„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lilja Dögg: „Lagt til að starfslaunum listamanna verði fjölgað“

Lilja Dögg: „Lagt til að starfslaunum listamanna verði fjölgað“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar og við­skipta­ráð­herra, hefur mælt fyrir frum­varpi um tíma­bundna fjölgun starfs­launa til handa sviðs­lista­fólki og tón­list­ar­flytj­endum. Nánar til­tekið er um að ræða, breyt­ingu á lögum um lista­manna­laun, nr. 53/2009.

Með frum­varp­inu er lagt til að starfs­launum lista­manna í gegnum launa­sjóð sviðs­lista­fólks verði fjölgað um 50 og þau við­bót­ar­mán­að­ar­laun sér­stak­lega skil­yrt ungu sviðs­lista­fólki undir 35 ára aldri. Svipað er uppi á ten­ingnum fyrir launa­sjóð tón­list­ar­flytj­enda sem fær 150 við­bót­ar­mán­að­ar­laun til úthlut­unar. Þar af verða 50 sér­stak­lega skil­yrt ungu tón­list­ar­fólki undir 35 ára.

Þá mun Sviðs­lista­sjóður fá aukið fjár­magn sem nemur 50 m.kr., en Sviðs­lista­sjóður er verk­efna­sjóður sem styður við upp­setn­ingu og starf­semi sviðs­lista­verka.

„Listalíf er hverri þjóð gríð­ar­lega mik­il­vægt og styrkir til lista­manna eru í mörgum til­vikum alger for­senda þess að grósku­mikið lista­líf geti þrif­ist og dafnað,“ sagði ráð­herra, en frum­varpið er lagt fram sem hluti af við­spyrnu­að­gerðum rík­is­stjórn­ar­innar vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins.

„List­sköpun er gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir þjóð­ina og mik­il­vægt að rík­is­valdið styðji við hana með mynd­ar­legum hætti. Það á sér­stak­lega við nú þegar menn­ing­ar­geir­inn er að taka við sér eftir afleitan tíma und­an­farið. Með þess­ari breyt­ingu erum við feta okkur inn á nýjar og spenn­andi slóðir og styðja mark­visst við list­sköpun á ólíkum ald­urs­bilum.“

Heims­far­aldur kór­ónu­veiru hefur haft afar mikil og nei­kvæð áhrif á hag­kerfið og ein­staka atvinnu­greinar, en sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar dróst lands­fram­leiðsla saman um 6,5% á árinu 2020. Sam­dráttur í verð­mæta­sköpun í menn­ing­ar­geir­anum, sér­stak­lega þeim greinum hans sem byggja tekju­öflun sína að mestu á við­burða­haldi, var gríð­ar­legur. Þannig voru greiðslur til rétt­hafa í tón­list vegna tón­leika­halds á árinu 2021 t.a.m. 87% lægri en sam­svar­andi tekjur árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Menningarlíf

„Good shit í tónlistinni – Drekinn er minn Eiríkur Fjalar og fuglinn minn er Saxi læknir“
ViðtalMenningarlíf

„Good shit í tón­list­inni – Drekinn er minn Eiríkur Fjalar og fugl­inn minn er Saxi læknir“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann segi njóta matar- og kok­teila­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Segðu okkur aðeins frá þv hvaðan þú kemu, frá æsk­unni, námi og...
„Menningarsjokk”
Skoðun

Salome Friðgeirsdóttir

„Menn­ing­ar­sjokk”

Menn­ing­ar­lífið hefur tekið stakka­skiptum í far­aldr­inum, en erum við loks­ins farin að sjá líf glæð­ast á ný innan menn­ingar- og lista­heims­ins? Og þó! Ein af mörgum afleið­ingum far­ald­urs­ins hefur verið tak­markað aðgengi að hinni ýmsu afþr­ey­ingu, listum og við­burðum og er fólk farið að þyrsta í aukið menn­ing­ar­líf. Það er hægt að segja að við höfum orðið fyrir nokk­urs konar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins