„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dagbjört fann fyrir heilögum anda: „Ég gat ekki höndlað þetta, fór í yfirlið og datt í gólfið“

Dagbjört fann fyrir heilögum anda: „Ég gat ekki höndlað þetta, fór í yfirlið og datt í gólfið“

Hildur María Sæv­ars­dóttir tók við­tal við söng­kon­una, laga- og texta­höf­und­inn Dag­björtu Rúriks­dóttur í hlað­varps­þætti sínum Lifa og Njóta.

Dagbjört gaf nýverið út smá­skíf­una Rauðu Flöggin undir lista­manns­nafn­inu DIA en hægt er að hlusta á plöt­una meðal ann­ars á Spotify.

Fædd söngkona

En vildi hún alltaf verða söng­kona?

„Síðan ég fædd­ist þá bara, ég get næstum því sagt að ég hafi fæðst syngj­andi en það væri hauga­lygi, en hérna en síðan ég man eftir eða síðan ég var svona sex, sjö ára hef ég alltaf elskað að syngja. Ég byrj­aði reyndar í ball­ett, það er svona það fyrsta sem ég gerði þegar ég var svona fimm ára. Var að læra ball­ett í tólf ár, djass­ball­ett, nútíma­dans, hip hop líka aðeins; er ekk­ert geggjuð í hip hop en þú veist got the rhyt­hmn eða vil ég halda.“

Var ball­ett­inn þá það sem gaf henni styrk til að þora að koma fram?

„Jú, nefni­lega. Ég kom alltaf fyrst fram sem dans­ari og svo fór ég að syngja þegar ég var sjö, átta og leik­list með því; söng og leik­list í Borg­ar­leik­hús­inu. Fór svo í Söngvaborg og það var ein­hvern veg­inn svona byrj­unin á mínum söng­ferli.“

„Ég fann þarna að þetta væri eitt­hvað sem ég vildi gera og er búinn að vera að syngja síðan þá en ég byrj­aði ekk­ert að semja fyrr en svona 2015. Þá hafði ég líka loks­ins eitt­hvað að tala um; maður hefur ekk­ert eitt­hvað tala um þegar maður er bara ungur og vit­laus en svo um leið og maður lendir í fyrstu ást­ar­sorg­inni, en fyrsta lagið var reyndar um svona fyrstu alvöru ást­ina mína en það var ást­ar­lag og svo kom ást­ar­sorg­ar­lag og þú veist, en þar byrj­aði þetta.“

„Allt sem ég sem um er um 100% lífs­reynslu bara frá hjart­anu, eitt­hvað sem ég hef lent í og svo er bara mis­jafnt hvaða til­finn­ingar ég er að ganga í gegnum og svo sem ég út frá því þannig að ég er að basically að meina hvert ein­asta orð. Lagið er alger­lega sann­sögu­legt, Baby I‘m Sick, svo er vídjóið bara svona dramat­ísk útgáfa af hvað basically með­virkni í hálf­gerðu ofbeld­is­sam­bandi gerir þér, skil­urðu, þú gerir bara allt fyrir gaur­inn; eitt­hvað sem þú myndir aldrei gera vana­lega en svo endarðu bara í skítnum.“

Sjósundið

Hún vill helst eyða dög­unum sínum í að rugla í fólki og stunda sjó­sund. Hana rekur minni til þess að hafa séð fólk nýta sér köldu pott­ana í sund­laug­unum og hugs­aði með sér að það hlyti að vera eitt­hvað veru­lega að þeim því varla nokkur gæti viljað láta sig hafa þessa þján­ingu vilj­andi en það átti eftir að breyt­ast og mælir með sjó­sundi fyrir alla.

„Ég man­aði mig í kalda pott­inn og ég fékk svo mikið rush eftir þetta; ég fékk svo mikla end­or­fín­losun að ég fór alltaf aftur og aftur og aftur eins og maður gerir sko. Og svo plat­aði ég mig í sjó­sund, braut ísinn með því, það var hræði­legt fyrstu tvær mín­út­urnar svo dofn­aði lík­am­inn og svo fór ég að tengja mig við nátt­úr­una og tala við vini mína og eftir á var ég hlát­ur­skasti í þrjá tíma. Ég veit ekki hvort það sé bara ég en það svo mikil end­or­fín­losun í gangi heil­anum, ég er nátt­úru­lega edrú þannig að ég þarf að fá mitt kick ein­hvers­staðar sko, og ég bara hef ekki hætt þessu síðan. Ég er bara í sjó­sundi þrisvar til fimm sinnum í viku á sumrin en það er kaldi pott­ur­inn á vet­urna.“

Erfitt að hætta í ruglinu

Dagbjört fór í svo í með­ferð fyrir tæpum þremur árum síðan.

„Ég er með edrú app í sím­anum sem sýnir mér hvað ég er búin að vera lengi edrú en ég man auð­vitað eftir edrúd­eg­inum mínum því þetta er mik­il­væg­asti dagur lífs míns eig­in­lega, 2. des­em­ber 2019 þannig að ég fór reyndar ekki í með­ferð, ég hérna ein­hvern veg­inn, fyrst þegar ég reyndi að verða edrú það var 19. ágúst 2018. Ég man það ein­hvern veg­inn upp á tíu því ég var búin að vera svo glötuð við kærast­ann minn, þáver­andi kærasta, og ég var svo miður mín og hann hafði eitt­hvert kvöldið þegar ég var að vera eitt­hvað leið­in­leg og var að segja eitt­hvað leið­in­lega hluti þá skrif­aði hann allt sem ég var að segja niður í Notes, eitt­hvað sem ég myndi aldrei muna eftir næsta dag því ég var bara blind full, og svo sá ég þetta næsta dag og horfði á þetta svona og var bara frosin, ég var bara voru þetta hlutir sem ég var að segja, þetta var eins og ein­hver önnur mann­eskja, ég horfði bara á þetta frosin í svona tvær mín­útur og hann var bara „ætlarðu ekki að segja eitt­hvað?“ og fór svo bara að gráta og ég fór upp og sett­ist í ein­hvern sófa og var bara þar í sjokki! Ég hélt að ég væri bara ein­hver partý­stelpa og ég hélt að ég væri bara skemmti­leg á djamm­inu sem ég var kannski fyrir ókunn­ugu fólki eða fólki sem þekkti mig ekki vel en svo hleypti ég út öllum mínum sárum og öllum mínum áföllum og því sem ég var ekk­ert búin að vinna í við þann sem stóð mér næst og sagði bara ein­hverja ógeðs­lega hluti og ég trúði ekki að þetta væri ég! Og ég var svo miður mín að þetta var í fyrsta skiptið eftir sirka níu ára helg­ar­neyslu sem ég ákvað að gera eitt­hvað í mínum málum.“

Hún hélt sér edrú í um fjóra mán­uði en þar sem hún var ekk­ert að vinna í sjálfri sér datt hún aftur í það en þá leit­aði hún í sterk­ari efni og kynnt­ist fólki sem var að nota kókaín.

„Það var nátt­úru­lega mjög aðlað­andi að geta fengið svona dýrt og áhrifa­ríkt efni bara frítt, þangað til ég ánetj­að­ist því. Ég fór frá því að vera bara eitt­hvað „ég ætla að taka eina línu fyrir þig“, eitt­hvað þykj­ast bara vera cool, yfir í að vera bara „má ég fá meira?!“ – ég var bara orðin fík­ill. Þá var ég orðin virki­lega hrædd.“

Eftir það fór hún að fara á fundi en vissi þá ekki hvernig hún átti að snúa sér og var hálf týnd í líf­inu.

„Ég var samt alltaf að detta í það svona inn á milli, ég var eig­in­lega bara að drekka kaffi og skoða strák­ana og veit ekk­ert hvað ég var að gera.“

Varð edrú eftir rosalega helgi

„Ég varð edrú eftir rosa­lega helgi þar sem ég var orðin svo veik af alkó­hól­isma að ég gerði bara allt til að fá meira en áfengi en tímdi ekki að kaupa það sjálf þannig að ég end­aði í partýi eftir bæinn með ein­hverjum strákum sem ég treysti engan veg­inn og þeir voru sem sagt að bjóða mér ein­hverja pípu. Þetta leit út fyrir að vera bara graspípa eða eitt­hvað, og ég var bara „já, það er ekki neitt fyrir mér!“, og þá kom bara að mér ein­hver stelpa í partý­inu upp úr þurru að mér og sagði bara „Heyrðu! Ég held að þú þurfir að fara heim núna!“. Ég hélt bara að hún væri eitt­hvað öfund­sjúk og kærast­inn hennar í partý­inu eða hún eitt­hvað pirruð að ég væri þarna. Ég var aðeins pirruð við hana en samt ein­hvern veg­inn ókei, fór með henni í leigu­bílnum. Ég vissi ekk­ert hver þessi stelpa var, hún bara kom ein­hvern veg­inn upp úr þurru og það ljóm­aði ein­hvern veg­inn af henni. Svo kom ég heim og sofn­aði, hringdi í hana næsta dag og ég sagði bara „Takk fyrir að koma mér heim en hvað var í gangi? Af hverju vild­irðu svona að ég færi?

„Þú veist að þú varst að fara að reykja krakk er það ekki?“

„Þetta var eitt­hvað sem ég var búin að lofa mér að ég myndi aldrei gera, reykja krakk! Þú veist, ég vissi alveg hvað ég var að gera, ég vissi alveg hvað ég var að gera, fá mér nokkra Mangó-Tangó og hafa gaman að líf­inu og þykj­ast vera bara alveg með þetta en þarna var ég næstum farin að reykja krakk!“

Hinn heilagi andi

Eftir þetta fékk hún sér stuðn­ings­full­trúa og fór heils­hugar í gegnum sporin með henni. Hún var þá orðin það örvænt­ing­ar­full að hún ákvað að fara með stuðn­ings­full­trú­anum sínum á sam­komu.

„Ég var að hlusta á svo ein­lægan og fal­legan söng upp á sviði og svo var eitt­hvað fólk þarna fremst bara „Ó Jesús!“ en ein­hvern veg­inn var þetta svo ein­lægt og rosa­lega fal­legt og hvort sem að þessi gæji væri til, eða þessi andi, þá fann ég bara hvað kær­leik­ur­inn var ríkj­andi þarna inni og sam­ein­ingin og sam­kenndin og frið­ur­inn sem ég fékk og ég varð bara lítil í mér. Allt í einu þessi gríma sem var búin að vera á and­lit­inu mínu í mörg ár, þessi bimbó gríma sem ég vildi að neinn myndi sjá mig eða særa mig aftur, skil­urðu? Hún bara svona lak af mér og ég fór að hágráta og ætl­aði að reyna að fara.“

Þá fékk stuðn­ings­full­trú­inn hennar hana til að fara og láta biðja fyrir sér, sem hún sam­þykkti með sem­ingi.

„Ég bað ein­hvern gæja um að láta biðja fyrir mér og hann bað fyrir mér og ég bara lok­aði aug­unum og hann bara lagði hönd­ina á ennið á mér og sagði „Heilagi faðir, viltu fylla hjarta hennar …“ eða eitt­hvað svona, ég man ekki nákvæm­lega hvað hann sagði en það var eitt­hvað öfl­ugt og fal­legt. Áður en ég vissi af var hann far­inn að tala tungum og ég var hætt að skilja þetta. Allt í einu fann ég að hann var eitt­hvað að snerta mig og ég var bara „Af hverju er þessi gæji eitt­hvað að snerta mig?“ og ég opn­aði augun og hann var ekk­ert að snerta mig! Ég hélt að ég væri að missa vitið því ég var blá­edrú og ég fann sterkt að ein­hver var að snerta mig. Þetta var svona eins og kær­leikur og friður og skil­yrð­is­laus ást og léttir og sam­ein­ing. Og þetta var svo rosa­lega öfl­ugt að ég gat ekki höndlað þetta, fór í yfir­lið og datt í gólfið. Ég veit ekki hversu oft ég hef horft á sjón­varpið og verið hlæj­andi að fólki sem dettur í gólfið og sagði að þetta væru allt leik­arar og þetta væri kjána­legt en ég var ekki að leika, þetta var bara raun­veru­legt. Ég lá bara í gólf­inu og bara eitt með honum eða henni eða þessu. Ég kýs að kalla þetta heilagan anda en það veit eng­inn hvað þetta er fyrr en við förum.“

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarviðtal

Endaði einhentur eftir blackout á Spáni: „Fíkniefnadjöfullinn hann hrifsar allt frá þér“
InnlentHelgarviðtal

Endaði ein­hentur eftir blackout á Spáni: „Fíkni­efna­djöf­ull­inn hann hrifsar allt frá þér“

Einar Örn Sig­urðs­son eða Einsi glæpur eins og hann oft kall­aður segir frá sögu sinni þegar hann missti hand­legg­inn 8. nóv­em­ber 2017 og átaka­legum atburðum í ein­lægu við­tali hjá Reyni Trausta­son. Leiðir Einars og Reynis lágu saman árið 2005 við gerð bók­ar­innar Skugga­börn þar sem saga og þátt­taka Einars spil­aði viða­mik­inn þátt. Þætt­irnir Hvað varð um Skugga­börn eru aðgengi­legir á...
Einkaviðtal: Þegar Halldór teiknari hætti á Mogganum: Teiknaði Davíð með strokleður
InnlentHelgarviðtal

Einka­við­tal: Þegar Halldór teikn­ari hætti á Mogganum: Teiknaði Davíð með strokleður

Halldór Bald­urs­son teikn­ari hætti að teikna í Morg­un­blaðið nokkru eftir að Davíð Oddsson tók við rit­stjórn blaðs­ins. Hann lýsir aðdrag­and­anum í við­tali við Mannlíf. „Davíð tók við; ætli það hafi ekki verið 2009. Það var auð­vitað mik­ill styr í kringum það. Hann með sína for­sögu auð­vitað. Það fór ekk­ert vel í alla. Það var ekk­ert verið að ýta mér í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu