„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Simmi og Jói gleymdu Sveppa á hringveginum: „Þegar ég kom í bæinn þá fór útvarpsstöðin á hausinn“

Simmi og Jói gleymdu Sveppa á hringveginum: „Þegar ég kom í bæinn þá fór útvarpsstöðin á hausinn“
Sverrir Þór Sverr­is­son Mynd: Kazuma Takigawa

Sverrir Þór Sverr­is­son. Sveppi. Í við­tali við Reyni Trausta­son segir hann frá því hvernig nafnið Sveppi kom til, hann talar um æsku­árin þegar hann vildi fífl­ast og vera fynd­inn, árin í FB þar sem hann var í vídeó- og skemmti­nefnd, tím­ann á græn­met­isla­gernum, upp­haf fer­ils­ins sem hann er þekktur fyrir, sem var að ganga hring­inn í kringum Ísland í tvo mán­uði, hann talar um hrekk­ina og áskor­an­irnar í sjón­varp­inu, svo sem þegar hann hljóp alls­ber niður Lauga­veg­inn, jákvætt áreitið og svo talar hann örlítið um fjöl­skyld­una. Hann talar líka um hvað sé fram undan og hvort hann vilji verða gam­al­menni á Spáni. Hér er brot úr við­tal­inu.

Gekk hringinn

Það var á þessum tíma, árið 2000, sem Sveppi fékk sím­tal frá Jóa og Simma um hvort hann væri ekki „snið­ugt ein­tak“ til að ganga hring­inn í kringum Ísland.

„Ég þurfti nú aðeins að hugsa það,“ segir Sveppi, en hann ákvað svo slá til.

„Þeir voru að vinna á útvarps­stöð sem hét Mono og voru með þátt þar, Simmi og Jói, sem hét Sjötíu og var frá sjö til tíu á morgn­ana. Morg­un­þáttur. Það var að koma sumar og þeir vildu gera eitt­hvað skemmti­legt um sum­arið. Og þá datt þeim í hug að fá ein­hvern rass­haus eins og mig til að labba hring­inn í kringum landið. Það var alltaf partí á hverjum stað. Ég lagði af stað 1. júní árið 2000 og kom til baka 3. ágúst. Ég var í tvo mán­uði og gekk að með­al­tali um 25 kíló­metra á dag.“

Félagi Sveppa var á bíl með tjald­vagn.

Var mik­ill pen­ingur í þessu?

„Þá fékk ég verk­taka­laun. Þetta var 200.000 kall á mán­uði.“

Jú, gangan hófst.

Ég er búinn að labba síðan ég var tveggja ára; var búinn að æfa mig hel­víti mikið.

„Ég var í göngu­skóm en eftir fyrstu tíu dag­ana var ég hand­ó­nýtur. Það var allt í hakki. Menn sögðu „ertu búinn að æfa þig?“. Æfa mig? Ég er búinn að labba síðan ég var tveggja ára; var búinn að æfa mig hel­víti mikið. Búinn að labba í 20 ár. Ég hlýt að geta labbað hring­inn í kringum Ísland. En ég var stirður í hnés­bót­inni og með blöðrur á tánum. Þetta var dálítið bras fyrstu dag­ana. Svo vann ég mér í hag­inn, ein­hvern tím­ann. Ég vakn­aði kannski klukkan sex um morg­un­inn þann dag­inn, labb­aði bara mara­þon, 42 kíló­metra, og þá vann ég mér inn nán­ast bara frí­dag. Pabbi var búinn að skrifa nákvæm­lega hvað ég þurfti að labba á dag til þess að ná hringnum. Hann bjó til bók þar sem hann hafði skrifað „Reykja­vík – Hval­fjörður 25 kíló­metrar. Áhuga­verðir staðir til að skoða.“ Þá var hann með landa­fræði­bók. Hann gaf mér bók sem ég studdi mig við. Þetta var æðis­legt.“

Tveir mán­uðir.

„Þetta var langur tími. Ég var þarna með vini mínum og við vorum ekki að gera neitt annað en að labba. Beru­fjörð­ur­inn er „hell“. Þegar þú ert að koma inn í Beru­fjörð­inn austan megin þá sérðu yfir í Djúpavog, en þú átt eftir að labba hann allan út í enda og til baka. Svona firðir eru vesen. Mér finnst leið­in­legt að keyra þá, hvað þá labba.“

Sveppi svindl­aði. „Ég svindl­aði þegar ég var að koma inn á Akureyri. Þá fannst mér svo plebba­legt að labba í gegnum Akureyri. Við stopp­uðum rétt fyrir utan Þelamörk. Við keyrðum fram hjá Þelamörk, en þar var ég búinn með dag­inn og þar fórum við inn á hótel og svo byrj­aði ég dag­inn eftir hinum megin við brúna.“

Þannig að ég gleymd­ist á ákveðnum köflum.

Virkaði þetta í útvarp­inu og var stemm­ing í kringum ferða­lagið?

„Til að byrja með. Eftir Akureyri þá gleymd­ist ég svo­lítið í útvarp­inu. Þá voru þeir hættir að hringja í mig strák­arnir, Simmi og Jói. Gleymdu að hringja í labbik­arl­inn. Þannig að ég var ein­hvers staðar á Mývatni ráf­andi um; að labba og reyna að koma mér á Egils­staði. Tómt vesen. Það er dálítið langur spotti, fannst mér. En það var grillað á Egils­stöðum. Eitthvað húll­umhæ. Það átti að hringja í mig á hverjum degi, en svo er tak­markað hvað maður getur talað á hverjum degi, labbik­arl­inn. Þannig að ég gleymd­ist á ákveðnum köflum. Svo þegar ég kom í bæinn þá fór útvarps­stöðin á haus­inn, held ég. Þetta var það síð­asta sem þessi útvarps­stöð gerði – að láta mig labba í kringum landið.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.
Þá er einnig hægt að horfa á það hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins