„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

KSÍ lagði áherslu á að leyna atviki Arons og Eggerts „því annar leikmaðurinn átti kærustu“

KSÍ lagði áherslu á að leyna atviki Arons og Eggerts „því annar leikmaðurinn átti kærustu“
Aron Einar Gunn­ars­son og Eggert Gunnþór Jónsson

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands, KSÍ, lagði áherslu á að leyna frá­sögn um meint kyn­ferð­is­brot lands­l­is­mann­anna Arons Einars Gunn­ars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar, vegna þess að „annar leik­mað­ur­inn hefði átt kær­ustu sem ekki hefði mátt kom­ast að því hvað hefði gerst.“ Þetta kemur fram í skýrslu úttekt­ar­nefndar ÍSÍ um mál­efni KSÍ.

Þar kemur fram að aðilar sem tengd­ust íslenska karla­lands­lið­inu í fót­bolta hafi vitað af meintu broti og að „eitt­hvað sem átti ekki að ger­ast hafi gerst í þess­ari ferð“ án þess að þeir hinir sömu teldur sig „geta full­yrt hvað hefði gerst.“ Úttekt­ar­nefndir ritar að svona hafi málið litið út sam­kvæmt frá­sögnum starfs­manna:

Það hefði lotið að því að tveir lands­liðs­menn hefðu verið með stelpu uppi á her­bergi hjá sér.

Í við­tali við nefnd­ina við­ur­kenndi Guðni Bergsson, fyrr­ver­andi for­maður KSÍ, að Aron Einar hafi minnst á atvikið að fyrra bragði við hann í sím­tali í júlí­mán­uði síð­ast­liðnum. Við­ur­kenndi Aron þá að hafa átt kyn­ferð­is­leg sam­skipti við kon­una en neit­aði því að hafa beitt hana ofbeldi. Svona segir í skýrsl­unni:

„Að sögn Guðna sagði C að hann hefði átt kyn­ferð­is­legt sam­neyti við Z ásamt öðrum leik­manni en hafn­aði því alfarið að þeir hefðu brotið á henni. Mun C hafa látið svo um mælt við Guðna að lýs­ingin væri ekki í sam­ræmi við hans upp­lifun og að hann ætl­aði ekki að játa á sig eitt­hvað sem hann hefði ekki gert.“

Mannlíf opn­aði á mál Arons og Eggerts síð­ast­liðið sumar þegar greint var frá frá­sögn konu sem steig fram í opinni fræslu sem fórn­ar­lamb kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar af hendi tveggja lands­liðs­manna.

Sjá einnig:

Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

„Ég ligg and­vaka, get ekki hætt að hugsa um alla sem hafa þurft að upp­lifa það sama og ég. Upplifa skömm, reiði, sorg, upp­gjöf, van­trú á sínar eigin til­finn­ingar og upp­lif­anir“.

Á þessum orðum hefst frá­sögn kon­unnar en hún treysti sér hvorki til að nafn­greina þá né koma fram undir nafni.

Konan segir að atvikið hafi átt sér stað árið 2010 af tveimur íslenskum mönnum en atvikið átti sér stað erlendis. Hún seg­ist hafa verið að skemmta sér og hefur þá grun­aða um að hafa sett eitt­hvað út í glasið sitt. „Ég ældi yfir annan þeirra í leigu­bílnum á leið á hót­elið þeirra, svo aftur í rúmið á hót­el­inu en þeir létu það ekki stoppa sig og skipt­ust á að nauðga mér þar sem ég lá í rúm­inu ber að neðan með ælu í hár­inu, and­lit­inu og föt­unum“.

Hún segir frá því að það fyrsta sem annar mann­anna hafi sagt við hana dag­inn eftir hafi verið „Vóóó ekki kæra mig fyrir nauðgun“ og hló. Hún segir að þó það séu nærri liðin 11 ár frá atvik­inu komi ekki sá dagur að þetta skjóti ekki upp koll­inum í huga hennar. „Þetta rændi mig svo mörgu. Sjálfs­traustinu, gleð­inni, tæki­færum og upp­lif­unum“.

Þá segir konan að staðið hafi til að kæra menn­ina og hún var komin með lög­fræð­ing, fór í skýrslu­töku hjá lög­reglu en hvar sem hún kom var henni tjáð það að þetta væri mjög erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér.  Hún var einnig spurð um það hvort hún væri viss um að hún vildi leggja þetta á sig. „Eftir margra mán­aða bið ákvað ég svo að leggja málið niður, var ekki nógu sterk, gat ekki lagt meira á mig and­lega. Þessir menn voru þekktir, annar þeirra þjóð­þekktur í dag“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins