„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Snævar bíður eftir sjöttu kynleiðréttingaraðgerðinni: „Ég er pínu tilraunadýr í þessu“

Snævar bíður eftir sjöttu kynleiðréttingaraðgerðinni: „Ég er pínu tilraunadýr í þessu“
Snævar Óðinn Pálsson

„Það er mjög erfitt and­lega að bíða en ég er að bíða eftir síð­ustu aðgerð­inni,“ segir Snævar Óðinn Pálsson sem er búinn að fara í fimm aðgerðir í tengslum við kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli og er sú sjötta og jafn­framt síð­asta eftir. Hann segir að málið snú­ist um að skurð­lækn­ir­inn sem mun fram­kvæma aðgerð­ina geri samn­ing við Land­spít­al­ann. „Ég er búinn að fara í tvær kyn­færa­að­gerðir og þriðja kyn­færa­að­gerðin, sem er þessi sjötta aðgerð í heild­ina, felst í því að málm­plata verður fest við líf­beinið og úr henni kemur stafur sem er settur inn í getn­að­ar­lim­inn og þá mun ég geta beygt hann upp og haft hann í reisn eða ekki. Þessi aðgerð hefur ekki verið gerð oft hér á landi þannig að ég er pínu til­rauna­dýr í þessu þannig að það verður bara spenn­andi að sjá. Biðin eftir þess­ari aðgerð hefur ekki áhrif á útlitið heldur gæði mín í kyn­lífi. Þetta er erfitt and­lega; það er and­lega erfitt að bíða eftir þeirri aðgerð.“ Áður hafði Snævar farið í brjóst­nám, lag­fær­ingu á brjóst­nám­inu og leg­nám.

Mjög hrætt barn

Snævar fædd­ist í lík­ama stúlku á Akureyri fyrir 32 árum og þar ólst hann upp. Hverjir voru draum­arnir í æsku?

„Ég ætl­aði að verða for­seti.“ Hann segir frá fleiru. „Þegar vinir mínir í leik­skól­anum spurðu hvað ég ætl­aði að verða þegar ég yrði stór þá var svarið „strákur“. Það var eins og ég átt­aði mig á því að að það væri eitt­hvað að. Þegar ég kom út sem trans árið 2014, 23 ára gam­all, sagði æsku­vin­kona mín, sem ég hafði kynnst í leik­skóla, að hún vissi að ég væri trans.“

Geð­lækn­ir­inn sem ég hitti þegar ég ákvað að fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli sagði að þetta væri örugg­lega tengt því að ég var trans­barn.

Snævar var sendur til sál­fræð­ings sjö ára gam­all og var greindur með áráttu- og þrá­hyggjuröskun sem og kvíða­röskun og hefur síðan tekið lyf. „Geð­lækn­ir­inn sem ég hitti þegar ég ákvað að fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli sagði að þetta væri örugg­lega tengt því að ég var trans­barn; það hefði örugg­lega mikið að segja að alast upp í röngu kyni en ég var að díla við það. Svo hef ég líka dílað við átröskun. Ég var bara mjög veikur þegar ég var ung­lingur og ungur ein­stak­lingur.“

Snævar segir að þrá­hyggju- og árátturösk­unin hafi falist í að hann var á tíma­bili hræddur við allt. „Ég var hræddur við greni­tré ekki af neinni ástæðu. Ég var hræddur við múm­íur ekki af neinni ástæðu. Ég fékk áráttu fyrir ein­hverju og var bara hræddur. Ég var mjög hrætt barn. Ég hef heyrt að ég hafi verið mjög ákveð­inn til að byrja með þegar ég fór í leik­skóla en um leið og ég byrj­aði í grunn­skóla þá byrj­aði ég að fá þessi ein­kenni áráttu- og þrá­hyggju­rask­ana og kvíð­arask­ana. Ég var bara mjög kvíðið barn. Bara mjög svo. Ég díl­aði alltaf við mikið stress.“

Snævar var 17 ára mennta­skóla­nemi þegar hann eign­að­ist vin sem er trans­kona í dag. „Þetta var mik­ill „live changer“. Vá, ég skildi hvað hún átti við og þá skildi ég hvað var í gangi hvað mig varð­aði. En ég þorði ekki og hafði hvorki and­lega né lík­am­lega getu til að fara í gegnum ferlið þegar ég var 17 ára. Ég átti við mik­inn geð­rænan vanda að stríða og fór ekki í ferlið fyrr en ég var 23 ára. En ég fann fyrir gleði­til­finn­ingu þegar ég var loks­ins kom­inn með orð yfir það 17 ára gam­all hvernig mér leið og það var mik­ill léttir þótt ég hafi ekki farið í gegnum ferlið strax.“

Ég keypti stelpu­föt og hún keypti strákaföt og svo skiptum við.

Sævar segir að þau hafi stundum farið að versla. „Ég keypti stelpu­föt og hún keypti strákaföt og svo skiptum við. Þegar hún kom út byrj­aði ég að klæð­ast strákafötum en ég var líka stundum í stelpu­fötum en mér fannst ekk­ert gaman að fara í kjól.“

Snævar seg­ist aðal­lega hafa talað við vin sinn, vin­konu sína, um það að hann væri trans og svo fór hann að nefna þetta við aðra vini sína um það leyti sem hann kom út sem trans nokkrum árum síðar. „Þegar ég var 20-23 ára var ég aðeins að planta „the seeds“; þá sagði ég til dæmis að ég hefði verið að horfa á mynd­band um trans­stráka og það væri áhuga­vert hvernig þeir færu í gegnum ferlið. Vinir mínir spurðu af hverju ég væri að pæla í þessu. Ég tal­aði líka um þetta við for­eldra mína. Ég sagði þeim svo árið 2013 að ég væri að fara að hitta geð­lækn­inn sem fólk sem hefur áhuga á að fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli talar gjarnan við og þau spurðu mig hvort ég væri að fara í trans­ferli. Ég sagð­ist halda að það væri málið.“

Efaðist Snævar aldrei?

„Nei, ég held ekki.“

Mútur og hárvöxtur

Það var í mars árið 2014 sem Snævar hitti geð­lækn­inn. „Hann sagði að ég skyldi næstu 12 mán­uði klæða mig eins og karl­maður, velja mér karl­manns­nafn og lifa í sam­fé­lag­inu eins og karl­maður og að hann myndi svo skoða það að láta mig á karl­horm­óna eftir 10 – 12 mán­uði. Það var ömur­legt að þurfa að bíða en þetta gekk mjög vel og allir í kringum mig tóku þessu vel,“ segir Snævar sem seg­ist ekki hafa orðið fyrir for­dómum þó að einn og einn hafi komið með komment í gegnum tíð­ina. „Ég átti erfitt með að fela brjóstin en ég var með stór brjóst. Svo var ég með háa rödd.

Þetta fór svo að tikka um leið og ég byrj­aði á horm­ónum í febr­úar ári síðar. Þá fór mér að líða miklu betur. Þetta var bara allt annað. Röddin byrj­aði að breyt­ast tveimur til fjórum vikum eftir að ég byrj­aði á horm­ón­unum. Það var eins og ég væri kom­inn með háls­bólgu en ég var kom­inn í mútur og ég var í mútum í ábyggi­lega 10 mán­uði. Röddin var það fyrsta sem breytt­ist. Svo fór ég að fá hár út um allt; það popp­uðu upp hár til dæmis á bring­unni, upp­hand­leggj­unum og bak­inu. Ég fékk hins vegar ekki skegg. Ég fór í blóðprufu eftir að hafa verið búinn að taka karl­horm­óna í eitt ár og þá kom í ljós að ég væri með of lágt testesterón og þá fór ég að taka skammt­inn á 10 vikna fresti í stað þess að gera það á 12 vikna fresti og þá fór ég að fá skegg.“

Ég var eins og ung­lings­strákur og mér leið svo vel með allar þessar til­finn­ingar.

Snævar segir að breyt­ingar á and­legri líðan hafi verið miklar í fyrstu eftir að hann fór að taka karl­horm­óna. „Ég fór á fyrstu vik­unum að finna fyrir ofsa­lega mik­illi orku og ég gat borðað mjög mikið. Ég var eins og ung­lings­strákur og mér leið svo vel með allar þessar til­finn­ingar. Ég hugs­aði með mér að ég væri loks­ins að ganga í gegnum það sem ég hefði átt að ganga í gegnum sem ung­lingur en fékk ekki. Ég væri þó loks­ins að ganga í gegnum þetta en með heila full­orð­innar mann­eskju. Það var þess vegna svo­lítið erfitt að fara í gegnum kyn­þrosk­ann vit­andi allt sem ég veit sem full­orð­inn ein­stak­lingur en vera með til­finn­ingar á við ung­ling. Þetta var pínu­lítið skrýtið. Þannig að fyrstu tvö árin voru „erf­ið­ust“ hvað varðar allar breyt­ing­arnar og ég var að læra inn á sjálfan mig upp á nýtt.“

Sílíkonkúlur sem eistu

Snævar fór í fyrstu aðgerð­ina, brjóst­námið, í des­em­ber 2015. Og hann efað­ist aldrei.

„Ég gat ekki beðið eftir þess­ari aðgerð. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa líð­an­inni eftir aðgerð­ina; ég var svo ánægður. Ég var loks­ins laus við þetta,“ segir hann og á við brjóstin. „Það var svo þægi­leg til­finn­ing.“

Hann segir að mestu verkirnir hafi verið í kjöl­far kyn­færa­að­gerð­anna tveggja.

Í aðgerð­inni var tekin húð og hluti af tveimur lær­vöðvum til að búa til getn­að­ar­lim; það vantar á mig part af tveimur lær­vöðvum og þess vegna þurfti ég að læra að ganga upp á nýtt.

„Ég fór í þá fyrri í des­em­ber 2017 og mestu verkirnir fylgdu henni og ég var óvinnu­fær í meira en mánuð og þurfti að fara í sjúkra­þjálfun til að læra að ganga upp á nýtt og það var bara heill pakki. Í aðgerð­inni var tekin húð og hluti af tveimur lær­vöðvum til að búa til getn­að­ar­lim; það vantar á mig part af tveimur lær­vöðvum og þess vegna þurfti ég að læra að ganga upp á nýtt. Ég er í sjúkra­þjálfun af því að ég fæ verki af og til og þetta er til trafala en ég læri bara að lifa með þessu og það gengur bara vel. Göngu­lagið er orðið eðli­legt; það þurfti nokkra mán­uði eftir aðgerð­ina til að kom­ast í gang en svo lag­að­ist þetta.“

Snævar fór í aðgerð­ina með kyn­færi konu en vakn­aði með getn­að­ar­lim. „Það var ein­hvern veg­inn svo rétt. Þetta átti að vera svona.“

Hann segir að ekki sé búið að full­komna aðgerð til að lengja þvag­rás­ina þannig að hann pissar eins og hann gerði fyrir aðgerð­ina. „Ég pissa ekki með getn­að­ar­limnum. Það hafa verið gerðar slíkar aðgerðir sums staðar erlendis en þær hafa sumar mis­tek­ist; það hafa komið upp sýk­ingar og það hefur farið að leka. Þetta er bara vesen. Ég fékk sýk­ingu eftir aðra aðgerð­ina á kyn­færum þegar settar voru sílíkonkúlur sem eistu, en það var teygt á húð­inni sem var þar og settar kúlur í, og fékk ég sýk­ingu í annað eistað og lá á sjúkra­húsi í nokkra daga. Ég fékk sýkla­lyf og svo var þetta allt í lagi.“

Snævar segir að núna þori hann loks­ins að fara í sund og að hann hafi ekki áhyggjur af neinu þegar hann fer í sund. „Èg get stundað heil­brigt kyn­líf og mér líður bara vel með það. Það hefur bara verið gott. En það er leið­in­legt að vera ekki með reisn. Ég fíla mig samt alveg í kyn­lífi.“

Á geðdeild

Snævar var í námi í félags­vís­indum og nútíma­fræði við Háskól­ann á Akureyri en hann hætti í nám­inu eftir að hann fór að taka karl­horm­ón­ana og fór að vinna. „Ég hafði unnið í Rúm­fatala­gernum með námi en ég fór svo að vinna þar í fullu starfi í eitt ár, ég fór síðan að vinna á bar þar sem ég vann í þrjú ár og þá fór ég að vinna hjá Póstinum í dreif­ingu og sem bréf­beri og vann þar þangað til ég fór í veik­inda­leyfi í árs­byrjun 2021. Þá var ég bara kom­inn með svo mikla kvíða­röskun og áfallastreituröskun að ég gat ekki unnið. Það má segja að ég hafi fengið tauga­á­fall og er núna í end­ur­hæf­ingu.“

Þetta var snjó­bolti sem rúll­aði og rúll­aði og varð alltaf meiri og á end­anum gafst ég upp.

Snævar segir að hvað áfallastreiturösk­un­ina varðar teng­ist hún nokkrum áföllum sem hann hafði ekki verið búinn að vinna úr svo sem kyn­ferð­is­of­beldi þegar hann var ung­lingur og það að hann datt úr báti þegar hann sigldi ásamt fleirum niður á í svoköll­uðu „river raft­ing“ og hélt að hann væri að deyja. „Ég fékk enga áfalla­hjálp eftir þetta og ég átti erfitt með að fara í sturtu og að fá vatn á and­litið á mér.“ Svo voru kvíða­köstin slæm. „Síðan var ég líka kom­inn með mjög mikla átröskun; ég var far­inn að svelta mig og í ágúst í fyrra var ég kom­inn niður í 49 kíló,“ segir Snævar sem seg­ist vera 166 sentí­metrar á hæð. „Ég var far­inn að svelta mig þannig að heil­inn var ekk­ert að virka vel. Þetta var snjó­bolti sem rúll­aði og rúll­aði og varð alltaf meiri og á end­anum gafst ég upp. Ég gat ekki unnið út af hræðslu, kvíða og þung­lyndi.“

Snævar hafði verið í sam­bandi sem lauk á þessum tíma og dag­inn eftir fór hann inn á slysa­deild og sagð­ist þurfa hjálp frá geð­deild­inni þar sem hann væri með sjálfs­vígs­hugs­anir og gæti ekki meira. Þá var hann lagður inn á geð­deild. „Þá fór bolt­inn að rúlla. Þá fékk ég hjálp frá geð­deild­inni og lá inni í nokkrar vikur. Svo fékk ég inni hjá göngu­deild­inni og var mjög lengi í end­ur­hæf­ingu hjá þeim. Núna er ég í end­ur­hæf­ingu hjá VIRK.“

Ley

Bróðir Snævars býr í Kanada og þangað fór Snævar í sumar ásamt for­eldrum sínum og systur sinni og börnum hennar. Þar kynnt­ist hann Ley Freser.

„Þetta er mann­eskja sem er non-bin­ary; kynsegin eða hán. Á Wikipedia segir: „ Kynsegin er hug­tak sem nær yfir fólk sem skil­greinir kyn sitt utan tví­hyggju kynja­kerf­is­ins. Sumt kynsegin fólk er t.d. karl­kyns og kven­kyns, annað hvorki karl­kyns né kven­kyns eða skil­greinir ekki kyn sitt. Kynsegin er því í raun regn­hlíf­ar­hug­tak undir regn­hlíf­ar­hug­tak­inu trans.“

„Ley fædd­ist í kven­manns­lík­ama og er með kven­manns­lík­ama,“ segir Snævar, „og er ekk­ert ósátt við það heldur er bara non-bin­ary. Við kynnt­umst úti í Kanada og fórum á tvö deit og eftir þessi tvö deit var ég alltaf heima hjá Ley. Við bara byrj­uðum saman og erum ótrú­lega ham­ingju­söm og ætlar Ley að koma til Íslands um jólin og verður hjá mér um jólin og ára­mótin. Það er bara æðis­legt.

Kyn­vit­undin hjá hán er rosa­lega „fluid“. Hán skil­greinir sig hvorki sem karl eða konu heldur bara sem mann­eskju.“

Ég skil­greini mig sem pan­sexual.

Snævar segir að hann hafi í um 90% til­vikum í gegnum tíð­ina heill­ast frekar af kven­legum mann­eskjum sem skil­greini sig sem hún eða hán. „Ég heill­ast af þessu kven­lega eðli. Ég hef verið í sam­bandi með manni og ég hef alveg stundað kyn­líf með karl­mönnum en ég er bara hrif­inn af þeim í svo minni­hluta til­fella. Ég skil­greini mig með pankyn­hneigð; í því felst að hríf­ast að per­sónu óháð kyni. Vera hrif­inn af per­sónu­leika.“

Fylgja innsæinu

Snævar er spurður hvað hann hafi lært af þessu öllu sem hann hefur gengið í gegnum. „Það mik­il­væg­asta sem ég hef lært af þessu er að vera trúr sjálfum mér, að fylgja inn­sæ­inu og fylgja því hvernig mér líður í hjart­anu og fylgja því eftir. Ekki hlusta á hvað aðrir segja svo sem að ég væri ekki trans eða að ég væri lesbía. Og það má alltaf hætta við; það má alltaf bakka og breyta. Það hefði ekk­ert verið að því ef ég hefði byrjað að taka karl­horm­óna en gert mér svo grein fyrir því að þetta væri ekki fyrir mig. Ég hefði alveg verið „jafn­valid“ mann­eskja.“

Snævar seg­ist dreyma um að vinna með trans­fólki í fram­tíð­inni og þar á meðal trans­börnum. „Mig langar að hjálpa þeim í gegnum ferlið og mig langar að geta verið stuðn­ings­að­ili hvort sem það væri í sjálf­boða­liða­starfi eða hvort ég færi í sál­fræði. Ég veit það ekki. En mig langar að vinna með trans­fólki og miðla af reynslu minni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins