„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Séra Auður Eir svarar ásökunum: „Þær eru allar að segja ósatt“

​​Blaða­maður hitti séra Auði Eiri Vil­hjálms­dóttur á kaffi­húsi, en hún var til­búin til þess að fara yfir málin augliti til auglitis, í tengslum við þær ásak­anir sem á hana, stúlkna­heim­ilið Bjarg og starfs­konur heim­il­is­ins hafa verið bornar í gegnum tíð­ina. Hún hefur hingað til lítið tjáð sig um frá­sagnir stúlkn­anna af Bjargi og tengdra aðila, þegar eftir því hefur verið leitað. Hún hefur þó svarað því til að ásak­an­irnar hafi verið ósannar; upp­spuni frá rótum. Hún heldur því enn statt og stöðugt fram í dag, en seg­ist ekki skilja hvers vegna fólki myndi detta í hug að segja ósatt um svo alvar­leg mál.

Séra Auður Eir Vil­hjálms­dóttir.

Í nýjasta tölu­blaði Mannlífs er að finna frá­sögn Sonju Ingva­dóttur, sem dvaldi á Bjargi á árunum 1965 til 1967. Hún ber heim­ilið, for­svars­menn þess og ekki síst séra Auði Eiri þungum sökum.

Í blað­inu er einnig brot úr við­tali við séra Auði Eiri, þar sem hún svarar spurn­ingum blaða­manns um ásak­an­irnar. 

Viðtalið birt­ist nú á vef Mannlífs í heild sinni. 

Fannst vanta stúlknaheimili

Um til­urð Bjargs segir séra Auður Eir að henni hafi þótt vanta slíkt heim­ili fyrir stúlkur á Íslandi. „Ég var lög­reglu­kona í Kven­lög­regl­unni og fannst að það þyrfti að gera eitt­hvað í þessum málum. Stúlkur voru sendar til Dan­merkur á upp­töku­heim­ili, svo mér fannst nauð­syn­legt að það væri heim­ili hérna og það ætti að vera í bænum – þetta var skóla­heim­ili – svo þær gætu komið inn og farið svo bara út í sama umhverfi, þegar þær væru búnar að átta sig á því að það væri bara ansi gott að vera í skóla. Þannig kom það til.“

Bjarg

Aðspurð seg­ist séra Auður Eir ekki kann­ast við það að upp­haf­lega hafi staðið til að opna ann­ars konar heim­ili, áður en Hjálp­ræð­is­her­inn fékk verk­efnið í hend­urnar og skap­aði Bjarg. Hún segir verk­efnið strax hafa komið til hennar og Hjálp­ræð­is­hers­ins.

Talið berst að þeim ásök­unum sem bornar hafa verið á Bjarg, séra Auði Eiri og starfs­kon­urnar í gegnum tíð­ina. Séra Auður Eir nefnir þá dóms­málið; kæru­málið sem fór þannig að ekki kom til opin­berrar máls­höfð­unar, vegna ónógra sann­ana.

„Fyrir mér eru þetta bara mála­lok og ég veit að það er rétt nið­ur­staða og er í þeirri aðstöðu að geta vitað það, því ég sá þetta sjálf. Svo fyrir mér er þetta bara búið mál.“

Aðspurð hvort ásak­anir stúlkn­anna af Bjargi, sem hafa komið fram í gegnum tíð­ina, séu þá með öllu ósannar segir hún svo vera. „Já.“

Þegar blaða­maður spyr séra Auði Eiri hvort hún hafi gert sér það í hug­ar­lund í gegnum tíð­ina hvers vegna þetta hafi farið eins og það fór segir hún svo ekki vera.

„Alls ekki, nei. Það væri bara til­gangs­laust fyrir mig að vera að velta því fyrir mér, ég hef ekki hug­mynd um það.“

Segir heimildirnar ósannar

Sögurnar sem komið hafa fram um Bjarg eru margar. Þegar blaða­maður minn­ist á sögu Marion Gray, sem ef til vill hefur hvað mest verið fjallað um, spyr séra Auður Eir hvort blaða­maður viti hvað Marion Gray sagði. Blaða­maður játar því.

„Fyr­ir­gefðu, þá verð ég að spyrja þig, ert þú með aðgang að dóms­skjöl­unum?“ Blaða­maður segir svo ekki vera, en bendir á að Marion Gray hafi sjálf sagt sögu sína í við­tali á sínum tíma.

„Já, í blöð­unum? Allt í lagi. Nei, ég er bara að spyrja, af því að ég spurði þig hvaða heim­ildir þú hefðir. Af því að ég er að segja að þetta séu ósannar heim­ildir. Þess vegna spyr ég þig: Hvaða heim­ildir eru það?“

Líkt og áður sagði kom Marion Gray fram í við­tali á sínum tíma, en auk þess töl­uðu aðstand­endur hennar og nær­staddir um mál hennar, til að mynda löngu síðar þegar DV gerði úttekt á mál­inu. Séra Auður Eir játar því. „Algjör­lega.“

Maður veltir fyrir sér hvaðan svona kemur.

„Já, maður veltir því fyrir sér. Auðvitað veltir maður því fyrir sér. Hvernig í ósköp­unum kemur þetta? Ég veit það ekki. Þú veist það ekki. Hver veit það?“ 

Í skýrslu vist­heim­ila­nefndar, sem og í eldri frá­sögnum kemur meðal ann­ars fram að stúlk­urnar voru sagðar hafa mátt þola harð­ræði og bæði and­legt og lík­am­legt ofbeldi. Í sumum til­fellum kyn­ferð­is­legt. Blaða­maður spyr séra Auði Eiri hvernig hún svari því.

„Ég segi: Það var ekki.“ 

Sonja Ingva­dóttir segir í við­tali sínu að séra Auður Eir hafi sagt að það ætti að ala stúlk­urnar á Bjargi í þrælsótta. Þegar það er nefnt við séra Auði Eiri seg­ist hún ekki hafa sagt það.

„Aldrei nokkurn tíma. Og ég hef ekki hugsað það.“

Hún er þá spurð hvernig hún hafi litið á stúlk­urnar; hvernig hún hafi viljað að upp­eldi þeirra yrði háttað og hvernig komið yrði fram við þær.

„Bara af virð­ingu. Ég var þess hand­viss að það myndi geta hjálpað þeim svo mikið að kom­ast aftur inn í nám, svo þær gætu haldið áfram í skól­anum og lifað lífi sínu eins og þær vildu sjálfar.“

Segist ekki hafa ráðið neinu um Upptökuheimilið 

Stúlkur sem dvöldu á Bjargi og starfs­konur á Upp­töku­heim­il­inu í Kópavogi hafa sagt bæði séra Auði Eiri og aðrar starfs­konur hafa sent stúlk­urnar í ein­angrun þar. Aðspurð seg­ist séra Auður Eir aldrei hafa sent stúlk­urnar í ein­angrun.

Séra Auður Eir Vil­hjálms­dóttir

Hún segir stúlk­urnar hafa verið sendar þangað til að mynda þegar eitt­hvað hafi komið upp á í hópnum.

„Já, það þarf að gera svo­leiðis. Þetta er í raun­inni bara eins og ger­ist, þegar krakkar eru teknir út úr skóla­stof­unni. Það þarf bara stundum að leysa upp hópa. Því þetta þarf að vera þol­an­legt, hvort sem maður er í vinnu eða skóla. Það þarf að vera þol­an­legt að vera þar. Bara eins og á blað­inu hjá þér eða í kirkj­unni hjá mér. Það verður að vera hægt að vera og það þarf stundum bara að gera eitt­hvað, þótt það sé voða leið­in­legt. Og ein­hver sem gerir eitt­hvað, það er ekki gott fólk. Það þykir ekki vera gott fólk sem tekur til ein­hverra ráða. En það verður bara að gera það.“

Blaða­maður spyr séra Auði Eiri þá út í aðstæður stúlkn­anna þegar þær dvöldu á Upp­töku­heim­il­inu.

„Ég held að þær hafi bara verið þar. Á vegum Upp­töku­heim­il­is­ins og þeirra sem stjórn­uðu þar. Þá voru þær á þeirra vegum, ekki mínum. Ekki Bjargs.“

Sonja, ásamt öðrum stúlkum, hefur lýst vist­inni á Upp­töku­heim­il­inu sem afar slæmri og lít­ils­virð­andi, þar sem þær voru hafðar í ein­angrun svo dögum skipti, með ekk­ert við að vera. Þær, sem og starfs­konur Upp­töku­heim­il­is­ins hafa sakað starfs­konur Bjargs um að hafa óskað eftir slíkri ein­angrun, þar á meðal séra Auði Eiri.

„Já, þær verða bara að gera það og tala við Upp­töku­heim­ilið. Ég held það bara. En þegar þær eru þar, þá eru þær á vegum Upp­töku­heim­il­is­ins.“

Séra Auður Eir segir sam­band sitt við starfs­konur Upp­töku­heim­il­is­ins hafa verið ágætt.

„Eðlilegt, fannst mér. Þær voru þarna og þetta heim­ili var opið til þess að stúlk­urnar fengju að vera þar stund­ar­korn. Það var ekk­ert, hvorki eitt eða neitt. Þetta var bara svona venju­legt og venju­leg sam­töl sem við áttum. „Nú er Sigga komin, nú sækjum við Siggu,“ og svo fram­vegis. “ 

Séra Auður Eir þver­tekur fyrir það að hafa fyr­ir­skipað að stúlkur væru látnar dvelja á Upp­töku­heim­il­inu í viku í litlu her­bergi með járn­rúmi, þar sem glugg­inn var spenntur aftur.

„Ég hef ekki sagt það.“

Þú baðst ekki um neitt slíkt?

„Nei.“

„Við ákváðum ekki hverjir áttu að vera á Bjargi“

Sonja segir séra Auði Eiri hafa sagt við hana að hún ætti ekk­ert að vera að hugsa um móður sína; henni þætti ekk­ert vænt um dótt­ur­ina lengur.

„Ég hef aldrei sagt þetta,“ svarar séra Auður Eir þegar það er borið undir hana. 

Þegar Sonja yfir­gaf Bjarg segir hún séra Auði Eiri hafa hótað henni því að ef hún yrði ófrísk og eign­að­ist barn, yrði hún send í fang­elsi til 25 ára ald­urs. Séra Auður Eir gengst ekki við þessu.

„Ég hef bara aldrei sagt þetta. Aldrei.“

Aðspurð hvers vegna hún haldi að þetta sé borið upp á hana seg­ist hún ekki vita það. „Og þú veist það ekki heldur. Líklega veit eng­inn það. Það er það sem við ekki vitum.“ 

For­stöðu­konan á Upp­töku­heim­il­inu í Kópavogi hefur sagt að séra Auður Eir hafi viljað vera harð­ari í vist stúlkn­anna á Upp­töku­heim­il­inu heldur en hún sjálf.

„Þetta er ekki rétt,“ segir séra Auður Eir þegar blaða­maður ber þetta undir hana. Hún segir það heldur ekki rétt að stúlka hafi verið lokuð inni á Bjargi í níu mán­uði eftir að hún var orðin sjálf­ráða, líkt og Sonja hefur lýst.

„Við ákveðum ekki hverjir áttu að vera á Bjargi og hverjir ekki. Það voru barna­vernd­ar­nefnd­irnar. Svo það er algjör­lega úti­lokað að við höfum ráð­stafað einni eða annarri stúlku. Þær voru, eins og þú veist af rann­sókn­ar­vinn­unni þinni, vistaðar af barna­vernd­ar­nefnd­inni og barna­vernd­ar­nefnd­irnar ákváðu hvenær þær komu og hvenær þær fóru.“

Séra Auður Eir segir það ekki rétt að for­svars­menn Bjargs hafi hrein­lega leitað að stúlkum og beðið um þær inn á heim­ilið.

„Þetta er bara svo fjarri. Bara algjör­lega fjarri.“

Aðspurð hvort heim­ilið hafi grætt á stúlk­unum segir hún svo ekki vera. Hún segir þá pen­inga sem feng­ust greiddir með hverri stúlku ein­göngu hafa farið í uppi­hald þeirrar sömu stúlku. „Algjör­lega.“

„Fullkomlega, algjörlega og óafturkallanlega viss“ 

Talið berst að ásök­unum um kyn­ferð­is­legt ofbeldi, til að mynda það að stúlk­urnar hafi verið kysstar góða nótt og tungum jafn­vel þröngvað upp í munn þeirra, meðal ann­ars af for­stöðu­kon­unni Önnu Onu, líkt og Sonja lýsir sjálf. 

„Ég segi að ég sé áreið­an­lega, full­kom­lega og óaft­ur­kall­an­lega sann­færð um að þetta sé upp­spuni.“

Séra Auður Eir svarar þess­ari spurn­ingu ákveðið og afdrátt­ar­laust og blaða­maður hefur á orði hve viss hún virð­ist. 

Séra Auður Eir seg­ist algjör­lega viss í sinni sök og talar um ósann­sögli sem hugs­an­lega geti lagt líf fólks í rúst. Hún spyr hvað mann­eskja eigi að gera sem sé ásökuð um brot. „Hvað á að gera með svona ásak­anir?“ 

Blaða­maður spyr hvað séra Auði Eiri finn­ist sjálfri. 

„Svo ég tali nú bara um þetta mál þá er ég full­kom­lega, algjör­lega og óaft­ur­kall­an­lega viss um að þessar konur hafa aldrei beitt þessar stúlkur kyn­ferð­is­legri áreitni. Þetta eru hrylli­leg­ustu ásak­an­irnar vegna þess að kyn­ferð­is­of­beldi leggur auð­vitað líf fólks í rúst. En ásak­anir um kyn­ferð­is­of­beldi gera það líka. Og ég held að þegar við hugsum um svona, verðum við eig­in­lega að reyna að setja okkur í spor. Eins og þú sjálf, ef þetta væri raun­veru­leik­inn þinn, að þú værir ásökuð, ekki um þjófnað í búð heldur um kyn­ferð­is­of­beldi. Ég held að þér þætti það ekki skemmti­legt.“

Blaða­maður bendir þá á fjöld­ann; allar þær stúlkur, konur, sem hafi stigið fram og fólkið sem hafi vitnað um málið. Hvernig geti staðið á því að þær séu svona margar.

„Þær hafa ekki allar vitnað um þetta. Þú hefur bara talað við þær sem hafa vitnað um það. Sumar þeirra hafa sagt að þetta var ekki svona. Það var aldrei neitt kyn­ferð­is­legt áreiti. Þú hefur bara ekki hitt þær. Ég hef hitt þær.“

Séra Auður Eir er spurð hvernig geti staðið á því að kon­urnar virð­ist sann­ar­lega hafa verið í ein­hvers konar áfalli og átt erfitt eftir dvöl­ina, sem aðstand­endur og aðrir tengdir hafa einnig vitnað um. Líkt og áður hefur komið fram hefur líf sumra þeirra verið sorg­ar­saga og endað illa í sumum til­fellum.

Hún seg­ist ekki vita hvernig standi á því. „Ég bara hef ekki hug­mynd um það.“

Séra Auður Eir seg­ist ekki kann­ast við nokk­urs konar ofbeldi innan Hjálp­ræð­is­hers­ins.

„Alls ekki. Því fer öld­ungis fjarri. Nú er ég svona jafn viss og ég var um kyn­ferð­is­áreitn­ina. Nei, öld­ungis ekki.“ Hún er ekki lengur inn­vinkluð í Hjálp­ræð­is­her­inn og segir nokkuð langt síðan hún hætti þar. Hún segir ekk­ert sér­stakt hafa valdið því að hún hætti þar, annað en að hún hafi haft önnur verk­efni. Ekkert hafi gengið þar á.

„Nei, það er ekk­ert sem ég hef upp á Hjálp­ræð­is­her­inn að klaga. Eða Hjálp­ræð­is­her­inn upp á mig að klaga. Ekkert slíkt.“  

Þegar blaða­maður hefur á orði að margir hafi talað um að hún sjálf hafi haft tölu­vert um rekstur Bjargs að segja, segir hún það ekki rétt.

„Þessu var stjórnað af þeim starfs­konum sem þarna voru og svo yfir­stjórn Hjálp­ræð­is­hers­ins. Ég var ekki í yfir­stjórn Hjálp­ræð­is­hers­ins. Ég var í stjórn heim­il­is­ins,“ segir hún þegar hún er beðin um að lýsa stjórn­ar­fyr­ir­komu­lag­inu. 

„Ég réð svosem ekki neinu. Ekki þannig. Þetta var á vegum Hjálp­ræð­is­hers­ins og ég var hluti af Hjálp­ræð­is­hernum. Ég var hluti af heim­il­inu. En ég var ekki aðal­at­riði í þess­ari stjórn.“

Hún seg­ist ekki hafa ráðið á bak við tjöldin, líkt og margir hafa lýst. 

„Nei. Ég gerði það ekki.“ Hún segir engar ákvarð­anir hafa verið í hennar höndum.

Séra Auður Eir Vil­hjálms­dóttir.

Tengsl við menntamálaráðherra og barnaverndarnefnd 

Samtalið berst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki var höfðað form­legt mál á hendur Bjargi á sínum tíma. Mennta­mála­ráðu­neytið var yfir vist­heim­ilum og átti þátt í þeirri ákvörðun, enda fór málið meðal ann­ars inn í ráðu­neytið þegar það var rann­sakað og fór á milli emb­ætta. 

Og mennta­mála­ráð­herra á þessum tíma er föð­ur­bróðir þinn. 

„Já.“

Blaða­maður bendir á að fólk hafi velt fyrir sér þessum tengslum. Hvort þau hafi eitt­hvað haft um málið að segja. Aðspurð hvað henni finn­ist um það svarar séra Auður Eir:

„Ekkert. Það hefur áreið­an­lega ekki neitt að segja. Engan veg­inn. Þó ekki væri. Því svona mál verða bara að hafa sinn gang. Það verður að reka svona mál til þrautar, allra aðila vegna. Þannig að það er úti­lokað. Þetta er bara þannig.“

Málið fór á sínum tíma í gegnum barna­vernd, hvar móð­ur­bróðir séra Auðar Eirar, séra Gunnar Árnason sat. 

Aðspurð um mat hennar á því hvort menn­irnir tveir hafi verið til þess fallnir að gæta hlut­leysis í störfum sínum, vegna þess að hún hafi verið náfrænka þeirra, segir hún:

„Ég segi að það sé áreið­an­legt og ég er full­viss um að þeir hafi ekki beitt sér á nokkurn ein­asta máta til þess að hlífa frænku sinni, enda ekki nokkur ein­asta ástæða til þess. Það hefði verið bara skelfi­legt. Skelfi­legt fyrir mig og skelfi­legt fyrir þá, held ég. Svona mál verða að ganga fyrir sig. Ég er mjög glöð yfir því að þetta bara gekk sinn gang og fékk þessa nið­ur­stöðu vegna þess að ég er sann­færð um, eins og ég hef sagt áður í við­tal­inu, að þetta er rétt nið­ur­staða. Og ég er svona að velta því fyrir mér af hverju er alltaf verið að taka þetta upp aftur.“

Hvað heldur þú? 

Séra Auður Eir lækkar róm­inn. „Fólk hefur svo gaman að þessu.“ 

Fólk hefur gaman af þessu?

„Já. Sjáðu bara allt umtalið sem kemur hvorki mér eða þér við. Allt umtalið í þjóð­fé­lag­inu. Hvernig fólk talar hvert um annað. Ég bara held að það verði okkur að falli ef við höldum þessu áfram. Við eigum ekki að tala svona hvort um annað. Við eigum ekki að vera að segja hluti sem við höfum ekki neina ein­ustu hug­mynd um. Það er hættu­legt fyrir okkur sem þjóð­fé­lag.“

Finnst þér þetta hafa verið þannig?

„Það finnst mér. Af hverju ert þú að taka þetta upp?“

Vistheimilanefnd 

Séra Auður Eir vill vita hvort blaða­maður treysti ekki dóms­nið­ur­stöð­unni. 

Blaða­maður bendir séra Auði Eiri á, sem hún veit, að vist­heim­ila­nefnd taldi í skýrslu sinni, eftir úttekt, rann­sóknir og við­töl, að lík­legra en ekki hafi verið að stúlk­urnar á Bjargi hafi mátt þola ofbeldi og illa með­ferð meðan þær dvöldu þar. Séra Auður Eir spyr hvaðan sú setn­ing komi, sem blaða­maður svarar sem er, að komi úr skýrslu vist­heim­ila­nefndar. 

„Já, frá Róbert Spanó. Já. Takk fyrir að segja þetta.“

Blaða­maður furðar sig á þökk­unum.

Hvað áttu við?

„Vegna þess að fyrir mér er þetta svo lög­fræði­leg spurn­ing, hvort vist­heim­ila­nefnd hefur lög­fræði­legan rétt til að vefengja nið­ur­stöðu dóms. Þetta er lög­fræði­leg spurn­ing. Gíf­ur­lega alvar­leg spurn­ing. Ég bara þakka þér hjart­an­lega fyrir að segja þetta.“ 

Að vist­heim­ila­nefnd hafi kom­ist að þess­ari nið­ur­stöðu?

„Já. Mörgum árum eftir dóms­nið­ur­stöðu.“ 

Blaða­maður bendir á rann­sókn­ar­vinnu vist­heim­ila­nefndar og það að tekin hafi verið við­töl við máls­að­ila; for­stöðu­kon­una á Upp­töku­heim­il­inu, starfs­fólk, séra Auði Eiri sjálfa, við konur sem dvöldu á Bjargi.

„Þetta er frelsi.“ 

Séra Auður Eir brosir allt í einu breitt.

„Takk.“

Hún teygir hand­legg­ina út hvorn í sína átt­ina á borð­inu sem við sitjum við og hallar höfð­inu aftur á bak. Hún hleypir út and­ar­drætti, eins og hún sé fegin. Svo lítur hún aftur á blaða­mann og klappar hönd­unum saman.

Hún segir það allt í lagi að blaða­maður viti ekki hvers vegna hún þakki honum fyrir með slíkum til­þrifum. 

„Ég er að þakka þér fyrir það að hafa trú á vist­heim­ila­nefnd, frekar heldur en dómi hér­aðs­dóms.“ 

Hún flissar.

Hún segir blaða­mann taka málið upp á grund­velli vist­heim­ila­nefndar.

„Mér finnst það. Ég held að þú gerir það. Ég held að þú, já, þú vitnar í vist­heim­ila­nefnd­ina fram yfir dóm­inn. Mér finnst það. Gerirðu það ekki? Er þetta mis­skiln­ingur hjá mér?“

Séra Auður Eir spyr hvort það klingi engum bjöllum hjá blaða­manni að ástæða hafi verið talin til áfram­hald­andi rann­sóknar vist­heim­ila­nefndar eftir að dómur var fall­inn, eins og hún orðar það. Hvort það klingi engum bjöllum um rétt­ar­kerfið. 

Blaða­maður bendir séra Auði Eiri á að hægt sé að taka mál upp aftur síðar ef rök­studd ástæða þyki til þess. 

„Fínt, fínt, fínt. Ég þarf ekki… Þetta er bara fínt, takk fyrir bara. Ég segi bara takk inni­lega fyrir.“

„Þær eru allar að segja ósatt“ 

Konurnar halda þessu til streitu, svona löngu síðar. Eru þær allar að segja ósatt?

„Þessar ásak­anir sem þú last fyrir mig eru rangar.“

Þannig að þær eru allar að segja ósatt?

„Þær eru allar að segja ósatt.“ 

Aðspurð hvort ein­hverjir ann­markar hafi verið á starf­semi Bjargs segir hún:

„Bara eins og eru í öllum sam­skiptum. Það eru bara ann­markar í sam­skiptum fólks, það verður ekki hjá því kom­ist.“ 

Eitthvað sem hugs­an­lega gæti talist til and­legs ofbeldis?

„Nei.“ 

Hún seg­ist ekki telja að neinu hafi verið við upp­runa­lega nið­ur­stöðu rík­is­sak­sókn­ara að bæta á sínum tíma, þegar málið var látið niður falla.

„Nei, engu. Af því að ég álít að þetta þjóð­fé­lag sem við búum í sé gott. Við verðum að standa vörð um það og rétt­læti þessa þjóð­fé­lags. 

Aðspurð hvort hún sjái eftir ein­hverju segir hún svo ekki vera.

„Nei. Það held ég ekki. Ég gæti kannski ekki alveg sungið eins og Edith Piaf, „Non, je ne regrette rien“.“ 

Hún hlær. 

„Nei, ég taldi að það væri rétt að stofna þetta heim­ili. Það var kannski vit­laust. En ég taldi það vera rétt og ég gekkst fyrir því.“ 

Aðspurð hvers vegna það gæti hafa verið vit­laust segir hún:

„Þessar stúlkur sem voru þar, margar hverjar, telja sig hafa orðið miklu óham­ingju­sam­ari á eftir.“ 

Skilurðu eitt­hvað í því?

„Ég harma það, vegna þess að ég held að þær hefðu getað orðið ham­ingju­samar. Ég held að þetta hefði átt að geta orðið þeim til gleði.“  

Hvers vegna held­urðu að það hafi ekki gerst?

„Ég veit það ekki. Og ég veit ekki hvernig ég gæti vitað það.“

„Hrikalegur áfellisdómur þessarar nefndar“

„Við getum ekki haft þjóð­fé­lag sem er að drep­ast úr kjafta­gangi,“ segir Séra Auður Eir. „Þetta fer með okkur, þetta eyði­leggur okkur. Hvað eigum við að gera? Við, fólkið í vest­ur­bænum og aust­ur­bænum, við bara verðum að treysta á ykkur, fólkið sem er að skrifa. Við verðum að treysta því. Eins og ég sá, þegar fólkið tal­aði við mig. Daginn út og dag­inn inn hringdi fólk í mig og skrif­aði svo eitt­hvað endemis kjaftæði. Mogginn var eina blaðið sem aldrei fór með fals­fréttir. Mér finnst það voða gaman, þegar ég les Moggann á morgn­ana. Það er dásam­legt.“

Hún heldur áfram. „Dómurinn sagði að það var engin ástæða til að fara lengra með málið. Var það kannski af því að Gunnar var móð­ur­bróðir minn og Gylfi var föð­ur­bróðir minn? Það er hrika­legur dómur að segja það. Það er hrika­legur dómur.

Hugsaðu um þig. Þú ert eitt­hvað og það er sagt að það sé af því að hún Sigríður sé móð­ur­systir þín. Það er hrika­legt. Það er hrika­legur dómur. Hérna kemur svo Róbert Spanó og segir: „Það eru meiri en minni lík­indi á því að þetta hafi verið satt, allt þetta sem var sagt.“ Það er aga­legur dómur. Hrika­legur áfell­is­dómur þess­arar nefndar. Það verður bara að hafa það, ég verð bara að lifa við þetta og ég get vel lifað við þetta en þetta er hrika­legur dómur fyrir þetta þjóð­fé­lag, finnst mér.

Ég veit ekki af hverju þessar stelpur segja þetta, ég hef ekki hug­mynd um það. Þú veist það ekki. Enginn veit það. Eða, ég veit ekki hvort ein­hver veit það – en ég veit það ekki. Ekki veist þú það. En þú ætlar samt að segja það. Þú veist ekki hvort það er satt. Eigum við öll rétt á rödd okkar, eigum við öll rétt á að segja bara eitt­hvað, eins og fólk skrifar á sam­fé­lags­miðl­ana? Eigum við öll rétt á að skrifa bara eitt­hvað um hvert annað?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtal

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“
Menning

Hug­víkk­andi efni hjálp­uðu Unni í skiln­að­inum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“

Unnur Gunn­ars­dóttir segir að hug­víkk­andi efni hafi gjör­breytt lífi sínu. Nýjast gestur þátt­ar­ins Segðu mér á Rás 1, sem er í umsjón Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, er Unnur Helga Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bak­arís­ins Jóa Fel og fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóa Fel en hún fer þar meðal ann­ars yfir skiln­að­inn og hug­víkk­andi efni sem hún segir að hafi breytt lífi sínu. Eftir tæp­lega...
Ragnar Freyr segir læknastarfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefninn er ekki í lagi“
Menning

Ragnar Freyr segir lækna­starfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefn­inn er ekki í lagi“

Ragnar Freyr Ingv­ars­son læknir seg­ist ganga stoltur frá verk­efni sínu sem yfir­maður göngu­deildar Covid. Ragnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að það að vinna við að hafa líf fólks í hönd­unum geti verið erfitt. Jafnvel þó að læknar hafi gert allt sitt sé mjög erfitt að horfa upp á sjúk­linga versna af sjúk­dómum eða deyja: „Þegar...
Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Kannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði
Menning

Kannabis mætir skorti á blóð­vökva – Viðtal við sér­fræð­ing á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði

„Árleg áætluð eft­ir­spurn eftir blóð­vökva hefur verið um 160 millj­ónir lítra en um 100 millj­ónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sér­fræð­ingur á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði, en fyr­ir­tæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjör­bylt heil­brigð­is­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með dokt­ors­próf í lækn­is­fræði frá Charles háskól­anum í...
Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“
Menning

Fjöl­skyldu­faðir tekst á við stórt áfall með plötu­út­gáfu: „Þú stýrir ekki vind­inum …“

Atli Þór Sig­urðs­son greind­ist með heila­æxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frum­sömdu efni. Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem for­rit­ari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breið­holt­inu en hefur búið í Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins