„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Frískápur rís á Akureyri: „Gríðarlega mikil matarsóun og margir í þörf en þetta er fyrir alla“

Frískápur rís á Akureyri: „Gríðarlega mikil matarsóun og margir í þörf en þetta er fyrir alla“
Hrönn Björg­vins­dóttir. Mynd: Youtube

Amts­bóka­safnið á Akureyri ætlar að stíga athygl­is­vert skref til þess að sporna við mat­ar­sóun. Bóka­safnið hefur ákveðið að setja upp svo­kall­aðan frí­skáp þar sem hægt verður að gefa mat og fólk getur náð sér í mat­væli. RÚV greinir frá þessu.

Þetta er ekki fyrsti frí­skáp­ur­inn sem rís hér á landi en í upp­hafi árs komu þau Kamila Walijewska og Marco Pizzolato slíkum ísskáp fyrir við Berg­þóru­götu 20 í Reykja­vík.

Alþjóðleg hreyfing

Um er að ræða alþjóð­lega hreyf­ingu með það að mark­miði að draga úr mat­ar­sóun og má ætla að með frum­kvæði þeirra Kamilu og Walijewska, og svo fram­taki Amts­bóka­safns­ins, sé hreyf­ingin að taka sér ból­festu hér á landi. Hópurinn Frí­skápur Reykja­vík á Facebook telur nú um 4.000 með­limi, en í jan­úar voru með­limir hóps­ins um 2.500 tals­ins. Þar getur fólk látið vita þegar það fyllir á frí­skáp­inn á Berg­þóru­götu.

Amts­bóka­safnið á Akureyri. Mynd/skjá­skot RÚV.

Áform um fleiri frískápa

Hrönn Björg­vins­dóttir, verk­efna­stjóri á Amts­bóka­safn­inu og ein þeirra sem kemur að verk­efn­inu, segir að um sé að ræða almenn­ings­ís­skáp þar sem ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki geti skilið eftir mat og svo geti hverjir þeir sem vilja fengið sér.

Hrönn segir að ísskápar í dag þoli ekki hörku­frost eins og oft er á Akureyri. Flestir þeirra þoli ekki að standa úti í meira en 5 gráðu frosti. Þau séu því að leita eftir ákveð­inni teg­und af ísskáp sem þoli frosta­vet­urna fyrir norðan. „Þannig að við erum að leita að gömlum freon ísskáp, þeir þola ansi mik­inn kulda,“ segir Hrönn í sam­tali við RÚV.

Hún segir áform uppi um fleiri frí­s­kápa víða um land. „Þessa dag­ana eru hópar víða um land að koma upp sam­bæri­legum ísskápum.“

Hrönn seg­ist telja mikla þörf á fram­taki sem þessu. „Bæði er gríð­ar­lega mikil mat­ar­sóun og eins eru margir í þörf en þetta er fyrir alla.“

Hún segir þetta ekki snú­ast um að fólk þurfi endi­lega að fá ókeypis mat. Þetta sé liður í því að sporna við mat­ar­sóun og nýta það sem þegar er til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins