„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helgi Björns dáður í áratugi og á fjölda sígildra laga: „Ég held ég hafi verið góður pabbi“

Helgi Björns dáður í áratugi og á fjölda sígildra laga: „Ég held ég hafi verið góður pabbi“
Helgi Björns.

Sól Helga Björns­sonar hefur lík­lega aldrei risið hærra en á Covid tím­anum þegar hann efndi til eins stærsta sjón­varps­við­burðar sög­unnar á Símanum með hljóm­sveit sinni. Á hverju laug­ar­dags­kvöldi flykkt­ist þjóðin að sjón­varps­skjánum til að horfa á Það er komin Helgi með Helga Björns og Reið­mönnum vind­anna.

„Ég veit það ekki. Við nátt­úr­lega gerðum þessa sjón­varps­þætti eða -útsend­ingar sem auð­vitað náðu inn í hjarta þjóð­ar­innar þó ég segi sjálfur frá,“ segir Helgi Björns­son í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni en Það er komin Helgi sló í gegn í Sjón­varpi Símans og var í opinni dag­skrá þar sem Helgi og félagar í Reið­mönnum vind­anna tóku lagið sem og gestir þeirra. Það má ein­fald­lega segja að stofu­tón­leikar þeirra hafi slegið í gegn í sam­komu­bann­inu.

Merki­legt fyr­ir­bæri.

„Já, og það var nátt­úr­lega alveg ótrú­legt. Fyrir okkur auð­vitað var þetta ákveðið ævin­týri en eftir á hefur maður líka fundið að þetta hefur verið mikil sálu­hjálp hjá fullt af fólki. Þetta var kannski eðli­lega ansi stórt þegar við byrj­uðum með þessar útsend­ingar og við eins og allir aðrir í þjóð­fé­lag­inu og úti í heimi vissum svo sem ekk­ert hvað þetta var, við hverju mætti búast og hvað var að fara að ger­ast yfir­leitt. Og þá er það tón­listin sem er alltaf mikil sálu­hjálp. Tón­listin er alltaf nálægt okkur hvort sem er á sorg­ar­stundum eða gleði­stundum. Þannig að ég sá fyrir mér að við gætum sam­ein­ast þar og náð slökun og náð kannski utan um hvert annað með því að syngja saman lög sem allir þekkja. Og þetta tókst svona óskap­lega vel.“

Maður hafi bara bjargað lífi þess.

Þú getur ekki hafa séð þetta fyrir.

„Nei, en ég sá það kannski fyrir að þetta væri eitt­hvað sem væri gott að væri til staðar,“ segir Helgi og bætir við að áhorf hafi verið svipað og áhorf á fréttir RÚV.

Helgi hefur fundið fyrir miklu þakk­læti frá fólki vegna útsend­ing­anna. „Fólk kemur til manns úti á götu eða hvar sem er og hefur þörf fyrir að þakka fyrir; maður hafi bara bjargað lífi þess. Maður verður nátt­úr­lega bara feim­inn og hrærður og roðnar.“

„Passið árarnar, strákar.“

Helgi Björns­son er frá Ísafirði.

Varstu vill­ingur?

„Ég var orku­mik­ill.“

Það heitir vill­ingur.

„Við vorum mjög frjáls­legir í fasi og upp­á­tækja­samir. Fót­bolt­inn var ríkj­andi þegar maður var sex til tíu ára; það var alltaf farið út á völl að spila fót­bolta, út á skóla­völl Ég hef alltaf hugsað með mér hvað maður hefur verið hepp­inn að því leyt­inu til að alast upp úti á landi í ljósi þess hvert leik­svæðið var sem maður fékk að njóta; úti á bæj­ar­bryggju og niðri í fjöru. Maður var svo nálægt atvinnu­veg­unum; maður var hopp­andi um borð í tog­ar­ana og bát­ana, maður krækti í þorskinn og rak fé í slát­ur­húsið og stal löppum til að flá og gera slíður fyrir hníf­ana. Frændi minn var sjö og ég sex og við fórum niður á dokku sem kallað var, það var norð­ur­fjaran í raun­inni, og bönk­uðum upp á og fengum lán­aðan bát og rerum út. Sex ára og sjö ára.“

Það var bara sjálf­sagt.

„Það var bara sjálf­sagt. „Passið árarnar, strákar, og skilið þeim svo þarna.“ Hann lét okkur fá árarnar.“

Fórum niður í Gamla bak­aríið að kaupa kók með lakk­rís­röri.

Þetta var mikið frelsi.

„Þetta var rosa­legt frelsi. Svo tókum við fötu og fylltum hana í fjör­unni af kúskel. Ég man þegar smokk­urnn synti upp í fjöru. Við vorum niðri í fjöru að tína smokk í fötu til að fara upp í beitn­inga­skúr til að selja fyrir fimm­kall eða tíkall. Og fórum niður í Gamla bak­aríið að kaupa kók með lakk­rís­röri. Þegar maður hugsar til baka; þarna var þessi dýr­indis fæða, smokk­fiskur, sem er eitt það besta sem ég fæ í dag.“

En það hvarfl­aði ekki að okkur að borða hann þá.

„Nei, ekki að ræða það. Þetta fór bara í beitu. Það er svo auð­velt að beita þessu.“

Barnaskemmtanir

Helgi er spurður hvað hafi orðið til þess að vest­firskur drengur, hálf­gerður vill­ingur, hafi farið í tón­list­ina, leik­húsið og bíó­mynd­irnar í stað þess að fara á sjó­inn.

„Ég fékk snemma áhuga á tón­list­inni. Ég lá og hlust­aði á útvarpið og leit­aði að músík og söngl­aði mig í svefn er mér sagt.“

Helgi og vinur hans, Hörður, fengu bunka af þýsku Bravo-blöð­unum hjá bróður Harðar og klipptu út myndir af Bítlunum. „Ég vegg­fóðr­aði allt her­bergið mitt. Áhuginn var svo mik­ill.“

Helgi seg­ist hafa verið svo hepp­inn að Margrét Ósk­ars­dóttir, sem var mik­ill for­kólfur í Litla leikklúbbnum á Ísafirði, hafi kennt sér í barna­skól­anum. „Hún var svo mikil áhuga­mann­eskja um leik­list. Það var frjáls stund einu sinni eða tvisvar í viku á stunda­skránni og þá vorum við að leika; spinna og búa til litla þætti. Ég hafði mjög gaman af þessu og var síðan feng­inn í barna­skemmt­anir sum­ar­dag­inn fyrsta. Þá voru ein­hverjir krakkar að gera eitt­hvað og ég var dreg­inn inn í það. Ég fór síðan 13 eða 14 ára að leika með Litla leik­hópnum og lék aðeins með þeim sem ung­lingur.“

Þannig að það kom ekk­ert annað til greina en þessi leið.

„Nei.“

Helgi segir að þegar hann var 10-12 ára hafi hann sagt að hann ætl­aði ann­að­hvort að verða popp­stjarna eða atvinnu­maður í knatt­spyrnu.

Hann varð ekki atvinnu­maður í knatt­spyrnu. Hann segir að þegar hann hafi farið að fá áhuga á stelpum þá hafi gít­ar­inn verið meira aðdrátt­ar­afl heldur en fót­bolta­skórnir.

Í banni

Hann var í skóla­hljóm­sveit í gegn­fræða­skól­anum.

„Ég og Hörður Ing­ólfs­son, vinur minn, vorum mikið saman og sömdum meira að segja lög á þessum tíma, 14-15 ára. Við fluttum frum­samin lög á gagn­fræða­skóla­skemmt­unum sem var ekki algengt á þeim tíma.“

Hann spil­aði á skóla­böllum og svo fór hann að koma fram í hléi á tón­leikum Dans­hljóm­sveitar Vest­fjarða.

Þá skiptu þeir allir um hljóð­færi og fengu mig til að syngja.

Var það kikk að koma fram í hléi?

„Já, að sjálf­sögðu var það ákveðið kikk. Þá var þetta atriði í hléi; þá skiptu þeir allir um hljóð­færi og fengu mig til að syngja. Þetta átti að vera gesta­hljóm­sveit; allir fóru í ein­hverja bún­inga og þetta átti að vera pönk­hljóm­sveit sem hét Skítkast. Í félags­heim­il­inu í Hnífsdal. Það var gaman að þessu öllu saman.“

Svo fór Helgi í Leik­list­ar­skóla Íslands og þá mátti hann ekki koma fram; ekki einu sinni í sum­ar­fr­íum.

„Ég man að ég fékk boð um að koma vestur og syngja með hljóm­sveit yfir sum­arið en það var ekki í boði. Ég var í banni.“

Hver voru rökin fyrir því?

„Ég held að upp­hafið að þessu hafi verið það að leik­list­ar­skóla­nemar voru svo­lítið þjóð­nýttir í Þjóð­leik­hús­inu. Þeir náðu í þá; fengu þá til að vinna og tóku þá út á fyrsta eða öðru ári. Það kom smá­ó­ball­ans í skól­anum; það voru strax ein­hverjir orðnar stjörnur.“

Helgi mál­aði eitt sum­arið og annað sumar var hann í Kaup­manna­höfn. „Ég mál­aði svo­lítið. Pabbi var mál­ari áður en hann fór að vinna sem íþrótta­full­trúi hjá bænum þannig að maður var lið­tækur á penslinun.“

Þetta var í blóð­inu; máln­ingin.

„Já.“

Rosalega skemmtilegt

Hljóm­sveitin Grafík var búin að gefa út tvær plötur áður en Helgi gekk til liðs við hana.

„Ég útskrif­að­ist frá leik­list­ar­skól­anum vorið 1983 og Grafík var með söngv­ara sem var ein­hvern veg­inn ekki að ganga upp hjá þeim. Þeir voru búnir að bóka sig á böll þarna fyrir vestan; allan Vest­fjarð­ar­kjálk­ann. Það var Patró, Bíldu­dalur, Flateyri og svo fram­vegis – allar helgar föstu­daga og laug­ar­daga sem sýnir hvernig þetta var í þann tíð. Þú gast verið á Vest­fjörðum og spilað allt sum­arið. Rabbi hringdi í mig og sagði að þá vant­aði söngv­ara fyrir næstu helgi og spurði hvort ég væri klár. Ég hugs­aði mig um en kíldi svo á þetta. Ég var búinn að ráða mig í kvik­mynd; fyrsta kvik­mynda­hlut­verkið sem var í Atóm­stöð­inni sem var tekin upp allt sum­arið. Þetta átti að verða mikið stór­virki á þeim tíma og ætlað til útflutn­ings. Það var stefnt á heims­markað. Þess vegna var myndin í raun­inni tekin upp bæði á íslensku og ensku. Ég lék í kvik­mynd­inni í miðri viku og flaug svo vestur um helgar. Og svo var keyrt á Patró, Flateyri eða hvert sem var.“

Þetta var rosa­lega skemmti­legt, maður.

Var þetta ekk­ret þreyt­andi líf?

„Þetta var rosa­lega skemmti­legt, maður.“

Helgi var 25 ára.

„Endalaus orka.“

Hljóm­sveitin samdi ný lög og þar á meðal Mér finnst rign­ingin góð.

„Það er merki­legt að „Rign­ingin“ er eitt af fáum lögum að ég held sem öðl­að­ist vin­sældir áður en það var nokkurn tím­ann spilað í útvarpi af því að við byrj­uðum að syngja þetta á böllum. Og svo fór liðið út eftir böll og söng þetta.“

Svo kom plata út og hún sló í gegn en á henni eru meðal ann­ars lögin Þúsund sinnum segðu já, 16  og einmitt Mér finnst rign­ingin góð.

Helgi hætti í Grafík árið 1986.

„Stóri fakt­or­inn var að ég var kom­inn inn í leik­húsið að leika í sýn­ingu sem hét Lands míns föður og hún varð svo gríð­ar­lega vin­sæl. Við vorum að leika hana sex kvöld í viku; allan vet­ur­inn 1985/1986. Það var ekk­ert kvöld laust hjá mér. Þeir í Grafík vildu eðli­lega gera eitt­hvað meira þannig að það flosn­aði aðeins upp. Svo átti sýn­ingin að fara í gang næsta vetur á eftir þannig að við tókum þessa ákvörðun nokkuð sam­eig­in­lega að þetta væri orðið gott og við tókum far­vel-túr fyrir vestan. Tókum nokkur gigg.“

Helgi Björns í stúd­íói Mannlífs ásamt spyrj­anda.

SSSól

Kvöld eftir kvöld í Lands míns föður.

„Við náðum vel saman, ég og Pétur Grét­ars­son trommari, sem var að tromma í þeirri sýn­ingu, og ákváðum við að gera eitt­hvað saman. Í fram­hald­inu hafði ég sam­band við Jakob sem hafði verið með mér í Grafík. Við hættum saman í Grafík. Hann tók Eyjólf Jóhanns­son sem var með honum í Tappanum ásamt Björk og Eyþóri. Við byrj­uðum að æfa og vinna saman og það var ekki mik­ill tími vegna þess að þeir voru í dag­vinnu og við vorum alltaf á kvöldin og eini tím­inn sem við fundum til að byrja með, sem sýnir ákveðn­ina í að láta eitt­hvað verða af þessu, var messu­tími; á sunnu­dögum klukkan 11.“

Þetta var upp­hafið að Síðan skein sól sem síðar varð SSSól og heldur hljóm­sveitin upp á 35 ára afmælið í ár og verða afmæl­is­tón­leikar í Háskóla­bíói á næst­unni.

35 ár.

Rolling Stones eru 60 ára.

„Já, og Stuðmenn 50 ára.“

Fjórðu tón­leikar hljóm­sveit­ar­innar voru í Laug­ar­dals­höll.

Þið þurftuð ekki langan tíma til að slá í gegn.

„Nei, það er alveg rétt. Það var merki­legt að fyrsta árið sem við störf­uðum þá byrj­uðum við á að spila á tón­leikum í Hlað­varp­anum í Grófinni. Síðan héldum við tón­leika í Tónabæ, svo voru einir tón­leikar á Hótel Borg og fjórðu tón­leikar hljóm­sveit­ar­innar voru í Laug­ar­dals­höll.“

Ég segi það. Þetta er bara alvöru.

„Það var mjög fyndið en svona gekk þetta fyrir sig.

Svo kom ekki plata fyrr en árið eftir, 1988, og þá gáfum við fyrst út 12 tommu plötu þar sem var til dæmis lagið Bannað sem sló strax í gegn. Síðan um haustið kom út fyrsta stóra platan.“ Á henni er til dæmis lagið Geta pabbar ekki grátið?, Svo marga daga og fleiri lög sem náðu strax mik­illi hylli.

Þið eigið bara marga hitt­ara þannig að fólk á von á góðu í Háskóla­bíói.

„Já.“

Og þeir voru margir tón­leik­arnir sem voru haldnir eftir útgáfu plöt­unnar.

„Ég gerði fljótt samn­ing við Íþróttta- og tóm­stunda­ráð Reyka­víkur; ég seldi þeim þá hug­mynd að ég myndi spila í öllum félags­mið­stöðvum og fengi ein­greiðslu fyrir það. Mig minnir að það hafi verið 250 kall á þeim tíma. Þetta var sam­þykkt og ég fór beint með þetta upp í hljóð­færa­búð og keypti lítið kerfi þannig að við mættum með kerfi og stillum upp og svo spil­uðum við í öllum félags­mið­stöðvum borg­ar­innar. Og það var svo skemmti­legt þar. Ég virk­aði alltaf krakk­ana þegar við vorum búnir að spila nokkur lög og spurði hvort ein­hver kynni að spila á trommur. Það var alltaf einn sem rétti upp hönd, eða tveir, og hann var tek­inn upp og spil­aði eitt­hvað. Wild Thing eða eitt­hvað sem hann kunni. Svo spurði ég hvort ein­hver spil­aði á bassa og svo end­aði þetta þannig að ég var kom­inn með nýtt band fyrir aftan mig og við sungum eitt­hvað ein­falt lag sem allir kunnu.

Þá vorum við að kynna þessar hljóm­sveitir fyrir lands­byggð­inni.

Svo fannst mér sér­stak­lega gaman að því kannski 10 árum seinn þegar ein­hverjir hljóm­sveit­ar­gaurar voru að koma til mín og sögðu að þeir hefðu spilað með okkur í félags­mið­stöð. Mér fannst þetta ótrú­lega skemmti­legt. Þetta hefur alltaf verið partur af minni sýn; eins og þegar við vorum orðnir vin­sælir og vorum að spila sem mest úti á landi og vorum með full hús  – Ýdalir, Mið­garður, Njálsbúð og hér og þar og þús­und manns – þá tók ég alltaf með mér hljóm­sveitir til þess að spila bæði á undan og líka í pásu; og þá vorum við að kynna þessar hljóm­sveitir fyrir lands­byggð­inni. Það voru til dæmis hljóm­sveitir úr bænum sem höfðu aldrei komið út á land. Þetta var stórt stökk fyrir þær og þær fengu þarna mega kynn­ingu. Þetta voru hljóm­sveitir eins og Botn­leðja, Kolrassa krókríð­andi, Quarashi og 200.000 nagl­bítar. Þetta voru hljóm­sveitir sem urðu síðar þekktar.“

Helgi er spurður um til­urð­ina að nafni hljóm­sveit­ar­innar, Síðan skein sól, og segir að það megi segja að það hafi verið svar við þekktasta lag­inu með honum og Grafík: Mér finnst rign­ingin góð.

Það svín­virkar og síðan breytt­ist þetta í skamm­stöfun; SSSól.

„Það var þegar við ákváðum að fara erlendis og reyna fyrir okkur úti. Þá breytt­ist þetta í SSSól.“

Geta pabbar ekki grátið?

Helgi segir að hug­myndin að text­anum í lag­inu Geta pabbar ekki grátið? teng­ist syni hans. „Hann sagði: „Pabbi, geta pabbar ekki grátið?“ Og mér fannst þetta nátt­úr­lega alveg frá­bær spurn­ing. Þannig að ég sneri þessu fljótt yfir í texta. Ég hef ekki nákvæmar skýr­ingar á hvað er að ger­ast í hausnum á manni þegar manni dettur hitt og þetta í hug en ég hef alltaf verið frjór og mér finnst gaman að leika mér að svona hlutum; og kannski líka að koma á óvart. Og auð­vitað í dæg­ur­laga­textum skiptir máli að grípa athygli og hafa gríp­andi frasa.“

Helgi og eig­in­kona hans, Vilborg Hall­dórs­dóttir, eiga nokkur börn og er Helgi spurður hvernig pabbi hann hafi verið.

Maður var eins og sjó­maður.

„Ég held ég hafi verið góður pabbi en ég sé það eftir á að ég var allt of mikið í burtu. Þegar maður hugsar til baka og vill breyta ein­hverju þá hefði maður viljað vera miklu meira til staðar. Maður var eins og sjó­maður; maður var ansi mikið „á sjónum“ og sér­stak­lega á tíma­bili. Þessi ár þegar við vorum að taka þennan ball­rúnt þá voru þetta allar helgar, föstu­dagur og laug­ar­dagur, og maður var kannski að koma heim um miðjan dag á sunnu­degi. Þannig að margar fjöl­skyldu­stundir eru farnar og það er kannski sár­ast þegar maður hugsar til baka. En þegar ég var á staðnum þá held ég að ég hafi verið nokkuð góður.“

Gera meira

Helgi Björns­son hefur komið víðar við.

Þú ert „business-maður“ líka; þú ert í alls konar bixi ef maður má orða það sem svo.

„Það kom af því að ég þurfti fljót­lega að fara að reka þetta batt­erí sem hljóm­sveitin var. Við vorum með umboðs­mann þegar við vorum að byrja en það var bara tómt vesen og end­aði yfir­leitt í ein­hverju rugli. Þannig að ég tók þetta fljót­lega yfir sjálfur og síðan varð þetta meiri og meiri rekstur og eftir því sem við urðum vin­sælli, stærri og spil­uðum meira þá fór þetta að verða útgerð.“

Þetta er eins og skip.

„Já; leigja rútu, hljóð­kerfi og mann­skap og vera að búa til aug­lýs­ingar og hitt og þetta. Þannig að þetta er bara orðið fyr­ir­tæki og ég var nátt­úr­lega að reka þarna fyr­ir­tæki sem velti millj­ónum. Þannig byrj­aði þetta. Þá fór maður að hugsa um þessa hluti. Síðan þegar ég var orð­inn pínu­lítið þreyttur á þessum hring og þess­ari spila­mennsku í bili af því að við vorum búnir að keyra svo hel­víti stíft þá ákvað ég að taka frí og þá bauðst mér að reka lít­inn mat­sölu­stað, pítsu­stað, niðri í Aust­ur­stræti sem hét Pisa. Hann var við hlið­ina á stað sem hét þá Berlin þar sem gamli Karnabær var. Ítalski stað­ur­inn var í port­inu. Þá kom í ljós að gestir skemmti­stað­ar­ins Berlin gátu gengið í gegnum eld­húsið og niður á annan skemmti­stað niðri í kjall­ara sem hét Ros­en­berg. Það var sami leigj­andi með báða stað­ina og ég sagð­ist ætla að taka þá báða og gera alvöru stað úr þessu. Og þá bjó ég til Astro. Skemmti­stað­inn Astro.“

Það gekk vel.

„Það gekk rosa­lega vel. Þetta gjör­sam­lega sló í gegn. Í dag er talað um Astro-kyn­slóð­ina.“

Vilborg hafði verið í heim­speki­námi við Háskóla Íslands og segir Helgi að hún hafi viljað fara í skipti­nám til Ítalíu. Helgi seldi hlut sinn í Astro og fjöl­skyldan flutti til Florens. „Það var kær­komið frí og þar náðum við miklum kær­leiks- og ynd­is­tíma saman, fjöl­skyldan. Við þurftum að stóla á hvert annað.“

Þau fluttu svo heim 1998 og nokkrum árum síðar keypti Helgi leik­hús í Berlín og flutti þangað 2006. „Ég var kom­inn með íbúð þar en var alltaf með annan fót­inn hér; við vorum búin að vera með stelpuna okkar yngstu á Ítalíu og það var svo­lítið mikið að rífa hana aftur upp úr skól­anum til að fara með hana til Þýska­lands allt í einu. Við vorum svona að fljúg­ast á.“

Helgi vann á þessu tíma­bili hjá Skjá einum sem mark­aðs­stjóri. Þá vissi hann ekki að hann ætti eftir að halda stórum hluta lands­manna við skjá­inn mörgum árum síðar þegar heims­far­aldur reið yfir og sam­komu­bann gilti.

Þetta er í sjálfu sér ekki kalkúlerað.

Hvernig nærðu að end­ur­nýja þig svona aftur og aftur? Þú hefur horfið í smá­tíma en kemur alltaf aftur.

„Þetta er í sjálfu sér ekki kalkúlerað, skipu­lagt eða úhugsað; þetta ger­ist meira í flæð­inu og ég hef haft það að leið­ar­ljósi að nota inn­sæið svo­lítið mikið og leyft hlut­unum að koma til mín og það hefur reynst mér mjög vel í gegnum tíð­ina. Svo held ég að það hljóti að vera ákveðin for­vitni og ástríða sem gera það að verkum að maður hefur löngun til að gera betur. Gera meira.“

Podcastið er að finna í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtal

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“
Menning

Hug­víkk­andi efni hjálp­uðu Unni í skiln­að­inum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“

Unnur Gunn­ars­dóttir segir að hug­víkk­andi efni hafi gjör­breytt lífi sínu. Nýjast gestur þátt­ar­ins Segðu mér á Rás 1, sem er í umsjón Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, er Unnur Helga Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bak­arís­ins Jóa Fel og fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóa Fel en hún fer þar meðal ann­ars yfir skiln­að­inn og hug­víkk­andi efni sem hún segir að hafi breytt lífi sínu. Eftir tæp­lega...
Ragnar Freyr segir læknastarfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefninn er ekki í lagi“
Menning

Ragnar Freyr segir lækna­starfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefn­inn er ekki í lagi“

Ragnar Freyr Ingv­ars­son læknir seg­ist ganga stoltur frá verk­efni sínu sem yfir­maður göngu­deildar Covid. Ragnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að það að vinna við að hafa líf fólks í hönd­unum geti verið erfitt. Jafnvel þó að læknar hafi gert allt sitt sé mjög erfitt að horfa upp á sjúk­linga versna af sjúk­dómum eða deyja: „Þegar...
Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Kannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði
Menning

Kannabis mætir skorti á blóð­vökva – Viðtal við sér­fræð­ing á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði

„Árleg áætluð eft­ir­spurn eftir blóð­vökva hefur verið um 160 millj­ónir lítra en um 100 millj­ónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sér­fræð­ingur á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði, en fyr­ir­tæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjör­bylt heil­brigð­is­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með dokt­ors­próf í lækn­is­fræði frá Charles háskól­anum í...
Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“
Menning

Fjöl­skyldu­faðir tekst á við stórt áfall með plötu­út­gáfu: „Þú stýrir ekki vind­inum …“

Atli Þór Sig­urðs­son greind­ist með heila­æxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frum­sömdu efni. Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem for­rit­ari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breið­holt­inu en hefur búið í Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins