„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Knapinn Jóhann Rúnar var dæmdur í fangelsi fyrir heimilisofbeldi: Á „sjálfkrafa“ sæti í landsliðinu

Knapinn Jóhann Rúnar var dæmdur í fangelsi fyrir heimilisofbeldi: Á „sjálfkrafa“ sæti í landsliðinu
Jóhann Rúnar

Mannlíf hefur undir höndum gögn er varða einn besta hesta­mann Íslands, Jóhann Rúnar Skúlason. Gögnin og heim­ild­irnar snúa að því að Jóhann Rúnar Skúlason hafi verið kærður og sak­felldur fyrir heim­il­is­of­beldi í Danmörku, þar sem hann hefur búið nokkuð lengi og býr enn. Var hann til að mynda með ökkla­band í þó nokkurn tíma. Dómurinn var vegna árásar Jóhanns á þáver­andi konu sína. Þetta er þó sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs ekki eina sem brotið sem hann hefur framið.

Þrátt fyrir dóm­inn er Skag­firð­ing­ur­inn Jóhann Rúnar þó enn í lands­liði hesta­manna. Hann er marg­verð­laun­aður knapi og var til dæmis til­nefndur sem Íþrótta­maður árs­ins árið 2019, en þar hafn­aði hann í tólfta sæti. Hann hefur í raun unnið allt sem hægt er að vinna sem hesta­maður; val­inn knapi árs­ins hjá Lands­sam­bandi hesta­manna­fé­laga; marg­faldur heims­meist­ari á heims­meist­ara­móti íslenska hests­ins. Einnig hefur hann unnið marga sigra á heims- og Norð­ur­landa­mótum og hann hefur tekið þátt í heims­meist­ara­mótum íslenska hests­ins síðan 1997 og unnið á annan tug heims­meist­aratitla í hesta­í­þróttum sem og all­nokkra Norð­ur­landa- og Dan­merk­ur­meist­aratitla. Jóhann Rúnar er því einn besti knapi Íslands­sög­unnar.

Mannlíf hafði sam­band við for­mann Lands­sam­bands Hesta­manna­fé­laga, Guðna Hall­dórs­son, og spurði hann út í málið:

„Þegar Jóhann var val­inn í lands­liðið fyrir heims­leika í Berlín 2019 var ég ekki í for­svari fyrir Lands­sam­band hesta­manna­fé­laga eða í stjórn, en ég var kjör­inn for­maður í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.“

„Jóhann er ríkj­andi heims­meist­ari og á sem slíkur sjálf­krafa sæti í lands­lið­inu“

Guðni segir: „Ég get því ekki svarað fyrir vit­neskju þáver­andi stjórnar, en sam­kvæmt mínum upp­lýs­ingum þá sé ég ekki að málið hafi komið inn á borð fyrri stjórnar, alla­vega ekki með form­legum hætti. Ég get á hinn bóg­inn stað­fest að ég hafði ekki upp­lýs­ingar um umræddan dóm fyrr en nú nýlega, þrátt fyrir að hafa átt sæti í lands­liðsnefnd og tekið virkan þátt í und­ir­bún­ingi og utan­um­haldi lands­liðs­ins í Berlín, þar sem ég hitti Jóhann í fyrsta skipti. Þetta mál kom aldrei inn á borð lands­liðsnefndar í aðdrag­anda heims­leika.“

Guðni nefnir einnig að „Jóhann er ríkj­andi heims­meist­ari og á sem slíkur sjálf­krafa sæti í lands­lið­inu, enda á hann rétt á að verja titla sína á næstu heims­leikum, reglum sam­kvæmt.

Ég get þó upp­lýst að á und­an­förnum vikum og mán­uðum hefur farið af stað mark­viss vinna innan LH þar sem farið verður yfir alla verk­ferla varð­andi mögu­leg afbrot lands­liðs­manna, stafs­manna, stjórn­ar­manna og ann­arra sem tengj­ast hreyf­ing­unni. Höfum við hjá LH verið í góðu sam­bandi við ÍSÍ og munum fylgja þeim að málum og fara að þeim ráð­legg­ingum sem við fáum frá ÍSÍ og sam­skipta­ráð­gjafa sam­bands­ins.“

Guðni bætir við: „Eins og áður segir þá öðl­ast heims­meist­arar sjálf­krafa rétt til að verja titla sína. Það er því stór ákvörðun og verður því ekki gert nema að vand­lega athugðu máli, með allar upp­lýs­ingar á borð­inu og eftir að verk­ferlar hafa verið yfir­farnir, sem ákvörðun verður tekin um það hvort vísa eigi við­kom­andi út úr lands­lið­hópi LH.“

Hann bendir einnig á að „þar sem engin verk­efni eru fram undan á næstu mán­uðum hjá lands­liði LH höfum við talið okkur hafa ágætis tíma til að skoða þessi mál af yfir­vegun, enda viljum við kapp­kosta að taka réttar ákvarð­anir og brjóta ekki á þeim rétt­indum sem menn eiga.“

Guðni segir það þó „alveg ljóst að LH geri miklar kröfur til sinna lands­lið­sknapa og ætl­ast til þess að þeir séu fyr­ir­mynd ann­arra knapa, innan sem utan vallar og ljóst að engar til­slak­anir verða gerðar í þeim efnum. Hingað til hefur ekki verið kallað sér­stak­lega eftir saka­vott­orði lands­lið­sknapa eða ann­arra sem tengj­ast LH, en mögu­lega kann það að breyt­ast ef það verður nið­ur­staða þeirrar vinnu sem nú er komin í gang.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Ofbeldismál

Sonur Öldu stunginn margsinnis í miðborginni: „Það er bara gott að hann er lifandi“
Innlent#Ofbeldismál

Sonur Öldu stung­inn marg­sinnis í mið­borg­inni: „Það er bara gott að hann er lif­andi“

„Það er bara gott að hann er lif­andi. Maður er nátt­úru­lega þakk­látur fyrir það,“ segir Alda Lár­us­dóttir um lífs­hættu­lega árás sem sonur hennar varð fyrir í mið­borg­inni um helg­ina.Sonur hennar varð fyrir hrotta­legri árás þar sem höggin dundu á honum og hann stung­inn sex sinnum í bakið. Alda greindi frá árásinni í færslu á Facebook: „SOS………SOS……….SOS. Það skelfi­lega atvik átti...
Steinar sár út í Katrínu „Ekki hlustað þrátt fyrir að ég hafi ítrekað sett mig í samband við hana“
Innlent#Ofbeldismál

Steinar sár út í Katrínu „Ekki hlustað þrátt fyrir að ég hafi ítrekað sett mig í sam­band við hana“

Steinar Immanuel Sör­ens­son skrifar færslu í Facebook-hópnum Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu sem byrjar svona: „Ég ætla nú að leyfa mér að hrósa Jóni Gunn­ars­syni, ég er búinn að vera að berj­ast fyrir því í 15 ár að ofbeldi sem ég og um 80 börn sem vistuð voru á barna­heim­ili á Hjalt­eyri við eyja­fjörð yrði rann­sakað, og öll þessi ár aðeins verið...
Gjafsóknarnefnd refsaði ungri einstæðri móður fyrir að tjá sig um ofbeldi sem hún varð fyrir
Innlent#Ofbeldismál

Gjaf­sókn­ar­nefnd refs­aði ungri ein­stæðri móður fyrir að tjá sig um ofbeldi sem hún varð fyrir

Ungri ein­stæðri móður var neitað um gjaf­sókn af gjaf­sókn­ar­nefnd er hún reyndi að grípa til varna gegn meið­yrða­kæru ofbeld­is­manns síns. Konan hafði tjáð sig um reynslu sína á Facebook síðu sinni og nefndin beitti hug­lægu mati og hafn­aði beiðni hennar. Nefndin sagði enn fremur að konan hefði komið sér í þessa stöðu sjálf með skrifum sínum. Afrit af bréf­inu sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins