„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þorsteinn Eggertsson var eitt sinn ritskoðaður: „Ég hef aldrei samið texta um gulan þorsk“

Þorsteinn Eggertsson var eitt sinn ritskoðaður: „Ég hef aldrei samið texta um gulan þorsk“
Þor­steinn Egg­erts­son

Þor­steinn Egg­erts­son hefur samið margan þekktan laga­text­ann. Í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni talar hann meðal ann­ars um upp­haf fer­ils­ins sem hófst í Hér­aðs­skól­anum á Lauga­vatni, tím­ann þegar hann var Elvis Preysley Íslands, prakk­ara­strikin tengd bréfa­skriftum, popp­mess­unni þegar hann hitti fínu frúna og hann segir hvað er á bak við nokkra þekkta laga­texta.

Þor­steinn Egg­erts­son texta­höf­undur er Kefl­vík­ingur.

„Ég fór í Hér­aðs­skól­ann á Lauga­vatni, heima­vist­ar­skóla, og það var ævi­skeið út af fyrir sig. Þá var ég í bekk með Ingimar Eydal og ein­hvern tím­ann datt honum í hug að halda skóla­ball uppi í stof­unni okkar í lands­próf­inu og við gerðum það. Þar var orgel og hann spil­aði á org­elið og ég söng.“

Hafðir þú ekk­ert sungið áður nema kannski í baði?

„Ég hafði sungið með vinum og kunn­ingjum og svo var þarna í Keflavík þessi útvarps­stöð sem allir hlust­uðu á fyrir sunnan, Kana­út­varpið, þannig að maður þekkti öll þessi lög en kunni ekki alveg text­ann af því að það voru margir sem voru svo­lítið óskýr­mæltir. Little Richard og Elvis Presley voru sér­stak­lega óskýr­mæltir þannig að maður heyrði ekki alveg text­ana. Þannig að ég þurfti að búa til mína eigin af því að ég kunni ekki við að syngja þetta eins og páfa­gaukur eins og margir gerðu reyndar á þessum tíma.“

Manstu hvaða lag þú söngst með Ingimar?

„Þetta var lag sem heitir Calypso Rock. Þetta var teg­und af músík sem var að koma upp á þessum tíma,“ segir Þor­steinn og minn­ist þarna á Harry Belafonte. „Þetta var vin­sælt tíma­bil í nokkra mán­uði. En rokkið hefur alltaf verið að breyt­ast. Alltaf. Enda­laust.“

Mér fannst hann vera dálítið villtur og gal­inn og hann höfð­aði til mín.

Þor­steinn söng í skóla­stof­unni meðal ann­ars líka lag sem Litthe Richard hafði sungið „af því að mér fannst hann vera dálítið villtur og gal­inn og hann höfð­aði til mín. Þetta var nátt­úr­lega alger­lega ný músík fyrir okkur Íslend­inga á þessum tíma. Þetta var 1957/1958 og haustið 1957 var þetta nýkomið til lands­ins þannig að þetta var spreng­ing út af fyrir sig.

Lauga­vatn var mennta­staður þar sem var hér­aðs­skóli, kvenna­skóli, íþrótta­skóli og mennta­skóli og aðra hverja helgi eftir að við byrj­uðum að halda böll þarna í hér­aðs­skól­anum þá fórum við að halda böll í mennta­skól­anum. Og það bætt­ust við tveir hljóð­færa­leik­arar þannig að þá voru alvöru böll enda stærri salur til að syngja og spila í.“

Þá var þetta orðið band.

„Þá var þetta orðið band.“

Elvis Presley Íslands

18 ára gam­all sótt­ist Þor­steinn eftir að ger­ast söngv­ari hjá KK sextett. Það var árið 1960.

Ég bara ein­beitti mér að því að vera Elvis Presley Íslands.

„KK sextett aug­lýsti eftir ungum söngv­urum og ég tók þátt í þessu. Það voru valdir 10, haldnir nokkrir tón­leikar með þessum 10 og það end­aði með því að ég vann þetta og gerð­ist atvinnu­söngv­ari með KK. Haukur Morthens skrif­aði um tón­leika sem við héldum í Aust­ur­bæj­ar­bíói og það var hann sem kall­aði mig íslenskan Elvis Presley. Ég var hrifn­ari af Little Richard en honum fannst ég vera eitt­hvað líkur Elvis Presley. Ég var með hreyf­ingar út um allt svið sem var óvenju­legt á þeim tíma vegna þess að þá stóð fólk fyrir aftan míkró­fón með aðra hend­ina í vas­anum og hélt á míkró­fón­inum með hinni. En þetta fest­ist við mig og þegar ég fór að syngja með KK sextett sum­arið 1960 þá bað umboðs­mað­ur­inn minn, Pétur Guð­jóns­son, Pétur rak­ari, mig um að stúd­era Elvis. Það var verið að sýna mynd með honum í Tjarn­ar­bíói, King Creole, sem ég fékk að sjá nokkrum sinnum og ég bara ein­beitti mér að því að vera Elvis Presley Íslands.“

Það gekk upp.

„Það gekk upp. Enda tók fólk mark á því sem Haukur Morthens sagði á þessum tíma.

Ég man þegar maður fór niður í bæ með Hauki Morthens. Fólk var rosa­lega upp með sér af því að fá að tala við hann þótt ekki væri nema tvær þrjár setn­ingar. Hann var bara stjarna.“

Þor­steinn söng með Ellý Vil­hjálms.

„Hún var nátt­úr­lega drottn­ingin. Alger.“

Hvernig fór á með ykkur?

„Það var svo­lítið merki­legt að syngja með Ellý Vil­hjálms vegna þess að hún reyndi að vera eins venju­leg og hægt var. Það voru engir stjörnu­stælar eða neitt. Hún var bara stelpa sem mætti þarna til að syngja. Hún kom með kjól­ana sína; hún var með tvo þrjá kjóla og skipti um í pásum þannig að hún vildi líta vel út. En að hún væri með ein­hverja stjörnu­stæla var af og frá.“

Löngu á undan Bítlunum

Þor­steinn bjó í Reykja­vík á því tíma­bili sem hann söng með KK, sem var um hálft ár, og svo flutti hann aftur í heima­bæ­inn.

„Ég fór reyndar um sum­arið norður á Siglu­fjörð og þar var hljóm­sveit úr Keflavík sem var búin að vera þar dálít­inn tíma og ég fór að syngja með þeirri hljóm­sveit, hljóm­sveit Guð­mundar Ing­ólfs­sonar. Svo þegar ég fór aftur til Kefla­víkur eftir sum­arið stofn­aði ég hljóm­sveit sem hét Beatniks. Það var haustið 1961. Það er svo­lítið gaman að segja frá því að Beatniks er kyn­slóð amer­ískra bóhema; þetta eru strákar sem kynnt­ust þessu í Evrópu, þessu hálf­gerða lista­manna­lífi, þessu bóhem­lífi, þar sem fólk notar sitt eigið tungu­mál og svo fram­vegis og svo tveimur árum seinna fréttum við af hljóm­sveit frá Liverpool sem hét svip­uðu nafni. Hún hét The Beatles. En svipuð hugsun.“

Þið voruð á undan Bítlunum.

„Við vorum löngu á undan Bítlunum.“

Meira að segja á laug­ar­dögum vorum við með það sem kall­ast restra­sjónir.

Hvernig gekk Beatniks?

„Það gekk bara rosa­lega vel. Við vorum alltaf allar helgar, föstu­daga og laug­ar­daga, á veit­inga­stað í Keflavík sem hét Víkin; við spil­uðum á Víkinni og fengum stundum að spila í Hafn­ar­firði og Reykja­vík á skóla­böllum. Meira að segja á laug­ar­dögum vorum við með það sem kall­ast restra­sjónir; það væri kannski hægt að kalla þetta ung­linga­böll. Þau voru á milli þrjú og fimm og þá keypti maður sig inn, fékk miða og út á mið­ann gat maður keypt gos­drykk, te eða kaffi.“

Þor­steinn seg­ist ekk­ert hafa verið far­inn að semja texta á þessum tíma.

„Svo fór ég til Dan­merkur og var þar í tvö til þrjú ár að læra það sem er kallað mynd­skreyt­ingar. Sá sem vinnur við þetta er aðal­lega að mynd­skreyta bækur teikna frí­merki, pen­inga­seðla og svo fram­vegis. Þegar ég kom heim fór ég að vinna á aug­lýs­inga­stofu. Þar var strákur frá Keflavík, gam­all leik­fé­lagi minn og kunn­ingi, Þórir Bald­urs­son. Við unnum þarna báðir sem teikn­arar. Hann vissi að ég hafði verið að búa til ein­hverjar bull­vísur. Hann var með Savanna-tríó­inu og bað mig um að gera texta fyrir sig. Og ég gerði það. Mér fannst þetta dálítið merki­legt. Svo aug­lýsti hann og kunn­ingi okkar eftir nokkrum strákum í hljóm­sveit, völdu þá bestu úr og úr varð hljóm­sveit sem hét Dátar.“

Gvendur á eyrinni

Þórir samdi nokkur lög fyrir Dáta og Þor­steinn samdi texta. „Og það var bara ekk­ert aftur snúið eftir það.“

Fyrst var það lagið Leynd­ar­mál.

„Og ári seinna kom Gvendur á eyr­inni.“

Hann Gvendur á eyr­inni var gam­all skútu­karl
Og gulan þorskinn dró.
Hann kaus heldur svita­bað en kvenna­far og svall.
Í koti einn hann bjó.
Og aldrei sást Gvendur gamli eyða nokkru fé
Og aldrei fékk hann frí:
Var daufur að skemmta sér og dans­spor aldrei sté
En dvaldi koti sínu í.

Hver var Gvendur á eyr­inni? Var það bara hug­ar­burður?

Og þarna var rólegur maður að sópa göt­una.

„Nei. Gvendur á eyr­inni var til. Við í Dátum vorum ein­hvern tím­ann í partíi á Akureyri og löbbuðum niður í Hafn­ar­stræti sem er í miðbæ Akur­eyrar af því að við þurftum að fara niður á hótel að gista. Við vorum búnir að drekka mis­mikið. Strák­arnir sáu kall sem var að sópa göt­una. Þetta hefur verið um fimm- sex­leytið um morg­un­inn. Og þarna var rólegur maður að sópa göt­una. Þeir voru eitt­hvað að atast í honum og mér fannst það ekki alveg við hæfi þannig að ég fór að tala við mann­inn. Það kom í ljós að hann var að sópa göt­urnar áður en hann fór í vinn­una. Þetta var vinnu­alki.“

Þor­steinn seg­ist hafa fengið að vita að mað­ur­inn hafi verið á skútu þegar hann var strákur og að hann hafi verið að vinna í frysti­húsi. „Og hann bara vann og vann og vann. Daginn eftir datt mér í hug að skrifa úttekt um það sem mér fannst um þennan mann. Og það var Gvendur á eyr­inni.“

Gamall skútu­karl.

„Já.“

Þetta er ein af sígildum perlum dæg­ur­laga­sög­unnar.

„Það kemur stundum fyrir að maður heyrir ein­hverja vit­leysu á pötu þegar hún kemur út og það var ekk­ert hægt að breyta því. Og sá sem gaf plöt­una út með Dátum, þetta var fjög­urra laga plata, fannst text­inn minn svo­lítið glanna­legur þannig að hann lét breyta fyrstu lín­unum í text­anum. Og hann komst upp með þetta útgef­and­inn sem við skulum ekk­ert nefna hver var. En allt í einu heyrði maður „Gvendur á eyr­inni var gam­all skútu­karl og gulan þorskinn dró“. Ég hef aldrei samið texta um gulan þorsk. Það sem ég skrif­aði var: „Gvendur á eyr­inni var gam­all skútu­karl og gef­inn fyrir puð. Hann kaus heldur svita­bað en kvenna­far og svall og kæru­leysi og stuð.“ Þetta er lík­ara mér.“

Ég hef ekki gert mikið af því að semja svona sjó­manna­texta.

Þetta er svo­lítið skrýtið þegar þú nefnir það, „gulan þorskinn dró“. Þetta er ekki alveg Þor­steinn Egg­erts­son.

„Nei, ég hef ekki gert mikið af því að semja svona sjó­manna­texta.“

Þetta virk­aði.

„Og þetta lag varð rosa­lega vin­sælt.“

Glugginn

Jú, Þor­steinn Egg­erts­son samdi fleiri texta fyrir Dáta. „Ólafur Gaukur var beð­inn um að semja tvo eða þrjá texta því að útgef­and­anum fannst margt af því sem ég var að skrifa full­gl­anna­legt.“

Rúnar (Gunn­ars­son) var stór­stjarna á þessum tíma.

„Já, hann byrj­aði einmitt að semja lög þarna í fyrsta túrnum okkar. Hann var með gít­ar­inn með sér og var að glamra á hann aft­ast í rút­unni. Og þarna held ég að hann hafi byrjað að semja lög. Hann kannski byrj­aði á hljómum í rút­unni og fór svo upp á hót­el­her­bergi og kláraði lagið þar. Hann gerði þarna nokkur flott lög. Við fórum að vinna saman.“

Þor­steinn segir að þeir hafi látið Hljóma fá eitt lagið. „Við völdum léleg­asta lagið sem við áttum. Það heitir Peningar.“

Var það eftir Rúnar?

„Já, Rúnari fannst það ekki sér­stakt. Þeir komu ein­hvern tím­ann, Gunnar Þórð­ar­son og Eng­il­bert Jensen, til að fá lag hjá okkur. Þá tók Rúnar mig afsíðis og sagði „látum þá fá Peninga“ af því að honum fannst það ekki vel heppnað lag. Svo um svipað leyti kom Karl Sig­hvats­son til okkar. Hann var í nýstofn­aðri hljóm­sveit sem hét Flowers en hann hafði spilað smá­tíma með Dátum þannig að hann þekkti sum af þessum lögum. Og hann nátt­úr­lega valdi besta lagið sem hann gat fengið og það var Glugginn sem við sömdum á Ísafirði.  „Ég sit og gægist oft út um glugg­ann.“

Samdir þú það á Ísafirði?

„Já, við vorum að ferð­ast um landið þannig að við vorum að semja þessi lög hingað og þangað.“

Mér fannst þetta vera sér­kenni­legur og dálítið skemmti­lega sam­settur bær, Ísa­fjörður.

Hver er kveikjan að Glugg­anum?

„Við ferð­uð­umst í kringum landið og fengum svo pláss á herkast­al­anum á Ísafirði. Við vorum þar uppi á efstu eða næst efstu hæð. Og þegar maður situr þar við glugg­ann þá sér maður yfir þorpið og gamla fólkið sem situr þar á bekkjum. Mér fannst þetta vera sér­kenni­legur og dálítið skemmti­lega sam­settur bær, Ísa­fjörður, og var að fylgj­ast með mann­líf­inu út um glugg­ann á herkast­al­anum. Og þetta er það sem maður sér út um glugg­ann á herkast­al­anum á Ísafirði.“

Ég sit oft og gægist út um glugg­ann

að gamni mínu úti við skugg­ann

Þetta var eins og maður segir á ljótri íslensku „hitt­arar“. Peningar. Glugginn. Það bara virk­aði allt.

Þor­steinn samdi líka Slappað af. Það þótti heldur betur gróft.

„Já, það er svo­lítið gróft.“

Slappaðu af,
vertu ekki stíf og stirð og þver.
Stundum þú gengur fram af mér.
Stundum ertu fer­leg, bæði frek og kröfu­hörð,
finnst mér stundum að þú sért illa‘ úr garði gjörð
eins og brjáluð hundstík í stórri kinda­hjörð,
eins og brjáluð hundstík í stórri kinda­hjörð.

Þegar text­inn var til­bú­inn þá var nátt­úr­lega flaskan tóm.

„Ég byrj­aði á stuðlum og höf­uð­stöfum og endarími og allt svo­leiðis af því að það var gert ráð fyrir að maður kynni það. En af því að ég hafði stuttan tíma þá lét söngv­ar­inn mig fá viskíflösku. Við vorum á diskó­teki inn við Grens­ás­veg. Jónas R. Hann fékk að nota þarna diskó­tek sem hét Las Vegas. Þetta var á mið­viku­degi og allt lokað nátt­úr­lega því það var áfeng­is­bann á mið­viku­dögum á þeim tíma. Ég byrj­aði nátt­úr­lega á stuðlum og höf­uð­stöfum og endarími og allt svona. Svo var ég alltaf að fá mér smá­dreitil af viskíinu.“ Þor­steinn segir að þetta hafi tekið um hálfan dag. „Þegar text­inn var til­bú­inn þá var nátt­úr­lega flaskan tóm.“

Jú, text­inn þótti vera grófur. Var þetta ekki bannað ein­hvers staðar?

„Það átti að banna þetta. Það var haldin messa í Háteigs­kirkju 1970; bara nokkrum mán­uðum eftir að þetta kom út. Svokölluð popp­messa. Hún var að því leyti ólík öðrum messum að þarna var eng­inn kór­söngur heldur var bara spiluð popp­músík af hljóm­plötum og voru ein­hverjir strákar með gítar upp við alt­arið. Ég man að Slappaðu af var einmitt síð­asta lagið í þess­ari messu þegar fólk var að labba út úr kirkj­unni. Ég hitti þarna gamla konu, fína frú, sem var heldur betur hneyksluð á þess­ari messu. Hún sagði: „Svo þegar messan var búin þá var spiluð ein platan í við­bót og það sem glumdi í hausnum á mér á leið­inni út var „þú skalt reyna að halda kjafti og slappa svo­lítið af“. Og ég fer ekki aftur í þessa kirkju.“

Stelpa frá Blönduósi

Þor­steinn segir Dátar hafi farið tvisvar í kringum landið. „Ég hafði það hlut­verk á þessum ferða­lögum að skrifa bréf í óska­laga­þátt unga fólks­ins, sem hét Lög unga fólks­ins, og þótt­ist vera stelpa á Blöndu­ósi eða ást­sjúkur strákur á Sauð­ár­króki eða eitt­hvað svona. Ég skrif­aði fimm til sex bréf á dag og bíl­stjór­inn fór allaf með þetta á póst­húsin þannig að í hverri viku voru send 20-30 bréf í þessa óska­laga­þætti. Og þetta gerðum við til þess að verða vin­sælli heldur en Hljómar. Það kom í ljós að það voru miklu fleiri bréf sem komu í þessa þætti þar sem var verið að biðja um Leynd­ar­mál með Dátum heldur en nokkurn tím­ann ein­hver lög með Hljómum.“

Þú hafðir úr nokkrum að velja. Það voru Lög unga fólks­ins, Óskalög sjó­manna og Óskalög sjúk­linga. Og þú nýttir þér þetta.

„Ég nýtti mér aðal­lega Lög unga fólks­ins. Það var svo lítið af svona músík í útvarp­inu á þessum tíma. Það var bara ein útvarps­stöð fyrir allt landið fyrir utan nátt­úr­lega Kefla­vík­ur­út­varpið. Kanann. Ein útvarps­stöð fyrir allt landið og þar var lítið hugsað um þessa rokk­músík og popp­músík. Þetta voru aðal­lega klass­ísk verk. Þeir litu svo­lítið stórt á sig þeir sem stjórn­uðu ferð­inni þarna.“

Þarna var verið að senda ást­ar­kveðjur, skila­boð og allt mögu­legt.

Lög unga fólks­ins var á þriðju­dags­kvöldum.

Maður beið eftir þessu.

„Já, fólk beið eftir þessu. Það var setið við útvarpið því þarna var verið að senda ást­ar­kveðjur, skila­boð og allt mögu­legt. Þannig að fólk var kannski að búast við að fá kveðju í þátt­unum. Þetta var það eina sem ung­lingar fengu að hlusta á. Jú, svo eftir dag­skrá á laug­ar­dögum frá hálf­tólf til tólf var verið að spila svokölluð danslög. Þá voru nú flestir farnir að sofa.“

Heim í Búðardal

Þor­steinn segir að Gunnar Þórð­ar­son hafi fengið sig til að semja texta fyrir Hljóma. Hann kenndi á þessum tíma teikn­ingu við barna­skól­ann í Keflavík.

„Við unnum saman heil­lengi, við Gunnar. Hann var dug­legur að semja og var dálítið kröfu­harður. Ef hann var ekki að semja lagið sjálfur þá var val­inn ein­hver amer­ískur eða enskur slag­ari.“

Talað er um hljóm­plötu Hljóma frá 1968.

„Það er mynd framan á af svíf­andi and­litum í mis­mun­andi litum. Mig minnir að Shady Owens sé rauð og Eng­il­bert blár. Dálítið flott umslag.“

Hvaða lög voru á þess­ari plötu?

„Þarna voru nokkur þekkt lög. Þarna var til dæmis Ást­ar­sæla sem er svona barna­gæla. Og þarna var Ég elska alla, Lífs­gleði og Er hann birt­ist. Þessi lög voru öll á þess­ari plötu. Allt lög eftir Gunnar.“

Og textar eftir þig.

„Já.“

Svo samdi Gunnar Þórð­ar­son eitt lagið sem hann vildi fá texta við. Þor­steinn sagð­ist hafa sett það til hliðar og gleymt því.

„Svo hringdi Gunnar eitt kvöldið og spurði hvort ég væri búinn að semja texta við þetta lag.“ Þor­steinn var ekki búinn að því og segir að Gunnar hafi sagt að hann þyrfti að semja text­ann strax.

Það gleymd­ist að setja „t“ í orð­inu „heit­inni“ og það leit út á blað­inu eins og „heill­inni“.

„Ég vissi ekk­ert um hvað ég ætti að semja texta nema að ég hlust­aði aftur nokkrum sinnum á þetta lag og tók eftir að það var í þessum amer­íska sveita­stíl. Ég hugs­aði með mér að það væri sveit fyrir vestan og þá kveikti ég á per­unni og fór að gera þennan texta um Búðardal sem er nát­úr­lega í sveit fyrir vestan. Þannig að það var svona fyrsta lend­ing. Ég flýtti mér að gera þetta. Ég fór síðan í bíó og það gleymd­ist að setja „t“ í orð­inu „heit­inni“ og það leit út á blað­inu eins og „heill­inni“. Og Eng­il­bert Jensen fatt­aði þetta ekki og söng „langömmu heill­inni“. En maður breytir ekk­ert plöt­unni eftir á.“

Þor­steinn seg­ist hafa verið hepp­inn þar sem hann þekkti Pétur Pét­urs­son, útvarps­þul hjá Rík­is­út­varp­inu. „Honum fannst svo gaman að hlusta á þetta lag að á meðan hann var á vakt þá spil­aði hann þetta lag alltaf einu sinni. Þannig að þetta lag var spilað á hverjum ein­asta degi í eitt og hálft ár í útvarp­inu.“

Þannig að það gjör­sam­lega síð­ast inn hjá fólki.

„Já, hann meira að segja bjó til danskan texta við þetta sem hann lét mig ein­hvern tím­ann fá.“

Svo kom fær­eyskur texti við lagið.

„Já, þetta hefur farið víða.

Hlustaðu á þetta bull

Þor­steinn er spurður hvort hann hafi grætt á texta­smíð­inni.

„Það var það. Það var á tíma­bili stór­gróði á þessu. Í gamla daga seld­ust plötur miklu meira en þær gera í dag. Plata sem var vin­sæl var að selj­ast í 10.000 ein­tökum sem er rosa­lega mikið miðað við fólks­fjölda.“

Þor­steinn Egg­erts­son samdi texta fyrir fleiri hljóm­sveitir og má þar nefna Brimkló, Lónlý Blú Bojs og Lúdó og Stefán.

Síðan eru liðin mörg ár.

Þarna er ein­hver að reyna að semja texta eins og ég geri það og tekst það ekki nokkurn veg­inn.

Kemur fyrir að Þor­steinn heyri texta sem hann man ekki eftir að hafa samið?

„Já. Konan mín, Fjóla, hefur verið að gera grín að þessu. Einhvern tím­ann vorum við að keyra austur í sveitum. Útvarpið var á og það var verið að spila eitt­hvað lag og mér fannst þetta vera svo lélegur texti. Svo sagði ég við Fjólu: „Hlustaðu á þetta bull. Þarna er ein­hver að reyna að semja texta eins og ég geri það og tekst það ekki nokkurn veg­inn.“ Svona hélt ég áfram að þusa þangað til Jóhannes Arason þulur kom og afkynnti lagið og sagði: „Þetta var lagið Á eyði­eyju. Erlent lag við texta eftir Þorstein Egg­erts­son.“

Áttræður og semur enn.

„Ég er kvætur þess­ari frá­bæru konu sem semur músík og við erum stundum í stof­unni um helgar og þá sest hún við píanóið og við förum að semja. Stundum gerum við eitt­hvað úr þessu en stundum gleym­ist þetta. En svo er eitt og eitt lag sem er punktað niður og kemst á hljóm­plötu. Það er allur gangur á þessu.“

Þor­steinn seg­ist núna vera að semja jóla­texta sem hann á helst að skila í kringum næstu mán­aða­mót.

Podcastviðtal Reynis Trausta­sonar við hann er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins