„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eldur Deville harðorður vegna translækninga fyrir börn: „Við leyfum ekki barni að fá sér sígarettu“

Eldur Deville harðorður vegna translækninga fyrir börn: „Við leyfum ekki barni að fá sér sígarettu“
Eldur Deville, for­maður Sam­tak­anna 22

Eldur Deville talar meðal ann­ars um trans­börn og kyn­þroska­bælandi lyf og segir að þau stöðvi ekki ein­ungis lík­am­legan þroska heldur einnig and­legan þroska. Hann segir að meiri umræða sé nauð­syn­leg um þessi mál. „Við þró­umst öll og þroskumst og döfnum á mis­mun­andi hraða og á mis­mun­andi vegu. En þegar þú ert far­inn að tala um að sjúk­dómsvæða þroska­skeið eins og kyn­þroska­skeið þá held ég að við séum komin út í vafa­sama til­rauna­starf­semi með líf og heilsu fólks.“ Eldur seg­ist vilja sjá í þessu sam­hengi það sama og hefur verið að ger­ast sér­stak­lega í Bret­landi. „Ég vil að tran­steymi BUGL verði hrein­lega lagt niður og það þarf að styrkja barna- og ung­linga­geðsviðið á annan hátt. Ég held að það sé ansi margt annað sem þessi börn sem skil­greina sig sem trans séu að glíma við. Það getur verið trauma, það getur verið ein­hverfa og það getur verið ýmis­legt annað sem liggur þarna að baki og það sýna flestar rann­sóknir. Það er ekk­ert barn sem er bara með kynama til dæmis.“

„Ég fór fyrir nokkrum árum að taka eftir því að börn byrja að skil­greina sig sem trans allt niður í 10-11 ára og fór að hugsa með mér hvernig 10-11 ára gam­alt barn geti farið að skil­greina sig á ein­hvern annan hátt og hvað liggur þar á bak við. Ég hef kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu eftir að hafa kafað ofan í þetta dálítið lengi að börn sem eru að nálg­ast kyn­þroska­skeið eru kannski með hálf­skað­aða sjálfs­mynd út af því að þau eru kannski að upp­götva það að þau eru ekki alveg eins og hin börnin; að þau gætu verið að þró­ast í þá átt að verða sam­kyn­hneigð. Ég upp­lifði þetta sjálfur og vildi fara í stelpu­föt og vildi leika við stelpur þegar ég var að upp­götva sjálfan mig,“ segir Eldur Deville í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur en hann býr ásamt eig­in­manni sínum í Brighton á Englandi.

Síðustu ár hafa til dæmis Svíar og Finnar og núna síð­ast Bretar alfarið hætt notkun kyn­þroska­bælandi lyfja.

„Það eru horm­óna­gjafir á ungum börnum sem hafa sett mig úr jafn­vægi vegna þess að það eru ekki til neinar hald­bærar rann­sóknir sem sýna fram á að þetta sé eitt­hvað sem hjálpi og að þetta sé aft­ur­kræft. Það er mjög algengt að bæði sam­tök hinsegin fólks og læknar sem eru að beita þessu segi að þetta sé aft­ur­kræft. Það virð­ist ekki vera. Það virð­ast ekki vera nein hald­bær vís­inda­leg rök fyrir því. Og núna síð­ustu ár hafa til dæmis Svíar og Finnar og núna síð­ast Bretar alfarið hætt notkun kyn­þroska­bælandi lyfja því það sem kyn­þroska­bælandi lyf gera er að þau stöðva ekki ein­ungis lík­am­legan þroska heldur líka and­legan þroska. Þannig að það má alveg færa fyrir því rök að þú ert ekki aðeins að hefta lík­am­legan þroska barns heldur ert þú kannski að búa til ein­stak­ling sem er ekki jafn­vel í stakk búinn við kyn­þroska­skeiðið að verða ung, full­orðin mann­eskja.“

Eldur segir að til séu rann­sóknir sem styðja það að svona lyf hafi þau áhrif að börn staðni líka í and­legum þroska.

„Og það eru einmitt þær rann­sóknir sem hafa líka gert það að verkum að það er farið að horfa til þess að nota þessi lyf alls ekki. Svo má líka nefna það að börn sem fara á þessi lyf of snemma og þá sér­stak­lega börn sem eru karl­kyns þá hindrar þetta nátt­úr­lega allan lík­am­legan kyn­þroska og til þess að breyta kyn­færum þess­ara drengja síðar meir þá þarf nátt­úr­lega að vera til nógu mikil húð og efni­viður í þessar breyt­ingar. Og það gefur nátt­úr­lega auga leið að ef þú ert að stöðva lík­am­legan þroska drengs þá vex fólk ekki á eðli­legan máta þar sem þeir myndu þurfa til þess að þessar breyt­ingar gætu verið vel lukk­aðar. Það eru mörg dæmi til um slíkt.“

Þá verður að fá að eiga sér stað umræða um hvernig þessum mál­efnum skal háttað.

Eldur seg­ist eiga vini, full­orðið fólk, sem séu trans og að það sé ekki á þess­ari sömu aktí­vista­línu og margir sem eru mjög áber­andi. „Það trans­fólk sem ég þekki hefur bara viljað ganga í gegnum sitt ferli og svo bara lifað sínu lífi, stundað sína vinnu og verið í friði. Full­orðið fólk má gera nákvæm­lega það sem það vill. Það er eng­inn að tala illa um trans­fólk eða gera lítið úr því þannig en þegar kemur að mál­efnum barna þá verður að fá að eiga sér stað umræða um hvernig þessum mál­efnum skal háttað.“

Transkonur eru karlar

Eldur seg­ist vita í hvernig umhverfi börn eru í dag og hvað börn þurfa að glíma við sem er allt annar raun­veru­leiki en þegar hann var barn. „Þá var ekk­ert inter­net og ekk­ert TikTok eða Snapchat. Þessi pressa á börn er orðin allt önnur og sam­skipti þeirra nátt­úr­lega allt önnur heldur en þau voru. Þannig að ég held að for­eldrar þurfi að fylgj­ast með hvað börnin þeirra eru að gera á net­inu. Ef stúlka seg­ist halda að hún sé strákur þá á að spyrja spurn­inga svo sem af hverju hún haldi það. Það verður að fá barnið til að tala. Og það verður að hlusta á barnið. Ef þetta er sam­þykkt strax og sagt er við barnið að það hafi bara fæðst eitt­hvað vit­laust þá er búið að stað­festa það fyrir barn­inu sem hefur ekki and­legan þroska til þess að skilja þetta. Það er ekki hægt að fæð­ast í röngum lík­ama. Við eru lík­amar okkar. Það fæð­ist eng­inn vit­laust. En ef barni er talin trú um að það fædd­ist bara vit­laust þá er líka farið að brjóta niður sjálfs­mynd barns­ins. „Já, ég fædd­ist vit­laust, það er eitt­hvað að mér.“ Í stað­inn fyrir að leið­beina barn­inu. Vertu for­eldri barns­ins og leið­beindu því og teldu því trú um að strákar geti gert hvað sem er. Stelpur geti gert hvað sem er. Þó að stelpur vilji fara í fót­bolta og strákar vilji fara í ball­ett þá er það bara fínt. Mark­miðið með jafn­rétt­is­bar­áttu síð­ustu aldar var að brjóta niður staðalí­myndir; ekki búa til fleiri og búa til enn minni kassa utan um fólk. Ég meina; trans­konur eru karlar. Við þurfum að læra sem karl­kyns ein­stak­lingar og karlar að sam­þykkja þá líka sem karl­kyns ein­stak­linga því þeir eru af karl­kyni. Sama með konur.

Það hefur gríð­ar­leg heilsu­fars­leg áhrif á börnin síðar.

Börnin þurfa nátt­úr­lega umgjörð utan um sig, þau þurfa strúktúr og þau þurfa að vera í ákveðnum ramma en ekki í ein­hverjum ramma þar sem þú ert búin að ákveða eða ein­hverjir aðrir eru búnir að ákveða það að það sé eitt­hvað að barn­inu. Barnið þarf að fá að vaxa og þroskast án þess að það sé farið að kukla í hvað verður svo síðar meir. Við þró­umst öll og þroskumst og döfnum á mis­mun­andi hraða og á mis­mun­andi vegu. En þegar þú ert far­inn að tala um að sjúk­dómsvæða þroska­skeið eins og kyn­þroska­skeið þá held ég að við séum komin út í vafa­sama til­rauna­starf­semi með líf og heilsu fólks. Því það hefur gríð­ar­leg heilsu­fars­leg áhrif á börnin síðar og þá erum við að tala um bein­þynn­ingar, við erum að tala um þroska­skerð­ingar og við erum að tala um alls konar kvilla. Það þarf umræðu og það þarf meiri fræðsla að eiga sér stað varð­andi þessi mál.“

Lyfin hafa ekki verið notuð lengi og segir Eldur að lang­tíma­á­hrif þeirra séu að koma æ betur í ljós. Þarf barn ekki að fara í sál­fræði­með­ferð áður en það fer á þessi lyf?

Hún mun alltaf hafa djúpa karl­manns­rödd en líta út eins og venju­leg kona.

„Það virð­ist vera voða­lega mínímal að þess þurfi og það eru til þess dæmi að fólk hafi fengið kyn­þroska­bælandi lyf eftir eitt sam­tal við lækni. Í Bret­landi eru fjöl­mörg dæmi um það að fólk hafi fengið þessi lyf strax og jafn­vel kross­hormón; það er þegar karl­kyns ein­stak­lingur fær estrogen og öfugt. Testó­sterón er nátt­úr­lega súper sterkt og það er ekk­ert sem þú leikur þér að. Breyt­ing­arnar á konum ger­ast mjög hratt þegar þær fara á testó­sterón; bæði dýpkar röddin og hár­vöxtur eykst og þessir hlutir eru óaft­ur­kræfir. Ég þekki nokkrar konur sem hafa farið einmitt í testó­sterón-með­ferðir mjög ungar. Strax 18 ára. Ein góð vin­kona mín er 22 ára og hún upp­götv­aði svo að hún væri ekki trans. Hún hafði lent í trauma, var ein­hverf og glímdi við ýmis önnur vanda­mál. Hún mun aldrei fá sína kven­legu rödd aftur og hún þarf að fara í leisermeð­ferð til þess að losna við skegg­vöxt. Hún mun alltaf hafa djúpa karl­manns­rödd en líta út eins og venju­leg kona.“

Tilraunalækningar

Eldur segir að það eigi að leggja af trans­lækn­ingar fyrir börn. „Ég veit að það mun valda ein­hverju fjarða­foki að ég segi þetta. Við leyfum ekki barni að fá sér sígar­ettu, við leyfum ekki barni að fá sér tattú og við leyfum ekki börnum að fá sér áfengi. Af hverju ættum við þá að leyfa börnum að fá ein­hver lyf sem við skiljum ekki hvaða áhrif hafa að fullu og sem eru að valda skaða? Það er ekk­ert eðli­legt við það að ung stelpa sem er 18 ára sé að glíma við bein­þynn­ingu. Þannig að ég hvet heil­brigð­is­starfs­menn á Íslandi til þess að taka ekki þátt í trans­lækn­ingum.“

Svo er líka mikið um áhrifagirni.

Eldur seg­ist vilja sjá í þessu sam­hengi það sama og hefur verið að ger­ast sér­stak­lega í Bret­landi. „Ég vil að tran­steymi BUGL verði hrein­lega lagt niður og það þarf að styrkja barna- og ung­linga­geðsviðið á annan hátt. Ég held að það sé ansi margt annað sem þessi börn sem skil­greina sig sem trans séu að glíma við. Það getur verið trauma, það getur verið ein­hverfa og það getur verið ýmis­legt annað sem liggur þarna að baki og það sýna flestar rann­sóknir. Það er ekk­ert barn sem er bara með kynama til dæmis. Ef það er til þá vil ég gjarnan fá ein­hvern til að benda mér á dæmi þar sem er bara kynami af því að það er alltaf eitt­hvað meira á bak við. Kynami er yfir­leitt fylgi­kvilli ein­hvers ann­ars. Og það þarf að styrkja barna- og ung­linga­geðsviðið og fara að grúska í hvað það er sem veldur þessu.

Svo er líka mikið um áhrifagirni. Þegar börn eru að skoða TikTok, Snapchat og annað þar sem konur eða stelpur eruu að láta að skera af sér brjóstin þá er því bein­línis fagnað. Og fólk er að monta sig af að vera með seríu af geð­sjúk­dómum. Þetta á allt sér stað á TikTok.

Þetta er stórt og mikið mál og ég vil hvetja fólk til þess að þora að tala um þetta. Það verður að tala um þetta. Ég er ekk­ert að segja að ég hafi endi­lega rétt fyrir mér í öllu en til þess að fólk geti átt upp­byggi­legar sam­ræður þá verður nátt­úr­lega að eiga sér stað sam­tal á milli fólks. Það á ekki að bæla niður alla umræðu sem kemur upp og umræðan á ekki að vera eins­leit. Við verðum að fá að spyrja gagn­rýn­inna spurn­inga. Því þetta eru börnin okkar sem við erum að tala um. Þetta er fram­tíðin. Við getum ekki leyft okkur að eyði­leggja fleiri líf barna með ein­hverjum til­rauna­lækn­ingum. Við eigum sem sam­fé­lag að vera sam­mála um að við stundum ekki til­rauna­lækn­ingar á börnum.“

Gerð í gróðrarskyni

Eldur segir að full­orðið fólk megi gera nákvæm­lega það sem það vill svo sem að fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli en að börn verði að fá að njóta vafans.

„Lækna­eið­ur­inn segir að ekki eigi að gera neinn miska. Það er grund­vall­ar­at­riði í lækn­ingum. Þetta hefur dálítið gleymst í þess­ari umræðu.“

Hann segir að svona lækn­ingar fyrir trans­börn séu iðn­aður í Banda­ríkj­unum. „Það hefur verið flett ofan af klíníkum bæði í Boston og svo í Nas­hville í Tennessee nýlega þar sem mynd­bönd láku á netið þar sem stjórn­endur spít­al­ans voru að tala um að kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli fyrir börn og ung­menni væru mjög góð í gróðr­ar­skyni fyrir spít­al­ann. Þannig að það þarf að hafa í huga að þetta er ekki allt bara af góð­mennsku og þetta er ekki alltaf gert í tengslum við mann­rétt­inda­bar­áttu.“

Eldur segir að engin umræða hafi átt sér stað um trans­börn en að samt virð­ist allir hafa tekið þetta í sátt allt í einu. „Við hommar og les­b­íur þurftum að hafa fyrir okkar bar­áttu sem var frels­is­bar­átta og við höfðum hávaða. Við höfðum mik­inn hávaða. Það hefur hins vegar verið meiri þöggun varð­andi þetta mál. Þetta er risa­stórt mál og það þarf var­kárni, alúð og skiln­ing á báða vegu.

Þau eru öll komin í þetta með að vera barna­heim­ili fyrir svokölluð trans­börn.

Ef maður spyr spurn­inga þá er strax farið í vörn og maður kall­aður ýmsum nöfnum. Þessi hegðun í sam­fé­lag­inu verður að hætta. Ég er til­bú­inn að ræða við hvern sem er innan Sam­tak­anna 78 og Trans Ísland. Ég boð­aði þá margoft að ræða við mig. Það var þess vegna sem við vorum nokkur sem stofn­uðum ný sam­tök. Fyrst köll­uðum við okkur LGBT teymið. Núna köllum við okkur bara Samtökin 22. Við gerðum þau að sam­tökum 22. febr­úar í ár. Þetta eru hags­muna­sam­tök sam­kyn­hneigðra þannig að við erum varð­hundur fyrir mann­rétt­indi og virð­ingu sam­kyn­hneigðra. Og það er út af því að Samtökin 78 eru hætt að vinna fyrir sam­kyn­hneigða. Þau eru ekk­ert að vinna og sinna mál­efnum sam­kyn­hneigs fólks lengur. Þau eru öll komin í þetta með að vera barna­heim­ili fyrir svokölluð trans­börn og vera í tran­sa­kví­visma. Þannig að þá bara verða þau þar og það er bara fínt. En við ætlum að sinna okkar mann­rétt­inda­gæslu á annan hátt.“

Stuart og Eldur með hundan sína, Prince og Riley.

Eldur er spurður hvort honum finn­ist bar­átta trans­fólks vera farin að skyggja á bar­áttu sam­kyn­hneigðra.

„Ég held að hún sé farin að valda stór­kost­legu tjóni vegna þess að núna er búið að kóa ansi lengi sér­stak­lega með börn. Það er að koma flóð­bylgja af ungu full­orðnu fólki sem hefur verið sett í trans­ferli í mis­gripum og sem bara stað­festa það að það á ekk­ert að eiga sér stað neitt trans­ferli fyrir börn. Börn eiga að fá að vera börn og þroskast. Það er svo allt annað mál hvað kemur svo síðar meir þegar við­kom­andi er orð­inn full­vaxta og full­ráða ein­stak­lingur. Það verður að vera hægt að hjálpa börnum sem falla ekki að þessum klass­ísku staðalí­myndum um hvernig kynin eru á annan hátt en að setja þau í ein­hverja enn fast­ari ramma og sjúk­dóma­væða þau. Það er númer eitt, tvö og þrjú.‘

Gölluð lög

Eldur segir að þegar talað sé um rétt­indi kvenna og svo sam­kyn­hneigðra og barna þá séu ýmis atriði í kröfum trans­fólks sem stang­ist á við rétt­indi sér­stak­lega kvenna, barna og svo sam­kyn­hneigðra. „Það er aðal­lega þátt­ur­inn sem snýr að konum og börnum sem gerir málin flókin. Ísland er frekar sak­laust, lítið land vegna þess að hérna er nátt­úr­lega fámenni þannig að þessi vanda­mál verða kannski ekki eins aug­ljós hérna fljótt en Ísland má samt ekki setja sig í ein­hverja búbblu þar sem þau halda að ekk­ert geti komið fyrir hér. Nýlegt dæmi er kenn­ari í Kanada sem er búinn að vera í frétt­unum mikið unan­farnar vikur sem dúkk­aði upp í skól­anum í haust með sílíkon­brjóst frekar yfir með­al­lagi. Þetta er smíða­kenn­ari. Skóla­yf­ir­völd geta ekk­ert gert í þessu í Kanada; þó þetta séu risa­stór sílíkon­brjóst með gerivörtum sting­andi út og þröngur klæðn­aður þá geta skóla­yf­ir­völd í Kanada ekki gert neitt. Og það er út af því að Kanada er búið að gera sama hlut og Íslend­ingar eru búnir að gera og sem Íslend­ingar hafa í raun og veru ekk­ert talað um og lík­lega kannski ekki einu sinni vitað um og það er að inn­leiða lög um kyn­rænt sjálf­ræði. Kanada gerði það sama með Ontorio Human Rights Code og Bill C-16 þar sem refsi­vert er að tala um fólk með röngum per­sónu­fornöfnum og það er bannað að mis­muna eða hafa að háði kyn­vit­und, kyn­gervi eða kyntján­ingu fólks. Þannig að skóla­yf­ir­völd geta ekki gert neitt í þessu. Það þorir eng­inn að gera neitt því allir eru hræddir við að fremja refsi­vert athæfi við að gagn­rýna þetta. Sama er uppi á ten­ingnum með lögin hérna. Þetta er fræði­lega hægt en ef þú skoðar lögin um kyn­rænt sjal­fræði þá er kyntján­ing, kyn­vit­und og kyn­geri orðin lög­vernduð í þessum lögum þannig að þetta getur alveg gerst á Íslandi. Ég er ekki að segja að trans­fólk mis­noti þessi lög en þessi lög eru svo gölluð að það er mjög auð­velt fyrir níð­inga og per­erta að mis­nota þau og koma sér þannig á fram­færi og líka að koma sér í nálægð við fórn­ar­lömb.“

Þetta er fræði­legur mögu­leiki líka á Íslandi ef afbrota­maður byrjar að skil­greina sig sem konu.

Eldur talar um fang­els­is­mál. „Það er nýbúið að dæma konu í Brighton í 20 ára fang­elsi fyrir marg­vís­leg kyn­ferð­is­brot gegn börnum og ung­lingum á 9. og 10. ára­tug síð­ustu aldar nema það að þetta er ekki kona. Þetta er karl­maður sem braut á þessum börnum og ungu konum en hann hefur skil­greint sig sem konu síðan 2004. Og þessi kyn­ferð­is­af­brota­maður, sem hefur ekki farið í kyn­leið­rétt­ingu eða neitt en skil­greinir sig bara sem konu, er að fara í kvenna­fang­elsi. Þetta er nátt­úr­lega í raun og veru ef þú spáir í það mann­rétt­inda­brot gegn konum því það er bannað að beita bæði grimmum og óeðli­legum refs­ingum og það er í mann­rétt­inda­sátt­mál­anum. Hvað er það annað en grimm og óeðli­lega refs­ing að setja konu í fang­elsi með nauðgurum? Þetta er fræði­legur mögu­leiki líka á Íslandi ef afbrota­maður byrjar að skil­greina sig sem konu.“

Eldur segir að lögin frá 2019 rjúfi ákveðna sam­fé­lags­sátt. „Það var komin ákveðin sátt um mál­efni bæði kvenna og karla og þetta setur þessi mál í upp­nám. Málið er að þetta fer ekki í upp­nám fyrr en dæmin byrja að koma og rétt eftir að lögin gengu í gegn þá fórum við í gegnum heims­far­aldur þannig að það er voða­lega lítil reynsla komin á lögin vegna þess að það var nátt­úr­lega allt lokað hérna meira og minna í hálft annað ár.“

Eldur segir að Reykja­vík­ur­borg sé búin að gefa út bæk­ling fyrir starfs­fólk íþrótta­mann­virkja um hvernig eigi að bregð­ast við varð­andi kvörtun yfir því að karl með karl­kyns kyn­færi sé inni í kvenna­klefum borg­ar­innar. „Það verður að finna lausn þar sem allir geta verið sáttir. Það er ekki hægt að gera það þannig að segja að núna geti trans­fólk átt greiða leið í sund en svo veigra hinir sér frá því að fara út af því. Það verður að finna lausn á mál­inu sem allir geta unað við.

Þetta tíma­bil er liðið þar sem umræðan er þögguð niður. Við verðum að fá að tala um þessi mál. Lögin um kyn­rænt sjálf­ræði voru síð­asta mál á þing­inu í des­em­ber 2019 og þau fengu lík­lega ekki lengri umræðu en svona fimm til tíu mín­útur þrátt fyrir að það voru umsagnir frá fag­að­ilum sem benda til þess að þetta mál hefði þurft lengri og ítar­legri þing­lega með­ferð og ekki bara þing­lega með­ferð heldur líka þjóð­fé­lags­lega umræðu. En hún hefur ekki átt sér stað og hún þarf að eiga sér stað áður en áfram er haldið.

Það er gam­alt orð og gömul skil­grein­ing að segja „kyn­skipt­ingur“.

Lögin um kyn­rænt sjálf­ræði eru þannig að ég gæti farið niður í Þjóðskrá í Borg­ar­tún­inu og skráð mig sem konu og skipt um nafn í sömu andrá og það kostar mig ekki eina ein­ustu krónu út af því að ég væri að breyta kyn­skrán­ingu. Þetta átti að kosta 9-10.000 krónur en þetta var kallað trans­skattur þegar þetta kom og það var barist fyrir því að þetta yrði lagt af þannig að það myndu ekki verða neinir varnaglar. Þannig að þú sérð að allir varnaglar frá því að karl­maður geti skil­grein sig sem konu og kom­ist inn í kvenna­rými eru farnir. Þetta var í stökkum; þú þurftir að vera hjá sál­fræð­ingi, lifa í ákveðnu kyn­gervi í ákveð­inn tíma og þurftir að fá sál­fræði­mat áður en þú gast farið í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli. Málið er að trans í dag þýðir ekki það sama og trans þýddi fyrir fimm til fimmtán árum. Það er gam­alt orð og gömul skil­grein­ing að segja „kyn­skipt­ingur“. En þegar fólk er að hugsa um trans í dag þá hugsar það „kyn­skipt­ingur“. En trans er orðið miklu stærra regn­hlíf­ar­hug­tak þannig að allir sem eru ekki sáttir við að vera ann­að­hvork karl eða kona eru trans. Fólk sem skil­greinir sig að vera stelpu­strákur, tomboy, kynsegin og skynsegin; allt þetta fólk er orðið trans. En það eru bara til þrjár skil­grein­ingar eða þrjú kyn sem hægt er að skrá sig í. Það er karl­kyn, kven­kyn eða hán eða hvor­ug­kyn eða kyn­hlut­laust. Það eru engir varnaglar að skrá sig á milli þess­ara flokka. Þannig að núna þarftu ekki einu sinni að fara til fag­að­ila og fá sál­fræði­mat og ákveðið vott­orð um að þú sért trans­mann­eskja. Það er nóg fyrir þig að fara upp í Borg­ar­tún og gera þeta og þeta kostar þig ekki neitt.

Varnagl­arnir þarna eru allir farnir. Mér finnst dálítið sér­stakt að kven­rétt­ina­hreyf­ingin hefur ekki tekið þetta almenni­lega fyrir. Kven­rétt­inda­fé­lagið er nátt­úr­lega búið að taka Trans Ísland til sín sem und­ir­fé­lag líka þannig að Trans Ísland er ekki bara með­limur að Sam­tök­unum 78; þau eru líka und­ir­fé­lag Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands.“ Eldur minn­ist á jafn­rétt­is­sjón­ar­miðin „og hversu auð­velt það er að skipta um kyn og hvernig við höfum verið að reyna að rétta hlut kvenna bæði í stjórn­málum og í stjórnum stórra fyr­ir­tækja.“ Eldur bendir í þessu sam­bandi á að til að upp­fylla jafn­rétt­is­skil­yrði þá þurfi að minnsta kosti 40% stjórenda að vera af öðru kyni; sem sagt konur. Hann tekur sem dæmi að þá gæti karl farið niður í Þjóðskrá og látið breyta nafn­inu sínu í kven­manns­nafn. „Tækni­lega séð getur þú farið niður í Borg­ar­tún, látið breyta kyn­skrán­ing­unni þinni og tekið sæti konu á bæði fléttu­lista í stjórn­málum og í stjórnum fyr­ir­tækja. Lögin leyfa þetta. Og það eru engir varnaglar. Þannig að það er fullt af glu­fum í þessum lögum sem þarf að skoða. Lögin eru mein­gölluð. Þau eru skrifuð af aktí­vistum frá Sam­tök­unum 78. Ég veit það vegna þess að ég heyrði Svandísi Svav­ars­dóttur, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, segja það á mál­þingi með Sam­tök­unum 78 fyrir tæpu hálfu öðru til tveimur árum síðan. Þannig að ég veit hver skrif­aði lögin og þau skrif­uðu þau sjálf og þeim var fleygt í gegnum þingið án nokk­urrar þing­legrar umræðu út af því líka að Ísland er búið að marka sér stefnu að vilja vera efst á regn­boga­korti ILGA.“

Hægt er að fylgj­ast með Eldi Deville á eft­ir­far­andi sam­fé­lags­miðlum:

Twitter á @justgayice og Sam­tök­unum 22 á Facebook og @samtokin22 á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Hanna Rún lam­að­ist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Það breytti öllu að verða móðir.“ Og parið dans­aði saman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins