„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

16 ára sonur Helenu lagður í hræðilegt einelti: „Er kallaður nauðgari og þeir hóta að drepa hann“

16 ára sonur Helenu lagður í hræðilegt einelti: „Er kallaður nauðgari og þeir hóta að drepa hann“

„Ókei núna læt ég í mér heyra og núna segi ég STOPP!!!! Leyfið syni mínum að vera hann sjálfur. Einelti er ofbeldi sem aldrei er rétt­læt­an­legt. Einelti getur verið með baktali og sögu­sögnum, sær­andi orð­bragði og nið­ur­læg­ingu, frels­is­svipt­ingu, eigna­tjóni og lík­ams­meið­ingum. Sonur minn, já minn ynd­is­legi, blíði, fyndni og góði sonur sem vill öllum vel, hefur orðið fyrir ein­elti síð­ustu 5 árin Og fer þetta ein­elti allt fram á net­inu og ef þeir sjá hann úti er hann tek­inn og lam­inn og nið­ur­lægður. Þetta er ekk­ert nema FRELSISSVIPTING fyrir hann,“ skrifar Helena Queen í átak­an­legri færslu á Facebook um skelfi­legt ein­elti sem sonur hennar er lagður í.

Helena og fjöl­skylda búa í Breið­holti en sonur hennar stund­aði nám við Borg­ar­holts­skóla en vinnur nú í Fjöl­smiðj­unni.

„Ég er algjör­lega komin með nóg. Það eru stofn­aðir fake aðgangar á sam­fé­lags­miðlum og þar er þessi hópur af krökkum að plokka hann þannig til að ná honum og til að geta lamið hann. Þessir krakkar eru að búa til sögur og það er virki­lega ljótar sögur um hann sem eru ósannar og hann er komin með orð á sig.

Virki­lega ljótt ORÐ sem hefur ekki við rök að styðja. Já ég skal segja ykkur, hann er kall­aður NAUÐGARI  – Þessi ynd­is­legi glaði strák­ur­inn minn sem hefur alltaf verið glaður, bros­andi, hlæj­andi með húmor­inn sinn í botni er far­inn að draga sig inn í skel og far­inn að verða rosa­lega kvíð­inn og virki­lega þung­lyndur og dapur og á virki­lega erfitt með svefn og passar að allt sé lokað og læst allan sól­ar­hring­inn heima hjá okkur;
Þetta er ekk­ert nema FRELSISSVIPTING.“

Helena er ekki bara að segja ein­hliða frá­sögn af hryll­ingnum sem sonur hennar verður fyrir á degi hverjum:

„En ókei, ég veit vel að sonur minn á erfitt með sam­skipti oft, og sendir skila­boð á net­inu sem hann gerir sér alls ekki grein fyrir að sé við hæfi, hann er með sínar grein­ingar og hann er lagður í net­ein­elti vegna þess, hann kann oft ekki mörkin.
Það er enda­laust verið að gera grín af honum og sagt við hann: Ertu með ein­hverfu – og blah blah blah. Hann hefur misst marga vini út frá þessu ein­elti, þessir krakkar eru að reyna að rústa hans lífi.

Hann meðal ann­ars flosn­aði upp úr fram­halds­skóla vegna stans­lauss áreitis frá krökkum úr skól­anum, hann fór að vinna og þar eru sögu­sagnir komnir þar líka frá krökkum sem eru að reyna að skemma hans mann­orð á vinnu­staðnum.“

Helena segir frá því að hún hafi frétt frá vin­konu sinni „að það er víst búið að stofna aðgang á TikTok og þar eru birtar myndir af hvar við búum og nafnið á mér og pabba hans og ýmis­legt fleira.

Í síð­ustu viku þurfti ég að fara á sótt­varn­ar­hót­elið og dvelja þar með litlu stelpuna mína sem greind­ist með covid, en vegna ástands­ins heima fyrir með áreitið frá krökk­unum í garð sonar míns, þá þurfti ég að fara heim.

Það var komið og hent grjóti í rúð­urnar heima hjá okkur og fékk ég sím­tal frá nágranna mínum sem upp­lýsti mig um það. Svo er eldri systir hans að fá skila­boð um það, að ef hún borgar ekki ákveðna upp­hæð þá dreyfir sá aðili á netið og í eigin per­sónu að bróðir hennar sé perri.“

Hún bætir við:

„Svo gerð­ist það fyrir nokkrum dögum síðan að besti vinur sonar míns var tek­inn og lam­inn, ein­fald­lega bara fyrir það að vera vinur hans; sonur minn kennir sjálfum sér um það ofbeldi sem vinur hans varð fyrir.

Ég þurfti að láta hann eyða út snapchatinu sínu í gær vegna enda­lauss áreitis, þeir ein­fald­lega stoppa ekki. Ég fékk að sjá virki­lega ljót skila­boð sem voru látin falla í þess­ari grúbbu.

Til dæmis sögð­ust þeir hóta að drepa hann og vilja hann bara dauðan, hann er ógeðs­legur, hann er þroska­heftur, hann sé veikur að geði, hann er nauð­gari, hann sé perri og þeir ætla ekki að hætta fyrr en hann er dauður.

Þessi hópur er búinn að upp­lýsa hann um það að þegar hann mun fara út úr húsi þá mun hann verða lamin mjög illi­lega og hafa þeir hótað honum líka líf­láti.

Helena bendir á að „meðal ann­ars eru þeir búnir að dreifa fleiri vid­eóum af fleiri fórna­lömbum þar sem miklar lík­ams­meið­ingar eru í gangi. Svo á ég videó af því þegar sonur minn var tek­inn fyrir og lam­inn illi­lega en sem betur fer var hann með hjálm þar sem hann var á vesp­unni sinni þegar þetta atvik átti sér stað, þeir rifu hann af vespuni og þeir spörk­uðu svo heift­ar­lega í haus­inn á honum að þetta var frekar mjög bru­tal sjón að sjá – og þessir krakkar eru enn þá að deila þessu vid­eói og gera grín og hlæja af honum og þeim finnst þetta virki­lega fyndið.

Þessir krakkar níð­ast á þeim ein­stak­lingum sem fitta ekki inn í normið. Einelti er sam­fé­lags­mein sem okkur öllum kemur við og allir eiga að taka alvar­lega, ein­elti er sár stað­reynd, en þrátt fyrir það sann­leikur Einelti er sál­ar­morð og ekk­ert annað en sál­ar­morð.

Þetta er komið gott, leyfið syni mínum að fá frið og leyfið honum að vera hann sjálfur.

Leyfum ekki ein­elti að þríf­ast í okkar sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var semsagt algengt uppnefni á rauðhærðum strákum í þá tíð“
InnlentEinelti

Agli var strítt í æsku: „Þetta var sem­sagt algengt upp­nefni á rauð­hærðum strákum í þá tíð“

Egill Helgason segir frá ein­elti sem hann varð fyrir í æsku, í nýrri Facebook-færslu. Einelti hefur lengi verið þjóð­ar­böl, eða jafn­vel mann­kyns­böl en Egill Helgason rifjar upp það sem hann varð fyrir í æsku, þó hann nefni aldrei orðið ein­elti, í Facebook-færslu. „Þegar ég var strákur var ég stundum kall­aður Skalli. Þetta fór óskap­lega í taug­arnar á mér. Vinir mínir...
Katrín um stöðu eineltismála á Íslandi: „Hún virðist hafa versnað“
InnlentEinelti

Katrín um stöðu ein­elt­is­mála á Íslandi: „Hún virð­ist hafa versnað“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ríki, sveit­ar­fé­lög og skólar þurfi að taka höndum saman og vinna bug á þró­un­inni. For­sæt­is­ráð­herra segir að þessu erf­iðu og grófu mál valdi sér miklum áhyggjum, að staðan hafi greini­lega versnað: „Hún virð­ist hafa versnað og við sjáum að þetta gengur stundum yfir í bylgjum og við erum greini­lega stödd í slíkri bylgju og þar...
Mægðurnar í Hafnarfirði á leiðinni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“
InnlentEinelti

Mægð­urnar í Hafn­ar­firði á leið­inni til Flórída: „Þakk­læti er ekki nægi­­lega stórt orð“

Sædís Hrönn Sam­ú­els­dóttir og 12 ára dóttir hennar, Ísabella Von, eru á leið til Flórída á næst­unni eftir að frænka stúlkunnar, Ingi­björg Gróa Gunn­ars­dóttir safn­aði fyrir ferð mæðgn­anna. „Stuðn­ingur og styrkur sam­landa okkar skilur okkur frænkur eftir orð­­lausar & meyrar! Rétt í þessu til­­kynnti ég Ísa­bellu Von að þökk sé fram­lagi yfir hund­ruði sam­landa okkar sé hún og móðir hennar...
„Hvernig dettur fréttastofu í hug að fara fram með þessum hætti?“
InnlentEinelti

„Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti?“

Sig­ur­þóra Bergs­dóttir, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Bergsins, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún hafi horft „í for­undran á frétta­flutn­ing Rúv og fleiri af ein­elt­is­máli og afleið­ingum þess fyrir þol­anda í gær. Hvernig dettur frétta­stofu í hug að fara fram með þessum hætti? Að mæta heim til 12 ára stúlku og móður hennar dag­inn eftir þeirra allra versta dag. Þar...
Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir einelti í Hafnarfirði:„Hún er enn þá uppi á spítala“
InnlentEinelti

Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir ein­elti í Hafn­ar­firði:„Hún er enn þá uppi á spít­ala“

Tólf ára dóttir Sædísar Hrannar Sam­ú­els­dóttur dvelur nú á sjúkra­húsi eftir að hafa reynt að svipta sig lífi. Hún hefur orðið fyrir langvar­andi ein­elti í Hafn­ar­firði og ofbeldi af hálfu jafn­aldra sinna og hefur stúlkan unga ekki mætt í skól­ann lengi. Ein af skila­boð­unum sem dóttirin unga hefur fengið send. „Hún er enn þá uppi á spít­ala. Hún reyndi að...
Íris í Vestmannaeyjum: „Nú liggur sem sagt niðurstaðan fyrir: ekkert einelti“
InnlentEinelti

Íris í Vest­manna­eyjum: „Nú liggur sem sagt nið­ur­staðan fyrir: ekk­ert ein­elti“

Íris Róberts­dóttir bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyjum gerir upp ein­elt­is­málið sem legið hefur á henni eins og mara: „Nú liggur fyrir end­an­leg og afdrátt­ar­laus nið­ur­staða óháðra og lög­giltra fag­að­ila þess efnis að ásak­anir um að ég hafi beitt til­tek­inn ein­stak­ling ein­elti hafi ekki átt við nein rök að styðj­ast.“ Íris ljær máls á því að „stað­hæf­ingar við­kom­andi um ein­elti fái enga stoð...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins