„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristín Ósk Bjarnadóttir Hildur er risastór persóna í of litlum líkama

Kristín Ósk Bjarnadóttir Hildur er risastór persóna í of litlum líkama
Kristín Ósk Bjarna­dóttir

„Stökk­breyt­ing á með­göngu leiddi til þess að myndun brjósks varð óeðli­leg og kom hún fram í breyttri beina­grind með stóru höfði miðað við aðra lík­ams­hluta, stuttum útlimum – styttri upp­hand­leggs- og lær­leggs­bein – og breiðum höndum með stuttum kjúkum svo dæmi um ein­kenni séu nefnd. Meðalhæð full­orð­inna karla er um 130 sentí­metrar en konur verða um 120-122 sentí­metrar. Það eru til yfir 200 afbrigði af dverg­vexti og algeng­asta afbrigðið heitir Achondroplasia og það er það sem Hildur er með. Líkurnar á að tveir heil­brigðir ein­stak­lingar eign­ist barn með dveg­vöxt eru einn á móti 25.000,“ segir Kristín Ósk Bjarna­dóttir en dóttir hennar, Hildur, er með dverg­vöxt. Hildur er 11 ára

„Með­gangan gekk vel framan af en svo var hún frekar strembin þegar líða fór á hana. Það mæld­ist of mikið leg­vatn í skoðun og svo kom í ljós að hún væri mjög höf­uð­stór og var ég í reglu­legu eft­ir­liti hjá fæð­ing­ar­lækni og ljós­móður. Ég var sett 22. apríl en um mán­að­ar­mótin mars/apríl var ég lögð inn á fæð­ing­ar­deild­ina á Akureyri. Í fyrstu áttu þetta að vera tveir til þrír dagar og átti bara að fylgj­ast með mér og henni og ég fór í alls kyns skoð­anir. Ég er eig­in­lega alveg á því að læknar og ljós­mæður hafi vitað meira en þau gáfu upp. Ég lá inni í viku áður en hún fædd­ist og það var því­líkt teymi sem kom og hitti mig með reglu­legu milli­bili; læknar, sál­fræð­ingur, félags­ráð­gjafi og allar ynd­is­legu ljó­m­æð­urnar sem unnu þar á þeim tíma. Á þessum tíma fannst mér ekk­ert athuga­vert við þetta þar sem ég hafði dottið niður í fæð­ing­ar­þung­lyndi þegar ég átti elstu dótt­ur­ina en minna með hinar. Eftir á að hyggja var verið að byggja mig and­lega upp af því að það var ekki allt eins og það átti að vera.“

Svo skoð­aði barna­læknir hana dag­inn eftir og sagði okkur að hann grun­aði að hún væri með svo­kall­aðan dverg­vöxt.

Fæðingin var sett af stað 8. apríl. Hildur var tæp­lega 16 merkur og 53 sentí­metrar sem Kristín Ósk segir að þyki vera magnað miðað við barn með dverg­vöxt.

„Við sáum ekk­ert athuga­vert við hana í fyrstu enda dásam­leg lítil bolla eins og systur hennar voru. Hún fékk topp­ein­kunn í fyrstu skoðun og svo skoð­aði barna­læknir hana dag­inn eftir og sagði okkur að hann grun­aði að hún væri með svo­kall­aðan dverg­vöxt. Hann var alveg ynd­is­legur og reynd­ist okkur svo vel næstu árin sem hann fylgdi henni eftir. Hún fór svo í nán­ari skoð­anir og sýna­tökur sem stað­festu grun hans.“

Grjóthörð

Kristín Ósk seg­ist ekki hafa fengið þá yfir­þyrm­andi til­finn­ing að það væri eitt­hvað að barn­inu. „Ég var svekkt­ari yfir því að hún fékk smá­gulu og var löt að drekka og það tafði fyrir heim­för. Það má eig­in­lega segja að frá fyrstu stundu höfum við ákveðið að takast á við þetta nýja verk­efni með jákvæðni að leið­ars­ljósi og ekki annað hægt með þennan gull­mola í fang­inu.“

Kristín Ósk segir að þau hjónin hafi fengið litla fræðslu í upp­hafi en að það hafi breyst þegar þau fóru að hitta sér­fræð­inga. „Það var mikið og gott utan­um­hald í fyrstu og við fórum reglu­lega með hana í eft­ir­lit til dæmis hjá barna­læknum og bækl­un­ar­lækni og hún fór í sjúkra­þjálfun. Við vorum bara í ein­hverri búbblu sem hélt utan um okkur, við fengum sím­hring­ingar eða tölvu­pósta um hvar og hvenær við áttum að mæta með hana næst og svo datt allt niður þegar hún var fimm til sex ára. Það varð alltaf lengra og lengra á milli tím­anna eftir því sem hún elt­ist og svo hættu ein­hverjir og fluttu erlendis. Það hefur ein­hvern veg­inn allt gengið svo vel og ekki mikið lík­am­legt sem er að angra hana þannig að við höfum heldur ekki verið að kalla eftir þessum tímum.“

Í dag þegar hún er 11 ára gömul þá virð­ast henni flestir vegir vera færir.

Hvaða hug­myndir hafði Kristín Ósk á þessum tíma um fram­tíð dóttur sinnar? „Í fyrstu voru nú svo sem ekki miklar pæl­ingar um það en síðar komu svo kannski smáá­hyggjur um það hvernig henni myndi farn­ast með sína fötlun en í dag þegar hún er 11 ára gömul þá virð­ast henni flestir vegir vera færir en hún er grjót­hörð; hún æfir frjálsar íþróttir og gengur prýði­lega í skól­anum.

Hún keppti í fyrra­dag í frjálsum íþróttum á Akureyri og fékk við­ur­kenn­ingu fyrir frá­bæran árangur og bæt­ingu í öllum greinum sem hún keppti í; kúlu­varpi, 60 metra hlaupi og lang­stökki. Hún er svo elju­söm og frá­bært að hún láti ekki fötlun sína stoppa sig í að taka þátt. Þess má geta að hún er að keppa með jafn­öldrum sínum. Hildur er um 107 sentí­metrar og jafn­aldrar hennar á bil­inu 140-160 sentí­metrar.“

Einstaklega lausnamiðuð

Kristín Ósk segir að Hildur hafi alla tíð verið glað­vær stelpa en að hún hafi mikið skap sem reyn­ist henni vel á margan hátt. „Hún lætur fátt stoppa sig en að sama skapi getur það svo sann­ar­lega reynt á þol­rifin. Við höfum stundum grín­ast með það að það sem vantar upp á hæð­ina komi fram í meiri áræðni og drif­krafti. Hún er ein­stak­lega lausn­a­miðuð og sem dæmi má nefna að til að bjarga sér við að opna úti­dyrnar tók hún upp á því að nota enda á skó­horni til að opna dyrnar án aðstoðar. Hún getur líka staðið upp úr sitj­andi stöðu með því einu að halla sér fram. Hún hefur frá upp­hafi haft gaman af dúkkum og hlut­verka­leik og hefur í dag alveg ein­stak­lega gaman af litlum börnum.“

Hvað varðar áhrif dverg­vaxt­ar­ins á Hildi segir Kristín Ósk að hann felist aðal­lega í að það sé erfitt að finna föt á Hildi og þá sér­stak­lega úti­föt. „Það er erf­ið­ara að klippa neðan af skálm­unum á snjó­buxum en galla- eða jogg­ing­buxum. Það er vel haldið utan um Hildi hérna í Húna­skóla á Blöndu­ósi, þar sem við búum, og er verið að huga að þáttum sem geta auð­veldað henni dag­legar athafnir; það er til dæmis verið er að skoða sér­stakan stól fyrir hana sem gætir sér­stak­lega að réttri lík­ams­stöðu. Við erum einnig sjálf að upp­færa eld­húsinn­rétt­ingu hjá okkur og sér­pönt­uðum sér­stök útdrag­an­leg þrep í hana sem við fluttum inn frá Banda­ríkj­unum. Þessi þrep eru hugsuð til að auð­velda henni aðgengi og gera henni kleift að vera meira sjálf­bjarga í eld­hús­inu.“

Horft, pískrað og bent

Kristín Ósk segir að það hafi verið þegar Hildur byrj­aði í grunn­skóla sem hún fór sjálf að taka eftir því að hún væri lág­vaxn­ari en jafaldrar sínir.

„Það hafði óneit­an­lega áhrif og því fylgdu að sjálf­sögðu stundum von­brigði. En að sama skapi er stundum lika kostur að vera minni heldur en stærri, það fylgja öllu kostir og gallar.“

Það er svo helst þegar við förum suður sem við verðum meira vör við áreiti í hennar garð.

Hvað með for­dóma?

„Það er svo sann­ar­lega kostur að búa í litlu sam­fé­lagi þar sem allir þekkja alla og upp­lýst umræða er um fötlun hennar. Það er svo helst þegar við förum suður sem við verðum meira vör við áreiti í hennar garð; það er mikið horft, pískrað og bent sem hún verður vör við og finnst virki­lega óþægi­legt.“

Kristín Ósk neitar því ekki að dverg­vöxt­ur­inn hafi jafn­vel styrkt Hildi og gert hana sjálf­stæð­ari og sterk­ari en ella. „Annars er hún mjög dug­leg að til­einka sér hina ýmsu hluti og læra að lifa með sinni fötlun. Hún fer líka býsna langt á skap­inu ef hún ætlar sér eitt­hvað.

Hildur er risa­stór per­sóna í of litlum lík­ama og algjört til­finn­inga- og hæfi­leika­búnt. Hún er alltaf syngj­andi og dans­andi. Hún hikar ekki við að segja eða láta fólk vita ef henni líkar við það. Hún er mjög lagin í hönd­unum og á örugg­lega eftir að sauma á sig föt í fram­tíð­inni.  Hún hefur ein­stakt lag á börnum og þau lað­ast að henni og hún hefur mikið spáð í hvort hún eigi ekki örugg­lega eftir að eign­ast börn í fram­tíð­inni.“

Það er oft ansi sárt

Kristín Ósk segir að þau hjónin séu þakk­lát og stolt af Hildi á hverjum degi. „Það eru alls konar áskor­anir sem fylgja því að eiga barn með dverg­vöxt; þegar hún var yngri sner­ist þetta um að fá bíl­stól við hæfi því höf­uðið var svo þungt og þurfti að gæta sér­stak­lega að því. Í dag snýst þetta um að fá föt við hæfi og hjól þar sem hnakk­ur­inn er nógu neð­ar­lega, afstaða stýris og petala henti henni og örygg­is­bún­aður sé í lagi. Það getur verið ofboðs­lega erfitt að upp­lifa með Hildi von­brigðin þegar eitt­hvað sem hana langar í passar henni ekki eins og föt og skór; það er oft ansi sárt.“

Þau hjónin vilja kynnst fleiri íslenskum fjöl­skyldum þar sem eru börn með dverg­vöxt. „Við vitum um nokkra með dverg­vöxt á Íslandi en það eru engin sam­tök eða utan­um­hald um þennan hóp enda sjálf­sagt svo fámennur. Við höfum verið í sam­bandi við for­eldra þriggja drengja sem eru nálægt Hildi í aldri, það er gott að geta leitað eitt­hvert ef mann vantar svör við ýmsu þessu tengt. Við myndum gjarnan vilja stækka þennan hóp og fá inn ein­stak­linga sem eru eldri og hafa meiri reynslu. Og við hvetjum fólk á öllum aldri að setja sig í sam­band við okkur.“

Ég tel að það hafi hjálpað mér mikið að alast upp við að eiga ynd­is­lega móð­ur­systur með Downs heil­kenni og það sé alls ekki sjálf­gefið að eign­ast heil­brigð börn.

Kristín Ósk við­ur­kennir að hún líti lífið öðrum augum en áður vegna þess að Hildur er með dverg­vöxt. „Óneit­an­lega gerir maður það en ég tel að það hafi hjálpað mér mikið að alast upp við að eiga ynd­is­lega móð­ur­systur með Downs heil­kenni og það sé alls ekki sjálf­gefið að eign­ast heil­brigð börn.“

Fjölbreytt verkefni

Kristín Ósk sagði að það væri kostur að búa í litlu sam­fé­lagi og líður fjöl­skyld­unni vel á Blöndu­ósi. Kristín Ósk er gift Guðmundi Hauki Jak­obs­syni og eiga þau fjórar dætur á aldr­inum 11 – 23 ára. Guð­mundur Haukur er pípu­lagn­inga­meist­ari og mat­reiðslu­maður og er for­seti sveit­ar­stjórnar í Húna­byggð.

„Ég er mennt­aður leik­skóla­kenn­ari og er nýlega farin að vinna í leik­skóla aftur eftir fimm ára pásu frá því starfi. Ég er í 50% starfi sem deild­ar­stjóri í leik­skól­anum hér og 50% starfi á skrif­stofu hjá N1 pípar­anum sem er pípu­lagn­inga­fyr­ir­tæki sem mað­ur­inn minn og bróðir eiga og reka. Svo sjáum við Gummi, eða reyndar meira ég, um rekst­ur­inn á félags­heim­il­inu á Blöndu­ósi. Við leigjum það af sveit­ar­fé­lag­inu og sjáum svo um að leigja það áfram fyrir ýmsa við­burði. Við erum svo sjálf með veislu­þjón­ustu og bjóðum upp á ýmiss konar veit­ingar eftir því hvað við á hverju sinni. Við höfum til dæmis séð um árs­há­tíðir hjá fyr­ir­tækjum, jóla­hlað­borð, afmæli, brúð­kaup, þorra­blót og erfi­drykkjur. Ófá sveita­böllin hafa verið haldin í hús­inu og þau eru nú alltaf í upp­á­haldi hjá mér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvöldviðtal Mannlífs

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síðasta skipti: „Ég er að berjast í þessu“
Menning

Geir Ólafsson heldur Las Vegas Christmas Show 2023 í síð­asta skipti: „Ég er að berj­ast í þessu“

Geir Ólafsson heldur á næst­unni sjö­unda árið í röð stór­sýn­ing­una Las Vegas Christmas Show í Gamla bíói og fer hann sem endranær á kostum ásamt hljóm­sveit Don Randi og gesta­stjörnum. Randi, sem mætir með sitt „big­band“, hefur starfað með ýmsum banda­rískum stjór­stjörnum og má þar nefna Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra og Michael Jackson....
Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geðræn vandamál“
InnlentKvöldviðtal Mannlífs

Diljá: „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál“

„Ég var alveg svo­lítið erf­iður ung­lingur“ segir Diljá Pét­urs­dóttir söng­kona og þátt­tak­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision 2023. „Ég var að glíma við alls konar geð­ræn vanda­mál,“ svarar hún, í við­tali hjá Reyni Trausta­syni, aðspurð hvort hún sé trúuð og segir það helstu ástæðu þess að hún hafi hald­ist svo lengi innan kirkj­unar. Diljá byrj­aði ung að syngja í kirkjukór...
Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jólaflóðinu: „Mér finnst gaman á jólum“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Illugi með þrjár bækur og tvö spil í jóla­flóð­inu: „Mér finnst gaman á jólum“

Feðginin Illugi Jök­uls­son og Vera Ill­uga­dóttir eru dýrkuð og dáð sem dag­skrár­gerð­ar­fólk í útvarpi. Þau eru þó að sýsla ýmis­legt annað og nú fyrir jólin er Illugi með tvö spil og þrjár bækur í jóla­bóka­flóð­inu. Eina þeirra, bók­ina Dýrin, skrif­uðu þau feðginin saman. „Við Vera tókum saman og skrif­uðum bók­ina um dýrin, ein­fald­lega af því dýr eru svo skemmti­leg og...
Trausti með tvö skemmtileg jólaspil í verslunum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Trausti með tvö skemmti­leg jóla­spil í versl­unum: „Ótrúlega gaman að standa í þessu“

„Hvað er ég eig­in­lega búinn að koma mér út í?“ spyr Trausti Haf­steins­son spila­út­gef­andi sig reglu­lega þessa dag­ana en hann gefur ekki bara út eitt heldur tvö íslensk borð­spil fyrir þessi jól. Spilin tvö eru Gettu betur spurn­inga­spilið og skemmtispiliið Hræri­grautur. Gettu betur og Hræri­grautur eru komin í versl­anir í tak­mörk­uðu upp­lagi. Íslensk spil hafa einmitt verið valin jóla­gjöf árs­ins...
Móðir heimilislauss manns stígur fram og krefst breytinga: „Við höfum verið með lögregluvernd“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Móðir heim­il­is­lauss manns stígur fram og krefst breyt­inga: „Við höfum verið með lög­reglu­vernd“

Á Íslandi er tals­verður fjöldi heim­il­is­lausra og lítið um úrræði fyrir þennan hóp. Fólk á öllum aldri leita í athvörf og gisti­skýli sem ætluð eru heim­il­is­lausum. Mannlíf ræddi við móður 25 ára manns sem neyð­ist til að leita í gisti­skýlið á Lind­ar­götu en þar er aðstaða fyrir 25 karl­menn. „Ég hef ekk­ert sam­band við hann nema ein­staka sinnum þegar hann...
Samúel er að gera frábæra hluti í tónlistinni: „Tónlist með mikinn persónuleika höfðar til mín“
ViðtalKvöldviðtal Mannlífs

Samúel er að gera frá­bæra hluti í tón­list­inni: „Tónlist með mik­inn per­sónu­leika höfðar til mín“

Samúel Reyn­is­son er ungur og efni­legur tón­list­ar­maður frá Hafn­ar­firði, mennt­aður píanó­leik­ari sem spilar einnig á fjölda ann­arra hljóð­færa. Mannlíf sett­ist niður með Samúel og frædd­ist um líf hans og list, en hann seg­ist njóta matar- og kok­teil­gerðar í botn og er alveg að ná tökum á inn­an­húss garð­yrkju. Samúel, segðu mér aðeins frá því hvaðan þú kemur, frá æsk­unni, námi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins