yfir starfs­manna­sjóði. Þar sitji sama fólk í stjórn árum saman. Erfitt hafi verið að fá skýra mynd af því í hvað pen­ingar í starfs­manna­sjóði hafi farið, þrátt fyrir að fólk hafi greitt í sjóð­inn sam­visku­sam­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var semsagt algengt uppnefni á rauðhærðum strákum í þá tíð“
InnlentEinelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var sem­sagt algengt upp­nefni á rauð­hærðum strákum í þá tíð“

Egill Helgason segir frá ein­elti sem hann varð fyrir í æsku, í nýrri Facebook-færslu. Einelti hefur lengi verið þjóð­ar­böl, eða jafn­vel mann­kyns­böl en Egill Helgason rifjar upp það sem hann varð fyrir í æsku, þó hann nefni aldrei orðið ein­elti, í Facebook-færslu. „Þegar ég var strákur var ég stundum kall­aður Skalli. Þetta fór óskap­lega í taug­arnar á mér. Vinir mínir...
Katrín um stöðu eineltismála á Íslandi: „Hún virðist hafa versnað“
InnlentEinelti

Katrín um stöðu ein­elt­is­mála á Íslandi: „Hún virð­ist hafa versnað“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ríki, sveit­ar­fé­lög og skólar þurfi að taka höndum saman og vinna bug á þró­un­inni. For­sæt­is­ráð­herra segir að þessu erf­iðu og grófu mál valdi sér miklum áhyggjum, að staðan hafi greini­lega versnað: „Hún virð­ist hafa versnað og við sjáum að þetta gengur stundum yfir í bylgjum og við erum greini­lega stödd í slíkri bylgju og þar...
Mægðurnar í Hafnarfirði á leiðinni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“
InnlentEinelti

Mægð­urnar í Hafn­ar­firði á leið­inni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“

Sædís Hrönn Sam­ú­els­dóttir og 12 ára dóttir hennar, Ísabella Von, eru á leið til Flórída á næst­unni eftir að frænka stúlkunnar, Ingi­björg Gróa Gunn­ars­dóttir safn­aði fyrir ferð mæðgn­anna. „Stuðn­ingur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­­lausar & meyrar! Rétt í þessu til­­kynnti ég Ísa­bellu Von að þökk sé fram­lagi yfir hund­ruði sam­landa okkar sé hún og móðir hennar...
„Hvernig dettur fréttastofu í hug að fara fram með þessum hætti?“
InnlentEinelti

„Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti?“

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Bergsins, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún hafi horft „í for­undran á frétta­flutn­ing Rúv og fleiri af ein­elt­is­máli og afleið­ingum þess fyrir þol­anda í gær. Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti? Að mæta heim til 12 ára stúlku og móður hennar dag­inn eftir þeirra allra versta dag. Þar...
Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir einelti í Hafnarfirði:„Hún er enn þá uppi á spítala“
InnlentEinelti

Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir ein­elti í Hafn­ar­firði:„Hún er enn þá uppi á spít­ala“

Tólf ára dóttir Sædísar Hrannar Sam­ú­els­dóttur dvelur nú á sjúkra­húsi eftir að hafa reynt að svipta sig lífi. Hún hefur orðið fyrir langvar­andi ein­elti í Hafn­ar­firði og ofbeldi af hálfu jafn­aldra sinna og hefur stúlkan unga ekki mætt í skól­ann lengi. Ein af skila­boð­unum sem dóttirin unga hefur fengið send. „Hún er enn þá uppi á spít­ala. Hún reyndi að...
16 ára sonur Helenu lagður í hræðilegt einelti: „Er kallaður nauðgari og þeir hóta að drepa hann“
InnlentEinelti

16 ára sonur Helenu lagður í hræði­legt ein­elti: „Er kall­aður nauð­gari og þeir hóta að drepa hann“

„Ókei núna læt ég í mér heyra og núna segi ég STOPP!!!! Leyfið syni mínum að vera hann sjálfur. Einelti er ofbeldi sem aldrei er rétt­læt­an­legt. Einelti getur verið með baktali og sögu­sögnum, sær­andi orð­bragði og nið­ur­læg­ingu, frels­is­svipt­ingu, eigna­tjóni og lík­ams­meið­ingum. Sonur minn, já minn ynd­is­legi, blíði, fyndni og góði sonur sem vill öllum vel, hefur orðið fyrir ein­elti síð­ustu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins