Sandra Ósk Jóhannsdóttir, 21 árs sálfræðinemi við Háskóla Íslands, HÍ, fékk Covid í maí síðastliðnum og er enn að kljást við eftirköst. Hún segir lungu sín eyðilögð. Eftir sjúkdóminn hefur Sandra barist fyrir því að nemendur við HÍ fengju að taka heimapróf en var þess í stað skipuðu í kennslustofu með öðrum nemendum sem reyndust Covid-sýktir.
HÍ sendi henni tilkynningu þessa efnis klukkutíma fyrir næsta próf Söndru og telur hún engan vafa leika á því að það hafi haft áhrif á frammistöðu sína í prófinu skömmu síðar:
„Ég gat ómögulega lært eftir að ég fékk þessar fréttir, fór bara í andlegt áfall og það var engin leið að hugga mig.“
Sjá einnig: Sandra sálfræðinemi fékk Covid: „Lungun mín eru eyðilögð og ég bara 21 árs.“
Læknar hafa ekki viljað taka röntgenmynd af lungum Söndru þrátt fyrir mikla öndunarörðugleika. Þeir segja henni að hún sé með kvíða.
„Ég gat ekki sofnað fyrr en klukkan hálf 7 í morgun þar sem ég náði ekki andanum í alla nótt. Pabbi þurfti að kíkja á mig í alla nótt til að vera viss um að ég væri ekki meðvitundarlaus. Ekki segja mér að covid sé eins og venjuleg flensa. Lungun mín eru eyðilögð og ég bara 21 árs.“
Sandra er virkilega svekkt út í HÍ. „Ég var sjálf að berjast fyrir heimaprófum fyrir ári og svo lendi ég í þessu. Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því hvers vegna við erum búin að vera að berjast fyrir heimaprófum,“ sagði Sandra í samtali við Vísi. Og hún bætir við:
„Þetta er versta martröð hvers nemanda í heimsfaraldri, að vera nálægt smituðum einstaklingi í prófum. Núna líður mér alls ekki öruggri í byggingum skólans. Miðað við þessar fréttir þá er það eina rétta í stöðunni að hafa heimapróf sem valkost og það ætti að vera sjálfsagt í heimsfaraldri. Það er það eina rétta í stöðunni miðað við að þau eru nú þegar búin að leggja nemendur í hættu, þau eru búin að leggja pabba minn sem er í áhættuhópi í hættu.“


























Athugasemdir