„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Trýna komin í öruggt skjól: „Alveg búin að fá nóg af því að vera á flakki, greyið“

Trýna komin í öruggt skjól: „Alveg búin að fá nóg af því að vera á flakki, greyið“
Trýna komin í bíl­inn sem fer með hana heim til eig­anda síns.

Tíkin Trýna sem hafði verið týnd síðan í fyrra­dag er fundin og á leið heim til sín. Sjálf­boða­liði hjá sam­tök­unum Dýrfinnu, sem stóðu að leit­inni, segir móður og dætur hennar tvær hafa fundið tík­ina og náð að lokka hana til sín.

Trýna er 11 ára gam­all sveita­hundur sem týnd­ist í Graf­ar­holti, í umhverfi sem hún þekkir ekki. Hún fæld­ist og varð fyrir bíl, og því var ótt­ast að hún gæti verið slösuð. Í fyrri frétt Mannlífs var því komið á fram­færi að Dýrfinna óskaði eftir sjálf­boða­liðum í leit­ina en sem betur fer ger­ist þess ekki þörf lengur.

Þær Rut Her­manns­dóttir, Emilía Rós Ómars­dóttir og Indíana Rós Ómars­dóttir voru á gangi með Schäfer-tík­ina Lunu, þegar þær sáu til­kynn­ingu á leit­ar­spjalli Dýrfinnu um að tveir aðilar hafi séð Trýnu nálægt þeim stað sem þær voru staddar á.

„Þær sneru þá við og sáu tík­ina,“ segir Anna Margrét, sjálf­boða­liði hjá Dýrfinnu í sam­tali við blaða­mann Mannlífs. „Þær fanga athygli hennar og prófa að kalla: „Trýna, nammi!“ og þá kemur hún trítlandi til þeirra, til­búin til að fara heim. Alveg búin að fá nóg af því að vera á flakki, greyið.“

Trýna með bjarg­vættum sínum.

Anna Margrét segir Trýnu virð­ast hafa verið búna að gef­ast upp. „Stundum endar þetta svona, að hund­ur­inn ein­hvern veg­inn bara ákveður að koma. Þá er hann búinn að kom­ast yfir áfallið af því að vera týndur eða lenda fyrir bíl, eða hvað það er sem ger­ist. Við mælum almennt með að kalla ekki á þá, en þær föng­uðu athygli hennar með því að prófa að segja „nammi“ og stundum virkar það. En dag­inn áður hafði hún hlaupið í burtu frá þeim sem köll­uðu. Ég er alveg rosa­lega ánægð með að þetta virk­aði,“ segir hún.

Eigandi Trýnu hafði sjálfur ekki heilsu í leit­ina og varð því að treysta á aðstoð Dýrfinnu og ann­arra sjálf­boða­liða. Dýrfinna eru fremur ný sam­tök sem aðstoða fólk við leit að týndum gælu­dýrum. Þegar hafa sam­tökin orðið til þess að fjöl­mörg dýr hafa kom­ist aftur heim í faðm eig­enda sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins