„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar Dan Wiium: Uppljómaður maður er upplýstur maður

Gunnar Dan Wiium: Uppljómaður maður er upplýstur maður
Gunnar Dan Wiium

Við erum feimin við að bendla okkur sjálf og aðra við upp­ljómun. Svolítið eins og ein­hvers konar „Jantelov“ hindri okkur, skömmin hindrar okkur. Við erum með hug­myndir um upp­ljó­maða mann­eskju, hún gengur um jörð­ina í algjörri sátt við það sem er og nán­ast glóir.

Þessar hug­myndir eru réttar, upp­ljómuð mann­eskja er í sátt eða einna heldur nær sátt við hverja hindrun sem hún mætir á end­anum. Það geislar af henni karisma og fólk dregst að henni. Vit­und­ar­bylgjan í þessum ein­stak­lingum er þétt, vit­und­ar­bylgjan er stöðug tengsla­myndun milli þess hægra og vinstra og í því sam­hengi er talað um geisla­baug við full­komið „samadhi“ ástand. Hins vegar þýðir það ekki að við­kom­andi þurfi endi­lega að vera í þessu ástandi stöðugt, alls ekki. Við erum af holdi og blóði, með til­finn­ingar og til­finn­inga­við­brögð sem eru ýmist erfð eða áunnin. Það má óhætt segja að til­finn­inga­við­brögð okkar séu karmað okkar og með árvök­ulli og stöðugri sjálfs­skoðun horfum við inn á við og þar eru þessi við­brögð okkar skoðuð. Það getur engin annar gert það, við sjálf verðum að hafa hug­rekkið og taka allt með fyr­ir­vara því holdið lýgur en sálin heyrir aðeins sann­leika.

Smátt og smátt vöxum við og þroskumst, við þroskumst inn og við þroskumst út. Inn þrosk­inn er grunnur allrar mennsku og í raun má segja að skylda okkar sem mann­eskjur sé að þroskast á þennan hátt, allur félags­legur þroski er sprott­inn af and­legum þroska.

Upp­ljómuð mann­eskja fer ekki í langvar­andi stríð, hún tekur ekki afstöðu með þeim sem standa í stríði, upp­ljómuð mann­eskja elskar skil­yrð­is­laust, óháð meintri stöðu innan sam­fé­lags, upp­ljómuð mann­eskja starfar án strits og er iðin.

Vitund er eilífð­ar­eðlið, búdda­eðlið, heil­agur and­inn. Vitund er án upp­hafs og endis sem og upp­haf og endir alls og er það til­gangur manns­ins að skilja fæð­ingu og dauða sem aðeins hverf­ul­leika efnis. Efnið er einn lík­ami sem tekur á sig ótelj­andi myndir og vit­undin binst hjúpnum hvað eftir annað þar til þessum skiln­ingi hefur verið náð. Jörðin er okkur sem fjötrar og við berj­umst og meiðum hvert annað, því við neitum að horfast í augu við sann­leik­ann um okkar rauntil­gang. Við getum aðeins barist svo lengi því óum­flýj­an­lega munum við í gegnum þján­ingu læra að þekkja ljósið, það liggur í eðli sínu sam­kvæmt. Þegar því ástandi er náð er jörðin okkur ekki fang­elsi heldur para­dís, þá hættum við að traðka niður nátt­úr­una og meiða hvert annað. Við munum ná tengslum við hvert annað, því í raun erum við aðeins eitt, við munum til­heyra nátt­úru. Við höfum verið þar áður og munum vera þar aftur.

Hægt er að lesa allt blaðið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðsend skoðun

Hið níu daga smokklausa sumar
Skoðun

Björgvin Gunnarsson

Hið níu daga smokklausa sumar

Á hverju ári kem ég til Kaup­manna­hafnar og er þar í viku eða tvær. Ég vafra um á kassa hjól­inu og heim­sæki staði og vini. Í gær hjól­uðum við um 100 kíló­metra, Vester­bro-Lang­el­inie-Norrebro-Vester­bro-Christania-Orested-Vester­bro, geggj­aður 12 tíma túr.Við bjuggum hérna í tæp fimmtán ár, eign­uð­umst vini og bjuggum okkur til heim­ili. Svo fluttum við heim til Íslands og erum búin að...
Eru hvalveiðar dýraníð?
Skoðun

Aðsend grein

Eru hval­veiðar dýra­níð?

Ég var að hlusta á Vilhjálm Birg­is­son í Bítinu á Bylgj­unni. Honum finnst hval­veiða­bannið með ólík­indum og það er hans skoðun því það skerðir lífið hjá mörgum á Akranesi og nær­liggj­andi umhverfi. Við erum mjög mörg, bæði hér­lendis og erlendis sem erum þakk­lát fyrir ákvörðun Svan­dísar mat­væla­ráð­herra og finnst með ólík­indum hvernig Vil­hjálmur og það fólk sem er á hans...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins