„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einkaviðtal: Þegar Halldór teiknari hætti á Mogganum: Teiknaði Davíð með strokleður

Einkaviðtal: Þegar Halldór teiknari hætti á Mogganum: Teiknaði Davíð með strokleður
Halldór Bald­urs­son teikn­ari. Mynd: Facebook.

Halldór Bald­urs­son teikn­ari hætti að teikna í Morg­un­blaðið nokkru eftir að Davíð Oddsson tók við rit­stjórn blaðs­ins. Hann lýsir aðdrag­and­anum í við­tali við Mannlíf.

„Davíð tók við; ætli það hafi ekki verið 2009. Það var auð­vitað mik­ill styr í kringum það. Hann með sína for­sögu auð­vitað. Það fór ekk­ert vel í alla. Það var ekk­ert verið að ýta mér í burtu en það blasti hins vegar við að okkar póli­tík á leið­ar­a­síð­unni rann ekk­ert rosa­lega vel saman. Ég var á þessum tíma mjög Evr­ópu­sinn­aður og klass­ískt frjáls­lyndur svo­lítið; með ein­hverja sýn á lífið þannig. Hann er miklu íhalds­sam­ari maður. Icesave var þarna og mis­mun­andi skoð­anir á hvað átti að gera í því máli. Eig­in­lega fór manni að líða illa við að teikna mynd og svo voru Stak­steinar við hlið­ina á að segja eitt­hvað þver­öf­ugt. Ég var mjög hress með að fara yfir á Frétta­blaðið 2010,“ segir Halldór sem ákvað að hætta á blað­inu.

Hann var að skrifa með strokleðri.

Halldór teikn­aði Davíð í Morg­un­blaðið eftir að Davíð sett­ist þar í rit­stjóra­stól­inn. „Ég teikn­aði Davíð; þetta er svo­lítið hart þegar ég hugsa um það eftir á. Textinn var Davíð end­ur­skrifar sög­una. Hann var að skrifa með strokleðri. Ég hélt samt vinn­unni áfram. Í eitt og hálft ár alla­vega.“

Var þetta ekki bara kjarni máls­ins?

„Jú, við skrifum öll sög­una. Við lifum öll í sitt­hvorri sög­unni svo­lítið. Við erum með okkar sögu. Og við skrifum okkar sögu. Hún stang­ast á við eitt­hvað annað. Sumt eru auð­vitað stað­reyndir. En mikið snýst um að velta upp við­horfum í sam­hengi við okkur sjálf. Og hann kom auð­vitað með allt aðra sýn en ég.“

Þetta er gamla sagan hálf­fullt / hálf­tómt. Sumir sjá það hálf­tómt. Aðrir hálf­fullt. Þannig að þú fórst ekk­ert ósáttur frá Davíð eða Mogganum?

„Nei, hann er nátt­úr­lega svo dul­ar­fullur, karl­inn. Ég hitti hann bara tvisvar þarna á þessum tíma.“

Það var ekki oftar.

„Nei, og það var vin­sam­legt.“

Podcastið með Halldóri er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins