„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mín fyrsta Costco ferð

Mín fyrsta Costco ferð

Fyrir fimm árum síðan gerð­ist nokkuð sem fáir ef ein­hverjir höfðu þorað að vona hér á landi. Stór­versl­unin Cosco opn­aði á Íslandi. Ég man nú ekki dag­inn sem það gerð­ist en ég er nokkuð viss um að himn­arnir hafi opn­ast og englar sungið í kór, slík var dýrðin senni­lega.

Stofn­aðar voru um fimm Costco-grúppur á Facebook en sú vin­sælasta, Costco gleði hefur um 55 þús­und fylgj­endur. Ég end­ur­tek, 55 þús­und fylgj­endur. Einhver snið­ugur stofn­aði grúpp­una Costco ógleði en þar eru ekki nema 28 hræður. Gleðin vegna þess­arar versl­unar tröll­reið Íslandi fyrstu árin og þótti sumum um of á tíma­bili. Ekki hefur gleðin minnkað neitt sér­stak­lega en hún er kannski tamd­ari ef svo má að orði kom­ast.

En nú, fimm árum síðar er ég loks­ins búinn að fara í Costco! Ég hef verið á leið­inni alltof lengi en ein­hvern­veg­inn ekki þorað því, fyrr en ég náði loks­ins að berja í mig kjark. Af hverju þorði ég ekki fyrr? Ég veit það ekki almenni­lega, risa­stór flæmi finnst mér svo­lítið yfir­þyrm­andi og svo hef ég heyrt að fólk eigi auð­velt með að eyða miklu meiri pen­ing en það ætl­aði sér og hann hefur oft verið af skornum skammti hjá mér, pen­ing­ur­inn.

Það fyrsta sem ég tók eftir var að það var brjálað að gera. Ég átti í erf­ið­leikum með að finna bíla­stæði en náði loks­ins að leggja litla bílnum mínum fyrir framan tvo glæsi­lega Kia-bíla. Það minnti mig á besta bíl sem ég hef átt, Kia Magentis sem ég klessti fyrir nokkrum árum. Þannig að ég kom inn nokkur dapur í bragði. Fyllti út eitt­hvað eyðu­blað og fékk svo kort afhent með ljós­mynd af mér sem var aldrei þessu vant, bara nokkuð vel heppnuð.

Við inn­göngu í versl­un­ina tók á móti mér korta­lög­regla sem skann­aði nýja kortið mitt því ekki viljum við Costco-klúbb­með­limir að óalandi og skítugur almúg­inn fái að versla þarna, nei, sorry, þetta er bara fyrir með­limi með kort. Svo blasti her­leg­heitin við. Hvílíkt flæmi, hví­líkt enda­laust flæmi! Mér leið svo­lítið eins og þegar ég álp­að­ist alveg óvart inn á Paloma og horfði yfir dans­gólfið, ég var staddur í öðrum heimi, öðrum veru­leika.

Ég hafði vit á því að taka ekki risa­vaxna inn­kaupa­körfu með mér inn í búð­ina, eins og aum­ingja litli gamli karl­inn sem ég sá við inn­gang­inn. Maðurinn hefði létti­lega getað kom­ist fyrir í körf­unni. Ég hló með sjálfum mér við þá til­hugsun og hélt áfram för minni. Athygl­is­brest­ur­inn sem ég er greindur með fór gjör­sam­lega á yfir­snún­ing þarna inni því alls­staðar sem ég leit, var eitt­hvað að sjá sem ég hafði aldrei séð áður eða eitt­vað sem ég hafði séð áður en ekki svona mikið af. Ringlaður gekk ég fram­hjá allskyns raf­tækjum og staldr­aði við fal­lega raf­magns­rak­vél og var virki­lega far­inn að spá í að splæsa í eina en mundi þá að ég er alskeggj­aður. Næst kom ég að fata­fjöll­unum en sá nokkurn veg­inn ekk­ert sem vakti áhuga minn þó að veð­ur­próf­aðar úlp­urnar hljóm­uðu ágæt­lega, ekki myndi ég vilja kaupa úlpur sem ekki væru veð­ur­próf­aðar.

Allt í einu sá ég hóp björg­un­ar­sveita­manna með til­heyr­andi leit­ar­bún­aði og spurði nær­staddan starfs­mann hvað væri í gangi. Það hafði eldri karl­maður týnst í versl­un­inni efir að hann varð við­skila við eig­in­konu sína dag­inn áður. Ég held að hann hafi fund­ist graf­inn undir grá­bláum galla­buxum, skelk­aður en heill á húfi.

Hægt er að sjá pistil­inn um Costco-ferð­ina í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem hægt er að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Síðast en ekki síst

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins