„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Thorberg Einarsson stýrimaður var frægt barn: Platínuplötur en rokklingurinn fékk ekki krónu

Thorberg Einarsson stýrimaður var frægt barn: Platínuplötur en rokklingurinn fékk ekki krónu

„Já. það var bátur á Vopna­firði. Hann var einn að róa honum, mað­ur­inn. Það er talið að hann hafi farið út með fær­inu. Svo varð held ég eng­inn var við það fyrr en um kvöldið. Þá fórum við að leita að honum. Ég fór með björg­un­ar­skip­inu með björg­un­ar­sveit­inni að leita að honum. Hann fannst svo í sjónum dag­inn eftir. Björg­un­ar­skip frá Nes­kaup­stað fann hann og við fórum svo með hann í land. Þetta sýnir manni að þetta er ekk­ert grín,“ segir Thorberg Ein­ars­son, stýri­maður á Vésteini GK, í við­tali við Frosta Logason í Sjó­ar­anum um það þegar maður fórst.

Thorberg var á sínum tíma barna­stjarna þegar hann söng með Rokkling­unum. Seinna lá leiðin á sjó­inn.

Rokkling­arnir voru lands­frægir,
Ég var fárán­lega sjó­hræddur.

Thorberg er spurður hvort hann sjálfur hafi lent í hættu. „Ég var fárán­lega sjó­hræddur,“ svarar hann. „Og þótt ég væri ekki í hættu þá hefur mér oft fund­ist það. Það var bara bilun hvað ég var alveg hroða­lega sjó­hræddur.“

Löngu eftir að þú byrj­aðir á sjó?

„Já, ég veit ekki hvað þetta var.“

Kók og Snickers

Thorberg seg­ist fyrst hafa farið á sjó með pabba sínum þegar hann var um sex ára gam­all. „Hann átti trillu í Grinda­vík. Þetta var ekk­ert fyrir mig. Ekki neitt. Mín sjó­mennska þegar ég var að prófa þetta sner­ist um að vera á hnjánum ælandi. Ég man að það var maður á öðrum bát sem kom siglandi til okkar og hann henti SodaStr­eam-flösku yfir svo ég myndi ekki drep­ast.“

Hvað var verið að rífa svona lít­inn krakka út?

„Spenna í mér.“

Þig lang­aði til að fara með.

„Já.“

Hann hélt líf­inu í mér þessa túra.

Síðan liðu þó nokkuð mörg ár og 16 ára gam­all fór Thorberg á Skarfinn. „Ég fór nokkra túra eitt sum­arið og það held ég ég að hafi verið fyrsta laun­aða sjó­mennskan. Skarfinn var beitn­inga­véla­bátur sem Fiskanet í Grinda­vík átti,“ segir hann en mágur pabba hans var skip­stjóri. „Hann hélt líf­inu í mér þessa túra því þar breytt­ist þetta ekk­ert; ég man að einu sinni ældi ég í inn­sigl­ing­unni í Grinda­vík á leið­inni út. Ég held þeir hafi verið að taka beitu og setja í rekk­ana og þetta var bara ógeðs­legt. Í þeim túrum sem ég fór á Skarf­inum þá held ég að ég hafi bara drukkið kók og borðað Snickers allan tím­ann. Svo í rest­ina var ég far­inn að geta borðað.“

Á grásleppuvertíð

Planið var ekki að verða sjó­maður.

„Þetta heill­aði mig eig­in­lega ekki neitt. Vinir mínir voru allir farnir á sjó og ég öfund­aði þá alltaf,“ segir Thorberg. „Mér fannst þetta vera spenn­andi,“ segir hann en vin­irnir voru komnir á upp­sjáv­ar­skip, „en ég var brenndur á þessu; ég yrði bara ælandi. Mér fannst þetta erfitt.“

En svo fór hann á 200 tonna neta­bát þegar hann var tví­tugur. „Þá gjör­breytt­ist það. Þá varð ég ekk­ert sjó­veikur og upp úr því var þetta planið.“

Hann var á Sólfara. „Við vorum mikið í Ólafsvík. Við vorum ungir og ógeðs­lega gaman og fullt af gaurum sem ég þekkti. Það var djammað á kvöldin og svo var farið á sjó­inn um nótt­ina. Mér fannst það alveg geggjað.“

Það var annað slagið djammað.

Fylgdu þessu alltaf mikil fyllirí þegar komið var í land?

„Já, það var annað slagið djammað,“ segir Thorberg og bætir við að hann hafi aldrei átt neinn pen­ing á þesum tíma. Það var eytt.

Hann fór seinna á dragnót.

Hvað gerðir þú um borð?

„Aðallega slæg­ing og að ganga frá afla. Og láta nót­ina fara og taka hana svo aftur um borð.“

Svo reri hann á tíma­bili með manni frá Vopna­firði. Heiðari. „Ég var með honum á línu í 10 ár. Á beitn­inga­vél. Ég tók mér alltaf pásur; ég fór á grá­sleppu á hverju ári – fór á grá­sleppu­ver­tíð með Hreini Björg­vins­syni á Vopa­firði. Ég held ég hafi farið 12 grá­slepu­ver­tíðir með honum.“

Vinirnir

Thorberg er núna stýri­maður á Vésteini GK.

„Ég er með 15 metra rétt­indi; mig minnir að þetta hafi verið þrjár helgar á Nes­kaup­stað á þeim tíma,“ segir hann um námið. „Þetta er held ég einn vetur í dag. Við bók­uðum her­bergi, drukkum nokkra bjóra yfir helg­arnar og mættum í tíma.“

Thorberg Ein­ars­son ásamt skips­fé­lögum sínum á Vésteini.

Þú ert einn af þeim sem hafa þurft að gyrða sig í brók og hætta að drekka.

„Já, ég partí­aði yfir mig. Ég eyddi miklu í vit­leysu. Það situr meira eftir að maður hætti að drekka,“ segir Thorberg sem hefur verið edrú í sjö ár.

Thorberg segir að und­ir­staðan í veið­unum á Vésteini GK sé þorskur. „Svo kemur ýsa og karfi; þegar maður er í dýp­inu þá kemur svo­lítið af karfa. Og svo kemur svo­lítið af löngu í Grinda­vík á vet­urna. Og keila.“

Fjöl­skyldu­mað­ur­inn Thorberg.

Lítill svefn fylgir því að vera á línu­bát. „Fyrir mína parta á þetta vel við mig. Skorpu­vinna. Taka á því í ein­hvern ákveð­inn tíma. Það er best og svo kem ég heim og þá er ég eins og auðnu­leys­ingi. Það er skiln­ingur á mínu heim­ili þegar ég kem heim eftir törn og er hugsað um mig eins og smá­barn.“

Enda reynum við að vera með fífla­læti eins og við getum.

Það er oft fjör um borð í Vésteini og Thorberg talar um stemmn­ing­una.

„Það að vera með vinum sínum er held ég lyk­ill­inn að þessu. Þetta getur verið jafn­leið­in­legt og þetta er skemmti­legt. Að fara á sjó­inn með gaurum sem þú þekkir ekki neitt og það er einn í fílu; það gengur ekki. Þetta er svo þröngt og það rúmar ekki neitt svo­leiðis, enda reynum við að vera með fífla­læti eins og við getum.

Þetta er bara hlátur út í eitt.“

Mikið grín og mikið gaman.

„Stemmar­inn hjá okkur er alveg geggj­aður. Það skiptir ekki máli hvort þú sért búinn að sofa í einn klukku­tíma eða 12 tíma. Það eru alltaf fífla­læti. Þótt við séum að leggja af stað í fimm­tugs­ald­ur­inn flestir þá erum við bara 18 ára í hausnum. Ég ætla alla­vega að halda því áfram.“

Thorberg var barna­stjarna.

Þú ert rokklingur; Þessi lands­þekkta hljóm­sveit sem var sam­sett barna­sveit í gamla daga þegar við vorum litlir drengir. Þú varst þarna í stóru lyk­il­hlut­verki. Þess vegna ertu Tobbi rokklingur.

„Þetta verður lík­lega sett á leg­stein­inn hjá mér þegar þar að kemur.“

Þú nærð ekk­ert að má þetta af þér?

„Nei.“

Hvernig kom það til að þú varðst barna­stjarna og fórst að syngja inn á plötur?

„Sigurrós systir var að keppa í söngvakeppnum og vann ein­hverja keppni. Mamma og pabbi fóru með hana í ein­hverja prufu. Mig minnir að það hafi verið farið í kjall­ar­ann í Djass­ball­ett­skóla Báru og ég var við kubbaborð að leika við ein­hverja krakka. Í minn­ing­unni þá vissi ég ekk­ert hvað við vorum að gera þarna. En svo skrif­aði pabbi nafnið mitt á eitt­hvað blað og það var síðan kallað í mig inn. Mig minnir að ég hafi ekki einu sinni sungið heldur hafi ég sagt þeim brand­ara.“

Svo fór bolt­inn að rúlla og Thorberg varð með­limur í barna­hljóm­sveit­inni Rokkling­unum.

„Plöt­urnar voru teknar upp í Hljóð­rita í Hafn­ar­firði. Ég hafði ekki hug­mynd um hvað ég var að gera þarna. Ég vissi ábyggi­lega ekki hvað plata var. Ég mætti bara þarna og gerði það sem mér var sagt að gera. “

Þetta sprakk út. Ég var níu ára. Þetta var alveg fárán­legt.

Plöt­urnar urðu þrjár.

„Þetta sprakk út. Ég var níu ára. Þetta var alveg fárán­legt.“

Fannstu fyrir því að þú værir frægur á Íslandi?

„Já. Ég hef oft hugsað út í þetta. Mér leið eins og í Truman-show. Mér fannst allt snú­ast í kringum mig. Mér fannst þetta alveg geggjað.“

Hann seg­ist að plöt­urnar hafi rokselst.

„Ég er með eina plat­ínu­lötu úti í bíl sem ég er að fara að hengja upp á vegg í vinn­unni.“

Hann minnir að þær hafi allar farið í plat­ínu.

Fékkstu þá fullt af pen­ingum fyrir þetta?

„Nei, ég man ekki eftir að hafa fengið eina krónu. Ég held að það sé alveg stað­reynd.“

Fékk ekk­ert ykkar pen­ing?

„Ég veit ekki til þess.

Hver fékk þá pen­ing­inn af söl­unni?

„Þeir sem stóðu að þessu ábyggi­lega.“

Viðtal Frosta Loga­sonar við Thorberg er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins