„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brynja Dan Gunnarsdóttir: „Rasismi á ekki að líðast“

Brynja Dan Gunnarsdóttir: „Rasismi á ekki að líðast“
Brynja Dan Gunn­ars­dóttir Mynd: Aldís Páls.

„Ég held að fólk ætti ekki að láta úr úr sér rasísk ummæli af neinum toga. Ég svo sem veit að það verður lík­lega aldrei þannig því miður en að stór mið­ill leyfi svona hlutum að fara í birt­ingu er mér fyr­ir­munað að skilja og hvað þá að gang­ast ekki við því, axla ábyrgð og sýna það í verki að það sé ekki í lagi,“ segir Brynja Dan Gunn­ars­dóttir, vara­þing­kona og einn eig­enda Lopp­unnar, sem hefur gagn­rýnt orð­ræðu Mörtu Maríu Winkel Jón­as­dóttur, rit­stjóra Smartlands, um svart fólk á miðl­inum en þar er meðal ann­ars minnst á verslun í Boston sem ku hafa selt „fín­asta barna­dótið“ og að þar versl­uðu hvorki svartir né fátækir.

Við saman eigum að vinna í því að upp­ræta hann og passa orð­ræð­una.

„Rasismi er eitt­hvað sem á hvorki að líð­ast hér eða ann­ars staðar og við saman eigum að vinna í því að upp­ræta hann og passa orð­ræð­una. Mér finnst það bein­línis hættu­legt að senda svona frá sér og þetta vissu­lega end­ur­speglar við­horf blaða­manns. Ég skil í raun ekki af hverju það eru ekki allir miðlar að fjalla um þennan pistil og þetta mál­efni.“

Jómfrúarræðan

Brynja sett­ist inn á þing í viku sem vara­maður Ásmundar Einars. Hvernig var upp­lifunin að setj­ast inn í þingsal­inn?

„Það var bara algjör­lega frá­bært og spenn­andi og gaman að fá að takast á við nýtt verk­efni. Þar sem þetta voru bara fimm vinnu­dagar þá náði ég að flytja jóm­frú­ar­ræð­una mína og leggja fram fyr­ir­spurn til mat­væla­ráð­herra varð­andi lax­eldi í sjó­kvíum,“ segir hún og er fyr­ir­spurnin eft­ir­far­andi:

Hyggst ráð­herra setja reglur um til­grein­ingu á upp­runa­landi eða upp­runa­stað eld­is­lax sem seldur er á Íslandi? Ef ekki, hver eru þá rökin fyrir því að gera það ekki?

Telur ráð­herra stöðu lax­eldis á Íslandi ásætt­an­lega með til­liti til heil­brigðis og dýra­vel­ferðar? Ef ekki, hvað telur ráð­herra að hægt sé að bæta og mun hann beita sér fyrir því?

Telur ráð­herra þörf á að bæta reglur um losun líf­ræns úrgangs eða frá­rennsl­is­vatns í lax­eldi?

Telur ráð­herra þörf á því að bregð­ast frekar við með ein­hverjum hætti vegna vís­bend­inga um erfða­blöndun milli eld­is­laxa sem sloppið hafa úr sjó­kvíum og villltra laxa­stofna?

Það er alltaf bara draumur að fá að mögu­lega ná fram ein­hverjum smá­breyt­ingum í átt að betra sam­fé­lagi.

Hver er draum­ur­inn varð­andi stjórn­málin?

„Það er bara þannig að ég veit ekki enn hvað ég vil verða þegar ég verð stór. En það er alltaf bara draumur að fá að mögu­lega ná fram ein­hverjum smá­breyt­ingum í átt að betra sam­fé­lagi.“

Grænt fyrirtæki

Brynja er einn eig­enda Lopp­unnar sem selur notuð föt.

„Loppan er grænt fyr­ir­tæki sem hefur lagt áherslu á að breyta kaup­hegðun Íslend­inga. Við erum með allt milli him­ins og jarðar, öll helstu merkin og því kjörið að byrja leit­ina þar.“

Auð­lindir heims­ins eru ekki ótak­mark­aðar.

Finnst Brynju vera að aukast að fólk horfi í budd­una og kaupi notað?

„Já, svo sann­ar­lega. Það er viss vit­und­ar­vakn­ing sem hefur átt sér stað og ég finn að til dæmis unga fólkið okkar hugsar öðru­vísi en við gerðum og þetta er þeim frekar eðl­is­lægt. Loppan er stað­sett í versl­un­ar­kjarna og fannst mér vera mik­il­vægt skref að vera innan um hinar versl­an­irnar til þess einmitt að gera þetta að „norm­inu“ – að koma fyrst og leita að því sem vantar hjá okkur og fara svo og skoða nýtt ef við eigum það ekki til. Og ég held að okkur sé að takast það bara vel að koma þessum skila­boðum áleiðis. Auð­lindir heims­ins eru ekki ótak­mark­aðar og það er því af hinu góða fyrir okkur og umhverfið okkar að nýta betur það sem til er.“

Göngutúrar í haustveðri

Það urðu breyt­ingar í lífi Brynju fyrr á árinu en þá kom nýr maður inn í líf hennar.

„Ég hef aldrei verið mikið fyrir að tjá mig mikið um einka­lífið en get sagt að lífið er bara dásam­legt og allir glaðir.“

Er hún róm­an­tísk?

„Ætli hann verði ekki að svara því en svona í eðli mínu já já, ég á það alveg til en mér finnst oft­ast bara til dæmis kerta­ljós, kósí tón­list, sam­vera og göngut­úrar í haust­veðri og þessir hvers­dags­legu hlutir hafa sinn sjarma.“

Ég held að traust og góð sam­skipti séu lyk­il­at­riði.

Hvað þarf að hafa í huga til að við­halda sam­band­inu almennt hvort sem það er nýtt eða fólk er búið að vera lengi saman og jafn­vel gift?

„Ég held að traust og góð sam­skipti séu lyk­il­at­riði; að geta talað um allt milli him­ins og jarðar og fá að vera maður sjálfur; stundum grjót­harður en stundum bara lít­ill í sér.“

Fjöldi flóttamanna áskorun

Fréttir ber­ast dag­lega um hörm­ung­arnar í Úkraínu og Rússar eru farnir að flýja til ann­arra landa. Vara­þing­konan er spurð hvernig stríðið snerti hana.

„Það snertir mig svo sann­ar­lega og það líður ekki dagur sem maður spáir ekki í það og hugsar til Úkraínu. Þetta er nátt­úr­lega bara hræði­legt og áhrifin af því svo mikil.“

Það er áskorun að taka á móti svona mörgum flótta­mönnum með svo skömmum fyr­ir­vara.

Sífellt fjölgar þeim Úkra­ínu­mönnum – aðal­lega konum og börnum – sem koma hingað til lands. „Við höfum tekið við þeim sem koma hingað með opnum örmum og auð­vitað er það okkar og þeirra von að flótta­fólk geti farið aftur heim að stríði loknu ef það kýs að gera svo. Það er áskorun að taka á móti svona mörgum flótta­mönnum með svo skömmum fyr­ir­vara og á svo skömmum tíma en við höfum reynt að gera það eins vel og hægt er.“

Segja má að ógnin fær­ist nær okkur en í síð­ustu viku komu í ljós eyði­legg­ingar á nokkrum stöðum í gasleiðslum í Eystraasalti.

„Það er verið er að rann­saka ástæður lek­anna og ekki vitað hvað nákvæm­lega orsak­aði þá en vissu­lega bendir margt til skemmd­ar­verka. Það er auð­vitað áhyggju­efni þegar ráð­ist er gegn mann­virkjum á alþjóð­legu haf­svæði. Við erum hér með sæstrengi til dæmis og verðum að vernda þá til að halda uppi sam­skiptum.“

Sendi­herra Rúss­lands hér á landi var nýlega kall­aður á fund ráðu­neyt­is­stjóra utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem honum var tjáð ein­örð afstaða íslenska rík­is­ins til inn­limunar Rússa á fjórum hér­uðum í aust­an­verðri Úkraínu.

„Við eigum allt okkar undir því að ríki fari eftir alþjóða­lögum og því er yfir­taka á landi með vopna­valdi óásætt­an­leg. Það er því eðli­legt að Ísland komi sínum sjón­ar­miðum á fram­færi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins