„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“

Hanna Rún lamaðist eftir mænustungu: „Sagði við sjálfa mig, ég get, ég ætla, ég skal“
Hanna Rún Mynd: Kazuma Takigawa – Myndin hefur verið stífð.

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu.

„Það breytti öllu að verða móðir.“

Og parið dans­aði saman á dans­gólf­inu og í líf­inu. Og það kvikn­aði nýtt líf. „Það breytti öllu að verða móðir. Þetta gefur líf­inu lit. Og ég elska að vera mamma.“ Sonurinn, Vladimir Óli, er átta ára og dóttirin, Kíra Sif, er tveggja og hálfs árs. „Við töl­uðum um að við vildum eign­ast barn en þá var ég nýorðin ólétt og við vissum það ekki. Við fórum á keppnir úti og mér leið rosa­lega illa og var flök­urt. Svo í vél­inni á leið­inni heim eftir eitt mótið dreymdi mig dökk­hærða konu sem sagði að við hefðum ekki bara verið tvö á gólf­inu heldur þrjú.
Þegar við síðan fengum stað­fest­ingu á að ég væri ólétt vorum við mjög spennt en áttum eftir að keppa á einu stór­móti enn, heims­meist­ara­móti, og ég keppti þar þegar ég var komin rúm­lega þrjá mán­uði á leið.“

Mænu­deyf­ingin sem Hanna Rún fékk í fæð­ingu dótt­ur­innar mis­heppn­að­ist en það þurfti að gera hana þrisvar. Stungið var í taug í fyrstu til­raun þannig að lær­vöðvinn í öðrum fæt­inum lam­að­ist. Hjónin voru búin að bóka sig á dans­sýn­ingar sem þau þurftu að aflýsa. „Ég var lömuð í fæt­inum í rúma fjóra mán­uði og þegar mátt­ur­inn fór að koma var eins og fót­ur­inn væri 100 kíló og þungt að hreyfa hann. Ég reyndi samt eins og ég gat að dansa um leið og ég fór að finna mátt þó svo ég væri dett­andi og næði ekki að draga fæt­urna saman. En bara það að mæta og reyna mitt besta var það sem ég þurfti að gera. Það gerði mig auð­vitað alveg brjál­aða að geta ekki gert einn snún­ing sem var eitt­hvað sem eg gat gert sjö ára en ég hugs­aði bara „þetta kemur“. Það var auð­vitað alveg hrika­legt að vakna á hverjum morgni í nokkra mán­uði og geta ekki lyft fæt­inum. En ég reyndi bara að hugsa jákvætt og sagði við sjálfa mig „ég get, ég skal, ég ætla“. Ég nýtti tím­ann í að teikna upp danskjóla og sá fyrir mér keppn­irnar sem ég æt – laði að keppa á. Ég varði líka tíma með börn­unum í róleg­heitum. Við vorum mikið að dúlla okkur í alls konar föndri því það er margt skemmti­legt hægt að gera þótt maður sé ekki endi­lega hlaup­andi um. Svo fór mátt­ur­inn í fæt­inum smátt og smátt að koma eftir langa bið og ég komst aftur út á keppn­is­gólfið eftir langar og strangar æfingar.“

Hanna Rún hefur fundið fyrir kvíða af og til í gegnum árin og segir að eftir að hún varð móðir hafi margt breyst og hafi hún fyrst í stað ekki viljað stíga upp í flug­vél þar sem hún var hrædd um að eitt­hvað kæmi fyrir. „Ég hafði aldrei verið flug­hrædd áður en ég hugs­aði með mér að ef ég ætl­aði að halda áfram að dansa yrði ég að fara í flug­vél. Ég man að ég hélt ég myndi kasta upp í fyrstu flug­ferð­inni eftir að ég eign­að­ist son minn. Ég var svo hrædd. Núna hefur maður ekki bara áhyggjur af sínu lífi. Ég er við­kvæm­ari eftir að ég varð móðir. Ég horfi til dæmis ekki á hryll­ings­myndir en það var eitt­hvað sem ég elskaði að gera. Ég þoli ekki að fara frá börn­unum mínum en það er eitt­hvað sem ég þarf að gera þegar við förum í keppnir erlendis. Þegar við förum út að keppa er þess vegna flogið út á föstu­degi, keppt á laug­ar­degi og flogið heim eldsnemma á sunnu­degi. Svo róar það mig að vita af þeim í öruggum höndum hjá mömmu og pabba alltaf þegar við förum út til að keppa. Stundum verður álagið vissu­lega mikið og maður veit stundum varla í hvorn fót­inn maður á að stíga en ég er samt orðin svo þjálfuð í þessu að ég finn alltaf ein­hvern veg­inn út úr hlut­unum. Ég er mjög dug­leg að tala við mömmu og pabba ef ég þarf að pústa eða fá ráð; þau hafa alltaf ein­hvern veg­inn svör við öllu.“

Viðtalið við Hönnu Rún má lesa í heild sinni í vef­út­gáfu nýjasta tíma­rits Mann­lífar, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætluðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfsmenn“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Jón Ásgeir um stofnun Bónuss: „Við ætl­uðum að vera tveir í þessu og kannski með tvo starfs­menn“

„Við vorum búnir að pæla í því í ein­hvern tíma hvernig hægt væri að koma með eitt­hvað nýtt inn á mat­vöru­mark­að­inn og við lágum yfir þessu á eld­hús­borð­inu. Pabbi hafði verið með snefil af ódýrum vörum í Aust­ur­veri; það var svona „afslátt­ar­þurr­vöru­mark­aður“ og við lögðum upp með þennan ein­fald­leika,“ segir Jón Ásgeir um það hvernig Bónus varð til en rætt...
Aníta Briem: „Krakkarnir, voru að fela sig í runnunum þegar hann kom og sótti mig“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Aníta Briem: „Krakk­arnir, voru að fela sig í runn­unum þegar hann kom og sótti mig“

„Ég var svo ótrú­lega heppin að ég fékk að spreyta mig svo­lítið í Þjóð­leik­hús­inu frá því að ég var níu ára gömul. Þá var ég fyrst í Emil í Katt­holti og lék þar Idu og var svo alveg í fjórum leik­sýn­ingum í Þjóð­leik­hús­inu, þannig að ég var ótrú­lega lánsöm að ég ein­hvern veg­inn fékk svo­lítið að kanna hvað leik­listin væri...
Tony var sakaður um mansal: „Íslendingar tóku mjög vel á móti mér, en ríkisstjórnin ekki“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Tony var sak­aður um man­sal: „Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki“

„Íslend­ingar tóku mjög vel á móti mér, en rík­is­stjórnin ekki,“ segir Tony Omos í við­tali í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Tony Omos er nafn sem flestir Íslend­ingar kann­ast við. Tony er níger­íski hæl­is­leit­and­inn sem felldi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur úr stóli dóms­mála­ráð­herra árið 2014 vegna „Leka­máls­ins“ svo­kall­aða. Málið hafði gríð­ar­leg áhrif á Tony Omos og hans fjöl­skyldu enda var hann sak­laus sak­aður...
Ragnar Erling Hermannsson vill milljarð til að kaupa hús fyrir fíkla
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Ragnar Erling Her­manns­son vill millj­arð til að kaupa hús fyrir fíkla

Ragnar Erling Her­manns­son, Raggi Turner, talar í við­tali við Hörpu Mjöll Reyn­is­dóttur meðal ann­ars um hvers vegna hann fór út í neyslu, gisti­skýlið úti á Granda þar sem hann sefur á næt­urna, hann minn­ist á for­dómana í sam­fé­lag­inu, reynslu sinni af geð­deild og draum­inn um stórt hús jafn­vel fyrir utan Reykja­vík þar sem hægt væri að búa til sam­fé­lag. Og...
Margréti Esther misþyrmt með hestasvipum og naglaspýtum: „Skólasystir mín var stungin 18 sinnum“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margréti Esther mis­þyrmt með hesta­svipum og nagla­spýtum: „Skóla­systir mín var stungin 18 sinnum“

Margrét Esther Erlu­dóttir fata­hönn­uður átti erf­iða æsku. Óregla var á heim­ilnu og frá unga aldri flakk­aði hún á milli fóst­ur­heim­ila. Hún segir að á einu þeirra, sveitabæ norður í landi, hafi tveir nauðgað sér auk þess sem hún hafi meðal ann­ars verið barin. „Þarna var ég algjör­lega eyðilögð. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Eins og stendur í...
Margir báðu Hönnu Rún afsökunar á eineltinu: „Ég er löngu hætt að taka inn á mig svona baktal“
InnlentHelgarviðtal Mannlífs

Margir báðu Hönnu Rún afsök­unar á ein­elt­inu: „Ég er löngu hætt að taka inn á mig svona bak­tal“

Hún hefur sigrað hverja danskeppn­ina af annarri í mörg ár og dansar nú í gegnum lífið með dans­fé­laga sínum og eig­in­manni. Hanna Rún Bazev Óla­dóttir talar um æsk­una, dans­inn, ein­eltið og kjafta­sög­urnar sem tengj­ast oft afbrýði­semi, ást­ina, tíma­bundu löm­un­ina í öðrum fæt­inum, gigt­ina og Rússland. Hér er brot úr við­tal­inu. „Þá hrúg­uð­ust inn heilu rit­gerð­irnar frá alls konar fólki sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins