Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðisbrot gegn barni. Brotið átti sér stað að kvöldi þann 5.apríl 2021 í skýli á bak við hús á Akureyri.
Maðurinn sem er ákærður lét 13 ára stúlku hafa við sig munnmök, hafði við hana samræði og endaþarmsmök.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri fyrr í vikunni.
Þá er þess krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar auk greiðslu sakarkostnaðar.
Móðir stúlkunnar sem er ólögráða gerði kröfu um fimm milljóna króna miskabætur fyrir hennar hönd.
Fréttablaðið fjallaði um málið.























Athugasemdir