„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kenning um Covid

Kenning um Covid

Þá er Covid-19-skratt­inn kom­inn aftur á fulla ferð, öllum til gleði og ynd­is­auka. Aftur fáum við að setja á okkur þröngar og illa lykt­andi and­lits­grímur og spritta hend­urnar þar til þeim blæðir. Áður en langt um líður verðum við aftur farin að bíða í röð fyrir framan Vín­búð­ina, sem nær út á bílaplan, vegna fjölda­tak­mark­ana. Jólin komu sem sagt snemma í ár.

Ég er ann­ars með kenn­ingu varð­andi þessa fjöl­hæfu og fjöl­breyttu veiru, kennda við kór­ónu. Við höfum öll heyrt hvernig veiran ræðst á lík­amann og getur valdið óbæt­an­legum skaða í verstu til­fellum, en fáir vita kannski að veiran getur lifað í fötum okkar í þrjá daga eftir að hún hefur kom­ist þangað.

Kenning mín snýr einmitt að umræddum þremur dögum. Veiran liggur þar ekki í leti, þvert á móti. Af ein­beittum brota­vilja umbreytir hún lepp­unum. Hver kann­ast ekki við að ætla út að skemmta sér eftir eins og hálfs árs ein­angrun en kom­ast svo ekki í skyrt­una eða kjól­inn sem smellpass­aði 2019? Hver kann­ast ekki við að hafa þurft ítrekað að bæta við gati á beltið sitt und­an­farin ár?

Nokkrir hafa þó sloppið við þetta, en það er helst fólk sem stund­aði á þessu tíma­bili lík­ams­rækt af kappi, heima hjá sér eða úti í nátt­úr­unni. Þið vitið. Fólkið sem birti myndir og mynd­bönd af sér á sam­fé­lags­miðl­unum á hverjum ein­asta degi, þar sem það gerði æfingar með upp­seldum ket­il­bjöllum eða hjólaði hring­inn í kringum Kleif­ar­vatn fyrir vinnu. Það fólk pass­aði enn í fötin sín eftir að fjórðu bylgju lauk. Á því er ein­föld skýr­ing. Sviti heldur veirunni frá föt­unum og þar sem þau voru alltaf að gera æfingar, náði veiran ekki að minnka fötin.

Ég held sem sagt að veiran ráð­ist á fatnað fólks og hoppi á milli þeirra í fata­skáp­unum í þrjá daga áður en hún drepst. Við þetta minnki fötin umtals­vert.

Nú er fimmta bylgjan hafin með til­heyr­andi boðum og bönnum, tak­mörk­unum og skyldum.  Hvað er hægt að gera svo fötin okkar hverfi ekki alveg? Þá meina ég fyrir utan það að hamstra ket­il­bjöllur og sippu­bönd og hlaupa um eins og asni. Núdismi gæti verið eina raun­hæfa svarið. Ég hef aldrei skilið þann isma en hann er far­inn að hljóma æ betur á tímum Covid-19. Ef þjóðin myndi sam­ein­ast í núd­ism­anum myndi sokk­ur­inn senni­lega verða jóla­gjöf númer 1 þessi jólin.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Síðast en ekki síst

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins