„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Steinar gefur út nýja plötu undir listamannsnafninu GREYSKIES: „Þetta er rétt að byrja“

Steinar gefur út nýja plötu undir listamannsnafninu GREYSKIES: „Þetta er rétt að byrja“
GREYSKIES. Mynd úr einka­safni.

Steinar Bald­urs­son er 25 ára gam­all tón­list­ar­maður, laga­höf­undur og pródúser. Hann gaf út sína fyrstu plötu árið 2013, þá aðeins 18 ára gam­all, undir nafn­inu Steinar.

Í októ­ber síð­ast­liðnum gaf Steinar út plötu undir lista­manns­nafn­inu GREYSKIES. Platan ber nafnið The Mind is Like the Moon og inni­heldur tíu lög. Hún er unnin í sam­starfi við pródús­er­inn Pálma Ragnar Ásgeirs­son.

Steinar spjall­aði við Mannlíf um plöt­una, sköp­un­ar­ferlið og það sem er fram undan.

Langaði að gera tónlist sem hann tengdi betur við

Hvað var platan lengi í vinnslu?

„Þessi plata tók mjög langan tíma. Miklu lengri tíma en allir í verk­efn­inu höfðu áætlað. Við vildum gera þetta rétt og það hafði áhrif á tím­ann sem gerð plöt­unnar tók, en alls konar póli­tík átti líka þátt í því að lengja verk­efnið tölu­vert.

Við byrj­uðum að vinna að plöt­unni í byrjun 2018 og lukum við hana í byrjun 2020. Fyrsta lagið kemur síðan ekki út fyrr en síðla árs 2020. Oft er fólk byrjað að gefa út smá­skífur af plötum áður en platan sjálf er kláruð svo þetta var tölu­vert lengra ferli en ég er vanur.

Ég var líka búinn að semja mörg lögin á plöt­unni árið 2017 svo ég fann fyrir miklum létti þegar platan kom út og ég fékk loks­ins að skila þessu verk­efni af mér. Mikið stolt og mik­ill léttir.“

Efnið á þess­ari plötu er nokkuð ólíkt því sem þú hefur áður gert, hvað réð því að þú fórst í þessa átt? Eru ein­hver ákveðin áhrif sem þú varðst fyrir?

„Það er rétt hjá þér að þetta er í allt aðra átt en það sem ég hef unnið að áður. Ég tók ákvörðun árið 2017 um að mig lang­aði að hefja nýtt tón­list­ar­verk­efni þar sem ég væri með lista­manns­nafn og þar sem ég væri að gera tón­list sem ég tengdi betur við. Tónlist sem ég sjálfur myndi hlusta á en ekki bara tón­list sem ég vissi að myndi ganga vel á Spotify og mögu­lega í útvarpi.

Ég hef alltaf verið mik­ill popptón­list­ar­maður hvað laga­smíðar varðar, en þegar það kemur að útsetn­ingum er ég oft­ast hrif­inn af lögum sem halla aðeins í átt­ina að örlítið dekkri og meira „alt­ernative“ stefnum. Í raun er gott orð yfir þessa tón­list; „alt-pop“. En það er orðið svo erf­iður leikur í dag að fara að setja tón­list eða lista­menn í ákveðna dálka, þetta er allt meira eða minna sam­suða af öllum stefnum í dag.“

Á plöt­unni má heyra nokkur áhrif frá til dæmis árunum 2005 og 2006, til að mynda í lag­inu Big Bird. Er það eitt­hvað sem þú tengir við og er með­vitað? 

„Stefnan sem var mikið að sækja í sig veðrið á þeim tíma þegar ég var að útsetja plöt­una var rokkið. Í raun­inni emo-rokkið frá fyrsta ára­tug þess­arar aldar. Svo já, það eru klár­lega áhrif af þeirri stefnu á plöt­unni og það er með­vitað. Ég hef tekið ófá giggin í gegnum tíð­ina en maður finnur það sér­stak­lega með lög eins og eru á plöt­unni; orkan og til­finn­ingin á sviði og í sal er svo miklu meiri en það sem ég þekkti áður, sem er geggjað. Ég hélt útgáfu­tón­leika á Húrra fyrir stuttu og það stað­festi fyrir mér að þessi tón­list nýtur sín best á live tón­leikum.“

Syngur um tilfinningaríkari og raunverulegri hluti en áður

Þið Pálmi Ragnar vinnið þetta saman, hver er verka­skipt­ingin á milli ykkar?

„Ég legg mikla áherslu á að semja öll lögin mín sjálfur. Fyrst og fremst horfi ég á sjálfan mig sem laga­höf­und og að pródúsera og flytja lögin er síðan bara bónus sem ég er hepp­inn að fá að gera, því það er oft erfitt fyrir laga­höf­unda að kom­ast eitt­hvað áfram ef þeir finna aldrei flytj­and­ann eða pródúser. Sömu­leiðis er erfitt fyrir söngv­ara að kom­ast eitt­hvert ef þeir hafa ekki laga­höf­unda sér við hlið eða pródúsera.

Á plöt­unni var ferlið þannig að ég sem lögin einn og stundum pródúsera ég þau gróft í ákveðna átt. Þaðan fer ég með lögin til Pálma Ragnars og hann skilur nákvæm­lega hvaða til­finn­ing er í lag­inu og pródúserar lagið þar til það er full­klárað. Að vinna með Pálma eru for­rétt­indi. Við unnum þessa plötu tveir saman í stúd­íó­inu og ég fékk að fylgj­ast með honum og vinnu­ferli hans. Það er magnað að fylgj­ast með honum og sjá hvað hann er fljótur að skynja hvað vantar og hvað virkar fyrir lög. Hann er með mjög ein­staka sýn á pródús­er­ingu og allar ákvarð­anir eru útpældar, það er voða lítið verið að skjóta bara út í loftið og vona það besta. Ég hef lært mjög mikið af öllu þessu ferli.“

Fjallar platan í heild um eitt­hvað ákveðið? 

„Nei, ég pass­aði samt að ég vildi klár­lega hafa rauðan þráð í gegnum plöt­una hvað varðar hljóð­heim­inn. Öll lögin tengj­ast hvert öðru í gegnum þennan hljóð­heim og sömu­leiðis vorum við stundum að vinna með svip­aða útsetn­ingu á gítörum og öðrum hljóð­færum til að halda þessu skyldu. Hins vegar er ég að syngja um miklu til­finn­inga­rík­ari og raun­veru­legri hluti en ég hef áður gert. Hluti sem ég hef verið að kljást við. Þótt platan í heild fjalli ekki um eitt­hvað ákveðið er ekki þar með sagt að hvert og eitt lag eigi ekki sína sögu.“

Áttu þér upp­á­halds­lag á plöt­unni?

„Upp­á­halds­lagið mitt til að spila „live“ er Eyes. Það var ekki fyrr en við tókum það á Húrra að ég fatt­aði hve gaman er að spila það og heyra „live“. Upp­á­halds­lagið af plöt­unni almennt er hins vegar annað hvort The Mind is Like the Moon eða Rhoads. Sagan á bak við hið fyrr­nefnda er mjög kraft­mikil fyrir mig og ég finn alltaf fyrir miklum krafti þegar ég hlusta á það lag. Rhoads er svo mikið „vibe“ að ég verð að hafa það með.“

Hefur mikla trú á verkefninu

Hvernig lítur lífið út þessa dag­ana, fyrir utan plötu­út­gáf­una?

„Fyrir utan plöt­una er ég að klára BS í sál­fræði/við­skipta­fræði næsta vor og er á fullu í því. Ég var einmitt að kaupa mér íbúð í vik­unni og ásamt öllu því stússi er ég byrj­aður að vinna að næstu plötu GREYSKIES. Mikið um að vera, en þannig er best að hafa það.“

Hvernig lítur þá nán­asta fram­tíð út hjá þér í tón­list­inni?

„Eina sem ég get sagt núna varð­andi GREYSKIES er að þetta er rétt að byrja. Þessu verk­efni hefur ekki verið auð­velt að koma af stað og það hefur tekið sinn tíma en þrátt fyrir það þá hefur trú mín á þessu verk­efni bara auk­ist.

Ég er byrj­aður að vinna að næstu plötu og ég veit að hún verður bara stærri. Ég vil fylgja þess­ari plötu eftir með miklu fleiri tón­leikum, sem verða til­kynntir á næst­unni en svo snýst þetta um að ljúka þeim kafla sem þessi plata er og byrja á næsta kafla. Und­ir­bún­ingur fyrir 2022 er byrj­aður og verður spenn­andi að sjá hvaða tæki­færi það ár hefur að geyma.“

Að lokum hvetur Steinar sem flesta til að kíkja á plöt­una og sjá hvort þetta sé eitt­hvað fyrir þá.

„Ef svo er, þá er klár­lega málið að kíkja á tón­leika. Mark­miðið er að halda miklu fleiri tón­leika á næst­unni.“

Það verður spenn­andi að fylgj­ast með GREYSKIES í fram­tíð­inni, bæði tón­leika­haldi og nýrri tón­list­ar­út­gáfu. Platan The Mind is Like the Moon er á Spotify og hana má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

plötuútgáfa

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Sólstöður gefa út aðra plötu sína – Suðupottur margra stíla
Menning

Sól­stöður gefa út aðra plötu sína – Suðu­pottur margra stíla

Sól­stöður gefur út sína aðra plötu. Sól­stöður er fjöl­þjóð­legt tríó sem skartar sumum af efni­leg­ustu jazztónlistarmönnum hver frá sínu heima­landi. Bandið skipa Mikael Máni á gítar, hol­lenski píanó­leik­ar­inn Stefan Bos og sviss­lenski kontra­bassa­leik­ar­inn Pierre Balda. Í Nóvember 2024 mun 2. plata hljóm­sveit­ar­innar Sól­stöður koma út. Þríeykið hefur spilað saman í nán­ast tíu ár í Hollandi, Sviss og verður þetta í...
Saki gefur út plötuna Dauðvona: „Ferlið mjög erfitt en á sama tíma mjög lærdómsríkt og gefandi“
Menning

Saki gefur út plöt­una Dauðvona: „Ferlið mjög erfitt en á sama tíma mjög lær­dóms­ríkt og gef­andi“

Tón­list­ar­mað­ur­inn Ísak Dagur Krist­jáns­son, sem ber sviðsnafnið Saki, gaf út níu laga plötu í byrjun októ­ber sem ber heitið Dauðvona. Segir hann að platan sé end­ur­komu­saga. Mannlíf heyrði í Ísak af til­efni af plötu­út­gáf­unni og spurði hann út í gerð plöt­unnar og hvaða mein­ingar séu að finna á henni. Ísak: „Platan hefur verið í vinnslu hjá mér síð­ast­liðna 18 mán­uði...
Richard Scobie snýr aftur með nýja plötu: „Eins konar óður til rokks og róls guðanna“
Menning

Richard Scobie snýr aftur með nýja plötu: „Eins konar óður til rokks og róls guð­anna“

Ein skærasta stjarna níunda ára­tug­ar­ins á Íslandi, Richard Scobie gaf úr nýja plötu þann 4. októ­ber síð­ast­lið­inn, eftir margra ára hlé frá tón­list­inni. Rokk­ar­inn Richard Scobie gaf út tíu laga sóló­plötu á dög­unum sem ber heitið Carival of Souls en hægt er að nálg­ast hana á öllum helstu streym­isveitum. Þá er einnig hægt að nálg­ast ein­ungis 300 núm­erið ein­tök af...
ÆSAR gaf út hljómplötu á miðnætti – Innsýn í hugarheim og tilfinningalíf ungs manns í Reykjavík
Menning

ÆSAR gaf út hljóm­plötu á mið­nætti – Innsýn í hug­ar­heim og til­finn­inga­líf ungs manns í Reykja­vík

ÆSAR gáfu út glæ­nýja hljóm­plötu á mið­nætti í gær­kvöldi. Hljóm­platan ÁTRÚNÓ kom út í gær­kvöld en hún er að sögn höf­unda inn­sýn í hug­ar­heim og til­finn­inga­líf ungs manns sem reynir að fóta sig í líf­inu sam­hliða því stríði sem geisar innra með honum. Í til­kynn­ingu sem barst frá ÆSUM segir sagan frá storma­sömu ást­ar­sam­bandi og til­raunum unga manns­ins við að...
Akureyrska rokkhljómsveitin Miomantis gefur út nýja plötu: „Textarnir fjalla um allskyns tjón“
Menning

Akur­eyrska rokk­hljóm­sveitin Miom­antis gefur út nýja plötu: „Text­arnir fjalla um allskyns tjón“

Föstu­dag­inn 26. júlí gefur hljóm­sveitin Miom­antis út plöt­una TJÓN. Í til­efni þess að rokk­hljóm­sveitin Miom­antis er að gefa út plöt­una Tjón næst­kom­andi föstu­dag, heyrði Mannlíf í hljóm­sveit­ar­með­limum bands­ins en hljóm­sveit­ina skipa þeir Davíð sem bæði syngur og spilar á gítar í band­inu, Daníel, gít­ar­leik­ari, Tumi, á bassa og Bjarmi sem er á trommum. Hvaða hljóm­sveit er Miom­antis? Davíð: „Miom­antis var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins