„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svandís vill ekki tjá sig fyrr en Samkeppniseftirlitið hefur lokið skoðun

Svandís vill ekki tjá sig fyrr en Samkeppniseftirlitið hefur lokið skoðun
Svandís Svav­ars­dóttir henti sprengju inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið.

Áhyggju- og gagn­rýn­is­raddir heyr­ast víða í sam­fé­lag­inu vegna fyr­ir­hug­aðra kaupa Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Vísi. For­sæt­is­ráð­herra hefur lýst yfir áhyggjum af sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi en mat­væla­ráð­herra, sem sjáv­ar­út­vegs­mál heyra undir, telur ekki tíma­bært að tjá sig um málið fyrr en Sam­keppn­is­eft­ir­litið lýkur skoðun sinni.

Talsvert hefur verið fjallað um yfir­vof­andi kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Vísi í Grinda­vík í vik­unni. Samherji á ráð­andi hlut í Síld­ar­vinnsl­unni og ef við­skiptin ganga eftir munu fisk­veiði­heim­ildir félaga með tengsl við Samherja nema meira en 25 pró­sentum af heild­ar­kvót­anum.

Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af kaup­unum, ýmist vegna auk­innar sam­þjöpp­unar í sjáv­ar­út­vegi eða í tengslum við tor­tryggni í garð þeirrar yfir­lýs­ingar að starf­semin muni áfram vera í Grinda­vík og ekki fara úr byggð­ar­lag­inu.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, tjáði sig um málið í vik­unni og lýsti yfir áhyggjum sínum af því að sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi yrði of mikil eftir kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi. Hún sagð­ist hafa þá skoðun að það þyrfti að end­ur­skoða reglu­verkið, bæði varð­andi kvóta­þak og tengda eig­endur. Fyr­ir­tækið mun ekki fara yfir lög­legt kvóta­þak eftir sam­ein­ing­una, þar sem Samherji telst ekki tengdur aðili. Til þess að útgerðir telj­ist tengdar þurfa þær eða eig­endur þeirra að eiga meira en helm­ings­hlut hvor í annarri. Samherji á ráð­andi hlut í Síld­ar­vinnsl­unni, 32,64 pró­sent.

Katrín sagð­ist einnig hafa áhyggjur af áhrifum á byggð­ar­lögin í land­inu. Hún nefndi sömu­leiðis til­flutn­ing auðs sem ætti sér stað í kringum við­skipti af þessu tagi. Katrín sagði það vekja spurn­ingar um gjald­töku og bætti því við að um væri að ræða eitt þeirra atriða sem til skoð­unar væru hjá mat­væla­ráð­herra, Svandísi Svav­ars­dóttur.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, virð­ist ekki á sömu skoðun og for­sæt­is­ráð­herra. Hann sagð­ist ekki sjá ástæðu til þess að hafa áhyggjur af kaupum og sölu Vísis.

Aðilar að við­skipt­unum bíða nú eftir sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem er með þau til skoð­unar.

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Svandísi Svav­ars­dóttur, mat­væla­ráð­herra, vegna máls­ins. Af skrif­legu svari frá upp­lýs­inga­full­trúa mat­væla­ráðu­neyt­is­ins að dæma telur Svandís ekki tíma­bært að tjá sig um við­skiptin.

„Ráðherra telur eðli­legt að Sam­keppn­is­eft­ir­litið skoði málið í heild sinni áður en hún tjáir sig,“ segir í svar­inu. Þar kemur einnig fram að alls­herjar end­ur­skoðun á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu sé nú í gangi.

„Þegar er farin af stað vinna við að rýna fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið og undir í þeirri vinnu er alls­herjar end­ur­skoðun á kerf­inu – t.d. eigna­tengsl, gagn­sæji, sam­þjöppun, byggða­kvótar og strand­veiðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins