„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðmundur var með lögregluvernd allan sólarhringinn: „Ég var með áhöfnina á stofuglugganum“

Guðmundur var með lögregluvernd allan sólarhringinn: „Ég var með áhöfnina á stofuglugganum“
Guð­mundur Krist­jáns­son

Guð­mundur Krist­jáns­son, sem hættir bráðum störfum sem hafn­ar­stjóri á Ísafirði, á að baki langan og áhuga­verðan sjó­manns­feril sem hann lýsti í við­tali við Reyni Trausta­son sem birt var fyrir viku síðan og er þetta fram­hald af því við­tali. Hér birt­ist seinni kafl­inn í því við­tali, Falklandseyjar, og eftir hann er svo fram­haldið (https://gamla.mannlif.is/frettir/gudmundur-kristjansson-islandsmid-falklandseyjar-og-graenhofdaeyjar/)

„Stefán Þór­ar­ins­son hafði sam­band við mig og þá var hann með í und­ir­bún­ingi að stofna útgerð­ar­fyr­ir­tæki með Granda og Krist­jáni Guð­munds­syni á Rifi; KG, Grandi og Nýsir. Þá voru þeir að fara í útrás með tvö skip. Það var Engey og línu­veið­ar­inn Tjaldur og þeir voru að fara að huga að útgerð á Falklandseyjum. Stefán spurði hvort ég myndi hafa hug á því að vera útgerð­ar­stjóri á Falklandseyjum og ég ræddi þetta við þáver­andi kon­una mína.

Hvers vegna ekki að verða útgerð­ar­stjóri á Falklandseyjum?

Þessi úthafs­sjó­mennska var þreyt­andi. Hún reyndi mikið á mann sem ein­stak­ling en ég held ég hafi sloppið vel frá því. En þetta er langur tími í fjar­visum; við vorum að landa fjarri heima­hög­unum. Það var þannig lagað séð ekk­ert í píp­unum á Stak­fell­inu þannig að ég var alveg til í það að skoða eitt­hvað annað. Og hvers vegna ekki að verða útgerð­ar­stjóri á Falklandseyjum? Það voru traustir aðilar sem stóðu að þessum rekstri og launin sem þeir buðu voru ágæt og það var í sjálfu sér ekk­ert flókið eða erfitt að ákveða að söðla um.“

Og Falklandseyjar urðu það.

„Und­ir­bún­ingur stóð yfir í nokkra mán­uði hér heima. Engey, tog­ari Granda, og svo Tjald­ur­inn fóru að veiða Pata­gon­ian toothfish sem er kall­aður tann­fiskur – mjög verð­mætur fiskur.“

Og Engey fór á smokk­fisk­veiðar.

„Hlutverk mitt var að vera í landi; á skrif­stofu. Á Falklandseyjum er það þannig að menn stofna fyr­ir­tæki og fá úthlutuð veiði­leyfi sem þeir síðan leigja áfram til útgerða. Það eru margir sem hafa atvinnu af þessu á Falklandseyjum að vera bara veiði­leyf­is­hafar og leigja áfram út og fá eitt­hvað af því í eigin vasa. Og þannig var þetta fyr­ir­tæki í raun­inni sett upp – í sam­vinnu við nokkra aðila eða fyr­ir­tæki á Falklandseyjum sem útveg­uðu veiði­leyfin. Íslend­ing­arnir sköff­uðu skipin og að hluta til áhafnir en yfir­menn­irnir voru íslenskir. Við náðum í sjó­menn til Chile og starf mitt fólst í að ráða og reka og sjá til þess að sjó­menn­irnir fengju vistir og veið­ar­færi fyrir næstu veiði­ferð og að taka á móti afla og koma honum í frysti­geymslu og síðar frankt­ara eða þá að landa beint í frakt­ara. Þarna var ég í eitt og hálft ár og þá ákváðu þessir aðilar að slíta sam­starf­inu; kalla skipin heim. Ég held að árang­ur­inn hafi ekki verið nægur. Þeir fisk­uðu greini­lega ekki nógu mikið en verð­mætin eins og í þessum tann­fiski voru alveg lygi­leg.“

Þá voru með­eig­end­irnir búnir að skipta um lás og búnir að taka tölv­una.

Það var ákveðið að Guð­mundur færi sem skip­stjóri í síð­ustu veiði­ferð­ina á Engey.

Allir sjó­menn­irnir frá Chile voru komnir á glugg­ann hjá mér.

„Á meðan ég var í þess­ari veiði­ferð þá gerð­ist eitt­hvað sem ég veit ekki hvað var. Ég ætl­aði á skrif­stof­una mína þegar ég kom í land en þá voru með­eig­end­irnir búnir að skipta um lás og búnir að taka tölv­una. Útgerðin hafði skaffað mér nýjan Land Rover þegar ég kom fyrst og þeir voru búnir að fjar­lægja hann.“

Hann segir að heima­menn­irnir hafi gefið skít í sig þannig lagað séð og hann gat ekki borgað áhöfn­inni laun en Íslend­ing­arnir fengu laun í gegnum Ísland.

„Eitt mjög krítískt móment var þegar ég var heima í stofu að pakka búslóð­inni okkar til að að koma um borð í Engey var að allir sjó­menn­irnir frá Chile voru komnir á glugg­ann hjá mér.“

Lögregluvernd

Og það voru öskur og læti í sjó­mönn­unum. Og hót­anir.

Þeir vildu bara fá borgað.

„Skilj­an­lega. Ég bað þá afsök­unar og sagði að ég væri að reyna að vinna í þessu; þeir fengju launin sín en að ég ætti í erf­ið­leikum með að tala við þá akkúrat þarna. Ég vissi raun­veru­lega ekki neitt. Ég fékk engar upp­lýs­ingar frá þeim sem raun­veru­lega voru þannig lagað séð rekstr­ar­að­ilar fyr­ir­tæk­is­ins, með­eig­end­urnir á Falklandseyjum. Þeir voru búnir að loka á mig öllum dyrum. Þeir töl­uðu ekki við mig. Þeir sögðu bara að ég myndi sjá um þetta. Og þar var tékk­heftið. Og þar var aðgang­ur­inn að öllu. Ég náði að lokum, sem betur fer, sam­bandi við Stefán og hann hjálp­aði mér í gegnum þetta. Og gerði það vel. Akkúrat þarna þegar ég var með áhöfn­ina á stofu­glugg­anum varð ég svo­lítið smeykur. Ég þorði ekki út og hringdi á lög­regl­una. Þá hafði lög­reglan fengið ein­hvern pata af þessu og að ég væri hugs­an­lega í smá­hættu. Þegar menn eru orðnir hræddir um að það sé verið að hlunn­fara þá, og smá­fyllirí og ofsi kom­inn í mann­skap­inn, þá fer maður ekki blá­edrú beint í fangið á þeim. Þannig að þessa sól­ar­hringa sem ég var þarna að ganga frá þessum málum á Falklandseyjum þá var ég undir lög­reglu­vernd. Löggan pass­aði mig 24/7 og vildi að það kæmi ekk­ert fyrir þennan ágæta mann. Og gerði það vel. Sam­starfs­menn mínir á Falklandseyjum voru ekk­ert endi­lega að hafa áhyggjur af mér. Ég átti bara að leysa þetta.“

Sjó­menn­inir höfðu enga trú á að þetta gæti gengið.

Þeir voru búnir að loka og taka tékk­heftið.

Guð­mundur segir að þeir Stefán, sem höfðu ráðið mann­skap­inn og voru með samn­ing við umboðs­mann í Punta Arena í Chile, hafi reynt að gera upp við mann­skap­inn í gegnum umboðs­mann­inn. „Við borg­uðum mönnum bara beint. Sjó­menn­inir höfðu enga trú á að þetta gæti gengið upp þrátt fyrir að þeir hafi skrifað undir ráðn­ing­ar­samn­inga hjá þessu fyr­ir­tæki sem var umboðs­maður okkar í Punta Arenas. “

Guð­mundur seg­ist hafa verið undir lögeglu­vernd allan sól­ar­hring­inn í þrjá til fjóra daga eða á meðan hann var að ganga frá. Þeir Stefán og skrif­stofan í Punta Arenas gengu þannig frá því að hægt var að segja áhöfn­inni hvernig upp­gjörið yrði. „Pen­ing­arnir komu frá Íslandi; þeir fóru ekki í gegnum Falklandseyjar heldur voru greiddir beint inn á reikn­ing hjá þessu fyr­ir­tæki í Punta Arenas í Chile og þar var listi með nöfnum þeirra og hvað hver átti að fá mik­inn pen­ing. Það var svo­lítið flókið að koma þessu á og áhöfnin hafði enga trú á þessu; það var sagt að allir í Chile væru mafíósar og að þeir myndu stela þessu.“

Þá hafði ég sól­ar­hring í við­bót til þess að klára öll mál fyrir skipið.

Einungis um klukku­tíma flug er á milli Falklandseyja og Punta Arenas og keypti Guð­mundur með banka­á­byrgð frá Íslandi flug­miða fyrir áhöfn­ina sem þurfti að senda heim til Chile. „Það stóð hel­víti tæpt að róa mann­skap­inn,“ segir Guð­mundur sem fékk vinn sinn sem var góður í spænsku til að útskýra málin. „Við náðum á end­anum að koma öllum Chile-áhafn­ar­með­limum í bíl, út á flug­völl og í flug heim. Þá hafði ég sól­ar­hring í við­bót til þess að klára öll mál fyrir skipið og okkur sem vorum þarna til að sigla því heim. Við vorum með nokkra stráka frá Græn­höfða­eyjum; gamla vini okkar Stefáns frá þeim árum. Þeir voru þarna dekk­menn og ákaf­lega fínir og góðir drengir. Þeir stóðu allaf með sínum manni. Ég vissi alltaf hvar ég hafði þá. Þetta var við­skiln­að­ur­inn þarna.“

Guð­mundur seg­ist vera ágætis kunn­ingi þáver­andi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins á Falklandseyjum en sá maður býr núna í London. „Þeir hafa sjálf­sagt haldið að þeir væru að tapa öllu sínu. Ég held að þetta fyr­ir­tæki hafi gert þannig upp án þess að ég viti nákvæm­lega um það þannig að það stóðu allir sáttir frá borði. En vissu­lega var veran þarna á Falklandseyjum miklu styttri en lagt var upp með því að þegar ég var ráð­inn í þetta þá voru þeir með fimm ára plan.“

Yrði kyrrsett

Skipinu var fyrst siglt til Græn­höfða­eyja og þar fóru fimm áhafn­ar­með­limir í land og síðan var siglt til Kanarí­eyja þar sem tekin var olía. Þá var það Vigo á Spáni þar sem var landað og loks var siglt til Reykja­víkur.

„Þar var mættur á kaj­ann þegar við komum nýr eig­andi að skip­inu.“ Og skipið fékk nýtt nafn. Kleif­ar­berg.

Þar sem þetta skip færi næst í höfn þar yrði það kyrr­sett þangað til ég fengi launin mín.

Ný verk­efni tóku við; þetta var árið 1996. „Magni Guð­munds­son hjá Netagerð Vest­fjarða hafði sam­band við mig en þá var hann að búa til rækju­troll fyrir spænskan togaara sem hafði verið á karfa á Reykja­nes­hryggnum; þeir ætl­uðu að fara á Flæm­ingja­grunn á þessu spænska skipi og veiða rækju. Magni spurði hvort ég væri ekki til í að verða milli­göngu­maður fyrir sig þarna og hjálpa þeim að útbúa. Og ég gerði það. Þeir fóru síðan á rækju og á sama tíma hafði sam­band við mig útgerð­ar­maður í Portúgal sem spurði hvort ég væri til­bú­inn að fara sem fiski­skip­stjóri á tog­ara sem hann átti, Santa Isabel. Ágætis vinur minn var skip­stjóri þar. Ég hafði kynnst honum þegar ég var á Stak­felli uppi í Smugu. Ég var í ágætis sam­bandi við alla portú­gölsku tog­ar­ana sem þar voru að veiða; ég tala portú­gölsku og þar kynnt­ist ég mörgum góðum mann­inum. Ég samdi við þennan portú­galska útgerð­ar­mann um þóknun fyrir að fara þarna í fjórar vikur með þessu skipi að veiða rækju á Flæm­ingja­grunni og það tókst bara vel nema að fá launin mín; það tókst ekki vel en hafð­ist á end­anum. Og þökk sér Farmanna- og fiski­manna­sam­band­inu fyrir það. Benedikt Valsson, sem var fram­kvæmda­stjóri þar, hjálp­aði mér að inn­heimta launin mín. Ég var nátt­úr­lega með samn­ing og útgerð­ar­mað­ur­inn fékk bara til­kynn­ingu held ég frá Alþjóða verka­manna­sam­band­inu um að þar sem þetta skip færi næst í höfn þar yrði það kyrr­sett þangað til ég fengi launin mín.“

Þannig að hann hefur borgað í hvelli.

„Eins og skot.“

Full swing

Leiðir þeirra Stefáns lágu aftur saman í gegnum báta­smíð­ina Trefja í Haf­ar­firði.

„Árni heit­inn Gíslason, sá mikli afla­skip­stjóri sem átti Ísafold í Danmörku, hafði held ég verið búsettur í Mexíkó á þessum tíma. Hann hafði kom­ist inn í verk­efni í Argent­ínu sem var fjár­magnað af held ég Alþjóða­bank­anum, Chubut-fylki í Pata­góníu og rík­is­stjórn Argent­ínu. Þetta fyr­ir­tæki hét Pata­gon­ian Seafood. Árni komst í sam­band við þessa aðila sem leiddi til þess að báta­smiðjan Trefjar í Hafn­ar­firði, Auðunn Ósk­ars­son og fjöl­skylda, smíð­uðu sex báta fyrir þetta verk­efni sem Árni hafði und­ir­geng­ist að koma á lagg­irnar þar. Þetta átti að vera end­ur­nýjun á smá­báta­flota niðri í Pata­góníu; smá­báta­fiskerí. Ég hafði í sjálfu sér enga sér­staka reynslu af smá­bátum annað en að hafa verið á færum með Ella Ketils þegar ég var 15 ára.

Áður en þetta verk­efni komst á það stig að það væri verið farið að vinna við það á staðnum, en bát­arnir voru smíð­aðir á Íslandi, þá lést Árni í flug­slysi á leið­inni frá Argent­ínu til Mexíkó. Ég held ég fari rétt með það. Þá fór þetta verk­efni í upp­nám. Auðunn, eig­andi Trefja í Hafn­ar­firði, og Stefán voru kunn­ingjar og þeir höfðu sam­band við mig og spurðu hvort ég væri til í að stökkva inn í þetta verk­efni og klára það. Ég var þarna í raun og veru á þeim kross­götum að ég vissi ekk­ert hvað ég væri að fara að gera. Ég var búinn að klára minn samn­ing við þennan portú­galska útgerð­ar­mann og var að spá í hvað ég ætl­aði að fara að gera. Ég sló til og fór í þetta og með mér fóru tveir íslenskir sjó­menn, Ómar Sig­urðs­son minnir mig að hann heiti og Bessi frá Húsavík. Báðir vanir trillukarlar, hand­færa­jaxlar. Við fórum þrír saman niður eftir. Ég leiddi þetta verk­efni áfram; koma bát­unum af stað og þurfti að reg­istera þetta allt saman. Það tók langan tíma að koma þessu í fúnk­sjón.“

Þá var það for­seti Argent­ínu, Carlos Menem.

Verk­efnið átti að hefj­ast í útgerð­arbæ einum og fóru her­menn að verða áber­andi þar. „Við áttum að byrja þetta form­lega dag­inn eftir og ætl­aði eig­and­inn að koma þá og kíkja á þetta. Það voru her­menn þarna skríð­andi út um allt. Svo kom þyrla morg­un­inn eftir með hinn raun­veru­lega eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins. Þá var það for­seti Argent­ínu, Carlos Menem. Þá birt­ist hinn raun­veru­legi eig­andi Pata­gon­ian Seafood; Carlos Menem.

Ég var sá eini í hópnum sem var spænsku­mæl­andi og ég sýndi honum bát­ana og virkni þeirra, hvernig þetta fún­ker­aði allt saman og hvernig við hugs­uðum okkur að þetta verk­efni hæf­ist og hver þró­unin í því yrði. Svona bla, bla bla í klukku­tíma. Hann var spenntur og við fórum í smá­hring með hann út úr höfn­inni og hann virt­ist vera voða­lega áhuga­samur um þetta.“ Fjöl­miðla­fólk var mætt á stað­inn og seg­ist Guð­mundur hafa farið í útvarps­við­tal. „Þetta vakti mikla athygli.“

Guð­mundur segir að Ómar og Bessi hafi fljót­lega farið heim til Íslands eftir að verk­efnið hafi verið farið af stað. „Og ég var einn þarna með konu og eitt barn og keyrði þetta áfram og kom öllum bát­unum í snún­ing. Á meðan ég var þarna var þetta allt komið í full swing. Fljót­lega eftir að ég fór heim frétti ég af því að þetta fyr­ir­tæki hafði splitt­ast upp og bát­arnir seldir. Það virk­aði eins og það væri verið að koma pen­ingum út úr heild­ar­verk­efn­inu. Þessir bátar eru þarna ennþá og þetta eru ákaf­lega vel heppn­aðir bátar.“

Guð­mundur fór heim eftir eitt og hálft ár og þá var verk­efni hans lokið. „Þá var ég áfram í tengslum við Trefja, sem höfðu smíðað sjö báta, og Auðun Ósk­ars­son, eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, spurði hvort ég væri til­bú­inn að fara á þessum staka bát sem þeir héldu út úr þessu verk­efni og sigla honum um Evrópu í sýn­ing­ar­ferð. Þá var það verk­efni sem þeir voru að setja upp með Útflutn­ings­ráði og fleiri aðilum. Þetta var sam­starfs­verk­efni nokk­urra fyr­ir­tækja. Ég sló til og tók níu mán­uði í þetta verk­efni. Báturinn fór með einu skipa Eim­skipa­fé­lags­ins til Rott­er­dam; ég tók við honum í Rott­er­dam og sigldi honum yfir til Belgíu þar sem verk­efnið hófst form­lega. Það var þannig hugsað að ég sigldi bátnum á milli fiski­bæja og -borga og sýndi bát­inn; færi út með áhuga­sama fiski­menn og sýndi þeim virkni báts­ins.“

Í fram­hald­inu hefur báta­smiðjan Trefjar selt megnið af sinni fram­leiðslu á erlendan markað.

Guð­mundur sigldi bátnum frá Belgíu og eftir norður- og vest­ur­strönd Frakk­lands og eftir norður- og vest­ur­strönd Spánar og með fram Portúgal. „Báturinn var í tvo mán­uði á heims­sýn­ing­unni í Lissabon 1998.“ Síðan var siglt til Suður-Englands, til Dan­merkur og loks Noregs og bát­ur­inn fór á sýn­ingu í Þránd­heimi. Þaðan var svo siglt til Shetlandseyja og end­aði í Bret­landi þar sem hann fór um borð í einn Fossinn og var siglt með hann heim.

„Í fram­hald­inu hefur báta­smiðjan Trefjar selt megnið af sinni fram­leiðslu á erlendan markað.“

Kynn­ingin skiptir öllu máli.

„Þetta var byrj­unin á því.“

Annað verk­efni tók þá við. Fram­kvæmda­stjóri Útflutn­ings­ráðs Íslands hafði sam­band við Guðmund og spurði hvort hann væri til í að fara til Malasíu. „Finnur Ing­ólfs­son, þáver­andi við­skipta­ráð­herra, hafði farið með íslenska sendi­nefnd fyr­ir­tækja og fjár­festa til Tælands og Malasíu á viðskiptashow; það var skrifað upp á díl við fiski­mála­ráðu­neytið í Malasíu um að Íslend­ingar væru vel heima í því sem kall­ast sjálf­bær sjáv­ar­út­vegur og var ákveðið að fá ein­hvern íslenskan sér­fræð­ing til þess að skoða hvort það væri hægt að upp­greida mala­sískan sjáv­ar­út­veg á ein­hvern hátt. Til að gera langa sögu stutta þá var ég til í þetta. Ég var fyrst ráð­inn í sex mán­uði og fór ég á milli fiski­þorpa í Malasíu og tal­aði við fiski­menn. Við vorum aðal­lega við línu­veiðar og svo­lítið í trolli; þetta var verk­efni sem hálf­part­inn mis­heppn­að­ist,“ segir Guð­mundur sem var þó þarna í þrjú ár.

Hafnarstjóri

Starf hafn­ar­stjóra Ísa­fjarð­ar­bæjar var aug­lýst og Guð­mundur var hvattur til að sækja um.

„Ég henti inn umsókn. Ég þekkti ekk­ert af þessu fólki sem var að úthluta þessu starfi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var við völd og ég yfir­lýstur komm­ún­isti; stofn­fé­lagi í Vinstri Grænum. Þannig að allra síst átti ég von á því að fá starfið.“

En Guð­mundur fékk starfið og það er búið að laða að fjölda skemmti­ferða­skipa til Ísa­fjarðar. 20 ár og Guð­mundur er að hætta.

Ég komst fljót­lega að því að það gengur út á per­sónu­leg tengsl.

„Ég verð 67 ára fljót­lega eftir ára­mótin og ég er búinn að vera þarna í 10 ár og þetta er mjög krefj­andi starfi. Það hafa verið mörg tæki­færi sem við höfum náð að nýta. Eitt aðal­upp­leggið þegar ég var ráð­inn sem hafn­ar­stjóri á Ísafirði var að það var minnk­andi kvóti í bænum, minni afli land­aður, tekj­urnar höfðu minnkað og höfnin var í við­var­andi tap­rekstri. Aðal­upp­leggið með það þegar ég var ráð­inn var að auka tekjur og fara í mark­aðs­setn­ingu fyrir skemmti­ferða­skip. Forveri minn, Hermann heit­inn Skúlason, var byrj­aður á því en svo féll hann skyndi­lega frá. Það var ákveðið að ég myndi taka þann bolta og halda áfram. Ég fór blautur á bak við eyrun inn í þá ljóna­gryfju að fara að kynn­ast því hvernig mark­aðs­setn­ing gengur fyrir sig; hvernig hafnir eru mark­aðs­settar sem við­komu­staður skemmtil­ferða­skipa. Ég komst fljót­lega að því að það gengur út á per­sónu­leg tengsl. Maður nær að tengj­ast fólki sem raun­veru­lega ræður því hvar skipin eru að sigla og maður byggir upp það sam­band og reynir að gera eins vel og maður getur þegar skipin koma í höfn. Ferða­þjón­usta eða ferða­þjónar á Ísafirði hafa byggst upp með þessu og við höfum alltaf fengið gott feedback á það.“

Skipa­komur árið 2018 voru 106. Gerð var könnun það ár og segir Guð­mundur að í ljós hafi komið að 1,2 millj­arður króna hafi orðið eftir í sam­fé­lagiu á Ísafrði. „Þetta er meira en menn þorðu að giska á í sínum blaut­ustu draumum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins