„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vanda og steintröllin í Katar

Vanda og steintröllin í Katar
Vanda Sig­ur­geirs­dóttir er for­maður KSÍ

Ferðalag topp­anna hjá Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands til Katar er lýsandi fyrir þann und­ir­lægju­hátt sem er ríkj­andi í garð þeirra fanta sem ráða ríkjum í þessu ríki for­dómanna. Yfirvöld í Katar hafa grímu­laust látið i ljós andúð sína á sam­kyn­hneigðum og FIFA, Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bandið, tekur undir með þeim. Hug­myndir knatt­spyrnu­manna um að bera arm­band til stuðn­ings hinseg­in­fólki voru slegnar út af borð­inu og þeim hótað refs­ingu með gulu spjaldi ef af þessu yrði. For­svars­menn FIFA eru enn einu sinni að gera upp á bak. Saga sam­bands­ins er stráð spill­ing­ar­málum sem vakið hafa ógeð víða um heims­byggð­ina.

Ástæðu þess að örríkið Katar fékk keppn­ina má rekja til spill­ingar þar sem mútur koma við sögu. Nýir for­svars­menn FÍFA eru litlu skárri. Þeir heiðra skálk­inn með því að sam­þykkja í raun ofsókn­irnar gegn sam­kyn­hneigðum. Samkvæmt til­skipun Katara þá mega sam­kyn­hneigðir vera í land­inu en þeir mega ekki faðm­ast eða láta vel að hverju öðru. Þeir verða að vera ósýni­legir. Stein­tröllin í Katar vaða uppi með ævaforna for­dóma sem lýð­ræð­is­ríki hafa fyrir löngu kveðið niður að mestu. Þau draga með sér þjóðir sem ættu að geta staðið í lapp­irnar gegn mið­alda­sjóna­mið­unum en gera það ekki. Þeirra á meðal eru Íslend­ingar.

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ, lagði leið sína til Katar og gaf þannig öfga­fólk­inu klapp á bakið. Sama er að segja um þá starfs­menn Rík­is­út­varps­ins sem heiðra skálk­ana í Katar með því að mæta í full­komnu til­gangs­leysi. Allt þetta fólk ætti að skamm­ast sín fyrir að ýta undir ómennsku stjórn­valda smá­rík­inu með nær­veru sinni.

Íslenska Knatt­spyrnu­sam­bandið er raunar frægt af endemum. Þar var gerð hall­ar­bylt­ing þegar spillt for­ysta var látin víkja og Vanda kom sem ridd­ari á hvítum hesti til að sið­væða og hreinsa út ófögn­uð­inn. Nú er staðan sú að hún hefur brugð­ist vonum fólks­ins. Lands­lið­skar­lar eru verð­laun­aðir  á hátíð­ar­stundu en kon­urnar ekki. Vanda lætur svo hafa sig í þá óhæfu að fara til Katar þar sem for­dóm­arnir ríkja og spóka sig.

Rík­is­út­varpið er á sama báti. Í stað þess að sitja heima og mót­mæla þannig, væfl­ast þeir um og taka við­töl hvert við annað. Rík­is­sjón­varpið fer til Katar í óþurft­ar­ferð með til­heyr­andi kostn­aði og tekur við­tal við Vöndu sem beygir af og kvartar undan vondum fjöl­miðlum. Sam­ansúrrað banda­lag um að lyfta öfga­lið­inu í Katar á stall. Þetta er ógeðs­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðari

Katrín og silfurpeningarnir þrjátíu
Skoðun

Kolbeinn Þorsteinsson

Katrín og silf­ur­pen­ing­arnir þrjá­tíu

Staða íslenskra stjórn­mála­flokka gagn­vart kjós­endum er sífellt til umræðu hér á landi. Skoð­ana­kann­anir eru fram­kvæmdar sem sýna eiga raun­fylgi hvers og eins og fara þá sumir flokkar með him­in­skautum en fylgi ann­arra er sem botn­fall í ann­ars tómri vín­tunnu. Rík­is­stjórn­ar­flokkar fá alla gjarna slæma útreið í slíkum könn­unum, enda er þeim kennt um allt sem miður hefur farið í heim­il­is­haldi...
Ríkisútvarp á villigötum: Stöðugar endursýningar og froða
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Rík­is­út­varp á villi­götum: Stöðugar end­ur­sýn­ingar og froða

Rík­is­út­varpið er eitt­hvert und­ar­leg­asta fyr­ir­bæri íslenskrar fjöl­miðla­sögu. Stofn­unin sogar til sín aug­lýs­inga­tekjur á kostnað ann­arra fjöl­miðla. Til við­bótar þiggur stofn­unin millj­arða króna af almannafé á hverju ári. Afrakst­ur­inn er í raun afar tak­mark­aður ef litið er til menn­ing­ar­legs til­gangs. Und­an­tekn­ingin er Rás 1 þar sem í gegnum tíð­ina hefur verið haldið úti metn­að­ar­fullri dag­skrár­gerð. Sú breyt­ing hefur orðið á þar...
Hættuleg eyðibýlastefna stjórnvalda
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Hættuleg eyði­býla­stefna stjórn­valda

Sauð­kindin hefur um aldir verið lífs­björg Íslend­inga ásamt sjáv­ar­út­veg­inum. En eins og í öllu líf­rík­inu þá verða upp­á­komur sem skilja á milli lífs og dauða. Riða er óhugn­an­legur sjúk­dómur sem veldur því að skera þarf niður allt fé sem hefur kom­ist í snert­ingu við hina sýktu. Nýverið fengu Íslend­ingar enn eina áminn­ingu um þetta skað­ræði þegar riða kom upp í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins