„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ísdrottningin Ásdís Rán komin heim: Íslenskir karlmenn oft hræddir við mig

Ísdrottningin Ásdís Rán komin heim: Íslenskir karlmenn oft hræddir við mig

Ísdrottn­ingin, Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, hefur verið á milli tann­anna á Íslend­ingum síðan hún var korn­ung. Hún hefur marga fjör­una sopið síðan hún kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið sem fyr­ir­sæta á ung­lings­aldri. Ásdís er nú komin til Íslands, eftir að hafa meira og minna búið erlendis í fjöl­mörg ár, aðal­lega í Búlgaríu. Í kjöl­far alls kyns ævin­týra, verk­efna og við­skipta flutti hún aftur heim í kjöl­far Covid-tíma­bils­ins og er sest hér að í bili. En þó að hún sé komin heim á klak­ann er aug­ljóst að Ásdís er ekki ákveðin í að setj­ast hér alfarið að.

„Ég vil nú ekki meina að ég sé komin heim alveg fyrir fullt og allt, en dóttir mín vildi koma til Íslands núna, sér­stak­lega eftir erfitt Covid-tíma­bil í Búlgaríu. Hún sá á sam­fé­lags­miðlum að jafn­aldrar hennar voru miklu frjáls­ari hér á Íslandi og ég fann að hún vildi fara og mér fannst ég ekki geta annað en farið heim, að minnsta kosti tíma­bundið. Hún er að fara í gegnum ung­lings­árin, sem eru mjög mik­il­væg félags­lega séð. Það voru búnar að vera harðar Covid-reglur í Búlgaríu og námið fór meira eða minna fram í gegnum netið í tvö ár og hún var nán­ast búin að vera með mér 24 tíma á dag allan þann tíma. Hún var bara búin að fá nóg. Þannig að það lá bein­ast við að koma heim til Íslands,“ segir Ásdís, sem er aug­ljós­lega ánægð að dóttir hennar fái að njóta sín á Íslandi, þó að hún sjálf sé aðeins á báðum áttum enn þá:

 „Hún er mjög glöð að vera hér, en ég á alltaf svo­lítið erfitt með að vera ein­göngu á Íslandi. Eftir svona mörg ár í öðrum menn­ing­ar­heimi er ég orðin vön ákveðnum hlutum. Þó að landið sé frá­bært, þá er eitt­hvað sem veldur því að ég er ekki alveg búin að aðlag­ast eftir allan þennan tíma úti. Sér­stak­lega fyrst eftir að ég kom heim, þá fannst mér stundum eins og að það væri þungt teppi yfir mér. Bæði veðrið og líka að hafa ekki sömu mögu­leika til að gera hluti.“

Ásdís hefur um ára­bil verið stærstan hluta árs­ins í Búlgaríu og það er aug­ljóst að hún kann mjög vel við sig þar og að Búlgaría er í raun orðin heima­völlur hennar. 

„Ég hef aðlag­ast líf­inu í Búlgaríu vel og mér hefur í raun liðið mjög vel þar, alveg frá því að ég kom fyrst til lands­ins.“

Brynvarðir bílar, límósínur, demantar og lífverðir

Ásdís fór upp­haf­lega til Búlgaríu með fyrr­ver­andi manni sínum, knatt­spyrnu­mann­inum Garðari Gunn­laugs­syni. Hug­myndin var að lifa rólegu og þægi­legu lífi, þar sem hann fengi athygl­ina, en hún sæi um heim­ilið. En mjög fljótt kom í ljós að fram­vindan ætti eftir að verða önnur.

„Þetta byrj­aði allt með því að Garðar fékk til­boð frá CSKA Sofia í Búlgaríu árið 2008. Þá vissum við í raun ekki mikið um landið, en höfðum í ein­hvern tíma verið að hugsa um að okkur lang­aði að flytja í hlýrra land og á end­anum ákváðum við að slá til. Hann skrif­aði undir samn­ing­inn og við ákváðum í kjöl­farið að flytja til Sofiu, höf­uð­borgar Búlgaríu. Maður fann mjög fljótt að knatt­spyrnu­menn­irnir eru algjörar stór­stjörnur þarna, sem olli því að fjöl­miðl­arnir fóru fljótt að skoða hver væri eig­in­kona Garðars. Þá gerð­ist það eig­in­lega á einni nóttu, að fjöl­miðlar fengu mik­inn áhuga á mér. Það var til svo mikið af myndum og greinum um mig, að þær fóru strax að velt­ast um í gulu press­unni og þá varð ekki aftur snúið. Ég hafði séð fyrir mér að ég yrði fót­bolta­eig­in­kona með börn og myndi lifa rólegu lífi í Búlgaríu, en það breytt­ist hratt,“ segir Ásdís bros­andi og heldur áfram:

„Ég fékk strax mikla athygli og gat því fljótt búið til minn eigin feril. Ég fékk mjög fljótt vel borgað fyrir þau verk­efni sem ég tók að mér og þetta var eig­in­lega bara draumur í dós. Mér leið mjög fljótt eins og ég væri komin á minn heima­völl og kunni mjög vel við alla athygl­ina sem ég fékk og hvað ég fékk mörg tæki­færi.“

Ásdís neitar því samt ekki að sumt sem þyki eðli­legt í Austur-Evrópu væri litið öðrum augum á Íslandi og hinum Norð­ur­lönd­unum. 

„Auðvitað er margt skrýtið og sér­stakt miðað við það sem við þekkjum, sér­stak­lega þegar kemur að þekktu og ríku fólki í Austur-Evrópu. Bryn­varðir bílar, límósínur, dem­antar og líf­verðir eru bara eðli­legur hlutur fyrir fólk sem á pen­inga í Búlgaríu og lífs­stíll­inn er oft og tíðum mjög ýktur. Sumir af þeim sem eiga mestu pen­ing­ana eru ekki í lög­legri starf­semi. Þegar við tölum um aust­ur­evr­ópskar mafíur þá erum við að tala um alvöru mafíur. Und­ir­heim­arnir í Búlgaríu eru ekki eins og und­ir­heimar Íslands og sumt er eins og það sé klippt út úr bíó­mynd. En þó að það hafi á köflum verið skraut­legt að vera innan um þessa hluti getur það líka verið mjög skemmti­legt.“

Ásdís segir að mjög margt hafi breyst á und­an­förnum árum í Búlgaríu og að höf­uð­borgin sé orðin mun vest­rænni en hún var. Það sé fjöldi við­burða um alla borg og frá­bærir veit­inga­staðir og kaffi­hús á hverju strái. Þó að hún hafi ferð­ast um allan heim og búið víða, kann hún hvergi betur við sig en í Sofiu. 

 „Mér finnst Búlgaría stór­kost­legt land og ég elska Búlgaríu. Mér hefur alltaf liðið vel þarna og var með­tekin af sam­fé­lag­inu strax og hef alltaf upp­lifað almenna vel­vild frá fólki.“

„Ég vil trúa því að hún sé enn á lífi“

Það er aug­ljóst að Búlgaría er orðin stór hluti af Ásdísi og að hún sér fyrir sér að vera áfram með annan fót­inn þar. Eitt af því áhuga­verð­ara og erf­ið­ara sem Ásdís upp­lifði í Búlgaríu var þegar ein besta vin­kona hennar, Ruja Ignatova, hvarf spor­laust árið 2017, eftir að hafa tengst fjársvika­máli sem vakti heims­at­hygli. Ruja var, þegar hún hvarf, orðin millj­arða­mær­ingur í gegnum raf­mynt­ina OneCoin. Ásdís og Ruja voru í miklu sam­bandi allt þar til dag­inn sem sú síð­ar­nefnda hvarf spor­laust og ekki hefur spurst til hennar síðan.

 „Við höfðum verið vin­konur alveg frá árinu 2009 og þekkt­umst mjög vel. Hún fjár­festi í fyrsta fyr­ir­tæk­inu mínu í Búlgaríu og við urðum fljótt góðar vin­konur. Hún var alltaf vel stæð, en undir það síð­asta var hún orðin millj­arða­mær­ingur og líf hennar hafði breyst sam­kvæmt því. Ég var með henni síð­ustu tvo mán­uð­ina áður en hún hvarf og þá vildi hún ekki umgang­ast nema örfáa. Þá vorum við mest við Svarta­hafið, þar sem hún var með risa­stóra snekkju á fjórum hæðum. Þó að ég hafi auð­vitað ekki haft hug­mynd um hvað var í vændum, fann ég undir það síð­asta að hún var orðin mjög skrýtin og slæm í skap­inu. Ég hélt að hún væri bara orðin þung­lynd og buguð af álagi, af því að vera að stjórna þessu öllu alein. Hún var orðin mjög vör um sig og ótt­að­ist að fólk væri á eftir henni, en ég hélt að það væri bara af því að hún var orðin svo rosa­lega rík og í Austur- Evrópu eru miklu fleiri hættur fyrir ríkt fólk. En svo hvarf hún bara og ég hef ekk­ert heyrt frá henni síðan, né nokkur annar í kringum hana.“

 Heimsathygli

Mál Ruju hefur vakið heims­at­hygli og auk fjölda blaða­greina stendur yfir vinna að bæði heim­ilda­myndum og -þáttum um málið í heild. Fjöl­miðlar í Bret­landi og víðar hafa fengið Ásdísi í við­töl vegna máls­ins. 

 „Það er kannski ekki skrýtið að fjöl­miðlar og þátta­gerða­menn vilji fá mig í við­töl af því að ég er nán­ast sú eina sem umgekkst hana mikið sem er ekki í fang­elsi. Hún treysti ekki mörgum og ég var ein af örfáum sem hún hleypti nálægt sér. Ég hef fengið mjög margar fyr­ir­spurnir frá fjöl­miðlum um allan heim, alveg síðan hún hvarf. Fyrr á árinu var ég í tökum vegna heim­ilda­þátta um hana og OneCoin-ævin­týrið allt saman. Ég reikna með að það komi bæði stórir heim­ilda­þættir og bíó­mynd um málið í haust og á næsta ári.“

Ásdís og Ruja voru mjög nánar og Ásdís vonar að sjálf­sögðu að vin­kona hennar sé á lífi, en eftir því sem tím­inn líður verður það sífellt ólík­legra.

„Ég vil auð­vitað trúa því að hún sé á lífi, en úr því sem komið er virð­ist það mjög ólík­legt. Það hefur eng­inn sem var í kringum hana heyrt neitt síðan hún hvarf, hvorki ég né aðrir.“

 Byrjaði í við­skiptum sem ung­lingur

Áður en Ásdís flutti til Búlgaríu hafði hún tekið þátt í fjölda verk­efna hér heima og iðu­lega var hún sjálf drif­kraft­ur­inn á bak við alls kyns við­burði, vöru­línur og fleira. Við færum talið frá Búlgaríu aftur að Íslandi og ég spyr Ásdísi út í öll þau fjöl­mörgu verk­efni sem hún hefur tekið þátt í og komið sjálf af stað. Hún seg­ist í raun hafa verið frum­kvöð­ull og við­skipta­kona allar götur frá því að hún var ung­lingur.

 „Ég hef verið við­loð­andi við­skipti frá því að ég var 17-18 ára gömul. Þá byrj­aði ég að sjá um alls konar við­burði og síðan stofn­aði ég fyr­ir­sætu­skrif­stofu út frá því. Ég hef alltaf verið með mikið sjálfs­traust og þorað að fara mínar eigin leiðir og ganga á eftir því sem ég vil. Ég sé það núna að það var lík­lega meira hug­rekki og kraftur í mér en flestum jafn­öldrum mínum á þessum tíma. Það var alltaf mik­ill eld­móður í mér og haus­inn á mér oft að springa úr hug­myndum. Ég man að ég tók þátt í keppni um við­skipta­á­ætl­anir þegar ég var 16 ára hjá Iðn­tækni­stofnun og í kjöl­farið hringdi ég í við­skipta­fólk víða um bæinn og bað um fundi hingað og þangað. Sumum fannst skrýtið að sjá stelpu á þessum aldri með við­skipta­hug­myndir, en almennt fann ég að fólk virti mig fyrir hug­rekkið og mér var yfir­leitt alltaf tekið vel.“

Ásdís hefur um ára­bil verið á milli tann­anna á fólki á Íslandi. Hún er sjálf orðin mjög vön því, en segir að stundum hafi hún þurft að hugsa sig tvisvar um vegna fólks­ins í kringum sig. Það tók hana til dæmis tals­verðan tíma að taka ákvörðun um að sitja fyrir á for­síðu Playboy.

„Ég var með til­boð frá Playboy á borð­inu í tvö ár, áður en ég ákvað loks­ins að kýla á það. Þá var það Garðar sem hvatti mig til þess. Ég hafði verið hik­andi, ekki síst vegna þess að ég var að hugsa um fjöl­skyld­una mína, vegna þess að ég vissi að það yrði mikið umtal um þetta á Íslandi. Það að fá athygli fyrir hluti eins og þessa snýst ekki bara um mann sjálfan. Enda kom það á dag­inn að það varð hálf­gerð spreng­ing í fjöl­miðl­unum hérna heima þegar ég lét verða af því að sitja fyrir hjá Playboy. En svo venst þetta og núna eru lík­lega flestir orðnir vanir því að ég búi til ein­hverjar fjöl­miðla­sprengjur á Íslandi,“ segir Ásdís og brosir.

Ég er bara ekki með filter

Hún seg­ist aldrei með­vitað hafa gert í því að vera umdeild. Hún telur að það stafi frekar af því að hún segi skoð­anir sínar umbúða­laust og hafi alltaf gert. Hún segir það ein­fald­lega vera hennar stíl og að það sé ekki að fara að breyt­ast í bráð.

 „Ég er bara ekki með filter og mér er alveg sama. Ég vil koma til dyr­anna eins og ég er klædd og ég hef alltaf verið þannig. Ef ein­hver þarf að tala illa um mig þá verður bara að hafa það, ég ætla ekki að fara að rit­skoða mig,“ segir hún og er örlítið hugsi yfir því hvers vegna fólk hafi svo mikla þörf á að tala aðra niður.

 „Mér hefur alltaf fund­ist skrýtið hve margir á Íslandi hafa þörf fyrir að tala niður fólk sem það þekkir ekki. Kannski er það smæðin, en á Íslandi er að mínu mati of algengt að fólk vilji gera lítið úr þér, alveg sama hvað þú ert dug­leg eða stendur þig vel. Þú færð ekki við­ur­kenn­ingu fyrir þín störf fyrr en þú gerir eitt­hvað erlendis. Þá allt í einu breyt­ist stemm­ingin og ég fann það mjög vel eftir að ég fór að gera góða hluti í öðrum löndum. Ég er ekki að vor­kenna sjálfri mér og veit að það er mjög margt frá­bært fólk hér og ég á að margt fólk sem vill mér vel. En ef þú vekur athygli á Íslandi er mjög algengt að fólk vilji troða ofan á þér og tala þig niður,“ segir Ásdís og bætir við að hún finni mun á kynj­unum.

 „Karl­arnir eru meira „líbó“, en íslenskar konur hafa dáldið mikið verið að hafa sterkar skoð­anir á mér og oft nei­kvæðar.“

Íslenskir karlmenn hræddir við mig

En þó að Ásdís segi íslenska karl­menn vera jákvæða í hennar garð, telur hún að þeir séu upp til hópa á ein­hvern hátt hræddir við hana. Hún hlær þegar talið berst að íslenskum karl­mönnum.

„Það er ólík­legt að ég finni mann á Íslandi, en maður veit svo sem aldrei. Kannski á ég eftir að kynn­ast ein­hverjum frá­bærum íslenskum manni og stofna með honum fjöl­skyldu. Þá mun ég kannski vilja búa hér allan árs­ins hring. En ég sé það og finn, að þeir eru oft hræddir við mig. Kannski finnst þeim ég vera of mikið, eða að þeir séu ekki nógu góðir eða ríkir fyrir mig. En ég ætla ekki að alhæfa um íslenska karl­menn og kannski er þetta meira af því að ég er búin að vera áber­andi í gegnum tíð­ina og það er kannski bara of mikið fyrir flesta. Ég er líka sterkur per­sónu­leiki,“ segir Ásdís og brosir.

Ævisagan

Þessi öfl­uga athafna­kona hefur lifað fjöl­breyttu lífi og séð og upp­lifað hluti sem fæstir sjá. Það liggur því beint við að spyrja hana hvort það sé ekki von á ævi­sögu. 

„Það hafa margir leitað til mín í gegnum tíð­ina með þá hug­mynd og ég er ekki frá því að núna gæti rétti tím­inn verið að renna upp. Ég er búin að vera með það á bak við eyrað í tals­verðan tíma að skrá ævi­sögu mína og ætl­aði alltaf að láta vaða í kringum fimm­tugt. Nú er ég orðin 42 ára, þannig að kannski fer að koma að þessu. Ég veit í það minnsta að þegar ég læt skrifa ævi­sög­una ætla ég ekki að draga nokkuð undan. Þá koma öll ævin­týrin á borðið og mikið af hlutum sem hafa aldrei komið upp á yfir­borðið. Þó að ég hafi farið í öll þessi við­töl í gegnum tíð­ina, þá er mjög mikið eftir sem fólk veit ekki og ég hef ekki gefið upp hingað til. Öll ást­ar­æv­in­týrin og sögur af þekktu og ríku fólki. Ég er nú ekki ill­gjörn mann­eskja, en það verða örugg­lega ein­hverjir stress­aðir áður en bókin kemur út,“ segir Ásdís og hlær.

Myndi deyja sátt 

Það er komið að lokum á spjalli okkar Ásdísar og við endum á að horfa yfir þennan langa og fjöl­breytta feril með alls kyns ævin­týrum og upp­á­komum. Þegar Ásdís lítur yfir far­inn veg er henni efst í huga þakk­læti yfir því hve margt hún hefur fengið að upp­lifa og hún seg­ist ekki sjá eftir neinu.

„Mér finnst mik­il­væg­ast þegar maður horfir til baka, að geta sagt að maður hafi fengið tæki­færi til að upp­lifa draumana sína. Ég get svo sann­ar­lega sagt það um sjálfa mig. Ég er búin að gera nán­ast allt sem mig hefur langað að gera í gegnum tíð­ina. Ef ég myndi drep­ast á morgun myndi ég deyja sátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins