„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristrún Frostadóttir: „Ég er augljóslega að valda einhverjum titringi“

Kristrún Frostadóttir: „Ég er augljóslega að valda einhverjum titringi“
Kristrún Frosta­dóttir

Kristrún Frosta­dóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Í við­tali við Reyni Trausta­son talar hún meðal ann­ars um hver sér finn­ist vera mis­tök Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, hún talar um Sjálf­stæð­is­flokk­inn og hvað gera þurfi innan Sam­fylk­ing­ar­innar til að reisa flokk­inn upp. Kristrún talar um hvað fékk hana til að fara út í stjórn­mál og við­brögðin við inn­komu hennar á svið stjórn­mál­anna. Þá talar hún um hvert henni finn­ist vera stóra verk­efnið.

Þú hefur verið dug­leg að skamma Katrínu.

„Ég meina, hún er for­sæt­is­ráð­herra. Hún er eig­in­lega æðst setti ein­stak­ling­ur­inn á Íslandi. Það er ekk­ert óeðli­legt að for­sæt­is­ráð­herra sæti gagn­rýni,“ segir Kristrún Frosta­dóttir sem hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns Sam­fylk­ing­ar­inar.

Það er ekk­ert ótrú­legt að þú verðir for­sæt­is­ráð­herra ef allt gengur vel. Hvar eru mis­tökin hennar? Hvað þýðir þessi dans við Sjálf­stæð­is­flokk­inn?

Og ég sé ekki hvar kjarn­inn hjá Katrínu er lengur.

„Mér finnst hún hafa gefið allt of mikið eftir af kjarn­anum. Það er grund­vall­ar­at­riði hvernig ég er að stilla mínu fram­boði upp og sýnin sem ég hef fyrir Sam­fylk­ing­una; við skil­greinum svo­lítið kjarn­ann okkar af því að fólki hættir til að fær­ast flokkum of mikið í fang, vera í öllu, og í fjór­flokka­sam­starfi sem mun alltaf verða á Íslandi þá muntu alltaf þurfa að gefa ein­hvers staðar eftir. Það liggur alveg fyrir. Og það er bara heið­ar­legt gagn­vart kjós­endum þrátt fyrir að fólk getur vitað á hvaða línu þú ert í hinum og þessum málum; það finnst mér allt í lagi. En þú þarft að skil­greina hvar kjarn­inn þinn er. Hvar þú gefur ekki eftir. Og ég sé ekki hvar kjarn­inn hjá Katrínu er lengur. Það er í raun­inni ekki mitt hlut­verk að skil­greina VG eða skil­greina Katrínu en miðað við hvernig þau fóru fram á sínum tíma og hvað kjós­endur bjugg­ust við þá er þessi kjarni finnst mér far­inn ef ég er að hugsa um vel­ferð­ar­mál og almenna stýr­ingu rík­is­fjár­mála. Ég hef verið sér­stak­lega gagn­rýnin á einmitt valdið sem felst í fjár­mála­ráðu­neyt­inu kannski vegna þess að þetta hefur verið mitt sér­svið: Efna­hags­málin og rík­is­fjár­málin. Og ég myndi vilja koma með þann styrk­leika inn í jafn­að­ar­manna­flokk vegna þess að sós­í­alde­mókrat­ískir flokkar á Norð­ur­löndum og í Evórpu eru sterkir flokkar líka í rík­is­fjár­málum. Þetta eru ekki bara mjúku málin. Þetta eru ábyrgð­ar­flokkar að þessu leyt­inu til.“

En það er alltaf hætt við að þetta verði útvatnað. Þú ert með Sjálf­stæð­is­flokk­inn með allt sitt vesen í fartesk­inu. Bjarna Ben. Og þarna koma saman þessir pólar. Flokk­ur­inn sem var lengst til vinstri en er ein­hvers staðar nær miðj­unni núna. Og það er það sem hefur nátt­úr­lega gerst að menn hafa þurft að útvatna þetta mikið. Þið sögðuð fyrir kosn­ingar „við munum ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum“. Voru það mis­tök?

Það er verið að stunda póli­tík í dag sem er þessi póli­tík óhjá­kvæmi­leika.

„Ég veit það ekki. Ég er sjálf ekk­ert hrifin af því að fara að skil­greina fyrir fram nákvæm­lega hvernig stjórn­ar­sam­starfi við erum í. Ég held að fólk geti lesið það út úr mínum áherslum og áhuga hvar ég myndi helst vilja sjá stjórn­ar­sam­starf. Aðal­málið finnst mér vera að við vitum bara hver er okkar innri átta­viti og kjarni; að við séum komin með trú­verð­ugar lausnir þegar kemur að heil­brigð­is­málum, hús­næð­is­málum og ef við tölum um opin­berar fjár­fest­ingar í sam­göngum; bara svona klass­ískt jafn­að­ar­manna­mál. Lífeyris- og trygg­inga­málin. Og síðan að við séum með trú­verð­uga rík­is­fjár­mála­stefnu, við sýnum skiln­ing á því hvernig skatt­kerfið er rekið og hvar vantar fjár­magn og hvar er hægt að breyta til og hliðra vegna þess að það er það sem hefur vantað inn í þessa rík­is­stjórn. Það er eitt­hvað mót­vægi við rík­is­fjár­mála­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins vegna þess að þú getur sagt allt sem þú vilt, þú getur verið jafn­að­ar­maður fyrir kosn­ingar eins og margir af þessum flokkum hálf­part­inn eru af því að það eru svo margir Íslend­ingar í hjarta sínu, hvort sem ég sé að fara að skil­greina fólk eða ekki; fólk er vel­ferðar- og sam­fé­lags­sinnað. En mitt helsta ósætti við þessa rík­is­stjórn er hversu oft er hægt að koma fram og segj­ast ætla að gera eitt­hvað sem þú gerir svo ekki vegna þess að þú færð ekki fjár­magn fyrir því. Þetta snýst ekki bara um að finna þeim allt til for­áttu og reyna að vera leið­in­leg í stjórn­ar­and­stöðu. Fyrir mér snýst þetta líka um að þú ert að ala á van­trú fólks í sam­fé­lag­inu á að kerfið okkar geti virkað. Þú ert að ala ein­hvern veg­inn á van­trú á stjórn­mál­unum. Ég vil að boð­skapur jafn­að­ar­manna sé að við getum gert þetta, þetta sé í okkar höndum, þetta sé okkar sam­fé­lag og þetta er ekki alþjóða­vandi. Við erum að tala um okkar heil­brigð­is­kerfi, okkar hús­næð­is­mál. Ef við sem sam­fé­lag viljum leysa þetta þá eigum við að leita leiða og finna leiðir ef það þarf fjár­magn; ef það þarf ein­hverja nýja stefnu. En það er verið að stunda póli­tík í dag sem er þessi póli­tík óhjá­kvæmi­leika: „Það er ekki hægt að gera þetta öðru­vísi, ykkar hug­myndir eru ein­hver útópía.“ Og meira að segja inn á milli er sagt „við erum að gera eitt­hvað“. En svo opna ég fjár­lögin eða fjár­mála­á­ætlun og segi „fyr­ir­gefðu, þú ert að skera niður í þessum mála­flokki; hvernig getur það verið?“ Og þetta finnst mér óheil­brigt fyrir stjórn­málin. Og ég er alveg til­búin að segja af og til óvin­sæla hluti til þess að fólk sjái að maður meinar það sem maður er að segja. Vegna þess að það vantar líka trú­verð­ug­leika inn í stjórn­málin og að fólk hafi trú og þar reynir á okkur eins og aðra flokka, Sam­fylk­ing­una.“

Ég tal­aði svo­lítið um það í ræðu minni í fram­boð­inu að fara aftur í kjarn­ann.

Muntu ekki úti­loka stjórn­ar­sam­starf við neinn?

„Ég er alla­vega ekki komin á þann stað að stilla hlut­unum þannig upp. Mér finnst aðal­málið núna áður en maður fer að hugsa um rík­is­stjórn­ar­sam­starf vera að vinna í flokknum, styrkja flokk­inn og að við kjörnum okkur betur. Ég tal­aði svo­lítið um það í ræðu minni í fram­boð­inu að fara aftur í kjarn­ann; að leggja ofurá­herslu á þessi klass­ísku jafn­að­ar­manna­mál – kjör, efna­hag og vel­ferð – og að við upp­lifum mik­inn styrk­leika þar og fólk treysti okkur og trúi okkur til verka þar. Og það er bara rosa­lega mikið verk­efni. Það er mikið verk­efni fyrir okkur. Síðan er það seinni tíma mál hvernig póli­tíkin spil­ast, hverjir verða í for­svari hvar og hvernig áherslur liggja. Það er alveg ljóst af mínum áherslum hvers konar stjórn­ar­sam­starf mér fynd­ist álit­leg­ast. Síðan er það til umræðu þegar að því kemur.“

Og það er til vinstri frá miðju?

„Með þessum vinstri flokkum sem hafa trú á okkar kjarna­málum og vilja fjár­magna þau og hafa áhuga á að reka sam­fé­lagið öðru­vísi.“

Engar skyndilausnir

Kristrún er spurð hvar mis­tök Sam­fylk­ing­ar­innar liggja; flokkur sem var með 32% fylgi og fór svo niður í að rétt lafa inni á þingi og síðan kom upp­risan með Loga en féll svo aftur.

„Ég veit það ekki og ég veit ekki hvort það sé mitt hlut­verk að fara í eitt­hvað upp­gjör á því. Ég held að það séu alls konar hlutir sem spili þar inni í. Við vitum til dæmis að flokka­lands­lagið hefur breyst eftir hrun.“

Kristrún bendir á að það hafi komið fram í könn­unum að fólk eigi erfitt með að festa hendur á hvað Sam­fylk­ingin stendur fyrir. „Fyrir mér er það bara lyk­il­at­riði. Sama hvernig það gerð­ist. Hverjum það er að kenna. Það er staðan sem er uppi í dag. Mér finnst að það ætti að vera aug­ljóst hvað jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands stendur fyrir. Partur af því er einmitt að fara svo­lítið út í það sem ég upp­lifi að sé í raun­inni sam­ein­ing­ar­málin okkar af því að ég er á þeirri skoðun að það séu margir svona þenkj­andi á Íslandi þótt ég ætli ekki að setja alla í Sam­fylk­ing­una á Íslandi. Ég er búin að ferð­ast út um allt land og finn það í sam­tölum mínum við fólk að það vill að þessir hlutir séu í lagi og er miklir vel­ferð­ar­sinnar; að við sam­ein­umst um málin sem er meiri­hluti fyrir. Að við setjum alefli okkar og orku í þau mál. Þetta eru risa­stór mál. Það að leysa stöð­una í heil­brigð­is­kerf­inu; ef það tekst að gera það í næstu rík­is­stjórn þá er það mik­ill árangur. Ef það tekst að stíga stór skref í hús­næð­is­málum þá er það mik­ill árangur og ef það tekst að bæta stöð­una þegar kemur að sam­göngum úti á landi. Þetta eru risa­stór verk­efni. Flokkum hættir til að fær­ast of mikið í fang og þá skap­ast þessi van­trú. Fólk upp­lifir að þú oflofar; þú skilar ekki af þér. Ég held að það mik­il­væg­asta sem Sam­fylk­ingin geti gert núna sé að setja fókus á þau mál sem við gefum ekki afslátt á og þegar við komumst næst í rík­is­stjórn sem verður á næsta kjör­tíma­bili að skila þá af okkur því sem við lof­uðum.“

Að upp­lifa ekki eins og við þurfum að sýna allt á einu kjör­tíma­bili.

Kristrún nefnir líka trú­verð­ug­leika og að það sé lang­tíma­verk­efni að byggja flokk­inn aftur upp. „Þetta mun ekki ger­ast í einum kosn­ingum þannig að við verðum að hafa líka sjálfs­traust þegar við förum inn í þetta núna; að stjórna eins og við séum ekki bara að fara að vera í eitt kjör­tíma­bil. Að upp­lifa ekki eins og við þurfum að sýna allt á einu kjör­tíma­bili. Af því að í fyrsta lagi er algert ofmat að það sé hægt að koma ein­hverju í gegn bara á fjórum árum. Það er oft ofmat hvað þú getur gert á einu ári og van­mat hvað þú getur haft mikil áhrif á 10 árum eins og þessi rík­is­stjórn hefur í raun gert.“

Kristrún seg­ist halda að það sé algert lyk­il­at­riði að flokk­ur­inn finni innra sjálfs­traust til að velja mál sem hann keyrir á og gefi ekki neinn afslátt og geti síðan séð fyrir sér að byggja þetta upp. „Þetta er lag­skipt. Fyrsta kjör­tíma­bil þetta. Á öðru kjör­tíma­bili erum við komin með virk­ari teng­ingu við fólkið í land­inu til að kynna til sög­unnar önnur og fleiri mál. Það eru engar skyndi­lausnir.“

Lét slag standa

Kristún er spurð hvað hafi rekið hana út í póli­tík með öllu sem því fylgir.

„Ég veit ekki hver er hefð­bundna leiðin inn í póli­tík ef ég á að segja alveg eins og er. Ég var ekki búin að alast upp í flokknum og ég var ekk­ert virk í ung­liða­starfi og ég hafði í raun­inni verið í vinnu árinu áður þar sem ég gat ekk­ert verið póli­tískt virk vegna þess að ég var mikið í sjálf­stæðum grein­ingum og efna­hags­málum og þá auð­vitað þykir við­kvæmt að vera ein­hvern veg­inn í póli­tík því tengdu. En þetta var svo sem ekk­ert planað hjá mér en ég held að margir sem hafa þekkt mig í gegnum tíð­ina hefðu alveg getað séð þetta ger­ast. Ég hef alltaf haft miklar skoð­anir á þjóð­fé­lags­málum. Þegar ég flutti heim 2017 frá Banda­ríkj­unum og Bret­landi þá var ég svo­lítið að fóta mig í því hvernig mitt fram­lag gæti verið hérna heima; á hvaða vett­t­vangi ég gæti starfað. Vinnu­mark­að­ur­inn er svo­lítið sér­stakur hérna; það eru áhuga­verð tæki­færi hérna – ég get orðað það sem svo – en af því að þetta er lítið sam­fé­lag og lítið kerfi þá eru færri mögu­leikar í boði fyrir fólk með minn bak­grunn í grein­inga­vinnu og þjóð­fé­lags­málamræðu og póli­tík er bara mjög áhuga­verður staður til þess að taka þátt í þjóð­fé­lag­inu í raun.“

Kristrún er svo spurð hvort haft hafi verið sam­band við hana og hún beðin um að gefa kost á sér.

Ég lét slag standa og ég vissi ekk­ert að þetta myndi þró­ast svona.

„Þetta var ekk­ert mjög skipu­lagt. Ég hafði tekið mjög virkan þátt í umræð­unni í tengslum við Covid og efna­hags­mála­að­gerð­irnar í tengslum við Covid. Þegar ég var aðal­hag­fræð­ingur hjá Kviku þá skrif­aði ég mikið um hvað var að ger­ast í efna­hags­líf­inu og var mjög hugsi yfir því hvaða aðgerða var verið að grípa til og var kannski farin að sýna á mér ein­hverjar póli­tískar hliðar þó ég hafi upp­lifað að þetta hafi verið mjög fag­legt. En auð­vitað hefur maður ein­hvern kjarna sem kemur svo­lítið í gegn. Og það hafði ein­hvern tím­ann verið nefnt við mig að fara í fram­boð en ef maður tekur mómentið þá var það að Jói, Jóhann Páll, sem er með mér inni á þingi,“ segir Kristrún og bætir við að hann hafi heyrt í sér hljóðið og spurt hvort hún gæti ein­hvern tím­ann hugsað sér að fara í fram­boð. Hún segir að það hafi verið um jólin 2020 sem hún hafi frétt í gegnum hann og fleiri sem voru í ung­liða­hreyf­ing­unni að það væri mik­ill áhugi á að fá sig inn. „Og það væru hund­ruðir ung­liða sem væru til­búnir að koma og styðja mig. Þetta er nátt­úr­lega svo­lítið sér­stakt þegar það er komið að þér á þessum for­sendum af því að ég hafði engar teng­ingar þannig séð inn í Sam­fylk­ing­una. Ég þekkti fólk sem var að starfa þar en ég hafði ekk­ert verið virk. En þá hafði fólk séð af mér og minn mál­flutn­ing og þótti áhuga­vert. Ég lét slag standa og ég vissi ekk­ert að þetta myndi þró­ast svona. Þetta var eitt­hvað sem var í mér. Ég held að eins og með svo marga í Covid; það voru svo margir sem voru hugsi yfir því sem var að ger­ast. Þetta ástand hreyfði við mér og mig lang­aði til að gefa af mér og vera að vinna við eitt­hvað sem mér fannst skipta aðeins meira máli. Og ég hugs­aði í lok dags að ef það verður ekk­ert úr þessu þá færi ég að gera eitt­hvað annað og ég fyndi bara út úr því.“

Mótsagnir

Svo fékk Kristrún eld­skírn. Mogginn fékk „tauga­á­fall“ við þau tíð­indi að það væri að koma kannski nýr og sterkur á vinstri vængnum. Og það var byrjað að djöfl­ast svo­lítið í henni út af bréfum sem hún eign­að­ist í Kviku. Hvað finnst henni um þetta? Átti hún von á því að lenda í slíkum slag?

Mér finnst ekk­ert skrýtið að fólk vilji spyrja spurn­inga og sé for­vitið af hverju mann­eskja sem var í hálaun­uðu starfi og var með for­rétt­indi og fríð­indi fari fram fyrir jafn­að­ar­manna­flokk.

„Hlut­irnir gerð­ust svo hratt á þessu ári að ég var kannski ekki búin að hugsa þetta alla leið. Stundum getur það verið ágætt af því að ef maður hugsar um allar mögu­legar útkomur þá bara fer maður ekki fram úr á morgn­ana. Ég held að það sem hafi kannski komið mér á óvart var að ég skyldi fá ein­hvern veg­inn það mikið vægi eða athygli að ein­hver myndi hafa fyrir því að stilla mál­unum svona upp. Ég kannski sá það ekki fyrir þó maður hafi trú á sjálfum sér og finn­ist maður vera með áhuga­verðar hug­myndir og maður hafði séð hvernig hlut­irnir geta verið í póli­tík og svo­lítið leið­in­legir og ljótir oft en ég hugs­aði að það væri varla komið að því hjá mér núna. Ég held satt best að segja að allir í kringum mig hafi heldur ekki búist við því að þetta myndi ger­ast ein­hvern veg­inn strax. Það eru margar skýr­ingar á því af hverju þetta gerð­ist og af hverju hlut­unum var stillt svona upp. Það er auð­vitað ekk­ert gaman að lenda í því að fólk sé að reyna að stilla upp nei­kvæðri mynd af manni og teikna upp ein­hverja aðra mynd en að sama skapi er mér engin vor­kunn. Ég hef notið vel­gengni og mér finnst ekk­ert skrýtið að fólk vilji spyrja spurn­inga og sé for­vitið af hverju mann­eskja sem var í hálaun­uðu starfi og var með for­rétt­indi og fríð­indi fari fram fyrir jafn­að­ar­manna­flokk. Og það var auð­vitað það sem var skemmti­legt fyrir hægri menn­ina í þessu vegna þess að það voru þessar mót­sagnir. Þegar ég steig aðeins frá þessu þá hugs­aði ég bara „veistu, þetta er allt í lagi; aðal­málið er bara að maður komi hreint til dyr­anna eins og maður er og maður getur ekki breytt því hver maður er“. Það er auð­vitað betra ef maður fær að skýra hlut­ina út frá sinni hlið.“

Það er greini­lega búið að skil­greina þig sem höf­uð­and­stæð­ing hægri flokk­anna. Höf­uð­and­stæð­ing til vinstri. Fram­setn­ingin eins og: Þú gefur kost á þér til for­mennsku og það er ekki annar kom­inn og þá er talað um í fyr­ir­sögn að þú verðir krýnd. það er verið að reyna að gera úr þér ein­hvers konar fyr­ir­bæri.

„Já.“

Þetta er aug­ljóst. Fyrir mér er þetta aug­ljóst. Ég held að menn hafi getað sýnt þér þá virð­ingu að segja að þú yrðir vænt­an­lega kosin.

Af því að ég var að fara í þetta svo­lítið bratt.

„Það er verið að búa til eitt­hvað narrative og reyna að búa eitt­hvað til úr manni. Það var einmitt ein­hver sem sagði við mig að af því að ég væri að fara í þetta frekar bratt, sem var aldrei mitt plan svo því sé haldið til haga; stundum lendir maður bara í ein­hverjum far­vegi. Maður vill alltaf fá meiri tíma í líf­inu. Það er eins og með allt. Af því að ég var að fara í þetta svo­lítið bratt þá væri það ennþá hættu­legra vegna þess að þá væri meira svig­rúm fyrir fólk að búa mína per­sónu til áður en fólk myndi kynn­ast mér. Maður verður bara að taka hlut­unum eins og þeir eru og von­ast til þess að fólk fái tæki­færi til þess að kynn­ast mér. Mér finnst ekk­ert skrýtið að fólk sé for­vitið. Mér finnst full­kom­lega eðli­legt að fólk vilji kynn­ast þjóð­kjörnum full­trúum og sér­stak­lega fólki sem er að bjóða sig fram til for­ystu. Já, ég er aug­ljós­lega að valda ein­hverjum titr­ingi. Það er lík­lega bara gott. Þetta fer ekki mikið fyrir brjóstið á mér get ég sagt þér. Ég veit alveg hvaðan þetta kemur. Það eina sem maður getur gert er að halda áfram og von­ast til þess að fólk sjái mann á manns eigin for­sendum. Maður getur ekki stjórnað öllu þessu.“

Ánægt og þakklátt

Kristrún er spurð hvort hún sé ekk­ert smeyk við kast­ljósið og er minnst á finnska for­sæt­is­ráð­her­ann sem þurfti að fara í lyfja­próf nýlega eftir að hafa orðið upp­vís að því að skemmta sér. Er Kristrún ekk­ert smeyk við að verða tekin öðrum tökum heldur en karl­arnir? Að hún megi minna?

„Ég veit það ekki. Ég held reyndar að það eigi bara við konur í fleiri stöðum að mega minna. Ég hef verið á stöðum bæði hér og erlendis þar sem er ekki mikið af konum og ekki mikið af konum í mínum geira. Á lang­flestum stöðum hefur mér liðið mjög vel. Við búum hérna í 350.000 manna sam­fé­lagi; þetta hefur verið svo­lítið sér­stakt fyrir fjöl­skyld­una mína af því að ég kem ekki úr póli­tísku bak­landi; ég kem ekki úr fjöl­skyldu þar sem eru þekktir ein­stak­lingar þar sem er fólk í fréttum. Þetta er venju­legt fólk sem er merki­legt í því sem það gerir en eng­inn veit af.“

Ég er ekk­ert að fara að bakka auð­veld­lega.

Pabbi þinn er þjóð­hátta­fræð­ingur.

„Og móðir mín er læknir. Fyrir þeim er það auð­vitað svo­lítið skrýtið að sjá myndir af mér á for­síðum. Þetta er auð­vitað alveg ný hlið. Ég held að stundum megi maður ekki taka sig of alvar­lega. Þetta er sam­fé­lags­þátt­taka; það að fólk þekki þig, heilsi þér út í búð og segi eitt­hvað fal­legt er 98% af við­brögð­unum. Fólk er bara ánægt og þakk­látt. Maður verður líka að hugsa það þannig að þú færð líka rosa mikið jákvætt. Síðan hef ég sagt við minn mann og fjöl­skyldu að ef þetta kemst á þann stað að mér finn­ist eins og það sé verið að fara yfir mín mörk þá er ég ekk­ert hand­járnuð við þetta starf. Maður hefur ástríðu og maður er fylg­inn sér og ég ætla alls ekki að senda þau skila­boð út að það sé hægt að taka mig auð­veld­lega niður. Ég er ekk­ert að fara að bakka auð­veld­lega. En í lok dags verður maður aðeins að standa í fæt­urna og vera með sinn kjarna og ef manni finnst manni mis­boðið þá er það í manns eigin höndum að taka ákvörðun um að gera eitt­hvað annað.“

Að tilheyra einhverju

Hvað er langstræsta verk­efnið sem Kristrún sér til að laga sam­fé­lagið? Það er gríð­ar­legur launa­munur. Það er fátækt. Við erum með alls konar vanda­mál. Hvernig vill hún auka jöfn­uð­inn?

„Mér finnst stóra verk­efnið núna vera að snúa aftur af þess­ari auknu ein­stak­lings­hyggju­braut sem við erum á. Það er allt í lagi að hugsa um ein­stak­linga og það er allt í lagi að vera sjálf­lægur; það er ekki það sem ég er að meina. En grunn­ur­inn að góðu sam­fé­lags­gerð­inni á Íslandi er sam­fé­lag.“

Svo stór partur af lífi fólks er opin­ber þjón­usta.

Kristrún segir að við höfum í raun­inni séð hrun frjáls­hyggj­unnar árið 2008. „Að ein­hverju leyti voru jafn­að­ar­manna­flokkar líka í smá­vanda varð­andi hvar þeir stað­settu sig og voru aðeins að nudda sér upp við kannski hægrið; þetta var sá tími. Síðan kom þetta hrun og við fengum stjórn sem var ein­hvern veg­inn að vinna úr hrun­inu og síðan 2013 þá vitum við ekki alveg hvernig póli­tík við eigum að stunda. Það eru ein­hvern veg­inn allir að láta eins og þetta sé ekki hægri póli­tík en þetta er fjár­magnað eins og þetta sé hægri póli­tík en talað eins og jafn­að­ar­menn. Og stóra málið núna er að við eigum heið­ar­legt sam­tal við sam­fé­lagið um að það þarf þorp til. Það er búið að fara í mjög miklar veik­ingar á tekju­stofnum rík­is­ins und­an­farin fjögur fimm ár og lækka svig­rúm rík­is­ins til þess í raun­inni að fjár­magna heil­brigð­is­kerfið okkar; hús­næð­is­mál um hátt í 50 millj­arða á ári hverju bæði með almennum skatta­lækk­unum, sér­tækum lækk­unum og alls konar afsláttum fyrir hina og þessa. Þetta hefur bara veikt getu okkar til þess að standa undir mjög mik­il­vægum kerfum. Og þetta er ekki bara mín póli­tík að tala. Það hafa sér­fræð­ingar bent á þetta. Það eru stór göt í því hvernig við rekum sam­fé­lagið okkar. Svo er verið að senda út þau skila­boð að kaup­máttur þinn sé kom­inn upp vegna þess að ég lækk­aði skatt­ana þína. En svo getur þú ekki sótt heil­brigð­is­þjón­ust­una eða þá að hús­næð­is­kostn­að­ur­inn þinn hefur rokið upp úr öllu valdi. Þessir mæli­kvarðar eru mjög rangir að vera bara að horfa á laun og kaup­mátt vegna þess að svo stór partur af lífi fólks er opin­ber þjón­usta. Sam­fé­lags­leg þjón­usta. Þannig að ég held að stóra verk­efnið núna verði að taka þetta sam­tal af hverju við erum að þessu, af hverju við byggðum þessi kerfi og til hvers þetta er. Þetta snýst ekki um ölm­usu eða byrðar þegar kemur að sköttum heldur að til­heyra ein­hverju. Eiga eitt­hvað saman. Vera ánægður að borga í sam­eig­in­lega sjóði en á sama tíma að upp­lifa til­gang með þessu vegna þess að þú færð eitt­hvað til baka. Vegna þess að í dag er verið að reyna að snúa ofan af kerf­inu, veikja grunn­inn, minnka til­trúna, tvístra fólki og gera það að verkum að fólk hólfar sig af fyrir að sjá um sig sjálft.“

Hættumerki

Kristrún er sér­fræð­ingur í efna­hags­málum og er spurð hvort hún sé ekk­ert smeyk um að það sé hrun fram undan. Hús­næð­is­verð hefur farið upp úr öllu valdi og verð­bólgan er á flugi.

Ef þetta fer upp allan tekju­stig­ann þá getur þetta leitt af sér ofsa­verð­bólgu.

„Við stöndum á allt öðrum stað en við gerðum 2008. Það er stað­reyndin um skulda­stöðu fyr­ir­tækja og heim­ila. Við erum ekki í sömu stöðu hvað það varðar. Erlendar skuldir þjóð­ar­bús­ins; við lentum í veru­legum vand­ræðum þar vegna þess að það var ekki til gjald­eyrir í land­inu. Og það er allt önnur staða ef þú skuldar í erlendu eða í inn­lendu vegna þess að þá ertu með ein­hvern fyrir utan hag­kerfið sem liggur á háls­inum á þér bók­staf­lega. Og það var það sem var vald­ur­inn að miklum vand­ræðum á sínum tíma. Það sem ég hef áhyggjur af núna eru þessir brestir sem maður er far­inn að sjá mynd­ast út af langvar­andi van­fjár­mögnun í heil­brigð­is­málum og að það sé ekki búið að taka á hús­næð­is­kerf­inu. Þetta er búið að skapa ákveðna tog­streitu á nokkrum stöðum í sam­fé­lag­inu. Og við erum til dæmis að sjá það núna í aðdrag­anda kjara­samn­inga; þetta er alveg hættu­merki. Þegar þú ert kom­inn með 10% verð­bólgu og fólk sér ekki fram á það að við getum í sam­ein­ingu leyst þetta, að fólk ætli að leysa þetta bara með launa­liðnum og það er eitt að hækka laun tekju­lægsta hóps­ins. En ef þetta fer upp allan tekju­stig­ann þá getur þetta leitt af sér ofsa­verð­bólgu.“

Á róló

Á Kristrún eitt­hvað líf fyrir utan póli­tík­ina?

„Ég hef ekki mik­inn frí­tíma en ég eyði honum mikið með fjöl­skyld­unni minni. Og það er stóra for­gangs­at­riðið í mínu lífi. Ég á litla stelpu sem er þriggja ára og mað­ur­inn minn er í sinni vinnu og það er nóg að gera á okkar heim­ili. Við fluttum heim til að vera í íslensku sam­fé­lagi, til að vera nálægt fjöl­skyld­unni okkar. Ég ver mestum tíma hjá for­eldrm mínum og tengda­for­eldrum mínum í frí­tím­anum. Ég á auð­vitað góða vini úr mennta­skóla og háskóla sem ég hitti af og til en ég held að ég sé á sama stað og margir sem eru með ung börn en það fer bara mik­ill tími í að sinna þeim. Það þarf pössun ef við förum út úr húsi og við höfum sett það sem for­gangs­at­riði að við vildum ekki gefa eftir þrátt fyrir að við værum í vinnu sem væri ákveðið álag í; þá vildum við ekki gefa eftir í því þegar kemur að því að eiga fjöl­skyldu. Og þá for­gangs­maður bara þannig. Þetta er ótrú­lega skemmti­legur tímir. Þetta er með því skemmti­legra sem maður gerir þótt þetta sé líka krefj­andi. Þess vegna eru engin mynd­bönd af mér eins og Sönnu. Ég er ekk­ert mikið í bænum.“

Þú ert ekki mikið á djamm­inu.

„Nei, ég fer snemma að sofa. Svo er ég bara með barn­inu á róló. Það er rosa mikið þannig núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins