„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hjalti Björnsson fararstjóri og áfengisráðgjafi: „Svo kom ofbeldisfullur yfirmaður og rak mig“

Hjalti Björnsson fararstjóri og áfengisráðgjafi: „Svo kom ofbeldisfullur yfirmaður og rak mig“
Hjalti Björns­son far­ar­stjóri.

Hjalti Björns­son, áfeng­is­ráð­gjafi og far­ar­stjóri, segir að það að hann drakk oft og mikið sem varð til þess að hann fór í með­ferð. Hann gerð­ist síðar áfeng­is­ráð­gjafi og vann hjá SÁÁ í 30 ár þar til nýr fram­kvæmda­stjóri sagði honum upp. Hann rekur í dag eigin stofu. Hjalti talar meðal ann­ars um unga mann­inn sem tók eigið líf eftir að hann féll og hann talar um að umburð­ar­lyndi sé ekki fallið til þess að minnka neyslu. Það ger­ist líka ýmis­legt á hálend­inu og á fjöllum og segir Hjalti frá hópi erlendra manna sem í sumar lásu ekki í veðrið íslenska og lentu í hættu sumir hverjir. Hjalta finnst ömur­legt að heyra fólk gefa í skyn að þetta muni alltaf redd­ast; fólk sem kemur jafn­vel á van­búnum bílum og þverar ár og göngu­fólki sem er illa búið.

Fæðist maður með þessi ósköp að vera alki?

„Þú fæð­ist með ein­hverja veik­leika og þú fæð­ist með ein­hverja styrk­leika. Hvað verður svo úr þessu er flókið. Ég veit ekki hvernig ég á að svara þessu. Ég veit að þetta liggur svo­lítið í ættum en það eru félags­legir og það eru lík­am­legir hlutir sem hafa áhrif á þetta og áföll hafa mikil áhrif. Þó við vitum líka að lang­flestir sem lenda í áföllum verða ekki alkó­hólistar þá hafa áföll áhrif á þessa mynd,“ segir Hjalti Björns­son, áfeng­is­ráð­gjafi og far­ar­stjóri, í við­tali í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni. „Þannig að ef þú ert með þessa genetísku veik­leika í þér og færð ein­hver högg þá getur þetta saman orðið svæsin mynd. En ég er gott dæmi um það að hafa ekki orðið fyrir neinum áföllum en varð samt alveg svaka­legur alkó­hólisti Þannig að það kom ekk­ert fyrir mig í mínu lífi. Ég fékk dásam­legt upp­eldi að mörgu leyti og betra en margir og góð tæki­færi en samt fór það þannig að ég skaut­aði alveg út í ystu horn þessa sjúk­dóms. Ég drakk mikið og drakk oft og einn dag­inn var engin leið til baka.“

Þú skrap­aðir botn­inn.

Þetta er ekk­ert mál, Hjalti minn, þú þarft bara að leggja frá þér flösk­una.

„Já. Ég fór í með­ferð 1983. Ég var 27 ára. Þá hitti ég í fyrsta sinn á ævinni AA-mann. Ég hafði aldrei heyrt talað um þetta. Ég vissi ekki neitt um þetta. Mér finnst eins og hann hafi talað ein­hvern veg­inn út úr mínu hjarta. Hann var að segja eitt­hvað sem ég tengdi svona svaka­lega vel. Hann klapp­aði á öxl­ina á mér og sagði „þetta er ekk­ert mál, Hjalti minn, þú þarft bara að leggja frá þér flösk­una“. Þetta var ein­hvern veg­inn svo ein­falt, auð­velt og sjálf­sagt í hans huga og ég ákvað bara að trúa þessu og það gekk bara mjög vel.“

Og það dugði þér bara ein til­raun?

„Já.“

Er ekki alltaf von? Segir þú það ekki við mann­inn sem fellur í 20. sinn að það sé von?

„Jú, það eru líka til rann­sóknir sem segja að ef þú ert búinn að vera að ströggla mikið og búinn að reyna oft þá aukast lík­urnar á að þér tak­ist það eftir því sem til­raun­unum fjölgar. Alveg öfugt við það sem maður ímyndar sér; að þetta verði alltaf von­laus­ara og von­laus­ara. Þannig að ég hug­hreysti fólk með því að lík­urnar auk­ist með hverri til­raun. Í hvert sinn sem fólk kemur til mín nið­ur­brotið og við grátum yfir því hvað illa fór þá hefur það færst einu skrefi nær því tak­marki sem það hefur horft á og sett sér.“

Gekk harkalega fram

Hjalti var dag­skrár­stjóri hjá Vogi.

„Ég átti 30 ár með SÁÁ og Þórarni Tyrf­ings­syni,“ segir hann en þeir Þórarinn eru mágar.

„Við unnum þarna saman og þetta finnst mér vera topp­ur­inn í mínu fag­lega lífi. Þarna var sam­hentur hópur, gríð­ar­lega sterkur hópur, og ein­kennd­ist af metn­aði til að vinna fyrir sjúk­ling­ana. Þannig að bestu ár ævi minnar voru þar. Svo er maður auð­vitað að eld­ast og svo kom þarna ofbeld­is­fullur yfir­maður, Val­gerður Rún­ars­dóttir, og tók við af Þórarni og hún rak mig. Og það var auð­vitað mjög leið­in­legt fyrir mig. En hún valdi það og gekk mjög harka­lega fram, bæði óheið­ar­lega og ofbeld­is­lega. Ég bara segi það þannig án þess að ég ætli að ræða það frekar af því að ég er bara búinn með þann pakka.“

Ég er á miklu betri stað á allan hátt heldur en að vinna með ein­hverri konu sem vill ekki hafa mann í vinnu.

Var þetta af fag­legum for­sendum eða af því að þið Þórarinn höfðuð unnið saman?

„Nei, hún laug upp ein­hverjum skipu­lags­breyt­ingum og bara eitt­hvað bull. Svona á ekki  að koma fram við þá sem eru búnir að vinna ein­hvers staðar í 30 ár.“

Hjalti segir að Val­gerður hafi ekk­ert þurft að útskýra upp­sögn­ina. „Hún hafði vald til að gera þetta og gerði það. Hún hafði bara vald til að reka mig og gerði það. Og allt í góðu í dag með mig. Ég er á miklu betri stað á allan hátt heldur en að vinna með ein­hverri konu sem vill ekki hafa mann í vinnu. Það er líka mjög óþægi­legt. Ég var búinn að finna það alveg áður en til þess kom að hún ræki mig þannig að ég var alveg búinn að gera mér grein fyrir því hvert stefndi svo­lítið lengi.“

HJalti Björns­son hefur reynt margt.

Engin krafa

Hjalti er með eigin stofu í Reykja­vík og seg­ist hitta ein­stak­linga sem ann­að­hvort vilja ekki fara í heð­fbundna inniliggj­andi áfeng­is­með­ferð eða þurfa þessa ekki. „Það eru margir sem þurfa ekk­ert að fara í með­ferð en þurfa samt stuðn­ing og hvatn­ingu til þess að koma sínum málum í betra horf. Ég er mikið með eldra fólk. Það hefur ein­hvern veg­inn þró­ast þannig hjá mér og ég er að tala við eldra fólk sem veigrar sér við að fara inn á stórar stofn­anir. Vill það ekki. Og sumir þurfa þess ekki. Þessi hópur, eldra fólk, er í tölu­verðum vanda. Það hefur meiri pen­ing, það er auð­veld­ara aðgengi, það er við­ur­kennd­ara að drekka og það er við­ur­kennd­ara að drekka oft og við hin ýmsu tæki­færi. Þannig að þeir sem eru veikir fyrir eru ansi útsettir og eru í tölu­verðu basli. Ég sé mikið af þannig fólki. Svo kemur líka til mín ung­linga­hópur og fjöl­skyldur. Ég veit ekki hvort það er út af því að ég er að vinna svo­lítið ein­angr­aður – en við erum bara tvö að vinna saman og svo ein­hverjir sál­fræð­ingar og geð­læknar í kringum okkur – en mér finnst vera meira vesen; meira vanda­mál og vax­andi vandi,“ segir Hjalti og á við unga fólkið. „Þá er ég að tala um frá 15-17 ára. Bara ung­lingar sem eru að detta úr skóla eða ná engum árangri eða geta ekki unnið og tolla ekki í vinnu. Allavega þessir sem ég er að hitta minna mig svo­lítið á það sem var að ger­ast fyrir 2000. Það var mjög slæmt ástand í þessum málum frá 1996 fram yfir 2000. Á þeim tíma var byggð ung­linga­deild á Vogi, hjá SÁÁ, og þá fannst mér ég sjá þessa ein­stak­linga sem ég er að sjá núna sem eru komnir mjög djúpt inn í þetta. Og auð­vitað fylgir þessu mikið ofbeldi. Alls konar ofbeldi. Kyn­bundið og fjár­hags. Þannig að þetta eru oft alvar­legir hlutir sem maður er að fást við.“

Umburð­ar­lyndi gagn­vart því að vera í neyslu hefur auk­ist.

Hver er lausnin?

„Annars vegar vitum við mjög mikið um hvernig þetta er, hvernig þetta þró­ast og við vitum mjög mikið um það hvað hefur áhrif á neysl­una, hvað eykur hana og hvað minnkar hana. Það er þessi fræði­legi hluti. Það eru til alls konar rann­sóknir. En síðan komum við að hinni hlið­inni. Við erum á ferða­lagi sem er alveg and­stætt því þannig að við erum að gera í raun og veru allt annað en það sem við ættum að vera að gera. Við erum að auka aðgengi, við erum að auka frjáls­ræði og við erum að auka í raun og veru aðstoð. Skaða­minnk­andi úrræði eru núna mjög vin­sæl og mik­il­væg. Umburð­ar­lyndi gagn­vart því að vera í neyslu hefur auk­ist. Þannig að í raun og veru erum við með þekk­ing­una og vitum alveg hvað við þyrftum að gera til að ná utan um þetta en við erum bara á annarri leið. Við erum í öðru ferða­lagi. Við fórum bara upp í annan bíl óvart eða vilj­andi; ég veit ekki hvort er.“

Umburð­ar­lyndi er ekki til þess fallið að minnka neyslu.

„Nei, ekki eins og ég sé það. Ég sé það ekki sem lausn að maður eigi enda­laust að ýta undir og aðstoða við að vera í neyslu. Á ein­hverjum tíma­punkti þarf maður að segja „nei, þú hefur tæki­færi og mögu­leika og það eru til lausnir og leiðir út úr þessum vanda“. Það þýðir ekki bara að sitja og hokra hér, vera fastur í sömu hjól­för­unum og segj­ast ekk­ert geta gert. Það er ýmis­legt hægt að gera en í dag er engin krafa á fólk með vímu­efna­röskun eða áfeng­is­röskun.“

Það á bara að hjálpa því?

„Já, þannig sé ég það. Og auð­vitað má vera að sú sýn sé skökk og svo­lítið skert en ég sé þetta svona.“

Fyrirfór sér

Skjól­stæð­ingar Hjalta í gegnum ára­tug­ina eru margir og er hann spurður hvað sé það sorg­leg­asta sem hann hefur upp­lifað varð­andi þá.

„Auðvitað er það þannig þegar maður er að vinna lengi með fólk að maður kynn­ist því og teng­ist því til­finn­inga­böndum. Og fólk kemst misná­lægt manni. Ég man sér­stak­lega eftir ungum manni sem kom í með­ferð og gekk illa. Hann kom nokkrum sinnum til okkar og þá var ég á Stað­ar­felli í Dölum.“ Hjalti segir að mað­ur­inn hafi orðið edrú og að um hafi verið að ræða tvö til fjögur ár og fór hann í háskóla og lauk námi. „Mjög greindur maður og flottur. Svo heyrði ég einn dag­inn að hann væri lát­inn. Hann hafði þá fallið og fyr­ir­fór sér. Það ger­ist stundum þegar fólk er að falla í þessum sjúk­dómi að örvænt­ingin er svo mikil og sér­stak­lega þegar um er að ræða ungt fólk og þá grípur það til örþrifa­ráða. Og hann sá enga aðra leið út úr þessu.“

Hjalti seg­ist hafa orðið svo­lítið hissa á við­brögðum sínum en dauði manns­ins hafði mikil áhrif á hann. „Mér fannst þetta ofboðs­lega sorg­legt.“

Ég er af þeim skóla og af þeirri gerð að ég held að við­kom­andi sé aldrei alveg laus.

Hjalti er spurður hvenær fólk sé laust úr súp­unni. Er það laust ef það er búið að vera edrú í 20 ár eða er það aldrei laust?

„Það er laus­ara. Ég er af þeim skóla og af þeirri gerð að ég held að við­kom­andi sé aldrei alveg laus.“

Hvernig ræktar fólk edrú­mennsk­una? Eru það fundir?

„Mjög margir nota þessi sam­tök og margir með­ferð­ar­að­ilar benda fólki á það. Það er alveg prýði­leg lausn og hjálpar mörgum. En síðan er það stór hópur sem af ýmsum ástæðum getur ekki eða vill ekki nýta sér það og þeir geta þá nýtt sér fag­fólk. Fólk getur alveg fengið það sama út úr því að hitta með­ferð­ar­að­ila sinn, sál­fræð­ing eða geð­lækni sem hefur þekk­ingu á mál­inu. Það er rosa­leg mýtaa að það þurfi einn sem var í skítnum til að hjálpa hinum. Það var við­horfið þegar ég var að byrja í þessu að það ætti eig­in­lega ekki að gera þetta nema að hafa verið í leðj­unni sjálfur. En að sjálf­sögðu er þetta þannig að það er hægt að læra þetta. Þetta er bara ákveðið fag og maður lærir ákveðnar með­ferðir og aðferðir til þess að fást við fólk og það eru engin geim­vís­indi í sjálfu sér. Það eru mjög ein­föld ráð sem duga í þessu. Þannig að fólk kemur til með­ferð­ar­að­ila og mörgum er bent inn í þessi sam­tök, AA-sam­tök, og fleiri. En það er hægt að fá þessa hjálp víða í dag. Það eru margir aðilar sem hafa í dag þekk­ingu til þess að veita jafn­góða og jafn­vel betri þjón­ustu heldur en hægt er að fá inni á ein­hverjum risa­stórum með­ferð­ar­stöðum.“

Sennilega lífsbjörg

Hjalti Björns­son fann réttu leið­ina hvað Bakkus varðar og hann hefur lengi unnið sem leið­sögu­maður og gengið með fólki upp um fjöll og firn­indi. Hann heldur utan um fjalla­verk­efni hjá Ferða­fé­lagi Íslands sem kall­ast Alla leið og Esjan öll.

Hjalti seg­ist í fyrra hafa tekið saman hvað hann gekk mikið það árið: Um 2.800 kíló­metra.

Talið berst að ferð á Lauga­veg­inum í sumar.

„Það var búið að spá ill­viðri á Fjalla­baki á fyrri hluta júlí­mán­aðar og flestir tóku það nú alvar­lega,“ segir Hjalti og bendir á að margir erlendir ferða­menn þekki ekki íslensku veðr­átt­una. „Þessi spá var ekk­ert sér­stak­lega slæm; svona veður koma á hverju ári nokkrum sinnum yfir sum­arið og það skellir á með suð­austan ofan­komu, rign­ingu og í þessu til­felli var kalt og mik­ill vindur. Ég hugsa að þarna hafi verið yfir 200 manns. Þetta var alger háanna­tími. Lang­flestir eru vel búnir og til­búnir í þetta og finnst bara gaman að takast á við veðrið. Og útlend­ingar eru ekk­ert öðru­vísi heldur en Íslend­ingar; þeim finnst þetta vera spenn­andi og gaman.

Ég var að fara með hóp frá fyr­ir­tæki sem ég vinn fyrir sem heitir Arctic Adventure og er risa­stórt í afþrey­inga­ferðum og minn hópur var mjög vel búinn í vatns­heldum klæðn­aði og góðum skóm og með húfur, vett­linga og skíða­gleru­augu og með allan búnað. Ég var búinn að und­ir­búa þau vel undir að ganga í róleg­heitum án þess að stoppa frá Álfta­vatni og í Emstrur. Síðan skall veðrið á og fór fljót­lega að rigna mikið og var mikið hvass­viðri.“

Ég hafði aldrei séð svona líf­vana ein­stak­ling.

Á leið­inni kom maður hróp­andi á móti hópnum og segir Hjalti að hann hafi látið ófrið­lega. „Hann hafði ætlað að fara á bak við stein að ganga örna sinna en þá lá þar með­vit­und­ar­laus maður sem hafði leitað vars á bak við stein­inn sem er dálítið stór. Það byrj­aði að streyma að fleira fólk fyrir utan okkur. Fyrst þegar ég þreif­aði á mann­inum hélt ég að hann væri dáinn. Hann var svo svaka­lega kaldur og líf­vana. Ég er ekki læknir og get ekki úrskurðað fólk látið. Það eru bara læknar sem gera það. En ég var sannærður um að svo væri. Ég hafði aldrei séð svona líf­vana ein­stak­ling.“

Far­ar­stjór­inn með sínu fólki.

Hjalti hringdi í 112 en þá hafði ein­hver annar gert það og var björg­un­ar­sveit á leið­inni á svæðið og var sagt að hún kæmi eftir um 20 mín­útur. Við reyndum að verja mann­inn fyrir rign­ing­unni og kuld­anum og klæddum hann úr blautum föt­unum og komum honum í þurran svefn­poka. Þetta var atgangur í 10-15 mín­útur.“

Björg­un­ar­fólk kom svo á stað­inn og mað­ur­inn var fluttur til byggða.

„Ég held að þarna hafi verið um að ræða lífs­björg með þessum aðgerðum og þessum hóp.“

En þetta var aldeilis ekki búið þarna.

Stríðsástand

„Maður gengur í gegnum skarð áður en maður beygir niður í Emstr­urnar, niður í Botna og Mark­ar­fljóts­gljúfur og þar var önnur upp­á­koma.“ Þar var öskr­andi stúlka og lá önnur á jörð­inni. „Hún var nú ekki með­vit­und­ar­laus en með­vit­und­ar­lítil og hafði greini­lega ofkælst og var rugluð. Það var hálf­tíma til 40 mín­útna ganga í skál­ann þannig að við útbjuggum börur og bárum hana niður í skála. Og þá fyrst byrj­aði bíóið þegar við komum þangað.

Og hvor­ugur hóp­ur­inn gaf sig.

Það kom seinna í ljós að báðir þessir ein­stak­lingar voru í ferð með belgísk-hol­lensku fyr­ir­tæki sem var með yfir 50 manna hóp og voru far­ar­stjór­arnir tveir. Meira og minna allur þessi hópur var gríð­ar­lega van­bú­inn. Þau voru í tjald­ferð og voru með búnað sem réð engan veg­inn við þetta veður. Engan veg­inn. Þarna voru þessir far­ar­stjórar búnir að her­taka skál­ann sem ég var að fara í og voru komnir inn með tugi manns. Þetta er 20 manna skáli en ég hugsa að það hafi verið um 40 manns í skál­anum. Annar stór hópur var búinn að stela gas­hitar­anum sem átti að vera í skál­anum og færa hann yfir í eld­hús­tjald. Og hvor­ugur hóp­ur­inn gaf sig. Þessi hópur sem var í skál­anum ætl­aði ekk­ert að hleypa okkur inn með þessa stúlku sem við komum með og hinn hóp­ur­inn sem var með hitar­ann neit­aði að láta hann af hendi. Það var bara stríðs­á­stand þarna. Í alvöru. Ég er búinn að vera út um allt að ganga og í úti­vist en ég hef aldrei á ævinni upp­lifað svona. Maður var að reyna að öskra á fólk að það væri mik­ill munur á því að vera kalt eða hafa ofkælst. Því þeim var kalt. Þeim var gríð­ar­lega kalt. Það var öllum kalt. Mér var orðið skít­kalt því ég var búinn að lána megnið af föt­unum mínum. En þarna vorum við með hol­lenska stúlku og hún hafði ofkælst alvar­lega.“

Hjalti segir ringul­reið hafi ríkt í tvo til þrjá tíma. Algert stjórn­leysi.

„Það tók tvo tíma fyrir mig og skála­vörð­inn að ná utan um þetta og líka fyrir okkur að róa okkur niður og finna út hvað við ætl­uðum að gera. Það er eng­inn með áætlun í höfð­inu hvernig hann ætlar að tækla svona mál. Síðan varð til sú lausn að þjarma að fólki; að það yrði að láta sækja sig og yrði að fara af svæð­inu. Þá var gengið í það að hringja í fyr­ir­tæki sem er með búnað til að koma þarna upp eftir, South Coast Adventure heitir það, og það fór um hálf­tími í að finna út úr því hve margir bílar á Suð­ur­landi gætu sótt þetta fólk og hvað það myndi kosta því fólkið varð að borga þetta sjálft. Það end­aði með því að þessi ferða­skrif­stofa sem var með þessa 50 manns tók loks­ins ábyrgð á því. Það tók langan tíma og þeir ætl­uðu ekki að sam­þykja það til að byrja með og vildu greini­lega halda fast um aur­inn.“

Og erlendu ferða­menn­irnir voru sóttir.

Tvær konur í hópi Hjalta treystu sér ekki til að halda áfram eftir þennan dag og var þeim ekið til Hvolsvallar.

Þetta var stríðs­á­stand ofan á allt annað.

„Ég segi það núna; þetta var stríðs­á­stand. Og maður sér hvað fólk verður frum­stætt þegar það upp­lifir að það sé í hættu. Þá bara gerir fólk hvað sem er; allt sem það heldur að það þurfi að gera til að hugsa um sig.“

Þetta reddast

Hjalti er spurður hvort það sé hægt að læra eitt­hvað af þessu.

„Ég er fag­mennt­aður leið­sögu­maður og ég hef oft talað um að það eigi að vera íslenskir leið­sögu­menn í svona hópum. Ég er í félagi leið­sögu­manna, Leiðsögn. Það sem má læra af þessu er að það er ekki hægt að læra á bók eða með því að lesa eitt­hvað um Ísland hvernig eigi að bregð­ast við og hvernig eigi að und­ir­búa sig fyrir svona ferð. Það þarf eig­in­lega að sjá þetta veður. Þetta eru svo ofsa­fengin veður sem geta orðið uppi á hálend­inu að það er eig­in­lega ill­mögu­legt að útskýra fyrir fólki hvernig þetta er, hvaða áhrif það hefur og hvernig þarf að standa þetta af sér. Þannig að ég hef bæði í eig­in­girni en líka út frá örygg­is­sjón­ar­miðum lengi talað fyrir því fyrir daufum eyrum alls staðar að það ætti að vera með hverjum ein­asta hópi inn­lendur leið­sögu­maður sem hefur góða þekk­ingu á mál­unum og sem getur haft vit fyrir hópnum.“

Væri ekki ein­falt að setja þessa reglur?

„Leið­sögu­fé­lagið hefur verið að tala um þetta í 20-30 ár en ferða­þjón­ustu­að­ilar, -skrif­stofur og ráð­herr­ann hafa bara ekk­ert viljað taka á þessu.“

Hjalti segir að land­verðir virð­ast ekki hafa neinar heim­ildir en vara fólk við á föð­ur­legan hátt og reyna að hafa vit fyrir því.

Það sem fer svaka­lega mikið í mig er að það er bara orðið við­horf hjá útlend­ingum að það sé alveg öruggt að taka séns­inn; maður hringi bara í 112 og björg­un­ar­sveitin er mætt.

„Göngu­leiðum er ekki lokað. Fólk á pantað flug, rútur og alla­vega og það bara fer af stað og lætur vaða. Og það sem verra er og það sem fer svaka­lega mikið í mig er að það er bara orðið við­horf hjá útlend­ingum að það sé alveg öruggt að taka séns­inn; maður hringi bara í 112 og björg­un­ar­sveitin er mætt. Það finnst mér svo­lítið ömur­legt að heyra sagt í skálum í hálf­kær­ingi, af því að ég er búinn að vera mikið í þessum fjalla­skálum í sumar. Maður heyrir þetta bæði hjá fólki sem er að koma á van­búnum bílum og þverar ár og göngu­fólki sem er illa búið. Það gefur í skyn að þetta muni alltaf redd­ast. Auðvitað gera björg­un­ar­sveitir allt en það á auð­vitað að vinda ein­hvern veg­inn ofan af þessu þannig að það verði alveg aug­ljóst þegar það kemur app­el­sínugul við­vörun á hálend­inu að þá séu það bara reyndir og vanir fjallagarpar sem séu á ferð­inni sem hafi þekk­ingu, tæki og tól til að fást við veðrið en ekki eins og þetta fólk sem var bara í stutt­buxum og stúlkan var í hlýra­bol í þessu veðri. Hún var í hlýra­bol og legg­ings. Bara þunnum legg­ings. Enginn regn­fatn­aður.“

Áhættumat

Hjalti, sem hefur í rúman ára­tug séð um mörg verk­efni fyrir Ferða­fé­lag Íslands, er spurður hvaða reglum sé fylgt og hvenær hann hætti við göngur og breyti dag­skránni.

„Það er til áhættu­mat fyrir alls konar göngu­leiðir en svo er líka til áhættu­mat bara fyrir veður og ég bara miða við það. Auðvitað er þar sagt að snúa eigi við í 14-16 metrum á sek­úndu og rign­ingu eða að ef einn er illa búinn og ekki með fatnað við hæfi. Það er nóg að einn sé ekki búinn í veðrið. Þá snýrðu við. Eða ef það eru 18 metrar á sek­úndu. Það getur líka verið að bara vind­ur­inn sé of mik­ill. Og þetta er miðað við hóp sem þú þekkir lítið eða ekk­ert. Þú getur kannski leyft þér örlítið meira ef þú ert með hóp sem þú þekkir mjög vel og ert búinn að vera að ganga með í heilt ár og veist hvað getur.“

Það þarf miklu sterk­ari bein fyrir far­ar­stjóra að snúa við heldur en að halda áfram.

„Þú ert alltaf með ein­stak­linga sem eru toppa­sjúkir og vilja klára. Og ég er þannig sjálfur. Ef ég er búinn að taka ákörðun um að fara upp á Esjuna og ég kemst ekki nema upp að Steini ein­hverra hluta vegna, svo sem vegna veð­urs, þá líður mér eins og ég hafi svik­ist um. Ég er iðn­að­ar­maður í mér og ég þarf að klára verkið. Samt finnst mér auð­velt að taka þessa ákvörðun. Ég er ein­hvern veg­inn þannig. Það blasir oft við að það þurfi að hætta og þegar svo er þá finnst mér ekk­ert vera erfitt að segja að þetta sé búið. Ég fæ oft mót­bárur og ein­stöku sinnum hefur ein­hver spurt hvort hann mætti þá ekki halda áfram sjálfur en þá hef ég sagt að hann geti þá hætt í hópnum og fengið end­ur­greitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins