„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Logi Einarsson var látinn dansa – Lenti illa í hruninu og fór beint á fund hjá stjórnmálaflokki

Logi Einarsson var látinn dansa – Lenti illa í hruninu og fór beint á fund hjá stjórnmálaflokki

 „Málið er af þeirri stærð­argráðu að það er ófært að láta það liggja og leyfa þjóð­inni ekki að taka ákvörðun um fram­haldið,“ segir Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, um ESB, í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni, en umræðan um aðild að ESB er komin aftur á dag­skrá og for­mað­ur­inn spurður hversu bjart­sýnn hann sé á að við náum að klára þetta mál.

„Það í raun­inni liggur til grund­vallar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn leggja fram um að það verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að taka upp þráð­inn og halda áfram. Bjarni hefur vissu­lega talað um þennan póli­tíska ómögu­leika sem hann kokk­aði upp heima hjá sér eftir að 70% þjóð­ar­innar höfðu 2014 minnir mig lýst því yfir að þau vildu klára samn­ing­inn. En síðan er það auð­vitað mark­laust vegna þess að við erum með for­sæt­is­ráð­herra núna sem leiðir flokk sem er and­vígur NATO en þjóðar­ör­ygg­is­stefnan er bein­línis nefnd í rík­is­stjórn­ar­sátt­mál­anum og hún hefur auð­vitað mætt á alla leið­toga­fund­ina. Þannig að ég held að það sé ekk­ert í veg­inum til að minnsta kosti að hún og hennar flokkur og jafn­vel Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn taki undir þau sjón­ar­mið með okkur. Katrín sjálf var aðili að svona þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fyrir nokkrum árum og mælti fyrir henni. Þar tal­aði hún einmitt um að málið væri af þeirri stærð­argráðu að það væri lýð­ræð­is­mál að leyfa þjóð­inni að segja sína skoðun á því.“

Er Logi til­bú­inn að taka því ef þjóðin myndi síðan á end­anum hafna aðild?

„Já. Það er þá bara komin ný staða upp og þá frest­ast málið um ein­hver ár. Sú umræða getur þá end­ur­nýjað sig. Við sjáum hvernig þetta er í Noregi. Þeir reyndu tvisvar og það var fellt tvisvar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu; aðild að samn­ingi reyndar. Við erum að tala um tvö­falda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Við erum fyrst að tala um að þjóðin lýsi því yfir að hún vilji eða vilji ekki halda áfram við­ræðum og ef hún vill það þá yrði klár­aður samn­ingur og þjóðin aftur spurð.“

Þegar Logi er spurður hverjir honum finn­ist vera mestu kost­irnir við aðild að ESB nefnir hann að hann vilji fyrst halda því til haga að ESB sé frelsis- og frið­ar­banda­lag Evr­ópu­þjóða þar sem þær leiti leiða til að vinna í sátt og sam­lyndi og opna til dæmis á við­skipti, för sín á milli og nám. Hann segir að það séu stærstu rökin og kannski ekki rökin sem voru mest rædd á sínum tíma, sem voru efna­hags­rökin.

stærstu fyr­ir­tæki lands­ins eru löngu búin að yfir­gefa krón­una og gera öll upp í evru.

„Efna­hags­rökin eru marg­vís­leg. Það er auð­vitað aðild okkar að ákvörð­unum, það er aðild okkar að þessum risa­stóra 500 millj­óna mark­aði og það er auð­vitað mögu­leiki á að taka upp stóra og stöðuga mynt sem sveifl­ast ekki eins og lauf í vindi. Bara í dag er það til dæmis þannig að kostn­aður vegna vaxta­greiðslna hjá fólki og fyr­ir­tækjum er um 200 millj­ónir. Þau sem eru á móti þessu segja á móti að það sé svo hag­stætt að hafa svona litla mynt að það sé hægt að stýra henni og fella gengi og láta það falla hvernig sem menn gera það. En þá er allt í lagi að hafa það í huga í fyrsta lagi að það er alltaf almenn­ingur sem blæðir þegar krónan veik­ist. Og stærstu fyr­ir­tæki lands­ins eru löngu búin að yfir­gefa krón­una og gera öll upp í evru.“ Logi nefnir líka nýja heims­mynd þar sem öryggis- og varn­ar­mál og frið­arfakt­orar spila inn í.

Ég var látinn dansa

Logi Ein­ars­son fædd­ist og ólst upp á Akureyri á 6. ára­tugnum. Árin liðu fyrir norðan og út um allan heim og strák­ur­inn stækk­aði og þroskað­ist. Og hann var með­limur hljóm­sveit­ar­innar Skrið­jökla um tíma.

Þetta varð furðu­lega vin­sælt miðað við hvað þetta var nú efn­is­rýrt.

„Við vorum ærsla­fullur hópur af ungum piltum. Þetta voru reyndar tveir hópar. Þetta voru tveir áber­andi hópar sem voru báðir að fást við músík og eld­uðu svo­lítið grátt silfur saman og var svona frekar í nöp við hverja aðra; þessir hópar sem runnu svo saman í Skrið­jökla. Síðan held ég að það hafi verið ein­hvers staðar niðri í bæ í ein­hverju skemmti­húsi sem við hugs­uðum að þetta væri óþarfi og við ættum að verða vinir og þá runnu saman tvær fimm til sex manna klíkur og við bjuggum til Skrið­jökla. Fyrst og fremst held ég nú að það hafi verið gert til þess að kom­ast ókeypis inn í Atlavík og svo varð ekk­ert aftur snúið. Þetta varð furðu­lega vin­sælt miðað við hvað þetta var nú efn­is­rýrt. En við höfðum gaman og í nokkur ár var þetta til og við ferð­uð­umst um landið og okkur gafst tæki­færi til þess að vera í sam­vistum. Þetta var meira eins og félags­heim­ili. Við vorum orðnir 10 og það var ekki hægt að koma öllum á hljóð­færi og þá var farið í að velja þá sem voru skástir á hljóð­færi og við hinir fengum bara annað hlut­verk. Ég var lát­inn dansa og einn annar, einn var í miða­söl­unni og einn keyrði rút­una. Það var eng­inn skil­inn út undan. Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið jafn­að­ar­mennskan í hnot­skurn,“ segir for­mað­ur­inn sem seg­ist vera slark­fær á gítar.

Logi flutti svo til Noregs tveimur eða þremur árum eftir stofnun Skrið­jökla þar sem hann lærði arki­tektúr. „Það var samt þannig að þegar ég kom í jóla­frí eða sum­ar­frí þá var alltaf kallað í mann „komdu með“.“

Fylgdi Skrið­jöklum mikið sukk?

„Jú, óþarf­lega mikið, senni­lega. En eins og er hjá ungu fólki oft, en eftir á að hyggja þá óska ég þess ekki að börnin mín geri þetta. En flestir höfum við þroskast frá því. Við vorum margir í íþróttum líka sam­hliða þessu og það varð ein­hver hem­ill á þessu. Auðvitað ekki sá stand­ard sem gerður er á íþrótta­menn í dag, enda urðum við ekk­ert sér­stak­lega góðir, en það varð þó til þess að við urðum að passa okkur til að verða leik­færir. “

Þetta var alveg framandi fyrir mig

Jú, Norge var það.

„Ég var alltaf póli­tískur. Ég var vinstri­s­inn­aðri en ég er í dag. Ég var sem mennta­skóla­strákur í Alþýðu­banda­lag­inu. Ég fór svo til náms í Noregi í sex ár og þar auð­vitað fylgd­ist ég með stjórn­málum og þar aðhyllt­ist ég hóf­sama miðju­vinstri­stefnu sós­í­alde­mókrata og Gro Harlem Brundtland for­sæt­is­ráð­herra. Kom svo til baka póli­tískur en ekki þátt­tak­andi í póli­tík. Þegar ég fór að hugsa málin og búinn að vinna í nokkur ár sem arki­tekt þá fannst mér það fag vera ágætis bak­grunnur og ekk­ert verri bak­grunnur inn í stjórn­málin en til dæmis stjórn­mála­fræði og lög­fræði. Þetta er ein­hvers konar vinna þar sem þú færð þjálfun í því að fá hug­mynd og gera hana að veru­leika og byggja á ein­hverjum strúktúr og konstrúk­sjónum. Það þarf að gera það í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lög, verk­kaupa, iðn­að­ar­menn, verk­fræð­inga og marga aðra. Þannig að að mörgu leyti fannst mér þetta henta mér. Síðan gerð­ist það í hrun­inu að ég lenti illa í því; búinn að byggja hús eins og margir og í stað­inn fyrir að vera bitur þá fannst mér tvennt vera í stöð­unni fyrir mig: Það var ann­að­hvort að fara niður á torg og berja á bumbur eins og margir gerðu sem betur fer, og það var gott hjá fólki að gera það, eða bara að fara beint á fund hjá stjórn­mála­flokki og reyna að vinna þaðan. Það var eng­inn vafi í mínum huga hvorum megin ég ætti að vera, í Vinstri grænum eða Sam­fylk­ing­unni. Sam­fylk­ingin tal­aði inn í mínar hug­sjónir og það var bara byrj­unin á þessu.“

Missti Logi þá allt í hrun­inu?

„Nei, alls ekki.“

Logi seg­ist hafa farið í próf­kjör eftir að hafa verið búinn að vera í flokknum í tvær vikur. „Ég fór í opið próf­kjör hjá Sam­fylk­ing­unni 2009 og lenti í 3. sæti í próf­kjör­inu en settur niður um eitt sæti á lista bara vegna kynja­kvóta sem var ósköp eðli­legt. Og það gaf mér vara­þing­manns­sæti og ég held að á árunum 2009-2013 hafi ég ratað þrisvar eða fjórum sinnum inn án þess að vita mikið hvað ég væri að gera. Þetta var alveg fram­andi fyrir mig. Það varð síðan til þess að ég fór út í bæj­ar­málin og var þar í nokkur ár áður en ég tók svo við odd­vita­sæti á lands­vísu.“

Samfylkingin komin nær miðjunni

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar var 32% þegar bar­áttan stóð sem hæst og svo hrundi allt. Logi var bjarg­hring­ur­inn fyrir norðan sem bjarg­aði því að flokk­ur­inn hvarf ekki. Hvað klikk­aði?

„Ég held að það sé erfitt að svara því nákvæm­lega hvað klikk­aði. Ég held það hafi verið margir sam­verk­andi þættir, bara eins og alltaf þegar maður ein­hvern veg­inn lendir í óhappi. Við þekkjum öll þær aðstæður þegar maður stendur í eld­hús­inu og maður sér að boll­inn er að detta og í stað­inn fyrir að láta hann bara detta þá seilist maður eftir honum og rífur í raf­magns­snúr­una í leið­inni og rennur svo á kaff­inu og slær niður borðið og allt. Ég held að við höfum færst of mikið í fang eftir hrun, þessi rík­is­stjórn sem þá var. Ég held að sam­tímis því að vera að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, að ætla að gjör­breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og sam­þykkja nýja stjórn­ar­skrá hafi kannski verið of mikið fyrir þjóð sem auð­vitað tróð bara mar­vað­ann, var að vinna frá degi til dags og átti erfitt með að átta sig á því að hún lifði í sam­fé­lagi sem bein­línis fór á haus­inn vegna óvar­kárni og glæfra­mennsku hjá banka­fólki.“

Logi seg­ist halda að það hafi verið of margir boltar á lofti í einu. „Og ég held til dæmis að það hafi verið býsna mikið verk­efni að rétta við þjóð­ar­búið, reisa grunn­inn að nýrri upp­sveiflu og vel­sæld og ég held að, að mörgu leyti hafi þess­ari rík­is­stjórn tek­ist mjög vel upp þar. Ég held að sagan muni dæma hana miklu betur en ræðu­skrif­ar­arnir í Valhöll eru að gera núna. Ég held að þær aðgerðir sem ráð­ist var í við for­dæma­lausar aðstæður þar sem ekki var lánsfé, þar sem þjóðin var nán­ast gjald­þrota og rík­is­sjóður, og það þurfti að grípa til margra aðgerða sem voru vissu­lega sárs­auka­miklar; það var þó gert á þann hátt að það var reynt að hlífa þeim sem höllustum fæti standa og eng­inn skal halda öðru fram en að það hafi verið sjón­ar­miðið sem hafi verið ráð­andi hjá Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­grími J. Sig­fús­syni, hvað sem fólki finnst svo um þau ann­ars.“

Við töldum að Vinstri græn vildu vinna til vinstri frá miðju.

Logi segir að það eigi ekki að loka aug­unum fyrir því að svipuð þróun hefur átt sér stað mjög víða. „Það verða til fleiri og fleiri flokkar; flokkar um kannski þrengri mál­efni. Við sjáum nátt­úr­lega Pírata, Viðreisn, Bjarta fram­tíð, Flokk fólks­ins og Sós­í­alista; innan um er þarna að minnsta kosti fjöldi fólks sem getur verið sam­mála okkur um mjög stór mál. Mín skoðun er sú að það verk­efni okkar að reyna ein­hvern veg­inn –fyrst við gátum ekki sam­einað alla jafn­að­ar­menn innan flokks­ins – að sam­eina þá í rík­is­stjórn. Það tókst ekki. Við töldum að Vinstri græn vildu vinna til vinstri frá miðju. Það virt­ist ekki vera; þau gáfu nú bara út yfir­lýs­ingu viku fyrir kosn­ingar að óska­stjórnin væru sú sama og þau sátu í. Og þá þurfum við bara að prófa nýtt leik­skipu­lag.“

Logi segir að margir hafa talað um að hann eða þing­flokk­ur­inn hafi fært flokk­inn til vinstri. „Ég held að þetta sé allt ofmetið. Einn maður eða nokkrir færa ekk­ert flokk svona einn, tveir og þrír. Við erum auð­vitað með mjög stórt og þungt batt­erí sem heitir flokks­stjórnir og lands­fundir og annað slíkt og við höldum okkur við álykt­anir þaðan. En það er auð­vitað þekkt hins vegar bara í nátt­úr­unni, að það er kannski umhverfið sem er á fleygi­ferð í kringum þig og ég held að við það að ganga í svona rík­is­stjórn, ekki einu sinni heldur í tvígang, þá hafi Vinstri græn miklu frekar skil­greint sig á öðrum stað en þau voru á.“

Er Sam­fylk­ingin kannski komin nær miðj­unni?

„Já.“

Logi sagði að þetta snú­ist ekki um ein­stak­linga, en snýst þessi rík­is­stjórn ekki fyrst og fremst um Katrínu Jak­obs­dóttur og það sem hún vill?

„Jú, ég held hún hafi þann stuðn­ing í sínum flokki að hún getur gert nán­ast hvað sem er. Ég held að reynslan sýni okkur það. Mér finnst til umhugs­unar ein­hvern veg­inn hvernig stjórn­mál hafa verið að breyt­ast á liðnum ára­tugum frá því að for­ysta flokka í raun­inni tal­aði fyrir stórum sam­fé­lags­breyt­ingum, fram­tíð­ar­málum og öfl­uðu sér til fylg­is­manna sem fylktu sér á bak við þá, að þá hög­uðu þeir sér frekar eins og vatnið núna; þeir leit­uðu að þeim leiðum þar sem var lík­leg­ast að það færi, hvað er lík­leg­ast að fólk vilji og hvað er lík­leg­ast að verði vin­sælt. Ég held að þetta í raun­inni end­ur­spegli stjórn­mál dálítið vel í dag, því miður.“

Ná hreðjatökum á samfélaginu

Logi er jú að norðan, úr höf­uð­vígi Samherja. Hvað finnst honum um Sam­herj­a­málið?

„Ég held að ég sé á ólíkri skoðun miðað við marga í kjör­dæm­inu og ekki síst í sjáv­ar­út­vegs­málum. Ég hef aldrei farið dult með það að mér finnst sjáv­ar­út­vegs­kerfið ósann­gjarnt. Mér finnst sjáv­ar­út­vegs­kerfið líka hættu­legt, vegna þess að í skjóli þess­ara ódýru afla­heim­ilda sem útgerð­ar­fyr­ir­tækin fá, þá hafa þau getað vaxið gríð­ar­lega. Þau hafa getað hreiðrað um sig í alls konar atvinnu­greinum og þau ná hreðja­tökum á sam­fé­lag­inu hvort sem þau beiti því með­vitað eða ómeð­vitað. Vegna þess að völd eru af mörgu tagi; það er til beint vald, en það er líka til áhrifa­vald og það er hættu­legt. Þannig að ég er ekk­ert feim­inn við að segja það, að þó að Samherji sé í mínu kjör­dæmi, þó að Síld­ar­vinnslan sé í mínu kjör­dæmi og þó að Brim sé stór leik­andi líka á norð­aust­ur­svæð­inu, þá telji ég að það þurfi að end­ur­hugsa þetta kerfi með meira rétt­læti í huga, þannig að þjóðin fái meira af auð­lind­inni. En af því að þú nefndir Samherja, þá geri ég ráð fyrir að þú sért líka að hugsa um Namib­íu­málið. Það mál er í rann­sókn en ýmis­legt bendir til þess að þar hafi mjög óhuggu­legir hlutir verið fram­kvæmdir.“

Hverju myndi Logi breyta fyrst í sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu, kvóta­kerf­inu, ef hann hefði völd til þess?

Það er ákvæði um sjálf­bærni og auð­vitað þjóð­ar­eign­ina.

„Það er þrennt sem þarf að koma inn í stjórn­ar­skrá fyrir það fyrsta. Það er ákvæði um sjálf­bærni og auð­vitað þjóð­ar­eign­ina. Síðan er það ákvæði um tíma­bind­ingu afla­heim­ilda og loks er það ákvæði um gjald­töku. Ákvæðið sem Katrín lagði ein og sér á borðið síð­asta vor tal­aði meira að segja um það að það mætti taka gjald vegna afla­nýt­ingar í ágóða­skyni. Ég vil meina að ef hún er búin að skil­greina gjald­töku vegna veiða í ábáta­skyni þá eigi ekki að gefa neinn afslátt frá fullu gjaldi. Fólk getur svo deilt um hvaða leið sé best að því. Er það gert með veiði­gjöldum? Ég hall­ast að því að mark­aðs­leið sé einna gáfu­leg­ust til þess. Þar tryggjum við að minnsta kosti að útgerð­irnar borgi nógu hátt verð til þess að það sé ein­hver trygg­ing fyrir því að þjóðin sé að fá það sem hún á skilið.“

Hvað með strand­veiði­skipin? Hvað vill Logi gera varð­andi þau?

„Við eigum að horfa á strand­veiðar með víð­ari augum eins og stærri útgerð­irnar vilja gera; hvað sé lík­leg­ast til að skila hámarks­verð­mæti afla. Þetta er líka menn­ing­ar­legt fyr­ir­bæri. Þetta er líka spurn­ing um byggð í öllu land­inu. Þannig að ég held að það verði að taka það allt með í reikn­ing­inn. Ég held að það hafi verið afskap­lega vont skref hjá ráð­herra núna að draga úr afla­heim­ild­unum, meira að segja án þess að breyta nokkuð kerf­inu sem er til staðar vegna þess að það eru miklar líkur á því að um miðjan júlí verði búið að veiða allt í þessu kerfi áður en fisk­ur­inn er geng­inn austur fyrir land. Þannig að það þarf ein­hvern veg­inn að brjóta þetta upp sam­hliða. Það þýðir ekki að hræra bara í þessum tonna­tölum. Það þarf ein­hvern veg­inn að hugsa kerfið heild­stætt.“

Aftur að Sam­herj­a­mál­inu. Það var svo­lítið hjólað í Loga varð­andi skip­stjóra­málið og sím­ann sem teng­ist því. Eig­in­kona Loga er dóm­ari á Akureyri og dæmir í mál­inu og ein­hverjir reyndu að gera málið póli­tískt og sögðu að þarna væri Logi Ein­ars­son að baki.

„Þegar við hitt­umst um helgar þá er ég á útopnu og tala mikið um mitt starf en hún talar aldrei um sitt. Þannig að allt svona er úr lausu lofti gripið og á þessum tíma ræddum við þetta mál ekki.“

Mikil vonbrigði

Hvað svo með fram­haldið?

„Ég er for­maður og ég mun í sumar ákveða hvað ég geri. Ég hef alltaf verið þeirrar skoð­unar að það sé ótrú­lega gef­andi að vera í liði með mörgum flinkum spil­urum; það sé aldrei úti­lokað að menn skipti um stöðu á vell­inum ef það er lík­legt til að bæta árang­ur­inn. í augna­blik­inu er ég for­maður og verð það þangað til ég til­kynni annað.“

Voru kosn­inga­úr­slitin eða rík­is­stjórn­ar­mynd­unin þung­bær fyrir for­mann­inn?

„Já, kosn­inga­úr­slitin voru mjög mikil von­brigði. Ég taldi að við ættum meira inni; að við ættum að geta landað betri úrslitum. Það er nú það fyrsta. Ástæðuna fyrir því hef ég eytt tugum klukku­tíma í að velta fyrir mér og á end­anum ber ég ábyrgð á því fyrst og fremst.“

Og á því ber ég ábyrgð.

Logi segir að önnur von­brigði hafi tengst því að eng­inn vilji var hjá hvorki Framsókn né Vinstri grænum að heyra í Sam­fylk­ing­ar­fólki eða ræða grund­völl fyrir rík­is­stjórn. „Það hefur svo orðið til þess að maður hlýtur auð­vitað að breyta sinni sýn á hvernig eigi að fara inn í kosn­ingar. Ég er ennþá alveg sann­færður um að það var rétt afstaða að segj­ast til dæmis ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum, af því að ég vissi að það myndi inni­bera að við þyrftum að gefa frá okkur öll lyk­il­mál. Það kunna hins vegar að hafa verið mis­tök ef menn eru bara að hugsa um pró­sent­urnar. Og á því ber ég ábyrgð. Og eng­inn annar.“

Þannig að Logi telur prinsippin vera dýr­mæt­ari en að skipta út svona hjart­ans málum flokks­ins?

„Já, auð­vitað er það þannig að í fjöl­flokka­stjórnum þurfa menn að vera til­búnir til þess að gefa frá sér ein­hver mál, en til þess að ná sem flestum af þeim fram þá hlýtur þú að vinna frekar með líkum flokkum heldur en ólíkum flokkum. Það liggur í hlut­ar­ins eðli. Og við getum alveg orðað þetta þannig: Ég nenni ekki að vera í stjórn­málum ef ég þarf að haga mér eins og vatnið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins